Þjóðviljinn - 29.05.1982, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.05.1982, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. — 30. mal 1982 Póstþjónustan: shráargatiö Ný gjaldskrá Ný gjaldskrá fyrir póstþjónustu tekur gildi 1. júni. Samkvæmt henni verður burðargjald bréfa af fyrsta þyngdarflokki (20g) innan- lands og tii Norðurlanda 3,00 kr., til annarra landa 3,50 kr. og flug- burðargjald til landa utan Evrópu 6,00 kr. Burðargjald fyrir póstkort og prent af fyrsta þyndarflokki (20g) verður 2,50 kr. nema ílugburðar- gjald til landa utan Evrópu, sem verður 3,00 kr. Gjald fyrir giróþjónustu verður 4,00 kr., fyrir almennar póstávis- anir 7,00 kr., simapóstávisanir 31,00 kr. og póstkröfur 12,50 kr. (9.00 kr. ef um innborgun á póst- giróreikning er aö ræða). Burðargjald böggla innanlands segir: lkg 14,00kr., 3kg 17,00 kr., 5kg 26,00kr., 10 kg 41,00kr., 15 kg 59,00 kr., 20 kg 66,00 kr. Ábyrgðargjald verður 6,50 kr. og hraðboðagjald 14,00 kr. Aldrei höfum viö boóiö eins glæsilegt úrval og núna af notuðum Mazda bílum í 1. flokks ástandi og með 6 mánaöa ábyrgó. Nú þurfid þið ekki lengur aö vera sérfræðingar í því að velja og kaupa notaöan bíl, því að þið athugiö útlit bilsins, ástand hjólbaröa og annars sem sést og við ábyrgjumst það sem ekki sést. Athugið sérstaklega aö verð notaðra bíla hefur lækkað eins og nýrra. Komið því á sýninguna í dag og tryggió ykkur úrvals Mazda bíl fyrir sumariö, meóan lága verðiö helst. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23. sími 812 99 11 - Engin gylliboð bara góð ferð. _ Kjarabarátta þessa dagana stendur að veru- legu leyti um samanburð milli starfsstétta og launahlutföll og eru þar mörg metnaðarmálin i gangi. Sjúkraliðar gera nú kröfu um að þeir séu ekki nema tveimur launaflokkum undir hjúkrunarfræðingum. Skráar- gatið hefur hinsvegar hlerað að ein meginkrafa hjúkrunarfræð- inga i samningunum við fjár- málaráðuneytiö hafi verið að þeir væru jafnan þremur launaflokk- um yfir sjúkraliðum. Hér er þvi kominn einn Gordionshnúturinn enn i launamálunum. Kvennafram- boðið i Reykjavik hafði sem kunnugt er ekki mikiðálit á stjórnmálaflokk- unum og hrossakaupum þeirra. Þegar á hólminn er komið i borgarstjórn virðast hrossakaup- in þeim kvennaframboðskonum ekki siður lagin en öðrum. Þær gengu fram i þvi að einangra Al- þýðubandalagið og mynda miðju- bandalag um bitaskiptingu i nefndir, og kusu ekki kynsystur sina í embætti fyrsta varaforseta borgarstjórnar þrátt fyrir yfir- lýsingar um að stuðla að sam- vinnu kvenna þvert yfir flokks- böndin. Liklega hefur það verið vegna samninganna innan miðju- bandalagsins. Miklar sögur ganga nú um væntanlega umsækjendur um stöðu útvarps- stjdra en búist er við að hún losni fljótlega. Aður hefur verið minnst á Svein Einarsson þjóðleikhús- stjóra en nU er talið að Tryggvi Gislason skólameistari á Akur- eyri sé að velta þessu háa emb- ætti fyrir sér. Liklega verður það nú dálitið erfiður biti fyrir Ingvar menntamálaráöherra að skipa Tryggva þvi að hann er óvart bróðir hans. r Islendingar hafa gaman af að velta fyrir sér ætt og uppruna manna og það vakti athygli i borgarstjórnar- kosningunum i Reykjavik um daginn hversu margir af fram- bjdðendum voru afkomendur, skyldir eða tendir þekktum stjómmálamönnum. Sennilega gengur pólitikin ekki að erfðum heldur erástæðan miklu frekar sú að fólk sem elst upp við mikla pólitiska umræðu hlýtur að smitast að nokkru marki. A A- listanum var t.d. Guðriður Þorsteinsdóttir i 4. sæti. Faðir hennar er Þorsteinn Pétursson sem var atkvæðamaður i röðum komúnista og sósialista á kreppu- árum en gekkk siðar i Alþýðu- flokk og lét þar aö sér kveða. Á B- lista er Gerður Steinþórsdóttir, barnabarn Jonasar frá Hriflu og Jósteinn Kristjánsson, hálfbróðir Guðmundar G. Þdrarinssonar. Á D-lista Markús öm Antonsson, - uppeldissonur Bjarna Benedikts- sonar forsætisráðherra, Ingibjörg Rafnar, dóttir Jónasar Rafnar sem lengi var alþingismaður og Ilulda Valtýsdóttir ritsjóra Morgunblaðsins Stefánssonar al- þingismanns Stefánssonar. Á G- lista Sigurjón Pétursson, sonur Péturs Laxdal, leiðtoga sósialista á Sauðárkróki, Adda Bára Sigfús- dóttir, dóttir Sigfúsar Sigur- hjartarsonar alþingismanns, Guðrún Ágústsdóttir, barnabarn sr. Bjarna Jónssonar, sem var frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokks i forsetakosningunum 1952, og Álf- heiður Ingadóttir, dóttir Inga R. Helgasonar. A V-lista var Guðrún Jónsdóttir, systir Páls Heiðars Jónssonar, sem nokkrir pólitiskir sviptivindar hafa staðið um, Magdalena Schram, systir Ellerts ritstjóra og mágkona Jóns Baldvins Hannibalssonar og Sigrún Sigurðardóttir, tengda- dóttir Jónasar Þorbergssonar út- varpsstjóra og alþingismanns. Sjálfstœðismenn i Reykjaneskjördæmi hafa átt i vandræðum með að standa á al- mennilegum hugmyndafræði- legum grundvelli. Þykja þing- menn flokksins i kjördæminu þeir Matthias A Mathiescn og ólafur G. Einarsson vera heldur linir i ihaldsslagnum. „Eimreiðar- hdpurinn” i Sjálfstæðisflokknum hefur nú hafið tangarsókn til valda i flokknum. Davið Oddsson úr þeim hópi hefur verið kjörinn borgarstjóri. Eimreiðarhópurinn er sagður hafa sent Hannes Hóimstein til náms iOxfordtil að þjálfa hann til framboðs i Reykjaneskjördæmi. Þarsem Eimreiðarhópurinn er jafn sterkur og kjör Daviðs ber vitni um þá eru þingmenn flokksins á Reykjanesi uggandi um þingsæti sin. A að fórna Matthiasi á altari Eimreiðarhópsins. Sagt er að Hannes Hólmsteinn hafi skrifað 30 greinar sem eiga að birtast i Morgunblaðinu um nýjan stil til varnar riku fólki á Reykjanesi. Hannes Hólmsteinn: Kandidat Eimreiðarmanna i Reykjanes- kjördæmi. Ekkert bólar á þvi að auglýst sé starf leiklistarstjóra Rikisútvarpsins, „stærsta leikhúss landsmanna”. Hefur það nú heyrst að ráðamenn hljóðvarps hyggist leggja starfið niður og ráða engan leiklistar- stjóra. Hefur þessi fregn vakið undrun og gremju, þar sem það er mál manna að stofnuninni sé skylt og raunar löngu timabært, að ráða vel menntaðan og hæfan mann til að rifa deildina upp úr þeirri deyfð sem þar hefur rikt. FERÐASKRIFSTOEA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og 28580

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.