Þjóðviljinn - 29.05.1982, Síða 18

Þjóðviljinn - 29.05.1982, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. — 30. mal 1982 sunnudagspistrill sem þeim er sagt án þeSs að mögla. Og þaö er vegna þess arna, segir J ohn Holt, að þeir til- raunaskólar sem upp koma hér og þar og ætla sér að gera annað en aö búa til kringlótta titti sem passa i einslaga göt þeir verða fyrr eða siðar fyrir aðkasti, fjár- hagsþrengingum og eins vist að þeir verði lagðir niður. (Hér mætti skjóta þvi inn, að það er gamalt og nýtt bragð hjá hægrimönnum að láta sem það sé einhver „sósialismi” sem fram komi i skólaskyldu og einstefnu skólakerfanna. Þetta er vitanlega alveg út i hött: kapitalisk stóriðja þarf ekki siður á „fjölda- manneskju” að halda en til dæmis einhverskonar alræðisriki. Meira að segja i úrvalseinkaskóla fyrir „gáfuð börn rikra foreldra” sem John Holt starfaði sjálfur við i Boston, komu fram allir þeir neikvæðu eiginleikar skólans sem flokkunarvélar og þarmeð fyrir- framframleiðsla á sigurvegurum og þeim sem tapa, sem aðrir al- mennir skólar þjást af). Og samt... Sem fyrr segir: allt var þetta heldur bölsýnt. 1 svörum við spurningum vildi John Holt samt ekki útiloka það með öllu að eitt- hvað væri hægt að gera til hins betra í skólum: skólar ættu að vera litlir, sagði hann, kennarar ættu að hafa sem mest svigrúm til að bregðast við þörfum nem- enda, skólar ættu að vera hver öðrum ólikir... Þessi frásögn er ekki á blað fest til að reyna að komast að niður- stöðu um þau mál sem John Holt reifaði — enda þarf drjúga kennarareynslu til að reyna það. Hér skulum við láta okkur nægja_ að minna á þessi viðhorf og kvitta' fyrir skemmtilegan málflutning. Og minna lika á það, hve oft kappsamir menn, hvort sem er á sviði skólamála eða af öðrum sviöum, lenda I kreppu þegar þeim finnst að tregðulögmál þau sem gera einstaklinga, stofnanir og þjóðfélög íhaldssöm, séu allri skynsamlegri breytingaviðleitni miklu sterkari. Það er sjálfsagt rétt hjá Jóni i Holti að skólabylting hefur ekki átt sér stað og að draumsýnin um skólann frjálsa tengist við allt ööruvisi þjóöfélag og gildismat en nú ræöur rikjum. En hitt er svo jafnvist, að skólar hafabreyst hér allt um kring; að það er hægt að sýna fram á fróðlegan mismun i árangri af skólastarfi eftir þvi hvernig að er staðið (hér i blaðinu höfum við skýrt frá bresku efni um það mál) — ogaðþaðer miklu sterkara og útbreiddara viðhorf en áöur að skólar hafi sifeilda þörf fyrir breytingar (m.ö.o. að hinn „rétti” skóli sé ekki til). Allt skiptir þetta máli. Leiðinn Og að lokum örfá orð um skóla- Jeiöann, um það að börn verða áhugalaus og full óánægju með bæði námsefni og sjálf sig. John Holt virðist koma úr umhverfi, þar sem þessi fyribæri tengjast einkum þvi, að nemendur gera sér grein fyrir þvi aö þeir eru flestir að tapa i harðri sam- keppni. Manni sýnist hinsvegar að hér um slóðir sé þessi leiði ekki sist tengdur þeirri tilfinningu að það taki þvi ekki einu sinni að taka þátt i kapphlaupi vegna þess að leiðir þær sem mismunandi námsbrautir gefa fyrirheit um séu að lokast. Það er að minnsta kosti tilfinning sem á eftir að verða rikari þáttur i liðan nem- enda i skólum en var fyrir skemmstu — ef svo heldur áfram sem horfir. AB Fyrr eða síðar spyrja aliir foreldrar sig að því, hvort skólinn gæti ekki verið betri. Líklegast er þá að þeir furði sig á náms- leiða sem svo er kallaður; það er eins og börnin láti sig engu varða hvað fram fer og foreldrarnir eru oft- ast sannfærðir um að allt hafi verið öðruvísi þegar þau voru ung. Er hœgt að breyta skólum? Árni Bergmann skrifar Fyrir nokkru kom hér i heim- sókn bandariskur kennari og upp- eldisfrömuður, John Holt, og hélt fyrirlestra i Kennaraháskólanum við góða aðsókn. Og nú er að segja nokkuð frá erindi sem hann flutti einmitt um þetta: umbætur i skólum —- og erfiðleika á að koma þeim i framkvæmd. Allt í sama farinu Hann byrjaði á þvi að minna á það, að viða um heim hafa skóla- menn og embættismenn og kjörn- ir fulltrúar komið sér saman um hin bestu áform i skólamálum. Það á að hafa skólann opinn og sveigjanlegan. Viröa persónu- leika barnanna og þeirra sérstöku áhugamál. Kenna börnunum gagnrýna hugsun svo að þau geti verið virkir þegnar i lýðræðis- þjóðfélagi. Og margt fleira gott er samþykkt, og Jón þessi i Holti kvaöst ekki vera i vafa um að það væri af einlægni sagt og skrifað. En samt breyttist fátt. Samt væri það svo, að þeir sem fóru af stað með umbætur og tilraunastarf- semi fyrir tuttugu árum eða þrjá- tiu eða meir, þeir hjökkuðu i sama farinu og eins vist aö hætt hefði verið viö ýmsar staðbundn- ar tilraunir sem efnilegar þóttu á sinum tima. Hvernig stendur nú á þessu? Geymslustaður John Holt átti þau svör helst, að i raun og veru væru markmið skólanna allt önnur en þau sem menn helst vildu festa á blað i stefnuskrár og reglugerðir. Það er skynsamlegra að taka annan pól i hæðina, sagði hann, ef þú ætlar að komast að þvi hver aöalmarkmiðin meö skólastarfi i raun og veru eru. Og það geta kennarar og skólamenn vel með þvi að athuga hvað það er sem steypir þeim i vandræði i skóla- starfi. Ef þeir til dæmis reyna að opna skólann i þeim skilningi, að börn- in geti komið og fariö i rikari mæli en áður var — þá lenda þeir i vandræöum. Þá eru þeir rækilega minntir á það aö skólar eru til þess að börn séu ekki að flækjast fyrir fullorðnum. Skólarnir eiga að passa börnin, þeir eiga að halda þeim af götunni og frá vinnumarkaðinum. (John Holt nefndi það dæmi, að i einu rikja Bandarikjanna, ég held Ohio, get- ur hvaða fullorðinn maður sem er handtekið barn á skólaaldri á skólatima á götum úti og í'arið með það i næsta skóla! Við getum minnst þess hér heima, að hvað sem menn nöldra um skólagöngu, þá er þegjandi samkomulag um það núna að geyma börn I mið- skólum og menntaskólum mun sendum að allir hafi náð nokkrum árangri og allir hafi gert eins vel og þeir gátu) — ef hann gerir þetta lendir hann áreiðanlega i vandræðum. 1 Bandarikjunum er eins vist aö hann yrði rekinn, sagði John Holt. Vegna þess, að hvert þjóðfélag sem við enn þekkjum er pýra- midalagað. Og þvi hefur þetta sama þjóðfélag þörf fyrir flokkunarvél sem visar mönnum upp eftir pýramidanum eða niður eftirhonum — vél sem menn taka almennt sem nauösynlega og eiginlega réttláta — eins þótt hún felli óþægilegan dóm yfir sjálfum hefðu nóga peninga til að breyta námskrám, námsefni, kennsluað- ferðum, þjálfa kennslukrafta osfrv. — þá gætu þeir skilað öllum út úr skólanum sem „sigurvegur- um”. Eiginlega var John Holt kominn i svipaðan ham og byltingarsinnar fy rr og siðar: það er vonlaust að búa til eintóma sigurvegara i skólanum, þegar þjóðfélagið gerir hvort eð er ekki ráð fyrir nema fáum sigurvegur- um i kapphlaupi um veigengni og frama. Ef ekkert hefur verið gert til að skipta milli fólks með nýj- um hætti störfum sem eru leiðin- leg, óþrifaleg og illa launuð, þá PUNKTAR UM ERINDI JOHNS HOLTS lengur en áöur — vegna þess að staðan á vinnumarkaöinum hefur stórlega breyst á 20-30 árum). Viðurkennd flokkunarvél Annað markmið skólanna, seg- ir John Holt, er aö flokka börnia segja til um þaö til hvers þau duga i samfélagi þar sem sumir og þaö ekki margir lenda i „góðum störfum”, eftirsóttum, vel launuðum, aðrir i meðalstörf- um og enn aðrir „tapa” i kapp- hlaupinu. Þetta getur hver kenn- ari sannfærst um með einfaldri tilraun: ef hann tenur sig til og gefur öllum nemendum sömu einkunn (til dæmis á þeim for- þeim og börnum þeirra. Ef siik vél er ekki til, þá verður ólga og uppreisn i samfélaginu. Áður höfðu trúarbrögðin þvi hlutverki að gegna að sætta menn viö hlut- skipti sitt (forsjónina). Nú hefur skólinn — i kerfi almennrar skólaskyldu — tekið við þessu hlutverki; þar er mönnum gefiö til kynna aö þeir hljóti þaö „sem þeir eiga skiiið”. Blekkingar Þetta voru þær megin- staðreyndir sem John Holt upp- eldisfrömuður vildi draga af böl- sýnar ályktanir. Hann sagði til dæmis, aö það væri algeng sjálfs- blekking kennara og annarra skólamanna, að ef þeir aðeins getur skólinn ekki breytt neinu um afdrif nemendanna. Að passa í götin Einn af forsætisráðherrum Verkamannaflokksins breska, James Callaghan, komst einu sinni svo að orði i umræðum um skólamál, aö „Bretland þarf kringlótta titti sem passa i kringl- óttgöt”. M.ö.o. — hann tók undir þau viðhorf svotil allra valds- manna: þeir þurfa á þvi aö halda að skólinn undirbúi menn undir þjóðfélagið eins og það er, undir það, að sem allra flestir geri það

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.