Þjóðviljinn - 21.03.1981, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 21.-22. raars 1981.
Útboð
Hitaveita Eyra óskar eftir tilboðum i lögn
„Aðveituæðar 1. áfanga.”
Aðveituæðin er 200 mm við i þvermál,
plasteinangruð stálpipa, grafin i jörð.
Heildarlengd er um 8,5 km.
Útboðsgögn verða afhent gegn 500.- kr.
skilatryggingu á skrifstofu Stokkseyrar-
hrepps, Hafnargötu 10 Stokkseyri og i
Reykjavik á Verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f.Álftamýri9.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 9. april
1981 kl. 14.00 á skrifstofu Stokkseyrar-
hrepps, Hafnargötu 10, Stokkseyri.
Hitaveita Eyra.
BHM HÍK
Orlofshús
Bandalag háskólamanna minnir félags-
menn sina á, að frestur til að sækja um or-
lofsdvöl næsta sumar i orlofshúsum
bandalagsins að Brekku i Biskupstungum
rennur út 25. mars.
Frestur til að sækja um dvöl i orlofshúsum
Hins islenska kennarafélags rennur út 31.
mars.
Skrifstoíur BHM og HIK eru að Hverfis-
götu 26. Simar hjá BHM eru 27877 og 21173
og hjá HIK 21066.
Bandalag háskólamanna.
Hið isienska kennarafélag.
Atvinna óskast
Tækniteiknari óskar eftir heilsdagsvinnu.
Getur annast öll almenn skrifstofustörf.
Upplysingar i sima 45375 um helgina og
eftir kl. 6 virka daga.
iH Lóðaúthlutun —
Reykjavík
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum
um byggingarrétt á eftirgreindum stööum:
A. Við Eyrarlandog Fossvogshverfi:
Einbýlishúsalóðir, parhúsalóðir, rað-
húsalóðir og f jölbýlishúsalóðir.
B. Við öskjuhlíðarskóla:
Einbýlishúsalóðir, parhúsalóðir
og raðhúsalóðir.
C. Á Eiðsgranda 2. áfanga.
Einbýlishúsalóðir og raðhúsalóðir.
D. Á Eiðsgranda, 3. áfanga.
Einbýlishúsalóðir.
E. Seljahverfi:
Tvær einbýlishúsalóðir með hesthúsaðstöðu
F. I Nýjum Miðbæ, 2. áfanga:
Raðhúsalóðir og f jölbýlishúsalóðir.
Athygli er vakin á því að áætlað gatnagerðar-
gjald ber að greiða að fullu í þrennu lagi á
þessu ári. Á sama tíma skal greiða 75% af
áætluðum tengdum gjöldum.
Umsóknareyðublöð og allar upplýsingar um
lóðir til ráðstöfunar svo og skipulags- og út-
hlutunarskilmála verða veittar á skrifstofu
borgarverkf ræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, alla
virka daga kl. 8.20—16.15.
Umsóknarfrestur er til og meðó. apríl 1981.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja og skila á
sérstökum eyðublöðum er fást af hent á skrif-
stof u borgarverkfræðings.
Borgarstjórinn i Reykjavík.
Yfirlýsing
frá stjórn
Byggungí
Mosfellssveit
Vegna blaðaskrifa um kaup 3.
áfanga Byggingarsamvinnu-
félags ungs fólks i Mosfellssveit á
eldhúsinnréttingum, vill stjórn
félagsins og stjóm 3. byggingar-
flokks koma eftirfarandi athuga-
semdá framfæri:
Við afgreiðslu stjórnar á
kaupum 3. byggingarflokks á eld-
húsinnréttingum i ibúðir sinar,
var frá þvi' gengið, að innlendir
framleiðendur innréttinga fengju
tækifæri til jafns við innflytjendur
á að koma vöru sinni á framfæri.
Var i þvi sambandi leitað til
tveggja framleiðenda og tveggja
innflutningsaðila. Að öðru leyti
visaði stjórnin ákvörðun um kaup
á einstökum innréttingum til
þeirra aðila sem ibúðir eiga i 3.
áfanga.
Byggjendur i 3. áfanga kynntu
sér sjálfir þær innréttingar sem i
boði voru og tóku ákvörðun um
val innréttinga á eigin spýtur.
Stjórn Byggingarsamvinnufélags
ungs fólks iMosfellssveit litur svo
á, að _þeim aðilum, sem valiö
hafa að fjárfesta i ibúðarfram-
kvæmdum félagsins, sé það i
sjálfsvald sett hvemig þeir verji
fé sinu til kaupa á innréttingum i
ibúðir sinar. Hlutverk stjórnar og
framkvæmdastjóra er að fram-
kvæma vilja byggjenda i þeim
efnum.
Stjórnin visar algerlega á bug
ásökunum á hendur fram-
kvæmdastjóra félagsins, Arnar
Kjærnested, um undarlega við-
skiptaháttu af hans hálfu, og
leggur áherslu á að hlutur hans i
þessu máli er fyllilega i samræmi
við vilja umbjóðenda hans.
Stjórn Byggingarsamvinnu-
félags ungs fólks i Mosfellssveit
vill að siðustu itreka, að kaup
félagsins á eldhúsinnréttingum i
ibúðir 3. áfanga eru fram-
kvæmdar að vilja þeirra aðila
sjálfra, er ibúðir eiga i smiðum i
umræddum byggingaráfanga.
Stjórn félagsins mun ekki undir
neinum kringumstæðum leyfa sér
aðtaka ákvörðunarvald af byggj-
endum i' þessum málum, sem og
öðrum er lúta að innréttingum
ibúða þeirra. Ennfremur vonar
stjórnin að kúgunarhótanir ein-
stakra framleiðenda i þessu efni
séu einungsi orðin tóm, enda sé
það öllum aðilum fyrir bestu.
Samþykkt á stjórnarfundi
félagsins 18/3 1981.
Ilelga Einarsdóttir.
formaður Byggingar-
samvinnufélags ungs
fölks, Mosfellssveit.
Skagfirska
söngsveitin
heldur
hlutaveltu
Skagfirska Söngsveitin heldur
hlutaveltu , happamarkað og
kaffisölu i Drangey,Siðumúla 35, i
dag, laugardag, kl. 14.
Fjáröflunarnefnd Skagfirsku
Söngsveitarinnar hefur unnið
ötullega að öflun fjár til styrktar
söngfö ■ til Kanada 4. júni nk. og
væntir þess að vinir og velunnar-
ar kórsins liti við i Drangey á
laugardaginn, freisti gæfunnar,
fáisér kaffisopa og styrki um leið
starfsemikórsins.
EYJAFLUG
Brekkugötu 1 — Simi 98-1534
A flugvelli 98-1464
|= Hainarf jörður —
~ Lóðaumsóknir
Lóðum fyrir ibúðarhús i Hafnarfirði
verður úthlutað á næstunni á eftirtöldum
stöðum:
a) 30 einbýlishúsalóðir við Hraunvang og
Suðurvang.
b) 12 einbýlis- og parhúsalóðir við
Hraunbrún.
c) Fjölbýlis- og raðhúsalóðir i
Hvammahverfi.
Kynningarteikningar af fjölbýlishúsum og
raðhúsum i Hvammahverfi, ásamt skipu-
lagsuppdráttum af öllum ofangreindum
svæðum, verða til sýnis i Húsi Bjarna
riddara, Vesturgötu 6, frá 23.-29. þ.m.
sem hér segir:
mánudag til föstudags kl. 16 til 19
laugardag og sunnudag kl. 14 til 19.
Höfundar uppdrátta munu verða á staðn-
um á miðvikudag og laugardag kl. 17 til
19.
Umsóknareyðublöð fást á sýningarstaðn-
um og á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6.
Umsóknum skal skila til skrifstofu bæjar-
verkfræðings eigi siðar en 13. april n.k.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Bæjarstjóri.
PÓST- OG ,
SfMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
loftskeytamenn/símritara
til starfa á Höfn i Hornafirði og i
Neskaupstað.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild og stöðvarstjórum á
Höfn og i Neskaupstað.
Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bila á geymslu-
svæði ,,Vöku” á Ártúnshöfða, þurfa að
gera grein íyrir eignarheimild sinni og
vitja þeirra fyrir 15. april n.k.
Hlutaðeigendur hafi samband við af-
greiðslumann „Vöku” að Stórhöfða 3 og
greiði áfallandi kostnað.
Að áðurnefndum fresti liðnum verður
svæðið hreinsað og bilgarmar fluttir á
sorphauga á kostnað og ábyrgð eigenda,
án frekari viðvörunar.
Reykjavik, 16. mars 1981.
GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK
Hreinsunardeild.
® ÚTBOЮ
Tilboð óskast i lögn hitaveituæðar meðfram Höfðabakka
fyrir Hitaveitu Reykjavikur. Otboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3 gegn 2000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 8. april
n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800