Þjóðviljinn - 09.10.1982, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. október 1982
af bsejarhcllunní
Ofurvald
hnerrans
Það kom fyrir, þetta voða-
lega, sem ekki má ske og sist á
tónleikum eða undir prédikun.
Ég fékk hnerra, þegar ég var að
hlusta á sexmenningana snjöllu
frá Stuttgartspila á fiðlur sinar,
viólur og selló i Norræna húsinu.
Þetta var allsendis óforvarand-
is og óskylt ástæðum hundsins
og heimasætunnar hjá Ólafi
Kárasyni.
Ég barðist við hnerrann. Mér
flaug i hug, að Paganini hafði
eitthvert sinn refsað einum
aðalsmannsræfli grimmilega
fyrir að hnerra á tónleikum hjá
sjálfum sér, meistaranum.
Hann hætti i miðju kafi að spila,
en hermdi með fiðlusnilld sinni
nokkrum sinnum eftir hnerrum
karlsins. Sá varð að augabragði
það sem eftir var ævinnar. Og
ég hugsaði: Hvað nú, ef þeir all-
ir sex hætta að spila i miðjum
kliðum og herma með öllum sex
hljóðfærunum i senn eftir hnerr-
anum i mér?
En þetta var reglulega ljótt af
Paganini. Hvað gat manngarm-
urinn gert að þessu, jafnvel þótt
hann væri aöalsmaður? Enginn
veit nema sá sem reynt hefur,
hvilikum óviðráðanlegum
heljartökum hnerrinn getur
gripið einn drottins krossbera.
A.m.k. er ég i stöðugri lifshættu,
þegarég ek bil. Það er annað en
gaman aö vera kannski staddur
á hringtorgi i brjálaðri umferð
siðdegis á föstudegi og þurfa allt
ieinuaðhnerra. Maðurherpist i
herðunum, kinnarnar tútna út
eins og á básúnuleikara, siðan
kemur eitthvað sem likist jarö-
skjálftakipp, 6-7 stig á Richters
kvarða, og loks sprengigosið.
Það varir kannski ekki nema
andartak. En einmitt á þessu
andartaki lokast augu, eyru og
reyndar öll skilningarvit. Það er
ekkert til i heiminum nema
hnerrinn. Og hvað getur ekki
gerst á einu andartaki i brjál-
aðri umferð?
Það er þvi engin furða, þótt
menn um viða veröld segi ,,guð
hjálpi þér” eða eitthvað svip-
aörar merkingar, þegar einhver
hnerrar nærri þeim. Menn héldu
nefnilega, að sálin hrykki
andartak úr likamanum við
hnerra og þá gæti Sá Vondi
Sjálfur skotist inn i tómarúmið.
Og það verö ég að taka undir, aö
aldrei finnst mér ég sálarlaus-
ari en i miðjum hrierranum. Ein
skyring á hnerranum er reynd-
ar sú, að Kölski hafi undir kodd-
anum hjá sér skrá yfir allar
mannkindur (Þetta var i sam-
komulaginu milli hans og Drött-
ins, þegar þeir skiptu með sér
heiminum forðum daga). Kölski
hefur ætið verið spaugsamur og
smekkvis og les öðru hverju t
skránni að gamni sinu. Stundum
tautar hann þá einstök nöfn
fyrir munni sér, og þá hnerrar
sá hinn sami.
Menn héldu lika öldum
saman, að hnerrar hefðu komið
af stað Svartadauða og öðrum
drepsóttum. Og veit enginn
nema satt sé. Skemmst er þess
að minnast, þegar við sjálft lá,
að einn hnerri kæmi af stað
kjarnorkustriði. Það var á ein-
hverri afvopnunar- eða endur-
vopnunarráðstefnu stórveld-
anna i Genf eða Vin. Þar eru
menn hvort tveggja i senn:
afskaplega orövarir og kurteis-
ir. Hvert orð og aukasetning
getur skipt máli og verið túlkuð
eða mistúlkuð i fjölmiðlum
heimsins.
Nú var það einn morgun,
þegar sendinefndirnar komu til
að flytja sin einskisverðu erindi
til fundar, að yfirfulltrúi Rússa
fékk hnerra. Bandariski aðal-
fulltrúinn horfði á kollega sinn
fullur hluttekningar, en bað siö-
an um fundarhlé. Og ástæðan
var: átti og mátti hann segja
,,guð hjálpi þér”? Yrði það talin
eftirgjöf eöa undanlátssemi?
Mundu þeir nota tækifærið og
þrýsta á voðahnappinn? Eða
yrðu það kölluð stórkarlalæti.
Hvaða áhrif heföi þetta á al-
menningsálitiö i heiminum?
Nefndin ræddi málið, og siöan
var hringt i sjóðheitri linu til
forsetans i Hvita húsinu. For-
setinn kallaði saman varnar-
málaráðið og það lét margar
nefndir kanna vandann frá
ýmsum hliðum og gera tölvu-
spár um viðbrögö og afleið-
ingar.
Eftir þrjá daga var loks talið
hættandi á að aflétta fundarhlé-
inu, og aðalfulltrúi Kana leit
kankvislega framan i starfs-
bróður sinn og kvað þeirra orða
alls of fyrst: „Guö hjálpi þér.”
Þá brá fulltrúi Rússa litum og
óskaöi þegar i stað eftir fundar-
hléi. Hvað var þetta? „Guð
hjálpi þér”. Voru þeir að gefa
eftir? Eða var þetta visvitandi
ögrun við Marx-Leninismann,
sem viðurkennir ekki Guð? Eða
ritstjórnargrein
Vinstrihreyfíngar í Evrópu
Er hægrisveifla í Evrópu? Svo
gæti virst: stjórn ThatcHers á
Bretlandi ereitt dæmiö, stjórnar-
skipti í Danmörku og Vestur-
Þýskalandi sýnast vísa í sömu átt.
Þetta virðist allt heldur dapur-
legt.
En ef litið er til lengri tíma og
hlutirnir skoðaðir í stærra sam-
hengi, þá geta menn séð mörg
merk dænii um þróun sem evróp-
skar vinstrihreyfing'ar geta
reiknað sér til tekna. Það er ekki
nema áratugur eða svo síðan
Suður-Evrópa var mestöll á valdi
fasískra og hálffasískra stjórna:
síðan hefur þingræðið sigrað í
Portúgal, á Spáni, í Grikklandi og
í þessum löndum öllum hafa risið
öflugir vinstrifiokkar. Tyrkland
er eitt eftir. Sósíalistaflokkar
hafa unnið mikla kosningasigra í
Grikklandi og í Frakklandi og all-
ir vænta þess að spænski sósíal-
istaflokkurinn vinni góðan sigur í
kosningum seinna í þessum mán-
uði. Og jafnvel þar sem borgara-
legar stjórnir hafa tekið við hafa
þær ekki árætt að hreyfa rnikið
við félagslegum verkum sem
flokkar verkalýðshreyfingarinn-
ar hafa staðið að - nema þá í Bret-
landi.
Það að auki má rekja velgengni
nýrra fjöldahreyfingagegn kjarn-
orkuvígbúnaöi og með umhverfi-
svernd til hugmyndaarfs vinstri-
hreyfinga að verulegu leyti -
enda þótt þessar hreyfingar gangi
nteð ýmsunt hætti þvert á eldri
pólitísk landamæri.
Ekkert sjálfkrafa
Þettaerallt heldur jákvætt. En
eins og breski sagnfræðingurinn
Eric Hobsbawm bendir á í nýlegri
grein í tímaritinu Marxism To-
day. þá gefa hvorki jákvæðar stað
reyndir á borð við þær sem að
ofan voru raktar né heldur sú
kreppa, sem kapítalisminn er
flæktur í, ástæðu til að ætla að
glæsileg vinstriframtíð sé á næsta
leiti. Ekkert slíkt gerist rneð sjálf-
virkum hætti, og auknar þreng-
ingar sent verkalýðsstéttir Evr-
ópu hafa sætt - atvinnuleysið er
vitanlega þeirra verst - hafa ekki
skapað aukna róttækni á borð við
þá sem skapaðist í kreppunni
fyrir fimmtíu árum. Vinstriflokk-
unum hefur ekki tekist_að færa
sér stöðuna í nyt með árangusrík-
var þetta elskuleg viðvörun?
Ætluðu þeir kannski að fara aö
ýta á kjarnorkuhnappinn? Var
þá ekki skárra aö verða 5
undan? Eða átti aö þakka fyrir
þessi blessunarorð að gömlum
rússneskum sið?
Það var þegar simað til
Kreml, og framkvæmdastjóri
Flokksins kallaði saman stjórn-
málanefndina og stjórnmála-
nefndin kallaði saman mið-
stjórnina.
Eftir viku var aftur haldinn
fundur i vopnanefndinni, og þar
sagði sovéski aöalfulUrúinn
hátiðlega: „Takk fyrir” og
hneigði sig fyrir þeim banda-
riska. En með fylgdi skrifleg
greinargerð upp á 147 siður um
sögulegan bakgrunn þessara
þakkarorða, sem auðvitað væru
án nokkurra skuldbindinga. Og
enn var beðið um fundarhlé.
Nú vikur sögunni aftur i
Norræna húsið, þar sem ég sat
og barðist við hnerrann, meðan
allt þetta þaut með leifturhraða
gegnum heilabúið. Ég var eins
og Sabeddin fróði úr Þúsund og
einni nótt, sem dýfði höfðinu
andartak oni vatnsker og þoldi
mannraunir i sjö ár á meðan.
Ekki bætti úr skák, að það var
verið að spila verk eftir Arnold
Schönberg. Og það þóttist ég
vita, að ef ég hnerraði undir
Schönberg, þá yrði það tekið
sem merki um inngróna andúð
mina og skilningsleysi á þessi-
um brautryðjanda nútimatón-
listar. 1 þokkabót sat einn
höfuðpaur þeirrar liststefnu á
tslandi skáhallt á móti mér, og
mér sýndust stálhörö gleraugun
horfa beint á mig.
En við engu varð gert.
Fiðringurinn i nefholinu
magnaðist, og loks var eins og
efri partur likamans væri djöfli
skekinn. Ég greip fyrir vitin og
reyndi að kæfa háreystina, en
skaðinn var skeður. Ég gjóaði
augunum laumulega i kringum
mig og bjóst við að mæta tugum
þungra brúna.
En þá vildi svo einkennilega
til, að það var eins og sjón og
heyrn allra beindist að sniili
spilaranna og uppljómandi
músikinni. Enginn virtist hafa
tekið eftir smán minni og helgi-
spjöllum. Mér flugu i hug and-
látsorð Guömundar dúllara um
Simon Dalaskáld. Mikið skáld
var Schönberg.
Arni i Botni
Árni
Bergmann
skrifar:
um hætti. Margt ræður því - sós-
íalistaflokkar, sósíaldemókrata-
flokkar og evrópukommúnískir
flokkar hafna allir hinni sovésku
og austur-evrópsku reynslu - en
með vissum hætti verkar Austur-
blökkin sem neikvætt fordæmi og
dregur úr breytingavilja verka-
fólks. í annan stað hafa tengsli
flokka og verkalýðshreyfinga
verið að breytast smám saman,
verkalýðsflokkar geta síður en
áður gengið að ákveðnum þjöð-
telagshópum vísum og vonlítið
að hægt sé að snúa þeirri þróun
við með afturhvarfi til fyrri tíma.
Bjartsýni samt
Hobsbawnm, sem fyrr var
nefndur. vill samt halda bjartsýni
á krepputíma. Hann segir: „Vin-
striflokkarnir í Evrópu eiga ýrnsá
góða kosti sem hægt er að nýta.
Það geta þeir þó því aðeins, segir
hann. að hin sósíaslíska vinstri-
hreyfing finni sér nýjan starfsstíl
oguppbyggingarform. Þvíað hún
á ekki aðeins að vera íulltrúi
verkalýðsstéttar, sem er ólík
þeirri sem hún áður skipulagði til
baráttu, hún þarf einnig að verða
fulltrúi annara þjóðtelagshópa,
sem hafa ekki síður en verka-
menn áhuga á að leita þess samfé-
lags sem leysir hið kapítalíska af
hólnú - svo ekki sé minnst á vilj-
ann til að tryggja að mannfólkið
lifi af á jörðinni."
ÁB.
i