Þjóðviljinn - 09.10.1982, Side 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. október 1982
Erindi Helga
Framhald af 15. sióu.
deótexta á daginn, texta sem renn-1
ur á sjónvarpsskerminum meö I
stuttum fréttum, veöurfregnum og ,
t.d. smáauglýsingum. Égerhrædd- 1
ur um að nú fari um þá sem þykjast
ráða smáauglýsingamarkaði. Þeir
hinir sömu halda því gjarnan fram
að hið prentaða orð sé miklu sterk-
ara. Vissulega. En það er líka fyrir
löngu búið að finna upp tæki sem
gerir fólki kleift að panta afrit af
öllum texta á sjónvarpsskerminum
með einu handtaki. Ríkisútvarpið
getur sett upp stúdíó á við skulum
segja ísafirði, Akureyri, Egilsstöö- j
um. Neskaupstað, Selfossi og
Vestmannaeyjum og opnað þannig i
landssamtökum, félögum og viö-1
skiptaaðilum möguleika til þess að
halda síma- og sjónvarpsfundi án
þes að þurfa að safnast saman á
einum stað. Auðvitað fengju menn
að heyra það frá flugfélögum og
hótelum en þau geta jú auðvitað ;
ekki staðið í vegi fyrir tækniþróun.
Þetta er það sem einkaaðilarnir
ætla sér að gera. Af hverju á þjóð-
félagið að afsala sér rétti til þess að
hagnast á þessu í sameiningu? Stú-
díóin sem ég nefndi áðan yrðu
auðvitað um leið hornsteinar
landshlutaútvarps sem auðvitað er
það sem koma skal. Ég sé lands-
hlutaútvarp fyrir mér sem hluta af
rás 2, klukkutímaútvarp til þess að
byrja með fréttum og tilkynningum
útvarpað um einhvern tiltekinn ra-
díus klukkan sex fram að aðalfrétt-
atíma stofnunarinnar.
Að síðustu vil ég skilja við hlust-
endur með einni hugsun. Einokun
þýðir eitthvað sem einn, tveir eða
fámennur hópur stjórnar og mun
ekki deila með öðrum. Andstæð-
ingar ríkisútvarpsins hafa notaö
þetta orð mikiö: einokun. I lugsum
um eitt: Fyrst ríkisútvarpið er í eigu
allra íslendinga, hvern er þá verið
að einoka? Góðar stundir.
daegurtonlist
Spasskí
Framhald af 17. siðu.
Nú hvað skákina varðar er ég til-
búinn til að tefla fyrir Sovétmenn.
Ég-var á 1. borði á Olympíumótinu
í Buenos Aires 1978, en þá gekk
sveitinni ekki vel, varð í 2. sæti.
Hvernig sem á því stendur þá er
eins og ég geti ekki teflt af sama
styrkleika á 1. borði og hér á árum
áður.“
Þú hefur haft mikil samskipti við
Fischcr um langt skeið.
Hefur þú heyrt eitthvað frá hon-
um?
„Eftir einvígi okkar hér í
Reykjavík skiptumst við á bréfum,
hringdum hvor í annan o.s.frv. En
síðan urðu þessi samskipti æstrjálli
uns þau lögðust af. Þegar ég var í
Kaiiforníu 1979 reyndi ég að hafa
upp á honum en tókst ekki. Það er
mikill harmleikur að hann skuli
hafa hætt að tefla. Hann var fædd-
ur fyrir skákina. Vissulega var
hann ekki auðveldur í umgengni,
sérstaklega áttu mótshaldarar erf-
itt með hann, en hann var stál-
heiðarlegur. Ég kunni alltaf vel við
hann.“
Að lokum Spasskí. Hvernig
gengur í einvíginu við Friðrik?
„Tja, þessi var erfið. í fyrstu
skákinni börðumst við vel. Þetta
var löng skák, stóð í a.m.k. 5 klst.
Við höfum nú báðir gert okkur
seka um mistök, kannski hafa þau
ekki skipt svo miklu máli upp á
heildarniðurstöðuna. Úrslitin -
það er nú önnur saga. Við skrifu-
ðum víst upp á einhver plögg og
megum ekki segja frá......
- hól.
Bað og eldhuskuplar
30 gerðir.
C^rúlegó hagstæðir
greiðsluskilmálar a
flestum vöruflokkum. Allt |
niður i 20% útborgun og
, lánstími allt að
í 9 manuðum.
Rafdeild
JL-hússins
augiýsir:
Bastljós 15 gerðir
Bað og eldhúskúplar 30 gerðir
Fyrirliggjandi þýsk útiljós
Stóraukið úrval rafbúnaðar
Zanussí kæliskápar
hagstætt verð.
Opið í öllum deildum:
Mánud - miðvikud.
kl. 9-18,
fimmtud. kl. 9-20,
föstud. kl. 9-22,
laugard. kl. 9-12.
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Rafdeild
Sími 10600
'RASS
Nýverið sendi hljómsveitin
Crass frá sér breiðskífuna Christ-
The Album. Crass er í dag stærsta
neðanjarðarhljómsveitin í Bret-
landi og þennan titil hlýtur hljóm-
sveitin fyrir að augiýsa aldrei
hljómplötur sínar cn engu að síð-
ur njóta þær mikilla vinsælda og
komast alltaf inn á sjálfstæða li-
stann.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
hljómsveitarinnar má geta þess
að Crass er miklu meira en
hljómsveit. Crass stendur fyrir
ákveðna hugmyndafræði og ák--
veðið líferni. Crass gefur út blað,
þau sem standa að baki Crass
hverju sinni, en öllum er frjalst
að koma og fara þegar þeim hent-
ar, búa í kommúnu og rækta sinn
mat sjálf. Þau framleiða kvik-
myndir og lifa sem einangraður
hópur mitt í lífsgæðakapphlaup-
inu.
■ Annars er það hugmyndafræði
Crass sem hefur vakið umtal og
skapað hljómsveitinni sérstöðu.
Þau eru stjórnleysingjar og trúa
því að sú leið sé fær út úr þeim
ógöngum sem við erum komin í.
Trúin á mátt einstaklingsins er
mjög rík hjá þeim og reyna þau
að höfða til hvers og eins og fá
áheyrendur til að átta sig betur á
umhverfi sínu, og gera mönnum
Ijóst stöðu sína í dag eins og þau
túlka hana.
Jón Viðar
Sigurðsson
skrifar
We’re talking ’bout freedom
while we’er locked in a cell / Dre-
aming of a world without war /
Forced to live on the boundaries
of hell / Like no-one’s ever tho-
ught of peace before. / But what’s
the point of preaching peace if it’s
something you don’t feel?
Á þessari nýju plötu klippa þau
saman á mjög skemmtilegan hátt
viðtöl við þekkta stjórnmála-
menn, auglýsingar og frettir úr
B.B.C.. Ukoman er oft á tíðum
mjög athyglisverð og sýnir okkur
fáránleika þess þjóðskipulags
sem við.búum við. Þetta kemur
best fram í kaflanum á eftir laginu
„Mother Love" þar sem skeytt er
saman viðtali við Margaret
Thatcher og fréttum úr B.B.C..
Magga Thatcher / They werc a
tragedy, weren’t they? ’twas a
terrible evening, dreadful, as we
saw those scenes on television and
saw how marvellous our police
were. / (Þulur B.B.C.) The patt-
ern of rioting has gradually int-
ensified with mounting anger at
the deaths of the two teenagers
killed by an army Land Rover.
Plötur Crass fylgir gjarnan
mikið lesmál og er Christ-The Al-
bum engin undantekning í þeim
efnum. Plötunni fylgir tæplega 30
síðna bæklingur þar sem skoðanir
Crass eru viðraðar og málefni
rædd út frá sjónarhóli meðlima
aðstandenda Crass.
Ekki má gleyma að þetta al-
búm hefur að geyma tvær breið-
skífur. Annars vegar plötuna
Christ-The Album sem fjallað
hefur verið um hér að framan, og
hljómleikaplötuna Well Forkcd-
But not Dead, sem er hljóm-
leikaplata og hefur að geyma
mörg af frægustu lögum hljóm-
sveitarinnar. Hljómleikaplata er
var hljóðrituð í hinum sögufræga
Klúbb 100 í London er hin besta
skemmtun og góður kaupbætir.
Tónlist Crass er pönk eins og
áður, ekki ósvipuð því sem mátti
heyra á fyrstu plötum Clash og
plötum Sex Pistols. Tónlistin éin-
kennist af hraða, krafti og
keyrslu. Tónlist Crass fellur
ágætlega að textum, boðskap
hljómsveitarinnar og er óneitan-
lega erfitt að ímynda sér annars
konar tónlist sem miðil til að
koma textunum á framfæri.
Af nafnlausri
hljómsveit...
Sigurgeir Sigmundsson gítar-
leikari kom að máli við mig og
bað mig að koma á framfæri
nokkrum leiðréttingum í sam-
bandi við hljómsveit þá sem hann
og nokkrir aðrir eru að hleypa af
stokkunum.
Sigurgeir sagði, að þær sögu-
sagnir væru sem hermdu að
hljómsveitin ætti að heita Bers-
erkir eins og fram hefði komið í
nokkrum dagblaðanna. Þeir
væru ekki farnir að huga að nafni
og vildu fá að æfa í friði þangað til
þeir væru tilbúnir.
Ég spurði Sigurgeir hvenær
þeir kæmu fram í fyrsta sinn.
Hann sagði að það yrði ekki fyrr
en eftir áramót. Fyrst ætluðu þeir
að hljóðrita efni á stóra plötu
áður en þeir færu að halda hljóm-
leika.
Sigurgeir sagði, að þeir væru
búnir að fullvinna sex lög og kvað
það ekkert vandamál fyrir hljóm-
sveitina að semja lög. Öðru máli
gegndi með textagerð, það væri
1 hausverkur sem þeir væru með.
En einhvers staðar verða menn
að byrja og verður að fyrirgefa
. þeim bernskubrekin.
Ekki vildi Sigurgeir gefa uppi
hvers konar tónlist þeir myndu
fremja. Kvað að aðrir yrðu að
brennimerkja hljómsveitina. Það
mætti koma fram að þeir spiluðu
ekki danstónlist og ætluðu sér
ekki að leika á sveitaböllum.
Fyrir þá sem ekki hafa áttað sig
á hvaða hljómsveit er verið að
ræða um, þá verður að geta þess
að hana skipa auk Sigurgeirs þeir
Eiríkur Hauksson og Kristján
Edelstein en þessir þrír hafa allir
leikið með Start. Auk þeirra eru í
hljómsveitinni Rúnar Gu-
ðmundsson sem gerði garðinn
frægan með Utangarðsmönnum
og Bodies. Trommuleikari
hljómsveitarinnar er Oddur sem
var fyrsti trommari Tappa tíkar-
rass.
„KLAM
99
Það tclst ávallt til tíðinda þegar
hljómsveitin Cure sendir frá sér
breiðskífu. Nýverið kom út fjór-
ða brciðskífa hljómsveitarinnar
Pornography (Klám). Ekki, ber
mikið á þeim dags daglega og það
er sjaldan sem fréttir eða viðtöl
birtast um hljómsveitina.
Cure öðlaðist fyrst raunveru-
lega frægð þegar hljómsveitin fór
í hljómleikaferð rheð Siouxie and
the Banshees árið 1979. Cure fór
sem aðstoðarhljómsveit sem ekki
er í frasögur færandi. Eftir tvo
eða þrjá tónleika hættu þeir John
Mckay og Kenny Morris í Sioux-
sie and the Banshees. Til að fylla
skarð þeirra svo hægt væri að
halda hljómleikaferðinni áfram
voru trommuleikarinn Budgie, er
ílengdist í hljómsveitinni, og Ro-
bert Smith fengnir til aö hlaupa i
skarðið. Beindust þá allra augu
að Robert Smith og Cure fyrir
vikið.
Ekki löngu eftir hljómleika-
ferð þessa kom út breiðskífa
hljómsveitarinnar Three imagin-
ary boys, og hlaut sú þokkalega
dóma. Það var svo ekki fyrr en
Faith kom út á seinasta ári sern
þeir urðu almennt viðurkenndir
/
Frekar hljótt hefur verið um
hljómsveitina síðastliðið ár eða
þangað til Pornography kom út
nú í sumar. Sannast sagna er
Pornography með betri plötum
þessa árs.
Tónlist Cure hefur á þessari
plötu tekið breytingum,
breytingum sem eru frekar bita-
munur en kjöts. Grunnurinn er
enn sá sami. í dag er það hljóm-
borðsleikur og þungur trommu-
taktur sem setja svip sinn á tónlist
Cure og greina hana frá fyrri
plötum hljómsveitarinnar. I
hljóðblöndun hefur bassin verið
færður aftar ef miðað ervið Faith.
En eitt aðaleinkenni Faith var
hve bassinn var blandaður fram-
arlega.
Hljóðfæraleikur er sem endra-
nær snjall og auðheyrt að hér eru
engir aukvisar á ferð.
Textar plötunnar eru vanga-
veltur um menn og málefni, oft-
ast mjög innihaldslaust hjal. Það
verður ekki sagt um Cure að tex-
tar þeirra standi á háu plani, þó
örlar að manni finnst á smá glætu
hér og þar.
Textarnir eru það sem varpa
skugga á þessa stórgóðu plötu
sem er með því allra besta sem
hingað hefur komiö í ár. Porno-
graphy er í sama gæðaflokki og
Heaven up here með Echo and the
Bunnymen sem mér finnst einn af
gimgteinum síðasta árs.