Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 23
Helgin 24.-25. júli 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23 kvíkmyndlir Hörkutólið myndin á að gerast i Suðurrikjun- um. Hviti ofurstasonurinn verður semsé besti vinur svertingjans Toomer, sem stamar og býr i af- dönkuðum strætisvagni útii'skógi ásamt hundum sinum, sem eru tólf eða fjórtdn talsins. Allir i myndinni eru voða góðir við svertingja, nema einn skuggalegur náungi sem heitir Red og hermir eftir staminu i Toomer. Þar kemur að Toomer leiðist þófið og tekur Red kverka- taki til að hræða hann. Red verð- ur óður, safnar liði og heimsækir Toomer út i skóg að næturlagi, vopnaður byssu. Hann skýtur einn af hundunum til bana og ætl- ar að skjóta þá alla niður, en hitt- ir þá óvart i Toomer. Aumingja Red verður miður sin yfir þessu óhappi, hann ætlaði bara að skjóta hundana. En hann fær makleg málagjöld: i andarslitr- unum hleypir Toomer hundunum lausum og þeir rifa Red i' sig með góðri lyst. Hetjudáð Bens er fólgin i þvi að aka út i dimma dimma skóginn þegar hann hefur frétt af liðsafn- uði Reds, til að aðvara Toomer, en hann kemur of seint, Toomer liggur i blóði sinu og hvislar dramatiskt: mér list ekki á að við komumst á rækjuveiðar á föstu- daginn einsog viö ætluðum okkur. Svo deyr hann i bflnum hja Ben. bá kemur Bull og hellir sér yfir grátandi son sinn með skömmum fyrir að hafa óhlýðnast skipun. Eftir þetta gengur allt út á að láta áhorfendur fella tár. Allt fer vel að 1 lokin deyr Bull hetjudauða i flugvél sinni og Ben situr uppi með sektarkennd af þvi að hann hafði svo oft óskað þess að flug- vélin hrapaði. En hann á góða mömmu sem skilur svoleiðis, og þetta fer allt vel að lokum. Ben tekur við hlutverki föður sins og fjölskyldan ekur burt syngjandi. Mynd þessi er hvorki betri né verri en gengur og gerist með bandari'ska framleiðslu af þessu tagi. Einsog áður segir vakti hún mikla aðdáun og kæti i Austur- bæjarbiói þetta kvöld sem ég var þar. Satt að segja skil ég ekki á- stæðuna fyrir þessari almennu ánægju. Það eina sem mér finnst markvert við myndina er sú kúnst höfundanna að vappa kringum vandamálin einsog kött- ur kringum heitan graut án þess að koma nokkurntima nálægt þeim. Spunninn er þráður með nokkrum snyrtilegum hnútum sem eru leysör án fyrirhafnar og án þess að nokkurntima fari i hart. Skrimslið Bull Meechum er i rauninni besta skinn og að sjálf- sögðu mikil hetja. Þegar hann er orðinn fjölskyldu sinni fjötur um fót bregst hann við snöfurmann- lega og deyr hetjumannlega. Og allir fara ánægðir heim til sin. (The Great Santini) Bandaríkin 1981 Stjórn: Lewis John Carlino Kvikmvndun: Ralph Wooisey Trtnlist: Elmer Bernstein Aðalhlutverk: Robert Duvall. Blvthe Danner. Michael O’Keefe. Ef til vill lægi beinast við að af- greiða þessa mynd með góðlát- legu glotti og segja sem svo: það er ekki logið á þessa Bandarikja- menn. Þarna hræra þeir fárán- legan graut úr einhverju sem þeir kalla vist húmor og skefjalausri væmni, búa til sögu sem er svo ósannfærandi og afglapaleg að tekur engu tali og ætlast svo til að fólk skemmti sér. En viti menn: kvöldið sem ég sá myndina var Austurbæjarbió næstum troðfulit af fólki á ýmsum aldri og var ekki annað að sjá og heyra en allir skemmtu sér konunglega. Þakið ætlaði beinlinis að rifna af þessu gamalkunna, elskulega bióhúsi þegar aðalhetjan i myndinni, hörkutólið Bull Meechum ofursti, beygði sig undir millivegg á al- menningsklósetti, togaði i lapp- irnar á manni sem var að hysja upp um sig brækurnar á klósett- inu við hliðina, dró hann til sin og stakk honum á bólakaf i klósett- skálina sin megin. Bráðfyndið, ekki satt? Hraustir menn Bull þessi (sem útleggst naut) er orrustuflugmaður og þegar myndin hefst er hann að kveðja strákana sina á Spáni, þar sem hann hefur haft aðsetur um hrið i bandariskri herstöð. Þetta eru hraustir menn og engar veimiltit- ur og húmorinn i stil við það sem lýst var hér að ofan. Lesendum skal hlift við frekari lýsingum af þessu tagi. En það er sama hvað ofurstinn hamast við að skandal- isera, hann er alltaf jafnmikill of- ursti og dettur engum i hug að lækka hann i tign, jafnvel þótt hanngerist nærgöngull við eigin- konur yfirmanna sinna. En nautið fer semsé heim til sin og þar tekur á móti þvi eiginkona sem er allt i senn: falleg, góð, gáfuð og kaþólsk. Og þegar búið er að kynna áhorfandanum þetta indæla fólk byrjar plottið raun- verulega, en þá kemur nú fyrst babb i bátinn. Það kemur nefni- lega i ljós að þessi mynd er um allt annað en hún þykist vera um. Engin vandamál, takk Robert Duvall i hlutvcrki ..Bull’ Eins og naut l flagi Hér er verið að fjalla um stri'ðs- mann sem á erfitt með að lifa venjulegu lifi með fjölskyldu sinni.,,Striðsmanns án striðs” einsog það er orðað i myndinni. Þetta er auðvitað stórt og mikið vandamál sem margar banda- riskar fjölskyldur hljóta að þekkja af eigin raun eftir Viet- nam-striðið, og hefur reyndar verið fjallað um i nokkrum ágæt- um myndum. En Hörkutólið er engin vandamálamynd, og þess- vegna er farið i kringum þetta viðkvæma mál með þvi að láta myndina gerast árið 1962. Þá var sem betur fer ekkert strið á Spáni. Eina striðsástandið sem ýjað er að i myndinni er Kúbu- deilan 1962 —nautið fær það verk- efni eftir heimkomuna að þjálfa flugmenn til að ráðast á Kúbu ef af bandariskri innrás verður. Fjölskylda ofurstans hefur fylgt honum eftir á flakki milli herstöðva og er að sjálfsögðu vel þjálfuð i sliku lifi, þótt ekki hafi hún fylgt honum til Spánar. Það hefur þvi i rauninni ekkert annað gerst en að karlinn hefur verið fjarverandi um nokkurt skeið. Engin breyting á lifnaðarháttum hans eða fjölskyldunnar að öðru leyti. Og er þar með kippt öllum stoðum undan plottinu, sem verð- ur hvorki fugl né fiskur, og sann- færir ekki nokkurn mann. En þetta getur maður svosem látið liggja milli hluta. Ofurstinn á son, Ben að nafni, sem er að verða átján ára. Allt frá þvi drengurinn fæddist hefur ofurst- ann dreymt um að Ben verði orr- ustuflugmaður, sá allra besti. Nú kemst hann að raun um að móðir drengsins hefur „ofdekrað” Hundar og menn Hægt er að nefna mýgrút af dæmum um ósannfærandi atriði af þessu tagi. En ætli við látum ekki nægja að minnast á „kyn- þ áttavandamálið”. Þannig er mál með vexti, að Ben á góðan vin, sem er svertingi og heitir Toomer, sonur ráðskonunnar á heimilinu. Þess skal getið að hann. Að visu er Ben greyið bandariski draumurinn holdi klæddur, körfuboltahetja m eð meiru, en það er föðurnum ekki nóg. Eina „uppreisn” piltsins gegn föður sinum er að óhlýðnast einu sinni skipun hans um að láta vera að koma vini sinum til hjálp- ar i lifsháska. Þessi óhlýðni er næstum búin að riða ofurstanum að fullu, þrátt fyrir það að Ben fremur hetjudáð að flestra mati. Ingibjörg H___________ skrifar Sumariöt Sumarbolir kvenna Frákr. 116,- Sumarpils kvenna 269.- Hvitir sumarkjólar 208.- Bikini 106,- Sundbolir barna 172,- Sundskýlur barna 89.- Sundskýlur karla 152,- Sumarjakkar kvenna 417,- Sumar jakkar karla 417.- Sumar jakkar barna 439.- Danskar sumarkápur 615.- Æfingagallar barna 220.- Æfingagallar fullorðinna 239.- Strigasandalar kvenna 119.- Leðursandalar karla 250,- Leðursandalar barna 160,- i DOMUS ROfJ)) KAUPFELAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS Lausar stöður Viö Iöntæknistofnun íslands Framkvæmdastjóri Tæknideildar Raunvisindamenntun ásamt stjórnunarreynslu áskilin. Reynsla i ráðgjafastörfum eða iðnrekstri æskileg. Deildarstjóri Máimtæknideildar Æskileg menntun: Vélverkfræði, véltæknifræði eða málmefnisfræði. Starfsreynsla i málmiðnaði eða við ráð- gjafastörf einnig æskileg. Vélaverkfræðingur eða véltæknifræðingur við Málmtæknideiid Reynsla á sviði vinnslutækni i málmiðnaði og rekstrar- tækni æskileg. Skrifstofustjóri aðaiskrifstofu Reynsla i áætlanagerð, fjármála- og starfsmannastjórn á- skilin. Æskileg menntun: Viðskiptafræði eöa hliðstæð menntun ásamt tölvutækni. Ofangreind störf eru fjölbreytt og veita áhugasömu fólki svigrúm til frumkvæðis og náinna kynna af innlendum iðnaði og alþjóðlegri tækniþróun. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk. Umsóknir með upp- lýsingum um æviatriði, menntunar- og starfsferil skulu sendar forstjóra Iðntæknistofnunar Islands, Skipholti 37, 105 Reykjavik, sem veitir nánari upplýsingar. IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS T ónlist ark ennarar Skólastjóra og kennara vantar við Tónlist- arskóla Grundarfjarðar (tvær stöður). Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Eyrarsveitar i sima 93-8630 eða hjá for- manni skólanefndar i sima 93-8807. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Bifvélavlrkjameistarar Af sérstökum ástæðum getur skólinn tekið nokkra samningsbundna bifvélavirkja- nema i verklegt nám á haustönn ’82. Nán- ari upplýsingar gefur deildarstjórinn, Sig- fús Sigurðsson i sima 34213.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.