Þjóðviljinn - 24.07.1982, Page 10

Þjóðviljinn - 24.07.1982, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 24.-25. júll 1982 Ú T B O Ð Tilboð óskast i sigtisbúnað fyrir grjótmulningsstöð Reykjavikurborgar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frfkirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. ágúst 1982 kl.ll fyrir hádegi. ÍNNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Ffíkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Gatið og trekkhornið tslendingar kunna ekki að búa i eigin landi. Fyrr á öldum drápust þeir úr kulda vegna þess að þeir kunnu ekki að klæða sig eins og eskimóar og þeir drápust úr sulti af þvi að þeir kunnu ekki að nýta sér landsins gæði t.d. grös og fjörumat. Þeir Eggert og Bjarni lýsa þvi i ferðabók sinni að aum- ari hreysi hafi þeir aldrei séð en á Hornströndum og voru þó fjörur fullar af rekaviði. Nú á dögum lýsir þetta sér m.a. i þvi að tslendingar hafa svalir á húsum sinum sem næðir i gegnum i stað þess að vera skjól- góðar. Og i Reykjavik eru borgarbúar látnir hima fyrir utan sölugöt i hvaða veðri sem er, fyrirbæri sem gætu gengið á Spáni og jafnvel i Þýskalandi og Danmörku en aldrei i reykviskum rokrassi. Ég hef stundum á kvöldin og um helgar himt fyrir utan eitt slikt söluop viö Tónabæ og Lidó eins og_ staðurinn var áöur nefndur, likt og hann væri nætur- klúbbur i Paris. Þar myndast oft röð af kuldagráu fólki. Ekki er nóg með það að hvorki er hægt að skýla sér fyrir regni eða vindi heldur er söluopið rétt við heljar- mikið trekkhorn á húsinu. Þar um leikur stöðugur næðingur. Eigendur gatsins hafa löngum selt i laumi ýmsan varning úr matvöruversluninni er liggur bak við — og þykir mér það góð og sjálfsögð sjálfsbjargarviðleitni þegar hvergi er hægt að fá ætan bita annars staðar. A þessu er hins vegar sá hængur að af- greiðslukonan eða gatverjan þarf að vera á stöðugum hlaupum inn um alla matvörubúð og tefur þetta mjög afgreiðsluna i gegnum gatið. Þarna var ég að kaupa i vikunni og var orðinn helblár i framan af kulda og auk þess lék vindurinn lausum hala innan um mig allan sem ekki gat talist heppilegt miðað við hóstann og kvefið sem hefur ásótt mig undanfarið. Loks var aðeins ein kona á undan mér og i hvert sinn sem ég hélt að hún hefði nú lokið kaupum sinum datt henni eitthvað nýtt i hug sem hana vantaði og i hvert sinn þurfti gatverjan að hlaupa fram i verslun. Tók þetta óratima. Þcgar loks kom aö mér hætti ég við að kaupa ýmislegt smálegt af eintómri samúð með afgreiöslu- konunni og fólkinu sem hriðskalf fyrir aftan mig i röðinni. Ég sagði bara stutt og laggott: Einn pakka af London Docks og eitt frans- brauð, takk. Þessi sölugöt voru vist upphaf- lega sett i reglugerð til að ung- lingar spilltust ekki við sjoppu- hangs. Ja, þvilikt og annað eins. Nei, þetta er ekki hægt. Þó er hátið að hanga við gatið i júli- mánuði miðað við janúar og febrúar. Að standa þar i 10 vind- stiga norðanhrið og hörkugaddi verður ekki með orðum lýst. Opnunartimi búða á að vera frjáls i Reykjavik eins og ég og aðrir góðir menn hafa margsinns bent á. Verslunarmannafélagið hlýtur að geta tryggt hag versl- unarfólks. með öðrum hætti en þessum. Það er sama hvort maður kemur til London, Kaup- mannahafnar, New York eða Moskvu, alls staðar er hægt að komast i búðir á hvaða degi sem er og viða á nóttunni lika. Það er menning. Þetta er menningar- leysi. — Guðjón Borðstofuhúsgögn í úryafí l S| F ■iw i ijp LH Fp Munið okkar hagstæðu greiðsluski/má/a. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 HÚSGAGNADEILD. SÍMI 28601.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.