Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 « MAKCHM rOPbKMM Skemmtiferðaskipið Maxim Gorkij. Að sögn Böðvars er það helst ráðsettara fólk og það, sem i betri efni er komið, sem sækist eftir slikum feröum, meðan Mallorka-ferðir Atlantik höfða til hins breiöa hóps. '~~W tiVHlUMa 1 « »M. s nmiamiíf lltlll IIIIIUIIIll II1 IIIIIUUUUU mumii iiitiiiiiin ji.feji mm illlll mu mimit Siglingar eru nýr og skemmtilegur ferðamáti -segir Böðvar Valgeirsson, forstjóri Atlantik Kristján Guðlaugsson í Olympœ Sérhæfum okkur í Benidormferðum ,/Við höfum verið með ferðir til Benidorm í allt sumar og við munum halda þeim áfram fram á haust- ið, og svo gerum við ráð fyrir að vera með ferðir til Flórída og St. Pétursborg- ar eins og á síðasta ári", sagði Kristján Guðlaugs- son hjá Ferðaskrifstofunni Olympó, en hann starfræk- ir Olympó ásamt Friðjóni Sæmundssyni, en ferða- skrifstofan var stofnuð ár- ið 1978. „Nú, við ætlum aö bjóða uppá ferðir til Mexlkó. Viö geröum þaö litillega i vetur sem leiö, og ég geri ráö fyrir þvi, aö þær veröi vinsælar eins og þá. betta voru aö visu einstaklingsferöir, en þær mæltust vel fyrir, þótt fjöldinn væri ekki neitt gifurlega mikill. Siöan munum viö eins og undan- farin ár, selja inn i þær feröir, sem Flugleiöir hafa á boö- stólum”. — Hvernig er Flórida-ferðum ykkar háttað? „Þetta eru feröir, sem viö skipuleggjum fyrir fólk, sem vill fara þangaö út á eigin vegum. Viö höfum sent 5-10 manna hópa til Flórida i vor, og ég reikna meö þvi aö þaö veröi framhald á þess- um feröum i vetur, en þetta eru sem sagt feröir fyrir t.d. fjöi- skyldur. Þarna er margt skemmtilegt aö sjá, eins og t.d. Disney-land, Cyprus Garden, sem er mjög þekktur fyrir vatnaskiöaiþrótt- ina, og þar er sýndur á hverjum degi þaö sem þeir nefna vatna- skiöakabarett og þarna er sjó- minjasafn og sædýrasafn, þar sem er m.a. aö finna höfrunginn og kvikmyndastjörnuna Flipp- er.” — Hvað kosta nú svona ferðir? „Meöan viö búum við þetta ó- vissuástand i gengismálunum legg ég nú ekki út i það aö nefna neinar tölur. Þaö væri algerlega út i bláinn, meöan viö vitum ekki hvort veröur gengisfelling eöa hvort hún veröur mikil eöa lltil. Þetta veröur bara aö koma i ljós þegar þar aö kemur. En ég held þó, aö þaö sé óhætt aö segja, aö þessar feröir eru ekki mikiö dýrari en okkar venjulegu Spánarferöir. Þær eru ekki ætlað- ar neinu hátekjufólki sérstaklega, enda er þaö okkar reynsla, aö það er venjulegt fólk, sem fer i þessar feröir. Nú, við bjóðum svo þessi almennu kjör, sem eru á mark- aönum, sem eru þetta helming- urinn út og restin á tveimur til þremur mánuöum.” — Nú bjóðið þið upp á ekki að- eins nokkrar sérferðir, heldur annist þið iika almenna farmiða- sölu og ferðamannaþjónustu. En hvað er það margt fólk, sem ferð- ast á ykkar vegum i ár? „Viö erum aö gæla viö þaö aö þaö nái 2000 manna markinu. Viö sérhæfum okkur I Benidorm-ferö- unum, og viö höfum gert ráö fyrir þvi, aö þangaö færu á okkar veg- um rúmlega 1000 manns. Og viö virðumst ætla aö ná þvi marki, þvi það er næstum þvi uppselt i allar þær feröir, sem eftir eru. Svo má lika nefna þaö, aö við höfum alltaf veriö meö töluvert af feröum á erlendar vörusýningar, og viö munum hafa slikar ferðir á boöstólum i haust sem endranær. Þessar hópferðir okkar hafa allt- af verið töluvert vinsælar, og sýn- ingarnar hafa verið af margvis- legu tagi: húsgagnasýningar byggingavörusýningar og margt fleira, og þær hafa veriö i mörg- um löndum, eins og i Belgiu, Dan- mörku og Þýskalandi. Sú sýning, sem viö veröum á- reiöanlega meö ferö til i haust, er húsgagnasýningin i BrUssel, sem er mjög stór og merk sýning, og viö höfum einnig verið meö hóp- ferðir á Scandinavian Furniture Fair, sem er stærsta húsgagna- sýning i Skandinaviu en hún er á vorin. 1 þessar hópferöir hafa far- iö á bilinu 30-50 manns, og þessi hópur gengur aö ákveönum skoö- unarferöum og kynningarferöum, sem viö skipuleggjum i tengslum viö efni aöalsýningarinnar og þær eru auövitaö bara fyrir okkar far- þega” , sagöi Kristján Guölaugs- son aö lokum. — jsj. A þessa tvo drengi rakst — gel —, ijósmyndari Þjóðviljans þarsem þeir voru að grúsKa í ícr*nbækling- um. Liklega hugsa þeir sér að leggja I nútimavikinginn — eða láta sig a.m.k. dreyma um það. Kristján Guðlaugsson i Oiympó’! Hópferöir okkar á vörusýningar erlendis hafa notið vinsælda. Ljósm.:—gel. Benidorm-ferðir eru þær feröir, sem feröaskrifstofan Olympó leggur áherslu á, en þar er hægt að verða brúnn og sællegur. ’ ,,Viö erum um þessar mundir með Mallorka-pró- gram í gangi, sem við byrj- uðum á í vor og þvi lýkur ekki fyrr en í október'' sagði Böðvar Valgeirsson, forstjóri ferðaskrifstof- unnar Atlantik í samtali við Þjóðviljann. „Siöasta feröin i Mallorka-pró- gramminu okkar veröur reyndar meö dálitiö sérstöku sniöi. Hún veröur farin I lok september og tekur fjórar vikur, og hún er ein- göngu ætluð eldri borgurum, þaö er að segja fólki eldri en sextugu. Viö vorum meö hliöstæöar ferö- ir i vor fyrir Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar og Félags- málastofnun Kópavogs, og þær t feröir gáfust mjög vel. Þessi siö- | asta ferö Mallorka-prógramms- ins veröur hins vegar opin öllum eldri borgurum, sem I hana vilja fara, hvaöanæva af landinu. Viö höfum svona ferö á boöstól- um vegna þess aö viö þykjumst vissir um, aö þaö er markaður fyrir ferö af þessu tagi, og þaö hefur enda sýnt sig, að þó nokkr- ir, sem fóru i þessar ferðir i vor, ætla aö fara i þessa ferð lika. Þaö eru bestu meömælin.” —- Er þetta Mallorkaprógramm það eina, sem þið bjóðið upp á i sólarlandaferðum? „Já, þetta eru okkar einu sólar- landaferöir. En viö bjóöum auö- vitaö upp á fjölmargar aörar feröir, t.d. til meginlands Evrópu gegnum Amsterdam, og meöal þess sem má sérstaklega nefna, er Miö-Evrópuferö, sem farin veröur nú um mánaöamótin næstu. Þaö verður flogiö til Lux- emborgar og ekið þaöan meö áætlunarbifreiö gegnum Þýska- land, Austurriki og Sviss og þessi lönd skoöuö.” — En þaö er óhætt aö segja, aö þið hafiö sérhæft ykkur i skemmtiferðaskipum? „Já, þaö hófst nú á þvi, aö viö sáum um alla fyrirgreiöslu fyrir þau skemmtiferöaskip, sem komu hingaö til lands, önnuöumst skoðunarferöir fyrir erlenda far þega þeirra og þar fram eftir göt- unum. Þetta höfum viö gert I nokkur ár, og ég hugsa, aö viö höfum innan okkar vébanda um 90% allra þeirra skemmtiferöa- skipa, sem hingaö koma. Svo byrjuöum viö á þvi i fyrra- haust aö senda hópa á þessi skip viðs vegar um heim, þannig aö þaö var flogið I einhverja flughöfn erlendis, fariö um borö og dvaliö þar ákveöinn tima og siglt á ýmsa Helgi Jóhannsson hjá Samvinnuferðum/Landsýn: Leggjum mest upp úr ódýrum fargjöldum „Við höfum lagt mesta áherslu á þessar svo- nefndu skiptiferðir, sem ætlaðar eru eingöngu ASI - félögum, en þær ferðir eru meira en helmingi ódýrari en ferðir sem ganga og gerast á markaðnum", sagði Helgi Jóhannsson, sölustjóri hjá Samvinnu- ferðum/Landsýn. „Við getum haft þær þetta mik- ið ódýrari vegna þess að við skiptum á aðstöðu við dönsku verkalýðshreyf ing- una, þannig að fólk greiðir í rauninni eingöngu flug- farið." Aö sögn Helga er innifalin I feröinni 12 daga ferð meö áætlun- arbil viðs vegar um Danmörku, og siöan 7 daga dvöl I orlofshúsi, en hugmyndin aö baki feröunum er sú, aö veita aöildarfélögum Samvinnuferöar/Landsýnar kost á ódýrum orlofsferöum, meö þvi aö skipta á orlofsaöstööu viö Dani, sem eiga þá aftur kost á or- lofsaöstööu hér á landi. „A þessu ári fengum við 300 sæti, og viö skiptum þeim á milli aöildarfélaganna. Þaö hefur i sjálfu sér gengið mjög vel, en heföi þó getaö gengiö enn betur. Viö munum a.m.k. leggja aukna áherslu á kynningu á þess- um hluta af okkar prógrammi næst, enda er hér um aö ræöa al- veg hreint ótrúlega prisa. Fólk trúir þvi varla aö hægt sé aö fara i tveggja vikna orlofsferö fyrir minna verö en kostar meö al- mennu fargjaldi til Kaupmanna- hafnar. Það er þeim mun undarlega, að þessar ferðir skuli ekki hafa selst upp, miöaö viö þaö, aö þaö hefur veriö uppselt hjá okkur i allar aörar Danmerkurferöir, sem eru samt dýrari en þessar feröir. En þar kann, eins og ég sagöi, aö vera um að kenna okkar kynn- ingarstarfi, þaö hefur e.t.v. ekki verið nægilega öflugt.” — Veröur framhald á þessum þætti starfseminnar hjá ykkur? „Já, viö ætlum okkur aö halda áfram þessum feröum. Viö fórum meö 100 manns I svona feröir i fyrra, og 300 nú, og viö erum aö þreifa fyrir okkur meö hliöstæö skipti við Svisslendinga.” — En hvaö meö aöra þætti starfseminnar? „Viö höfum boðiö upp á svo- nefndar aukaferöir, en aöildarfé- lagar okkar fá sérstakan afslátt i þær. Þaö hafa verið feröir til ítaliu, Danmerkur, Grikklands, Júgóslaviu, og þaö er nánast upp- selt i allar þær feröir. Sérstaklega hefur þátttakan utan af landi ver- iö góö, enda erum viö eina feröa- skrifstofan, sem bjóöum sama verö fyrir alla landsmenn — hvaö sem hver segir. Og viö bjóöum lika fastan aöildarafslátt, sem dregst af heildarupphæöinni, þannig aö ég held sé óhætt aö segja, aö viö erum meö afskap- lega hagstæöa feröaprisa.” — Hvað reiknaröu meö, aö Amsterdam er borg, sem á eftir aö koma fólki á óvart, segir Helgi Jó- hannsson. Böövar Valgeirsson, forstjóri Atlantik: A okkar vegum feröast á þessu ári liklega um 2000 manns. Ljósm. — gel. merka staöi, og svo aftur flogiö hingaö til Islands. Og núna getum viö boöið upp á beina siglingu héöan til Noregs og Þýskalands meö skemmtiferöaskipinu Maxim Gorkij. Sú ferö veröur farin nú i lok ágúst, og ég hugsa aö viö verðum meö um fimmtiu manna hóp i þeirri ferö”. — Hverjir eru þaö nú, sem helst fara i svona siglingar? „Þaö er annar hópur, sem sæk- ir i svona ferðir en sá, sem fer til sólarlanda. Þetta eru aöeins dýr- ari feröir, enda fela þær meira i sér heldur en hinar feröirnar. Þarna er t.d. reiknaö meö fullu fæöi og þaö er ansi riflegt. Þaö væri i rauninni hægt aö eyöa deg- inum bara i þaö aö borða frá þvi eldsnemma á morgana til miö- nættis. Matmenn ættu aö geta notið þess.” — Hvaö kostar þessi ferö, til dæmis aö taka? „Þessi ferö tekur fjórtán daga ogkostar 16.100 krónur, þegar alit er taliö: Siglingin, sem tekur átta daga, keyrslu frá Bremer haven, sem er siöasti viökomu- staöur skipsins, til Luxemborgar og gisting þar meö morgunmat og flugi heim. Þaö gefur auga leiö, aö þessi ferö er á þvi veröi, sem höfðar frekar til fólks, sem búiö er aö ferðast mikiö og komiö er i þokkaleg efni. Enda hefur þaö sýnt sig, aö það er frekar ráösett- ara fólk og eldra, sem sækir i svona siglingar. Fólk, sem sér i svona feröum nýjan og skemmti- legan feröamáta”, sagöi Böövar Valgeirsson aö lokum. —jsj. Helgi Jóhannsson hjá Samvinnuferöum/Landsýn: Okkur hefur tekist aö iækka fargjöld meö því aö nýta flugvélarnar t.d. meö svonefndum aukaferöum. Ljósm.:—jsj. margir fari út á ykkar vegum á þessu ári? „Ég held, að þegar allt er taliö, þá sé þaö ekki fjarri þvi aö vera um 8-9.000 manns i leiguflugi, fyrir utan alla almenna feröa- þjónustu, sem viö veitum. Þessari hagstæðu tölu náum viö m.a. með þvi aö leggja sifellt meiri áherslu á gagnkvæmt leiguflug, en þaö miðar aö þvi aö fullnýta þær vélar, sem koma hingaö, fylla þær af hópum, sem fara utan, og þar meö er hægt aö lækka ferðakostnaö ævintýralega mikiö. Þessi aukaflug njóta æ meiri vinsælda, enda er þaö ekki á hverjum degi sem hægt er aö fljúga til Noröurlandanna fyrir u.þ.b. 2.000 krónur. Þaö eru sem sagt til alveg óþekkt fargjöld sem fást fyrst og fremst meö þvi aö fullnýta flugvélarnar meö leigu- flugi.” — En eru einhverjar nýjungar á döfinni hjá ykkur i haust? „Já, viö veröum meö eina nýj- ung, sem eru helgarferöir tii Amsterdam, sem veröa hliöstæö- ar helgarferöum, sem viö höfum boöið til London. Amsterdam er mjög áhugaverö og skemmtileg borg, og þeir sem hafa þegar far- iö þangaö eru greinilega mjög á- nægöir. Þarna er þvi aö opnast nýr markaöur, sem á eftir aö koma fólki á óvart, þaö er óhætt aö segja þaö,” sagöi Helgi Jó- hannsson aö lokum. — jsj.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.