Þjóðviljinn - 01.05.1982, Side 10

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 1,—2. mai 1982 Pétur Pétursson: eins og að kom- ast í snertingu við frumkristni. (Ljósm. —eik —) Til þess að gera svona þætti þarf þráhyggju- mann. Páll á Höllustöðum kallaði mig þráhyggju- mann i þularstétt í Tíma- grein 1978. Ég held að hann uni þráhyggjunafngiftinni sæmilega sjálfur í Blöndu- málinu. Þetta var það f yrsta sem Pétur Pétursson, útvarps- þulur, sagði þegar við vorum sestir inní stofu á heimili hans, ég til þess kominn að biðja hann að segja mér frá því hvernig hann vann og aflaði sér fanga í hina athyglisverðu þætti, „Nóvember '21" sem hann hefur flutt í vetur. Það er mál fróðra manna að með þessari þáttagerð, hafi Pétur bjargað ómetanlegum sögulegum atriðum frá glötun. Hann náði tali af fjörgömlu fólki, sem mundi atburði sem áttu sér stað i Reykjavik í nóvem- ber 1921, þegar aðförin að Ölafi Friðrikssyni var far- in, vegna rússnesks drengs sem hann hafði tekið að sér. Margt af því fólki sem Pétur ræddi við, er nú horfið af sjónarsviðinu og vitneskja þess og fróðleik- ur um þetta einstæða mál hefði því horf ið með því ef Pétur hefði ekki komið til. Svo kom ég að Suðurgötu 14 Um þessa atburði_h£fur mikið veriö skrifað, meira að segja heil bók, „Hvita striðið” eftir Hendrik Ottósson. En hvað varð til þess að Pétur tók að sér að kanna máiið til hlýtar og leggja á það hlutlaust mat af visindalegri nákvæmni? Sjálfsagt má rekja áhuga minn á þessu máli til þess, að ég er alinn upp á heimili þar sem var mikill áhugi fyrir verkalýðs- málum. Bræður minir tóku þátt i félagsmálum, ég var yngstur og sat og hlustaði. Móöir min hafði einnig brenn- andi áhuga, hún var róttæk. Hún var 20 árum yngri en faðir minn, sem var heimastjórn- armaður. Honum þótti það slæm tiðindi þar sem hann lá veikur, er hann frétti að Guð- mundur bróðir minn væri kominn i vinnu hjá Alþýöublaöinu og sagði: „Er hann nú kominn i hendurnar á Ólafi Friörikssyni. Móðir min undi þvi vel. Nú segir þetta auðvitað ekki allt, Ég á heima á Asvallagötunni og geng þvi oft Suðurgötuna á leið minni heim frá útvarpinu. Einhvern tima fór ég að hugsa um það, i Suðurgötunni, að margt merki- legra manna hefði átt heima við götuna og það datt þá i mig aö gera útvarpsþætti um götuna og þá merkismenn sem þar höfðu átt heima. Ég hófst handa. Hvert húsið tók við af ööru og svo kom ég aö húsinu númer 14. Þá upp- götvaði ég að allt annað hvarf i skugga þeirra örlagariku atburða sem þar höfðu gerst i nóvember 1921, þegar Ólafur Friðriksson átti þar heima. Ég sópaði öllu öðru burt, en hófst handa við að Rætt við Pétur Pétursson um aðföng og tilurð þáttanna „Nóvember 21 ” rannsaka þessa atburði. Þætt- irnir eru árangur þeirrar vinnu. Óskapleg fáfræði Þegar maður fer að athuga þessi mál, þá verður maður þess var hve fáfrótt fólk er um baráttu fyrir margskonar réttindum sem nú þykja sjálfsögð. Hvað það veit litið um allt það erfiði, alla þá baráttu og allar þær fórnir, sem frumherjarnir færðu til að afla alþýðumanna þessara kjara og mannréttinda. Sú fáviska er grat- leg. Hvað gerir svo verkalýös- hreyfingin i dag til að afla fróð- leiks um þessi mál öll og miðla honum? Ekkert. Þó búa verka- lýðsfélögin og heildarsamtök þeirra yfir digrum sjóðum. Eða Háskóli Islands, musteri fræð- anna? Ekki neitt. Þaö er vissu- lega gott að vita sitt hvað um fornsöguna en það sem nær er i sögunni þarf lika að varðveita. Hvað ætli fólkið segði ef vinnu- veitendur þess bönnuðu þvi að drekka kaffi milli hádegis og kvöldmatar. Helstu atvinnurek- endur i Hafnarfifði birtu þá ákvörðun fyrir mannsaldri, án þess að fólk gæti nokkuð við þvi sagt. Eða vökulögin. Þegar sú barátta stóð sögðu útgerðarmenn að þau myndu setja þá á hausinn. Ég efast ekki um að ef Þjóðhags- stofnun hefði verið komin þá, hefði hún reiknað það út að þetta væri rétt hjá útgerðarmönnum. Svona væri hægt að tina upp hvern stórviðburðinn á fætur öðrum úr sögunni nær. Samt lætur verkalýðshreyfingin gamalt fólk, sem man þessa tima, lifði þá, falla frá án þess að tala við það og varðveita fróðleik þess. Veit að Guð mun ekki reiðast því Eiginlega ætti ég að vinna að allt öðru en þessu. Ég fékk eitt sinn 6 mánaða fri til að vinna að rannsóknum á „Gaimard” leiö- angrinum til Islands 1835—1836. Ég fór utan til Danmerkur og Frakklands að leita mér fanga. Þar grúfði ég mig yfir gamlar skræður og skjöl og auðvitað ætti ég að vera að vinna að þessu verkefni, en ég vissi að Guð myndi ekki reiðast mér, né telja það synd, þótt ég tæki „Nóv- ember ’21” framyfir um sinn. Það eru 60 ár liðin siðan atbúrð- irnir áttu sér stað og þvi var komið fram á elleftu stund að tala við það fólk sem upplifði atburð- ina og gat sagt frá þeim. Nú eru liðin 3 ár siðan ég byrjaði að vinna að málinu og ég hef notað hverja einustu fristund, sem ég hef átt þennan tima til að afla mér fanga. Þetta var orðin slik þráhyggja að ég hitti varla svo mann að ég ekki spyrði hann hvort hann þekkti ekki einhvern, sem myndi atburðina. Og ef hann þekkti engan slikan hvort hann vissi um einhvern, sem gæti bent mér á fólk. Þetta varð einskonar boðhlaup. „Leitið og þér munið flnna” Hvað var svo erfiðast i allri þessari leit þinni? Sennilega hefur verið erfiðast að fá skjöl um þessa atburði frá verkalýðsfélögunum. Málið snerti þau svo mikið að ég þóttist vita að eitthvað hlyti að vera til skjalfast hjá þeim um atburöina. En þvi miður var það minna en ég bjóst við. Þó komst ég i fundar- gerðarbækur Sjómannafélagsins og haföi nokkurt gagn að þeim. Einnig fundargerðarbækur VKF Framsóknar. Og varð ég að vinna þessa þætti þannig fyrir útvarpið að ég drægi ekki taum annars aðila i málinu. Einna ánægjulegast þótti mér að ræða málin við gamla fólkið. Þá fann maður og eldmóðurinn vaknaði. Þetta var eins og komast i kynni við frumkristni. Lærdómsrikt var það einnig að skoða lögregluskýrslurnar frá yfirheyrslum yfir fólkinu sem stóð meö Ólafi Friðrikssyni. Ung- lingar voru yfirheyrðir, og mér eru minnisstæð svör bræðranna Jóns og Ólafs Brynjólfssona, sem þá voru unglingar. Þeir voru spurðir hvort foreldrar þeirra hefðu vitað af þvi að þeir voru með Ólafi. Þeir svöruðu: Pabbi er út á sjó en mömmu likaði það vel að við hjálpuðum Ólafi. 1 augum lögreglunnar var það glæpur að styðja Ólafimálinu. Ég komst að ýmsu, sem menn höfðu ekki heyrt um fyrr. Vegna þessa máls fór ég til Kaupmanna- Mr. 1 kar M»tm ha0MM •« l*n Mllrtl ir)4M wm»m Mu. ■Mtt •« AMt. Mr M» ■n ■*«« Mrm. Tr*. Mtlr lu. M k«rj« MluUMv Inkiih HMa M ■* T*T. ilr (• sss tMui. QMukt- ful 1 kwrji raMada M iikiriMBáii. Œruu VttJM M Mu M >ipN« ■nuiipr rtt »mw Ttt nk' u huU •.*.»*. /nt, í ctrt'ny* k , #2* fl' 2.3- . -'K ,* ' ‘ C %?£<**+**+ ■JUiÍZjTfajc \ tt/'Z* K *»» - *HnZIj V' t3j KÍU *»• /JsC' tf.tU. óludtry b 1 í 1 tfjt. * VV - « - 1 i K/Stfcf^í t+y Ztm ! Z$-- dt V Zi-ttt tíl< v. - í,—. li j-vn ■ • fí/S’i' >• fú • /ft/. pZua. (ýMfrr' S)w /t/lí \ t • fJ)n. _ zy.f»>v /etz/Á. &*$****" c&' <*•**%*** K/%. -.1 4V.M. xr~f- * •* ZJ-rh H/Xt \ íy.Jv. K/tfc Þetta skjal fann Pétur upp á loftií tugthúsinu við Skólavöröustig. Þetta er úr tugthús-journal, þar sem skýrt er frá þvi hverjir voru handteknir með ólafi. Takið eftir dálknum þar sem strikað er yfir „samsæri” og I staðinn sett „lögreglubrot”

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.