Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 7
Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Unglingar oftar óstýrilátir en nú! Á sjötta áratugnum mun það hafa farið vaxandi að fólk færi út úr bænum um verslunarmanna- helgina, jafnvel þótt ekkert væri um að vera. Þórsmörkin varð mjög vinsæll staður — ekki sist fyrir unglinga milli fermingar og tvitugs. Það fólk sem þá gisti Mörkina er nú orðið ráðsctt og roskið: komið á fimmtugsaldur- inn og sumir langleiðina. Það hef- ur oft verið býsnast yfir æskunni hér á landi og Verslunarmanna- helgar-barningur er engin nýlunda. Hér gripum við niður i árinu 1960: „1 sambandi viö þessi ferðalög vill oft brenna við að miklar óspektir séu og umgengni fólks fyrir neðan allar hellur. Und- anfarin ár hafa birzt i blöðunum frásagnir af stórslysum, árekstr- um, óspektum ölvaðra og þar frameftir götunum. Mest bar á ölvun hjá unglingum milli ferm- ingarog tvitugs, sem sleppa fram af sér beizlinu þegar þeir eru viðs fjarri heimahögum og reyna að gera sem mestan óskunda, skera niður tjöld ofan af blásaklausu fólki, sem á sér einskis ills von, stinga göt á uppblásnu tjöldin svo eigendur þeirra veltast bjargar- lausir innan i hrilgunni, brjóta flöskur, rifa stórar greinar af okkar fátæklega skógi og hengja utan á bifreiðar sinar og tjöld og svo mætti lengi telja. Að visu hefur ekki verið mikið um óspektir i Mörkinni undanfar- in ár, en umgengnin hefur verið þeim mun verri. Þórsmörkin er friðland Skógræktarinnar, og hún vill beina þvi til almennings að ganga vel um, skilja ekki eftir bréfarusl, matarleifar eða flösk- ur, og sérstaklega varar hún fólk við að skilja eftir flöskubrot, sem geta reynzt stórhættuleg. Nöfn þeirra, sem staðnir verða að óspektum eða slæmri umgengni, verða send til blaðanna og birt ásamt heimilisföngum viðkom- enda.” (bjv. 30. júli 1960) Það var tekið hart á þessum málum i dentið (það má skjóta þvi að, að ekki fann ég getið söku- dólga i umgengnismálum i Mörk- inni þessa verslunarmannahelgi, svo sennilega hefur allt farið skaplega fram.) Ég má til með að geta þess, að i þessari sömu blaðagrein er þess getið að forráðamenn þeirra ferðaskrifstofa er skipulögðu ferðir i Mörkina, tóku skýrt fram, aö Reykvikingar, bæði unglingar og fullorðnir, hegðuðu sér yfirleitt best. Þetta gladdi mitt reykviska hjarta! ast A þessum árum birti slðdegispressan iðulega myndir af þessu tagi eftir hverja verslunarmannahelgi r __ I Tívolí um verslun- armannahelgi 1958 Vcrslunarmannafélag Reykja- vikur gekkst i nokkur ár fyrir skemmtunum um verslunar- mannahelgina i Tivoli. Siðasta skemmtunin mun hafa verið árið 1958, en þá segir Þjóöviljinn svo frá hátiðarhöldunum: ,,Um verslunarmannahelgina verður að veniu efnt til fjöl- breyttra hátiðarhalda i Tivoli. Meðal skemmtikraftanna verða nokkrir þekktir erlendir fjöllista- menn. Af erlendu skemmtikröftunum má nefna Matsoha Sawamura, japanskan fjölbragðaglimumann, sem sýnt hefur á fjölmörgum skemmtistöðum i Evrópu, og komið viða fram i sjónvarpi. Sýn- ir hann Jiu-jitsu, aikodo sem er þjóðariþrótt Japana, og judó, sem er leikfimikerfi i glimuformi. Fluttur veröur hinn bráð- smellni skemmtiþáttur „Haltu mér — slepptu mér” og sér Leik- skóli Ævars Kvarans um flutn- inginn. Af öörum skemmtiatrið- um i Tivoli um helgina má nefna hjólreiðakeppni sendisveina i Reykjavik, kappróður yfir garð- tjörnina, skyrkappát með te- skeiðum, spurningaþætti barna og fullorðinna og þátt Baldurs og Konna. Stjörnutrióið mun skemmta og leika fyrir dansi á Tivolipallinum, auk þess sem fluttir verða skopþættir og efnt til flugeldasýningar og brennu á mánudagskvöldiö. Að sjálfsögðu verða öll skemmtitæki i Tivoli- garðinum i gangi og dýrasýning- inopin. A sunnudaginn mun flugvél fljúga lágt yfir skemmtigarðinn og varpa niður gjafapökkum, sem einkanlega eru ætlaðir börnum og unglingum, en á mánudagskvöld verður varpað niður pökkum, sem ætlaðir eru fullorðnum. M.a. verður i pökkunum flugfarseðill til Kaupmannahafnar, peninga- dvisanir, sælgæti og leikföng”. Ó, þessir dýrðardagar i TIvoli koma vist aldrei aftur! (ast tók saman) Síríus sækir á brattann!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.