Þjóðviljinn - 09.10.1982, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. október 1982
Amsterdamferð
með Arnarflugi
í boði
Hér kemur annar hluti nýrrar get-
raunar sem hófst síðastliðinn sunnu-
dag og verður á hverjum sunnudegi
fyrst um sinn. Þeir sem hyggjast taka
þátt, safni saman getrauninni í hverj-
um mánuði og sendi inn svör í lok
mánaðarins. Dregið verður úr réttum
svörum. Fyrir októbermánuð eru
glæsileg verðlaun í boði eða FERÐ
TIL AMSTERDAM MEÐ ARNAR-
FLUGI. Eingöngu er spurt úr fréttum
Þjóðviljans dagana fyrir hvern sunnu-
dag. Tekið skal fram, að getraunin er
aðeins fyrir áskrifendur.
Eyjólfur Konráö Jónsson.
b.
Haukur Már Haraldsson
c
Sighvatur Björgvinsson
Eyjólfur Konráð Haukur Már Sighvatur
í vikunni skaut upp Músavinafélaginu sem mót-
mælti ályktun Kattavinafélagsins gegn Tomma og
Jenna. Hver er formaður Músavinafélagsins?
a
Garðveisla
b
Gosi
c
Öskubuska
Hvað heitir leikritið?
Bók með barnaleikriti og plata með söngvum úr
því kom út í vikunni. Hvað heitir leikritið?
Var það útvarpið... eða flugstöðin...
eða kannski
kafbátur?
„Gróf íhlutun í innanríkismál okkar“ sagði Svavar
Gestsson um:
a
tillögur útvarpslaganefndar
um að gefa útvarpsrekstur
frjálsan hér á landi
b
ákvörðun Bandaríkjaþings
um að framlag til flugstöðvar á
Bandaríkjaflugvelli verði
framlengt
c
ferðir óþekkts kafbáts við
Austurströndina
■ He i maeyj argosið Sjónvarpið Spútnik
Á mánudaginn var þess minnst að
10 ár voru liðin frá því að cld-
gosið í Heimaey hófst
b
15 ár voru liðin frá því að út-
sendingar íslenska sjónvarps-
ins hófust
c
25 ár voru liðin frá því að
Spútnik. fyrsta gervitunglinu.
var skotið á loft.
Hagkaup hyggst færa út kvíarnar. En hvar?
Verslunin Hagkaup hyggst færa út kvíarnar
Hefur sótt um 28 þúsund fer-
metra lóð í nýja miðbænum
viö Kringlumýrarbraut í
Reykjavík
b
Ætlar að kaupa Kaupfélag ís-
firðinga og leggja þar með
undir sig nær alla verslun á
ísafirði
c
Hefur sótt um að fá að reisa
vínveitingahús ofan á hita-
veitugeymunum í Öskjuhlíð
og reka það undir nafninu Hot
Springs
Hver verður
lygalaupur
mánaðarins?
Eins og kynnt var í síðasta Sunnudagsblaði
efnir Þjóðviljinn nú til samkeppni um bestu lyga-
söguna, og eru menn beðnir að senda slíkar ann-
aðhvort undir nafni eða dulnefni, en rétta nafnið
verður þó að fylgja með. Sögurnar verða birtar í
Sunnudagsblaðinu, og síðan verður í lok mánað-
arins útnefndur lygalaupur mánaðarins. Sög-
urnar sendist Þjóðviljanum, Síðumúla 6, c.o. Guð-
jón Friðriksson: trúnaðarmál. Og hér birtist fyrsta
sagan frá gömlum farmanni:
Kvikmyndastjama
„skandaliserar
Ég má til með að skýra frá
nokkru sem henti mig fyrir
aldarfjórðungi og hljómar eins
og lygasaga, en er þó alveg dag-
satt. Ég hef sagt mörgum þessa
sögu áður, en fæstir hafa viljað
trúa mér og telja mig vera að
grobba. Ég hef því eiginlega
gefið upp á bátinn að segja sög-
una sem sanna sögu og kýs að
segja hana undan formerkjum
lygasögu þó að hvert orð sé satt
í henni eins og ég áður sagði.
Þannig er mál með vexti að ég
var farmaður á einum Fossanna
árið 1960 og sigldi hann m.a. til
New York. Svo var það að við
komum í þessa stórborg að
hausti til og höfðum nokkurra
daga stopp. Eins og sjó-
mönnum er títt hugsuðum við
okkur gott til glóðarinnar að
lyfta okkur dálítið upp á hinum
ótalmörgu skemmtistöðum og
krám í borginni. Er ekki að orð-
lengja það að við göngum krá úr
krá og erum orðnir nokkuð hátt
uppi. Síðan man ég eftir mér að
ég er að reyna að komast inn á
einhvern glæstan stað við
Broadway en síðan er eiginlega
allt í móðu og mistri. Ég hafði
sem sagt fengið mér einum of
mikið í staupinu og var syngj-
andi glaður. Eitthvað óljóst
rámar mig í það að hafa lent í
slagtogi við einhvern kven-
mann þarna um kvöldið eða
nóttina, en næst veit ég af mér
að ég vakna í feiknabreiðu rúmi
eða öilu heldur himinsæng í
íbúð sem ég kannaðist ekkert
við. Einhver kvenmannsmynd
liggur líka í rúminu með sæng-
ina breidda upp fyrir haus.
Þar sem ég var vægast sagt illa
fyrir kallaður og rykaður og þar
að auki með móral og hræddur
um að hafa misst af skipinu,
snaraði ég mér í spjarirnar og
laumaðist út án þess að vekja
kvensuna. Ég tók þó eftir því að
íbúð þessi var mjög ríkmannleg
og stór á efstu hæð í skýjakljúfi.
Er ég var kominn út á götu,
veifaði ég leigubíl og fór beint
til skips. Er ég fór að spyrja fé-
laga mína frétta um næturasyin-
týrin kom í ljós að tveir þeirra
höfðu verið utan við skemmti-
staðinn með mér og ekki komist
inn, en einhvern veginn hafði
mér tekist það og horfið þeim
sjónum.
Svo vildi til að skipið tafðist í
einn sólarhring í viðbót í stór-
borginni. Við fengum okkur því
smágöngu um Manhattan
seinna um daginn, eftir að
mestu timburmennirnir höfðu
verið læknaðir með Budweiser
bjór. Allt í einu rekur einn fé-
laga minna upp öskur. Hvert þó
íþreifandi. A flennistórri mynd
á forsíðu eins dagblaðanna er
enginn annar en ég sjálfur á
faðmlögum við íturvaxna, Ijós-
hærða kynbombu, og yfir alla
forsíðuna stóð: Marilyn Monr-
oe skandaliserar á skemmti-
stað. Fyrir neðan mátti lesa frá-
sögn af því að kvikmynda-
stjarnan fræga hefði sést í fylgd
með óþekktum manni á
skemmtistað á Broadway og
hagað sér vægast sagt ósæmi-
lega. Síðan voru hugleiðingar
um það að hún væri óhamingju-
söm í hjónabandi sínu við
leikritaskáldið Arthur Miller og
væri í skilnaðarhugleiðingum.
Inni í blaðinu var svo mynda-
sería af okkur Marilyn í æðis-
géngnum dansi þar sem hún var
berfætt en ég með skyrtuna upp
úr buxunum og síðan mynd af
okkur þar sem við hverfum inn í
leigubíl.
Sem betur fer fór skipið
snemma morguns daginn eftir,
en þegar égkom heim mátti lesa
bæði í slúðurdálkum Tímans og
Moggans um ástarævintýri
Marilyn Monroe með óþekkt-
urn manni svo að greinilega
hefur fréttin borist um
heimsbyggð alla. Fyrir nokkr-
um árum komst ég svo yfir ævi-
sögu Marilyn Monroe eftir
Betty Muggeridge þar sem
heilum kafla er varið í þetta ást-
arævintýri og komist að þeirri
niðurstöðu að það hefði skipt
sköpum fyrir kvikmyndastjörn-
una og að lokum leitt til þess að
hún fyrirfór sér. Eru leiddar
getur að því að óþekkti maður-
mn hafi verið búlgarskur prins
sem hvarf sporlaust í Venesúela
aðeins tveimur árum eftir að
þetta gerðist.
Pað hlálegasta í þessu öllu
saman er, að ég virðist hafa átt
nótt með Marilyn Monroe án
þess að sjá hana, vita af henni,
eða yfirleitt muna eftir henni.
Gamall
farmaður