Þjóðviljinn - 01.05.1982, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 1,— 2. mai 1982
Veðrátta, mannlíf
og atvinnuhættir
Marsaxlokk þar hafa fiskimenn á Möltu miöstöö sina
Möltubiiar miöa veturinn hjá
sér viö desember, janúar og
febrúar. A þessum tima er hita-
stig á Möltu ekki ósvipaö þvi sem
hér gerist á islandi þcgar sumur
eru sæmilega góð. Meö mars-
mánuði byrjar voriö, segja
Möltubúar. Veðráttan er þarna
mjög þurrviðrasöm mestallt árið.
Þó rignir oftast i desember eöa
janúar. i ár kom regnið ekki fyrr
en eftir miöjan janúar og rigndi
þá meira og minna i viku sam-
fleytt. Möltubúar voru glaðir yfir
rigningunni og blessuðu hana.
Jarðvegurinn er mjög kalkborinn
og bindur þvi vatniö vel i sér svo
það rennur ekki til sjávar þó
steypiregn standi yfir i nokkra
daga. Aður en rigningin kom I
janúar þá bar mest á gula litnum
Ilandslaginu, en á örfáum dögum
eftir regnið urðu eyjarnar skrúö-
grænar. Sumarhiti er þarna tal-
inn vera I kringum 25-30 stig á C í
forsælu.
Ferðamaður sem dvelur á
Möltu aðeins i 6 vikur tæpar getur
aðsjálfsögðu ekki gegnumskoðað
mannlifið, og verður þvi mikið að
byggja á þeim upplýsingum sem
honum eru gel'nar. Leiðbeinendur
ferðamanna fullyrða hins vegar,
að mannlif sé þarna heilbrigt og
afbrot mjög fátið, ólikt þvi sem
gerist i mörgum nútima þjóðfé-
lögum. Astæöurnar fyrir þessu
töldu danskir leiðbeinendur sem
þarna höfðu dvalið i nokkur ár
vera þær helstar, aö þjóöfélagið
væri svo litið og innan hverrar
sýslu þekktu menn hver annan.
Allt frá upphafi vega hafa ibúar
á Möltu tekiö til ræktunar hvern
jarðvegsblett sem hægt er aö
rækta. Búið er mest i borgum og
bæjum viðsvegar, sem komið
heíur verið haganlega fyrir á
grjótbornum hæðum; þó eru til
einstök bændabýli, sérstaklega á
vestur Möltu. Allt ræktarland er
hólfað I sundur með skjólgöröum,
og virðist efnið hafa komið upp úr
sjálfu ræktunarlandinu, þvi garð-
Það er ekki hægt að hætta
þessari frásögn frá Möltu og geta
i engu orlofsbæjar danskra
launþegasamtaka á norðvestur
Möltu, sem byggöur var þar með
leyfi stjórnvalda fyrir fáum
árum.
Orlofsbærinn telur 150 ibúðar-
hús fyrir ferðamenn auk ibúða
starfsfólks, skrifstofa. samkomu-
salar og ýmissa þjónustustofnana
svo sem stórmarkaðs, veitinga-
sölustaða og sundlaugar, Staður-
inn er rekinn af Dansk Folkeferie
en langmestur hluti starfsfólks er
skráður undir heitinu Mellieha
Holiday Centre Ldt. Bærinn
stendur fyrir botni Melliehaflóans
á grjótholti sem hallar niður að
sjónum i dalverpum beggja
megin við hæðina eru bændabýli.
Borgin á næstu hæð fyrir austan
orlofsbæinn heitir Mellieha.
Þessi danski orlofsbær er
byggður af Möltubúum i austur-
lenskum stil. Húsin eru hlaðin úr
gulum kalksteini, rúmgóö og með
öllum búnaði fyrir ferðafólk og
arnir eru flestir hlaðnir úr grjóti
og margir mjög fallega hlaðnir
með listrænu handbragði.
Slik hleðsla sést lika viða með-
fram vegum. Bændurnir rækta
nær eingöngu grænmeti og ávexti
ásamt vinviði. Af grænmeti og
kartöflum fá þeir þrjár uppskerur
á ári og af ávöxtum eru ræktaðar
allar tegundir sem finnast á jörð-
inni. Þegar ég kom þangað i byrj-
un janúar s.l. þá var ekki ennþá
lokið við að tina sitrónur og
appelsinur af trjánum. Möltubúar
framleiða talsvert mikið af létt-
um vinum og eru tvær tegundir
þar mjög eftirsótt útflutnings-
vara. Dálitill kúabúskapur er á
eyjunum, en ekki meiri en svo að
nægi til drykkjar. Sökum vönt-
unará graslandi verða kýrnar að
mestu að standa inni. Þá er dá-
litið um sauðfé, en þaö er eins
með það, graslendi vantar að
mestu fyrir þann búskap. Þá er
talsverðsvinarækt og fer vaxandi
ásamt kjúklingarækt. Þá er nokk-
uð um það að kaninur séu rækt-
aðar til kjötframleiðslu.
Fiskveiðar Möltubúa eru ekki
stórar i sniðum á mælikvarða
okkar Islendinga. Þetta má kall-
ast smáútgerð, sem aðallega er
Tveir Möltubúar I Valetta ræða
málin. Ljósm.: eik
rafhituð. Þarna getur dvalið stór
fjölskylda. Svefnherbergi eru tvö,
sturtubað og hreinlætisaðstaða,
borðstofueldhús með öllum
áhöldum, hraðfrysti- og kæli-
skápur og mjög stór dagstorfa,
þar sem þrir menn geta sofið á
breiðum fast innbyggðum bekkj-
um meðfram veggjum ef með
þarf.
Mikil aðsókn er að þessum stað
frá Danmörku, Noregi, Svfþjóð og
Finnlandiog einnig frá Bretlandi.
Þarna voru öll hús setin þó að
vetri til væri. En á þessum tima
er þó ferðamannastraumur til
i Möltu minni heldur en á öörum
j árstimum.
Vestan við botn Melliehaflóans
skammt frá danska orlofsbænum
stendur hið mikla Thomssons
Hotel. Það er maltisk stofnun.
Þarna var byggt hótel á stærð við
Hótel Sögu fyrir fáum árum, en
nú er búið að fimmfalda gistirými
þessa staðar með fjórum nýjum
býggingum.
stunduð á litlum bátum, mest
trillum. Stærsti fiskibátur sem ég
sá var 18-20 lestir. Nokkuð er veitt
af sardinum i net, þá eru veiddar
á linu og handfæri nokkrar fisk-
tegundir sem ég ekki kann skil á
en likjast helst vatnafiski. En
stærsta fisktegund sem þarna er
veidd er sverðfiskur sem er
veiddur bæði á handfæri og linu.
Fiskveiðarnar eru ekki i stærra
mæli en það, að aflinn er allur
seldur nýr upp úr sjó til ibúa og
veitingahúsa á ströndinni.
Auk vinframleiðslunnar þá eiga
Möltubúar stóra bjórverksmiðju
sem framleiðir þrjár tegundir af
bjór meö álika styrkleika og
danskur bjór.
Eins og áður hefur verið sagt
frá þá er nú verið að auka ýmis
konar iðnað á Möltu, mest mat-
vælaiðnað. Meðal annars eru
Norðmenn að byggja þarna eina
stærstu pylsuverksmiðju i
Evrópu. Aðalatvinnuvegur
Möltubúa er hins vegar þjónusta
Ég spuröist fyrir um almennt
kaupgjald á Möltu og fékk þær
upplýsingar að kaup ófaglæröra
verkamanna væri 46 maltapund
fyrír 40 stunda vinnuviku. En
maltapund var þá skráð I dönsk-
við ferðamenn og Verslun við þá
og hraðvex sú starfsemi með
hverju ári sem liður. Fjöldi hótela
er geysilega mikill og er þeim
dreift um eyjarnar, en þó mun
fjöldi þeirra vera langmestur á
sjálfri Möltu. Verðlag á Möltu er
mjög lágt á islenskan mælikvarða
en þó er liklega matvara allra
lægst, og var hún i s.l. janúar tal-
in seld á lægsta verði i Evrópu.
Möltubúar eru ekki sjálfum sér
nógir á sviöi matvælaframleiðslu
og verða að flytja mikið inn af
kjöti og fiskivörum en vöruúrval
á matvöru er mikið i stórmörkuð-
um og sumar vörur langt að
komnar. Hins vegar fullnægja
Möltubúar algjörlega grænmetis-
og ávaxtaþörf og eru þær vörur
alltaf á boðstólum i góöu ástandi
sem úrvalsvörur. Þvi þrátt fyrir
mikla þurrka mikinn hluta ársins
þá hafa bændur leyst þann vanda
með borholum og dreifa vatni yfir
ræktarland sitt með vindmyllum
þvi þarna er oft einhver gola.
um bönkum á d.kr. 20 hvert pund.
Vikukaup er þá d.kr. 920 fyrir 40
st. vinnuviku. Starfsstúlkur sem
sáu um orlofshúsin höföu hins-
vegar 36 maltapund fyrir 40 st.
vinnuviku og auk þess fri vinnuföt
og miðdagsmat. Þá var einnig
reiknað meö aö þær fengju auk
þessa einhverja svokallaða
,,drykkjupeninga”frá leigjendum
húsanna. En þetta var i engu
föstu formi. 1 krónutölu geta þetta
ekki talist há laun á islenskan
mælikvarða, en á móti kemur að
verðlag allt er mikið lægra en
hér, en þó sérstaklega á allri mat-
vöru sem var skráð það lægsta i
Evrópuá þessum tima. Raungildi
þessara launa verður þvi allt
annað ef miðað er við hvað fæst
fyrir peningana.
Þaö verður fróðlegt aö fylgjast
með hinni friðsamlegu atvinnu-
uppbyggingu Möltubúa i náinni
framtið og hvort þeim tekst að
halda fengnu sjálfstæði og
fullveldi á einu umdeildasta haf-
svæði jarðarinnar.
Nautakjöts-
birgðirnar
27,6% minni
en í fyrra
Birgðir af nautakjöti eru nú
27,6% minni en á sama tima i
fyrra. Hefur nokkuð skort á
nautakjöt í dýrari verðflokkum á
höfuðborgarsvæðinu nú að
undanförnu.
Sláturleyfishafar staðgreiða nú
nautakjöt fullu verði til framleið-
enda. Og á það nautakjöt, sem
kemur til sölu fram til ágústloka,
kemur engin veröskerðing. Engin
trygging er hinsvegar fyrir þvi,
að nautakjötsframleiðsla næsta
verðlagsárs fáist greidd fullu
verði. Er bændum þvi bent á að
koma sem mestu af kjötinu á
markaðinn fyrir lok þessa verð-
lagsárs.
— mhg
Fjárstyrkur
til svina- og
alifuglabænda
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins hefur samþykkt að veita
Svfnaræktarfélagi tslands
fjárstyrk úr Kjarnfóðurssjóðnum
að upphæð 1 milj. kr. og er það i
samræmi við samþykkt aðal-
fundar Stéttarsambands bænda
frá 1980.
Svo er til ætlast, að fénu verði
varið til byggingar á sérstöku
rannsóknarhúsi þar sem tilraunir
verði gerðar með notkun inn-
lendra fóðurefna til gjafar svin-
um og alifuglum og „tengist jafn-
framt þeirri aðstöðu, sem þegar
er til staðar á Keldnaholti”.
Þá hefur Framleiðsluráð og
samþykkt að veita styrki til fjög-
urra fuglasláturhúsa, 150.000 kr.
hverju. Einnig fá tvö fuglakyn-
bótabú styrk að upphæð 250.000
kr. hvort. Afhending fjársins er
þvi skilyrði háð, að greidd séu að
fullu áfallin sjóðagjöld til ársloka
1981 og að viðkomandi kynbótabú
hafi heimild heilbrigðisyfirvalda
til framleiðslu og sölu liffugla.
— mhg
Vinningar
í Sunnu-
dagsgátu
Nýlega voru afhentir i Lang-
holtskirkju vinningar vegna
Sunnudagsgátu Kórs Langholts-
kirkju, en nöfn vinnenda höfðu þá
þegar verið birt I dagblöðunum.
Þar seni talsverð brögð virðast að
þvi að það hafi farið framhjá fólki
skulu þau endurtckin:
1. Svava Bjarnadóttir, Melbæ 5,
Reykjavik. 2. Magna Sigfúsdóttir,
Hjálmholti 2, Reykjavik. 3. Auð-
björg Dianna Árnadóttir, Varma-
landi, Mýrasýslu. 4. Erla Ingi-
björg Guðjónsdóttir, Grettisgötu
24, Reykjavik. 5. Asdis M. Gils-
fjörð, Vallholti 4, ólafsvik.
r
Utflutningsbæturnar
Vantar
81 miljón
A vegum Framleiðsluráðs
landbúnaðarins hefur verið gerð
áætlun um útflutningsbótaþörfina
á verðlagsárinu 1981-1982. Er
heildarþörfin áætluð tæpar 274
miij. kr. Útflutningsbótarétturinn
hefur á hinn bóginn verið
áætlaður 192 milj. kr. Standist
þessi áætlun mun vanta rúmlega
81 milj. kr. á að útflutningsbætur
úr rikissjóði dugi til að jafna hall-
ann af útflutningnum.
— mhg
Bær dönsku launþega-
hreyfmgarinnar á Möltu