Þjóðviljinn - 09.10.1982, Síða 7
Helgin 9.-10. október 1982 i ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Art Ensemble
ofChicago:
Urban Bushmen: Promenade: Cote Bamako I; Bush Magic; Urban Magic;
Sun Precondition Two; Theme for Sco; New York is full of Lonly People
Ancestral Meditation; Uncle; Peter and Judith; Promenade: Cote Bamako
II; Odwalla/Theme.
Flytjendur: Lestcr Bowie, Joseph jarman, Roscoe Mitchell, Malachi
Favors Maghostut, Famoudou Don Moye
Útgefandi: ECM 1211/12 (2 LP), 1982
Dreifing: Gramm, Fálkinn.
Borgar-
búskmenn
og trommuleikarinn Don Moye í
hópinn. Hann haföi mikil áhrif á
stíl Art Ensemble með hugmynd-
um sem kontnar voru beint frá afr-
ísku slagverki, en þar er að finna
uppruna svartrar tónlistar svo sem
kunniigt er.
Annars er það áberandi hve vel
meðlimir þessarar hljómsveitar eru
heima i öllum stílbrigðum djassins,
allt frá upprunalegum stíl New Or-
leans til frjálsrar tjáningar nútím-
ans. Undanfarin 10 ár hefur Art
Ensemble rakað sant fleiri verð-
launum, en nokkur önnur hljóm-
sveit, jafnt fyrir hljómleikahald,
plötur og sjálfstætt starf hvers ein-
staklings fyrir sig. Reyndar halda
meðlimir úti öðrum hljómsveitum,
eru skóli eða uppeldismiðstöð fyrir
unga tónlistarmenn og leika hver
og einn inn á hljómplötur eða
halda hljómléika. T.d. fengu ís-
lendingar að kynnast tveimur hlið-
um á þessu starfi fyrr árinu, þegar
Art Ensemble hélt hljómleika hér
á vegum Jazzvakningar og aftur
þegar hinn óvenjufjölhæfi saxófón-
leikari Roscoe Mitchell lék í Fél-
agsstofnun stúdenta.
Hin nýja hljómplata félaganna,
„Urban Bushmen" er hljóðrituð á
konsert sent þeir héldu í Ameríku-
húsinu í Munchen. Þótt hljómplöt-
una skorti hinn sjónræna þátt sem
gjörningakenndir hljómleikar
AEC eru fullir af, er hún í flokki
bestu „lifandi" platna hljóm-
sveitarinnar. Eins og nafn hennar
ber með sér, blandast hér áhrif
stórborgarinnar við furmstæða en
þróttmikla hefð Afríku. Ferð
svertingjans til upprunans í leit að
sjálfsvitund, leiðir meðlimi AEC á
Hús til sölu
Húsiö Grjótagata 9 hér í borg
er til sölu.
Verður húsiö til sýnis dagana 16, og 17. októ-
ber n.k.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu mína fyrir kl.
15.00 hinn 26. október n.k. og skulu þau vera
í samræmi við söluskilmála, sem þar fást
afhentir.
Tilboðin verða opnuð á sama stað að við-
stöddum bjóðendum kl. 11.00 hinn 27. okt-
óber.
Borgarritarinn í Reykjavík
8. október 1982
Auglýsið í
Þjóð\viljanum
Halldór B.
Runólfsson
skrifar
Eftir að platan „Nice Guys“
(ECM) hafnaði í 2. sæti í árlegru
kjöri djass-gagnrýnenda, 1980 og
„Full Force" (ECM) náði 1. sæti í
sömu keppni árið 1982, má segja
að Art Ensemble of Chicago standi
á hátindi frægðar sinnar eftir 17 ára
samstarf. Það var einmitt vorið
Í965 að nokkrir ungir Chicago-
búar stofnuðu Samtök til eflingar
skapandi tónlistarmönnum
(AACM), í þeim tilgangi að vinna
saman að hljómleikahaldi. Án þess
þeir gerðu sér grein fyrir því strax,
voru þeir að beina djassinum inn á
nýjar brautir. Þeir uppgötvuðu ný
hljóðfræði, sum hver heimasmí-
ðuð, kammer-djasstónlist sem
byggir á sjálfsprottnum einleik án
undirleiks og ryþmísku samspili,
auk róttækra nýjunga í takti.
Sérstaða Art Ensemble of Chic-
ago innan samtakanna, byggðist á
hæfileikum þeirra til að tjá sig sem
einstaklingar innan heildarinnar,
um leið og þeir sýndu óvenju næm-
an skilning á hugmyndum hvers
annars. Þetta gerði þá fljótlega
mjög sterka sem heild, án þess að
skaða sjálfstæði hvers og eins
þeirra. I fyrstu var hljómsveitin
kvartett, en 1970 bættist slagverks-
Meðlimir Art Ensemble of Chicago;
slóðir forfeðranna. Munurinn á
þeim og fyrri hljómlistarmönnum,
s.s. John Coltrane, er að þeir þurfa
ekki að leita á náðir hinnar svörtu
álfu, heldur finna þeir nú Afríku
heima fyrir.
Það þarf ekki að hlusta lengi á
Urban Bushmen til að hrífast af
jafnvægi þessara hljómleika, krafti
í ásláttarhljóðfærum og löngum
sumir í heiðbundnum búningum.
sóló-blæstri iúðranna, þar sem þeir
Lester Bowie og Roscoe Mitchell
auk Joseph Jarman og Don Moye,
þenja ólíkustu blásturshljóðfæri
með ólíkum tökum, en ntynda þó
órofa samræmi sín í millum.
Hljómplatan er vel pressuð og
upptakan er ágæt, þannig að hinn
lit'andi hljómur tónleikanna kemst
vel til skila.
I
Smídshöföa 23, sími 812 99
Eigendur
framdrifsbíla athugið!
Það er sannað mál að bílar með
framdrifi slíta meira dekkjum en aðrir bílar.
Til þess að fyllsta öryggis sé gættber að vanda valið
sérstaklega þegar dekk eru valin undir bílinn.
Það er því engin furða að langflestir
framleiðendur framdrifsbíla í Japan,
velja Bridgestone undir bíla sína.
Reynsla Bridgestone á íslandi sannar að
Bridgestone dekkin eru óhemju slitsterk og endingargóð.
Öryggið 1 fyrirrúmi með
Bridgestone undir bílnum.
25 ára reynsla á íslandi.
Valið er því ekki erfitt —
Bridgestone