Þjóðviljinn - 09.10.1982, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. október 1982
DlOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóöfrelsis.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
p itst Jórnargrei n
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn:,Álfheiöur Ingadóttir, HelgiÓlafsson,LúðvíkGeirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurösson, Guðmundur Andri
Thorsson.
úr aimanakinu
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6 Beykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Úrslit
sem fyrst!
• Alþingi kemur saman á mánudag. í þingbyrjun veit enginn meö
vissu hver veröa örlög frumvarps ríkisstjórnarinnar til staðfesting-
ar á bráðabirgðalögunum frá 21. ágúst s.l.
• Greinilegt er að í hópi stjórnarandstæðinga eru efasemdir víða á
kreiki um réttmæti þeirra harðvítugu afstöðu, sem flokksbrodd-
arnir hafa tekið, að stöðva frumvarpið, hvað sem það kostar, með
20 atkvæðum gegn 20 í neðri deild.
• „Slíkt offors væri mikil skammsýni“, sagði fyrrverandi þing-
maður Sjálfstæöisflokksins í forystugrein Dagblaðsins og Vísis nú í
vikunni, og er það víst ekki of ntikið sagt.
• Innan þingflokks Aiþýðuflokksins eru einnig á kreiki mjög
alvarlegar efasemdir, og kemur það m.a. skýrt fram í viðtölum við
Magnús H. Magnússon, varaformann flokksins og Árna Gunnars-
son, alþingismann, sem Þjóöviljinn birti í gær. Þeir hafa greinilega
,ekki gert málið upp við sig.
• Nauðsynlegt er að fá úr því skorið sem fyrst, hvort bráðabirgða-
lögin njóta nægilegs stuðnings á Alþingi eða ekki. Þjóðviljinn hvet-
ur til þess, að stjórnin láti á það reyna á fyrstu vikum þingsins.
Ríkisstjórnin þarf ekki að óttast það próf. Verði frumvarpið fellt,
þá er það stjórnarandstaðan, sem tekur á sig þyngsta ábyrgð, og
þjóðin mun síðan dæma. Verði frumvarpið hins vegar samþykkt,
þá hefur ríkisstjórnin náð umtalsverðum árangri og heldur áfram
sínum störfum.
k.
Sorp
Morgunblaðsins
• Nú ber nýrra við. Allt í einu er Morgunblaðið farið að ásaka:
Hjörleif Guttormsson, iðnaðarráðherra fyrir að hafa boðið Alu-
suisse betri kosti en hæfilegt sé!!
• Allt er þetta þó byggt á fölsunum hjá Morgunblaðinu. Á fundi;
Hjörleifs með fulltrúa Alusuisse í maímánuði s.l. bar iðnaðarráð-
herra fram kröfu um hækkum orkuverðs til samræmis við fram-
leiðslukostnaðarverð og það verðlag á orku sem tíðkast í nálægum
löndum. - Þetta þýðir um þreföldun orkuverðsins og í boði ráð-
herrans var tilskilið að öll sú hækkun kæmi til framkvæmda fyrir
1. nóv. í ár.
• Þau plögg sem birt hafa verið opinberlega, meira að segja í
Morgunblaðinu, sýna þetta með ótvíræðum hætti. Hjörleifur bauði
hins vegar upp á það, að aðeins hluti hækkunarinnar kæmi til
framkvæmda strax í maí í vor, en svo fuil hækkun fyrir októberlok.j
Svo fáránlegt sem það er reynir Morgunblaðið að snúa málinu á
þann veg, að ráðherrann hafi boðið Alusuisse upp á að láta fyrstu;
áfangshækkunina eina duga, sem er náttúrulega algjör fölsun á<
staðreyndum.
• Aðferð Morgunblaðsins er sú að slíta úr samhengi þær fáu línuri
sem fjalla um bráðabirgðaákvæðið eitt, og birta af þessum línum
stækkaðar myndir, en láta eins og sjálft meginmálið um þreföldun
orkuverðs fyrir 1. nóv. 1982 sé ekki til. Þetta er sorpblaðamennska
á hæsta stigi og Morgunblaðinu til skammar.
• En viö skulum sjá, hvort Morgunblaðiö þorir þegar á hólminn
kemur, að taka undir kröfu Alþýðubandalagsins uin einhliða
hækkun orkuverðsins fyrst Alusuisse hefur neitað að semja.
k.
Við neitum
þessu
• Um þessa helgi er haldin í Reykjavík landsráðstefna Samtaka
herstöðvaandstæðinga. Einmitt á sama tíma berast nú fréttir um
þau áform bandarískra ráðamanna aö auka enn hernaðarumsvif,
m.a. með fjölgun þeirra fljúgandi radarstöðva, AWACS-
flugvélanna, sem staðsettar eru á Keflavíkurvelli. Með þessu er
ætlunin að gera ísland í enn ríkara mæli að miðpunkti og stjórn-
stöð í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjamanna á Norður-
Atlantshafi með öllum þeim hættum sem því fylgja.
• Þjóðviljinn heitir á alla að snúast til öflugrar og samhentrar
andstöðu gegn þessum áformum og sendir landsráðstefnu Samtaka
herstöðvaandstæðinga baráttukveðjur. Við viljum herlaust Island
og óháð risáveldunum, sem ógna heimsbyggöinni með vígbúnað-
aræði sínu.
k.
Tvöfeldni — kreppa - réttlæti
Kannast ekki flestir viö tvöfalt
siögæöi i fari sinu? Eöa ert þú,
lesandi góöur, einn þeirra sem
halda aö kórrétt viöhorf og heil-
agur sannleikur séu holdtekin i
j)ér? t rauninni er sama hvort þú
nærist á þess háttar sjálfsblekk-
ingum eöa einhverjum öörum,
þér er frjáist að lesa þetta
greinarkorn.
Ræða ráðherrans
Oftast kemur manni þetta
fyrirbæri i hug þegar pólitikusar
eru annars vegar. í fréttum af
ræöu Ólafs Jóhannessonar á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóöanna
nýveriö, sagði aö utanrikisráð-
herrann hefði gert að umtalsefni;
hið gifurlega fjármagn sem variö
væri til hermála i heiminum. Yröi
aö gripa til einhverra ráöstafana
ef ekki ætti illa að fara. Auðvitað
var þetta alltof satt og rétt hjá
ráðherranum. Stór hluti mann-
kyns hefur svo miklar áhyggjur
af vigbúnaðinum aö hann er
meira aö segja reiðubúinn til að
leggja töluvert i sölurnar til aö
draga úr honum. En er Ólafur Jó-
hannesson einn af þeim? Hann er
einn þeirra sem ólmur vill aukin
umsvif hersins hér á landi, sem
auövitað er hluti af vigbúnaöinum
i heiminum. Einhverjir kvik-
indislegir kommar myndu sjálf-
sagt segja þetta vera vegna
slæms skyggnis i Fljótunum eða
rekja ræöuna til venjulegrar
borgaralegrar hræsni. Ég held að
þaö séu flóknari skýringar á
fyrirbærinu, en alténd ber þetta
vott um tvöfalt siögæði.
Fleiri dæmi
Þvi miður er allsherjarþings-
ræöa utanrikisráöherrans engin
undantekning frá venju, en hún er
nærtækt dæmi. Alveg eins mætti
benda á hvernig allaballar rekja
ógnarástandiö i efnahagsmálum
heimsins og komast að þeirri
niðurstöðu, eins og skoöanabræö-
ur þeirra annars staðar i löndum
heimsins, að aöeins tvennt geti
losað heiminn úr krumlum
kreppu og örbirgðar, stórstyrjöld
eöa nýtt efnahagskerfi sem deilir
gæðum heimsinS réttlátt niöur á
meðal mannanna barna.
Auövitaö velja sósialistar
seinni kostinn, sá velvilji viö fá-
tækari fjarlægar þjóöir er hafinn
yfir allan vafa. Hins vegar er
sjaldan eöa aldrei minnst á nauö-
syn þess að hefjast handa á þess-
ari lifsnauösynlegu breytingu á
efnahagskerfinu hér og nú, i tún-
inu heima sem er þó starfsvett-
vangurinn. Ekki laust viö aö þetta
sé lika tvöfalt siögæöi.
Svör við kreppu?
Fyrir margt löngu heyrði
maöur fólk minnast á kreppuna
miklu með hrolli og óhugnaði i
Úskar
Guðmundsson
skrifar
augunum. Fyrir þeim sem voru
aö segja manni frá ósköpunum
var kreppan dæmi um skipbrot
kapitalismans. Og Karl gamli
Marx hafði kenningar til reiðu um
kreppur sem væru lögmál þessa
markaðar sem auövaldsþjóöfé-
lagið snýst um.
Og nú þegar svona samdráttur
gerir vart viö sig hérlendis eins
og erlendis hefði maöur haldiö aö
rykiö yrði dustaö af fornri kenn-
ingu og forystumenn og félags-
lýöur hefðu svör á reiðum hönd-
um um orsakir kreppunnar (sem
er máske ekki meira en sam-
dráttur þegar allt kemur til alls),
auk þess sem bent væri á leið-
irnar út úr kreppunni, nýtt efna-
hagskerfi fyrir almenning i þessu
landi rétt eins og viö viljum nýtt
kerfi fyrir þriöja heiminn. betta
er meira að segja réttlætisspurn-
ing ef ekki tilveru.
Meðaltölin
Þau hagfræöilegu hugtök sem
pólitik gengur eftir á samdráttar-
timum eins og þeim sem við nú
lifum eru á köflum ansi myrk og
sérfræöingar ekki einu sinni á eitt
sáttir um hvaö þau merkja. En
hvort sem þjóöarframleiðsla
ætlar aö dragast saman um 1%
eöa 4%, þá er hitt vist, aö vel er
hægt aö ætlast til þess aö aörir en
láglaunafólk verði látnir finna
fyrir samdrættinum.
Það dynur á almenningi i si-
bylju um meðaltöp útgerðar og
fiskiönaöar, um samdráttinn i
þessari atvinnugreininni og
vonda greiðslufjárstööu i hinni.
Tölur viröast nánast til um alla
þessa hluti, Nema hvað ekki
heyrist mikið frá þeim sem bera
mikiö úr býtum, frá blómlega at-
vinnurekstrinum. Hvar hefur
fjármagnsstreymi verið á undan-
förnum árum? Hverjir hafa haft
fjármagn á milli handanna?
Hverjir hafa haft efni á þvi að
byggja stórar einbýlishallir og
þenja út atvinnurekstur sinn?
Hvernig hafa tekjurnar i þjóöfé-
laginu dreifst á undanförnum
árum? Svör við sllkum og þvium-
likum spurningum gætu e.t.v.
auöveldað eftirleikinn: skipta
tekjum þjóðfélagsins réttlátar
niður heldur en nú er gert.
Dularhjúpur
Þvi miður hefur borið alltof
mikið á þvi að þessi lögmáls-
bundni samdráttur auövaldsþjóð-
félagsins sé sveipaður einhverj-
um dularhjúp: kreppan er eitt-
hvað sem kemur og fer enginn
veit hvenær og hvers vegna. Meir
að segja hefur þvi veriö haldiö
fram viö almenning i landinu, aö
hann eigi sök á kreppunni. Ef
þessi samdráttur er kreppa væri
gaman aö velta þvi fyrir sér
hversu langt er á milli kreppu og
leiftursóknar?
Krepputalið i okkur allaböllum
hefur farið fyrir brjóstið á mörg-
um. Þó segir móðir min aö sér
verði alltaf kalt á fótunum þegar
hún heyri minnst á kreppuna.
Þannig minnist hún kreppunnar
sjálfrar meö kuldahrolli. Þá voru
nú ekki varmagjafar i hverjum
krana og börnin voru vist eitthvað
litilfjörlega skædd. í kreppunni
miklu var lika fámenn yfirstétt
andspænis almúga manna. I dag
ræöur rikjum blómleg borgara-
stétt sem á gnægö fjár og eigna.
Þaö er meira til skiptanna. Lofaö
veröi réttlætiö i kreppunni.
-óg