Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 31
|-*0» > • • íA» . 4 r i r -r * *+ -■■. 1V?*^ ',f. Helgin 24.—25. júli 1982 , MÓÐVILJINN — SÍÐA 31 Líkur á að Jón Baldvinsson verði dreginn til viðgerðar í Noregi „V erkið tekið úr höndum okkar” segja starfsmenn Vélsmiðjunnar Hamars sem pökkuðu niður 6 vikna vinnu til útflutnings í gær — Við höfum ekki fengið neinar skýringar á því hvers vegna verkið hefur verið tekið af okkur. Okkur var ein- ungis tilkynnt í fyrrakvöld af vélaeftirlistmanni BOR- að við ættum að skila öllu um borð i Jón Baldvinsson og gera sjóklárt fyrir þriðjudag. Maður er orðinn ýmsu vanur en það kemur óneitanlega á óvart að þeir menn sem tala ekki hvað minnst um íslenskan iðnað og at- vinnuuppbyggingu skuli á þennan hátt flytja vinnu úr landi", sagði Lárus Björnsson verkstjóri í Vélsmiðjunni Hamri. Eftir að skuttogari Bæjarút- gerðar Reykjavikur Jón Bald- vinsson varð fyrir alvarlegri vél- arbilun i siðustu viku, var Vél- smiðjan Hamar fengin til að kanna skemmdir. Starfsmenn smiðjunnar hafa frá þvi sl. laug- ardag unnið af fullum krafti við verkið og er ljóst að vélin er illa farin og mikið verk að koma henniilag. „Það kom okkur algjörlega á óvart að verkið skuli tekið af okk- ur án allra skýringa, svona rétt þegar við erum að byrja á þvi,” sagði Gunnar ólafsson trúnaðar- maður starfsmanna so' voru siöur en svo ánægðir nicu nam- gang mála. „Hér i smiðjunni er búið að vera verkefnalaust fyrir stóran hluta starfsmanna siðustu fjóra mánuði. Þegar siðan allt að 6 vikna vinna sem er fyrirsjáan- leg við viðgerðir á Jóni Baldvins- syni er tekin frá okkur og flutt úr landi, er ekki að undra þótt mönn- um sviði undan” sagði Gunnar. Þegar Þjóðviljamenn litu við i Hamri i gær voru starfsmenn önnum kafnir við að pakka niður þeim vélarhlutum úr Jóni Bald- vinssyni sem teknir höföu verið upp og inná verkstæði. „Hérna keppast menn við að pakka niöur 6 vikna vinnu og flytja úr landi”, varð einum starfsmanna þá að orði. Aðspurður sagði Karl Eyjólfs- sonsem hafði yfirumsjón með at- hugun á vélarskemmdunum á Jóni Baldvinssyni að viðgerðin væri þeim vel viðráöanleg, það hefðu verið unnin vandasamari verk en framkvæma þyrfti i þessu tilfelli. —lg Starfsmenn i Hamri pakka niður 6 vikna vinnu til útflutnings, en sið- ustu 4 mánuði hefur verið verkefnalitið fyrir stærstan hluta starfs- manna i smiðjunni. Mynd: — gel „Það hcfur ekki verið endan- lega ákveðið ennþá hvort verkiö verður unnið hér heima eða tog- arinn dreginn til Noregs. Sú á- kvörðun verður tekin um helgina eða á mánudag. Það að pakka vélarhlutunum saman er cinungis gert til að flýta fyrir, verði niður- staðan úr viðræðum okkar við tryggingarfélag og vélarfram- leiðandann að togarinn verði dreginn utan til viðgerða”, sagði Björgvin Guðmundsson fram- kvæmdastjóri BCR. „Vélin er stórskemmd og hefur raunar aldrei verið i íullkomnu lagi að okkar mati þau tvö ár sem við höfum átt togarann. Þessi bil- un nú er með almesta móti og ljóst að senda verður bæði sveifarásog botnskál til viðgerða i Noregi. Það er þvi margt sem stuðlar að þvi að gert verði við vélina ytra en við erum að reyna að ná samkomulagi við framleið- andann um að gera meira en lag- færa þessa vélarbilun. Við viljum láta gera við alla þá galla sem eru á vélarbúnaðinum.” En er ekki grátlegt að þurfa að flytja svona mikla vinnu beinlinis úr landi? „Jú, bað má segja það en þetta mál er’sérstæðs eðlis þvi við vilj- um fá meira en viðgerð, við vilj- um að framleiðandinn skili okkur þessari vél i sinu rétta ástandi”, sagði Björgvin. Björgvin Guð- mundsson forstjóri BÚR „Viljum fá meira en viðgerð” Frá Skaftafelli Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi V erslunarmannahelgin: Kirkjubæjarklaustur — Skaftafell Alþýðubandalagið á Vesturlandi efnir til Sumarferðar um verslunarmannahelgina 30. júli til 2. ágúst n.k. Lagt verður af stað föstudaginn 30. júli sem hér greinir: Frá Vegamótum kl. 14 Frá Akranesi kl. 14 Frá Borgarnesi kl. 15 Ekið verður um Uxahryggi og sem leið liggur um Suður- land að Kirkjubæjarklaustri. Gist að Kirkjubæjarklaustri allar þrjár næturnar. Boðið er upp á svefnpokapláss og hótelherbergi. Laugardag og sunnudag verður farið i skoðunarferðir i Skaftafell og um nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Þátttaka tilkynnist eftirtöldum sem allra fyrst og veita þau jafnframt allar nánari upplýsingar simi: Akranes: Ingunn Jónasdóttir 2698 Borgarnes: Carmen Bonitch 7533 Vegamót: Jóhanna Leópóldsdóttir 7690 Búðardalur: Kristjón Sigurðsson 4175 Stykkishólmur: Guörún Arsælsdóttir 8234 Grundarfjörður: Ólöf Jónsdóttir 8811 Ólafsvik: Rúnar Benjaminsson 6395 Hellissandur: Svanbjörn Stefánsson 6657-6637 Pantið sem allra fyrst. 011 fjölskyldan með. Stjórn kjördæmisráðs Alþýöubandalagsins á Vesturlandi. .. ....... —................... Inn við Hitarvatn, Foxufell nær Tjaidhrekka innst.. Sumarferð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi-vestra 7.-8. ágúst 1982 Snæfellsness og Hítardalur Lagt verður af stað á laugardagsmorgni frá Varmahlið i Skagafirði og ekið um Laxárdalsheiði vestur i Hitardal. Tjaldað verður að Hitarhólmi i túnfætinum hjá Birni Hitdælakappaog siöan gengiö upp á hólm inn en þaðan er gott útsýni ytir dalinn og vatnið. Að þvi búnu verður efnt tilkvöldvökuvið varðeld. A sunnudag verður ekið um Snæfellsnes eftir þvi sem timi leyfir og ekið heim aftur gegnum Borgarnes. Þátttaka tilkynnist eftirtöldum, sem jafnframt veita nánari upplýsingar: Ester Bjarnadóttir, Hvammstanga Sturla Þórðarson, Blönduósi EðvarðHallgrimsson, Skagaströnd Hallveig Thorlacius, Varmahlið Ingibjörg Hafstað, Vik, Skagafirði Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sauðárkróki S. 95- 5289 Einar Albertsson, Siglufirði S. 96-71614 og 71616 S. 95-1435 S. 95-4356 og 4357 S. 95-4685 S. 95-6128 S. 95-5531 Þátttaka er öllum heimil. Undirbúningsnefnd

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.