Þjóðviljinn - 31.10.1981, Síða 6
• » *- *
»•*
Kt »**»»•*•* I t f l
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. okt. — 1. nóv. 1981
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Kitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Alfheiöur Ingadóttir.
Umsjdnarmaður sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar
Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
tþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi ólafsson.
útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: GuðrUn Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Ilúsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: SigrUn Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: SfðumUla 6,
Keykjavik, simi 81333
Prentun: Blaðaprent hf.
ritst jórnargrei n
Orkuframboð eykst um 30%
• Nú þann 28. október var f yrsti áfangi Hrauneyjar-
fossvirkjunar tekinn i gagnið, nokkrum dögum á
undan áætlun. Við byggingu þessarar miklu virkjunar
hafa íslensk fyrirtæki annast alla verkþætti og skilað
þeim af sér með sæmd og á réttum tíma.
• Þetta er fagnaðarefni því ekki er langt um liðið
síðan sjálfsagt og óhjákvæmilegt þótti að fela erlend-
um verktökum flesta vandasamari þætti við virkj-
unarframkvæmdir hér á landi. A síðasta ártug hefur
íslenskri verkkunnáttu á þessu sviði f leygt mjög fram
og eru framkvæmdirnar við Hrauneyjafossvirkjun
ánægjuleg staðfesting þess.
• Það er full ástæða til að færa þeim mönnum, sem
leggja á sig erfið störf við virkjanaframkvæmdir inn
á hálendinu þakkir fyrir þeirra framlag til okkar
sameiginlega þjóðarbúskapar. Þeirra hlutur er stór,
og þessar þakkir ber ekki aðeins að færa okkar ágætu
verkfræðingum og tæknimönnum, heldur einnig og
ekki síður iðnaðarmönnunum og verkamönnunum,
sem margir hafa aflað sér dýrmætrar verkþjálfunar
við störf að virkjanaframkvæmdum um árabil. Þessir
menn eiga ekki aö gleymast þegar fagnað er nýjum
áfanga í orkubúskap okkar.
• Með tilkomu fyrsta áfanga Hrauneyjafossvirkj-
unar nú og síðan annars áfanga sömu virkjunar þann
1. f ebrúar í vetur ætti að vera tryggt að á þessum vetri
komi hér ekki til orkuskorts, enda þótt eitthvað kunni
að þurfa að takmarka afnendingu afgangsorku til
stóriðjufyrirtækja, svo sem heimilt er samkvæmt
samningum.
• Talið er að frá 1980 til 1982 muni orkuvinnslugeta
landskerfisins aukast úr rúmlega 3100 gígawatt-
stundum á ári og í yfir 4000 GWH. Þetta er hvorki
meira né minna en 30% aukning raforkuframleiðsl-
unnar í landinu. Hér er fyrst og fremst um að ræða
Hrauneyjafossvirkjun, en fyrsti áfangi hennar, sem
nú hefur verið tekinn í notkun eykur orkuvinnslu-
getuna um 500 GWh á ári og síðan bætast300—400 GWh
á ári við með öðrum áfanga sömu virkjunar eftir þrjá
mánuði. Auk þessa tryggja svo f ramkvæmdir á þessu
og síðasta ári við svonefndar Kvíslaveitur á Þjórsár-
svæðinu aukna vinnslugetu í raforkukerfinu, sem
svarar70 til 100 GWh á ári. Og þegar lokið hefur verið
við Hrauneyjafossvirkjun mun uppselt afl í lands-
kerfinu hafa aukist um 40% frá því sem það var áður
en fyrsta vél virkjunarinnar fór í gang.
• Hér ætti því ekki að þurfa að kvíða orkuskorti á
næstu árum. Ef ekki kemur til nýr orkuf rekur iðnaður
gæti sú orka sem landskerf ið hef ur yf ir að ráða þegar
Hrauneyjafossvirkjun verður lokið dugað okkur að
fullu næstu fimm ár.
• En það eru fleiri áform uppi hvað varðar aukna
orkuframleiðslu á landi hér. A þessum fimm næstu
árum 1982—1986 getum við væntanlega lokið við aðrar
framkvæmdir á Þjórsársvæðinu, sem talið er að muni
auka orkuvinnslugetuna enn um allt að 700—800 GWh
á ári. Þessa umframorku fengjum við þá til ráðstöf-
unar til nýs iðnaðar smátt og smátt á næstu fimm
árum fram til ársloka 1986.
• Þær framkvæmdir sem he'r um ræðir og allar
taldar mjög hagkvæmar eru Kvíslaveitur með dýpkun
og stækkun Þórisvatns svo og bygging stíflu við
Sultartanga á ármótum Þjórsár og Tungnaár. Sam-
tals geta þessar f ramkvæmdir aukið orkuf ramboðiðið
álíka mikiðog heil Blönduvirkjun. Þess er að vænta að
áður en langt um líður verði síðan tekin ákvörðun um
næstu stórvirkjun, en þareru Blönduvirkjun og Fljóts-
dalsvirkjun efst á blaði samkvæmt yfirlýsingum
ríkisstjórnarinnar, en hvorug þeirra mun komast í
gagnið fyrr en í fyrsta lagi 1987, þótt framkvæmdir
hef jist á næsta ári. k.
Geir formaður
• Að síðustu örfá orð til að leiðrétta misskilning.
• Það er ekki rétt, sem Geir Hallgrímsson sagði á
Landsf undi Sjálfstæðisf lokksins að við höf um ráðlagt
f lokksmönnum hans að skipta um formann. Það hef ur
okkur aldrei dottið í hug. Þvert á móti höf um við hér í
Þjóðviljanum margítrekað stuðning okkar við Geir
Hallgrímsson sem formann Sjálfstæðisflokksins
a.m.k. til aldamóta. k.
úr aimanakinu
Fyrir nokkrum vikum birtist i
Sunnudagsblaði Þjóöviljans
viötal viö dr. Pétur M. Jónsson
prófessor i vatnaliffræöi viö
Kaupmannahafnarháskóla.
Hann stendur nú fyrir viötækum
rannsóknum á lifriki Þingvalla-
vatns og vatnasvæöi þess. En
hann er ekki bara visindamaöur
heldur er hann einnig hugsjóna-
maöur um verndun alls þessa
svæöis. Hann telur aö vatniö og
allur sjóndeildarhringur þess sé
ómetanlegur útivistarstaður i
framtiöinni fyrir þéttbýlisfólk á
SV-landi og reyndar landsmenn
alla. Þjóðgarðurinn er þegar
oröinn of litill og átroðningur
þar mikill. Helsta hættan aö
hans mati er sú aö sumar-
bústaöalönd séu aö bola al-
menningi frá vatninu. Allir eru
að giröa sér blett og loka aðra
úti.
1 Þingvallasveit einni eru nú
um 500 sumarbústaðir og ekki
eróliklegtaöi Grafningnum séu
um 100 sumarbústaðir. A
stórum svæöum útiloka þeir al-
menning frá strönd vatnsins.
Þannig má t.d. segja aö nær öll
strandlengjan frá Heiöarbæ i
Þingvallasveit aö Nesjum i
Grafningi sé afgirt. Jafnvel
innan þjóögarðsins hafa sumar-
bústaöir veriö leyföir eftir aö
hann átti að heita friöaöur. Þaö
var Þingvallanefnd sem út-
hlutaði þeim til gæöinga undir
þvi yfirskyni aö henni væri fjár
vant. Var það mikiö hneykslis-
mál fyrir 14 árum Einnig hefur
veriö leyfð löng röö hjólhýsa
innan þjóögarösins sem er til
háborinnar skammar þvi aö hún
er tíí lýta á þessum fagra og
fornhelga stað.
aumarbústaðir hafa sprottiö
upp eins og gorkúlur i
nágrannasveitum Reykjavikur.
Fyrir utan Þingvallasvæðiö er
t.d. Grimsnesið allt oröiö vaö-
andi i sumarbústööum og viss
svæöi i Borgarfiröi. Takmarka-
lausar sumarbústaöabyggingar
eru orðnar vandræði og timi til
Kárastaöanes meö
(Ljósmynd.: gel)
Þingvelli og Armannsfell I baksýn.
kominn að fara aö hugieiöa
hvernig er hægt aö sporna viö
þeim. Reyndar gengur rikiö á
undan með vondu fordæmi.
Gifurlegur fjöldi sumarbústaða
er t.d. á rikisjöröinni Heiöarbæ
og hefur hið opinbera úthlutaö
þeim. Sama má segja um Kára-
staöi.
Nú kunna ýmsir aö segja aö
sumarbústaöir séu bráðnauö-
synlegt fyrirbæri og má það til
sanns vegar færa i mörgum til-
fellum. Þó held ég aö nýting
þeirra sé sorglega litil. Fyrir
fáum árum fór undirritaður i
ferö um Grimsnes, Laugarvatn,
Þingvallasveit og Grafning og
gerði athugun á nýtingu bústaö-
anna þar. Ferðin var farin á
föstudegi i byrjun júli, aðal-
sumarleyfismánuöinum. Veðrið
var ákaflega gott en samt var
ekki verið i nema 3—5% sumar-
bústaöanna skv. lauslegri
könnun. Aö sjálfsögöu er nýt-
ingin betri um helgar en fer þó
varla yfir 50% um hásumar-
helgarnar. Og hásumariö er ekki
langur timi á Islandi. Mörg
dæmi eru náttúrlega til um aö
fólk dvelji meira eöa minna alit
sumarið i bústaö sinum en hin
eru miklu fleiri, aö aöeins sé
fariö um fáeinar helgar og
kannski i mesta lagi eina sam-
fellda viku. Fólk er gjarnan i
sumarbústööunum meöan verið
er aö reisa þá og meöan börnin
eru ung en siðan fer ferðum aö
fækka. Niöurstaöan er sum sé
sú aö nýting allra þessara dýru
og finu húsa sé hæsta litil miðaö
við tilkostnaö. Grun hef ég lika
um að margir hafi einkum reist
sér sumarbústaö til aö fjárfesta.
Til skamms tima hefur allt
lausafé oröið aö fara i eitthvaö
fast ef verögildi þess átti aö
haldast.
Guðjón (~
Friðriksson y
skrifar
Ég tel að timi sé kominn til aö
setja einhverjar hömlur viö
byggingu einkasumarbústaöa
og útivistarþörf Islendinga
verði frekar leyst á félagslegan
hátt eins og raunin hefur oröiö
með orlofshús stéttarfélaga sem
eru vel nýtt allt sumariö og
jafnvel á veturna lika. Þá mætti
einnig hugsa sér að fólk gæti
leigt sér kofa ef þaö vill njóta
sumarleyfis úti i guös grænni
náttúrunni og geti þá breytt til
frá ári til árs eða brugðiö sér til
útlanda þegar það hentar.
Ef af friöun Þingvallasvæöis-
ins veröur, eins og dr. Pétur M.
Jónsson berst nú fyrir, veröur
aö vinna að þvi hægt og rólega
aö útrýma bústööunum við
vatnið svo aö allir íslendingar
geti notið þess. Náttúrufegurö
er óvenjulega mikil hvarvetna i
kringum vatniö og hægt aö velja
margvislegar gönguleiöir. Sjón-
deildarhringurinn er óvenjulega
fagur og þar er hægt að sjá
hinar fjölbreytilegustu eld-
stöövar, ekki bara einstaka gigi
og sprungur við og i vatninu
heldur einnig t.d. Skjaldbreiöur
og Þrasaborgar á Lyngdals-
heiði. Hengilssvæðið er eitt
mesta háhitasvæöi landsins. Af
öörum fögrum fjöllum má nefna
Súlur, Armannsfell, Kálfstinda,
Tindaskaga, Dimon, Langjökul
og Hrafnabjörg. I tillögu Péturs
er gert ráö fyrir aö friölandiö
nái til Botnsdals i Hvalfirði en
þar er mikil náttúrufegurð,
skógur og lækir meö Glym, einn
hæsti foss landsins.
Rannsóknir dr. Péturs M.
Jónssonar og félaga hans hafa
leitt i ljós að Þingvallavatn er
frjósamt en ekki lifvana eins og
margir hafa haldiö. Gróöur-
breiöur þekja um þriöjung af
botni vatnsins og þar eru hin
ákjósanlegustu lifsskilyrði fyrir
silung. Talið er aö þetta sé eina
vatniö i heiminum þar sem
fjórar tegundir af bleikju
þrifist.
Allt ber þvi aö sama brunni.
Þingvallasvæöiö allt á aö vera
sú vin sem þreyttir borgarbúar
geta leitaö til hvenær sem er,
jafnvel eina kvöldstund, til aö
hverfa frá striti dagsins. Þaö er
ekki slorlegt að renna fyrir sil-
' ung á kyrrum siökvöldum á
Þingvallavatni — eöa gleyma
sér viö niö sögunnar hjá öxará.