Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 21
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
BORGAR-
SPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Staða hjúkrunarframkvæmdastjóra, við
Geðdeildir Borgarspítalans.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi mennt-
un í geðhjúkrun eða mikla starfsreynslu á því
sviði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra fyrir 1.
nóvember n.k.
Upplýsingar um stöðuna veitir Sigurlín
Gunnarsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma
81200.
Stöður hjúkrunarfræðings á:
Lyflækningadeildum E-6 og A-7
Handlækningadeild A-4
Hjúkrunar- og endurhæfingadeildum,
Grensási, Hvítabandi, Heilsuverndarstöð og
Hafnarbúðum.
Til greina koma morgunvaktir kl. 7.30-12.00
virkum dögum.
Stöður sjúkraliða við flestar deildir spíta-
lans.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu l^úkrunarfor-
stjóra sími 81200.
Reykjavík, 8. október 1982.
Borgarspítalinn.
Nýtt kerfi
Síðan 1958 gegndu kommúnurn-
ar tvennskonar hlutverki. Þær
fengust við opinbera stjórnsýslu í
einstökum sýslum og þær skipu-
lögðu landbúnaðarstörfin. Nú hef-
ur hlutverk þeirra í stjórnsýslu ver-
ið afnumið og fengið aftur í hendur
þorpum og borgum. Á hinn bóginn
er til þess ætlast að bændur skipu-
leggi störf sín í vaxandi mæli sam-
kvæmt svonefndu „ábyrgðar-
kerfi". Kjarni þess er sá, að mjög
litlar einingar, jafnvel einstakar
fjölskyldur, gera samning við ríkið
um að skila af sér vissu magni af
matvælum, en fá í sinn hlut það
sem umfram er og geta selt það á
frjálsum markaði. Þetta sýnist í
fljótu bragði minna nokkuð á hið
sovéska kerfi - nema hvað þar hafa
einstakir bændur mjög takmarkað
land til ræktunar fyrir sjálfa sig
(það kerfi kölluðu maóistar
reyndar argan kapítalisma fyrir
nokkrum árum). Hið kínverska
kerfi gefur frjálsum mörkuðum
Þetta var hin opinbera mynd af glððu og saelu uppskerusamstarfi í
kommúnum Kína fyrir nokkrum árum.
baki þessum breytingum er rakin
til Deng Xiaopings, og einn af að-
stoðarmönnum hans hefur lýst
með þessum fleygu orðum: „Ef
þetta gengur, þá munum við kalla
það sósíalisma. Ef ekki, þá skal
það heita kapítalismi".
Á grundvelli þessara hugmynda
hvetur kommúnistaflokkur kín-
verska bændur til að „verða ríkir“.
Það er vígorð dagsins. Aukabú-
greinar eru mjög í tísku (eins og á
Islandi): fiskirækt og alifuglarækt,
handiðnir, þjónusta í smáum stíl.
áður svo fátækt, að þangað vildi
enginn sækja sér maka.
Spilling
Tilkynning
til innflytjenda og smásala
Athygli er vakin á tilkynningu Verölagsstofnunar nr. 32
frá 6. ágúst 1981, en þar segir m.a.:
„Heildsölumoginnflytjendumberað afhendaverslun-
um sölunótur í tvíriti. Sölunótur skulu vera svo skýrar
að efni og læsilegar, að ekki verði villst á því um hvaða
vörutegund er að ræða.
Smásalar skulu hafa nefndar sölunótur yfir keyptar
vörur liggjandi frammi í verslunum, svo að fulltrúar
Verðlagsstofnunar geti fyrirvaralaust fengið aðgang
að þeim.“
Við athugun hefur komið í Ijós, að fyrirmæli þessi eru
víða gróflega brotin, þannig að verðgæsla verður
mjög erfið. Því er skorað á ofangreinda aðila að fram-
fylgja skyldum sínum í þessu efni, svo að samvinna
megi takast við Verðlagsstofnun og ekki þurfi að grípa
til sérstakra aðgerða.
VERÐLAGSSTOFNUN
og gremja
Hitt er svo annað mál, að foryst-
umenn þjóðarinnar hafa af því á-
hyggjur hve skammt er frá frum-
kvæði til græðgi og spillingar hjá
ýmsum bændum. Tímaritið Rauði
fáninn hefur viðurkennt í leiðara,
að „ábyrgðarkerfið getur leitt til
spillingar og fjárdráttar, brasks og
smygls og þjófnaðar á opinberum
eignum - en allt er þetta í fullum
gangi á sumum stöðum“.
En Dagblað alþýðunnar, helsta
málgagn flokksins, segir líka að
ekki verði aftur snúið á þeirri braut
að fólkið vilji vera ríkt. Og ef sumir
verða fyrr ríkir en aðrir, þá er vísað
til kínverskrar hliðstæðu við for-
múluna „hver fái í sinn hlut eftir
vinnu". Sumstaðar hefur orðið vart
við gremju hjá alþýðu í garð þeirra
sem fyrst „verða ríkir“, en rekja
má dæmi af því, að flokksdeildin á
staðnum taki upp hanskann fyrir
framkvæmdamenn og rninni á, að
smáfyrirtæki séu alls ekki of mörg,
þau séu of fá, og verði enn að efla
þau.
Framtíðin
Ekki er nú víst, að þessi þróun
leysi vandamál Kínverja til fram-
tíðar. Horfið er frá draumsýnum
Maós um jöfnuð, og tekjustiginn
gerist æ brattari í sveitum landsins.
Kommúnur Maós lagðar niður í sveitum Kína
„Sumir verða ríkir
á undan öðrum”...
Einkaskikar bænda hafa stækkað
úr 7% af ræktanlegu landi og upp í
15%. Bændafjölskyldur geta hald-
ið einhverju af vinnuafli sínu al-’
gjörlega til eigin nota. Sú nýbreytni
gefur barnmörgum fjölskyldum
nokkurt forskot- - en vinnur þá um
leið gegn mikilli herferð sem farin
er í landinu til takmörkunar á barn-
eignum.
Sumir bændúr hafa nú sem svar-
ar 15 þúsundum króna í pejiingum í
árstekjur, en það er tífalt meira en
meðalkínverjinn. Þessir rnenn eru
nú hetjur fjölmiðlanna. Maðuc
sem á tímum menningarbyltingar-
innar var tekinn til bæna fyrir að
vera burgeis á uppleið, sýnir nú
stoltur 35 ær sínar, kjúklinga, 200
ávaxtatré og fiskitjarnir. I sama
þorpi hefur bóndi einn meira að
segja keypt sér dráttarvél, sem var
óhugsandi og jafnvel háskalegur
draumur ekki alls fyrir löngu. í
næsta þorpi er sóst eftir ungu fólki
á hjúskaparaldri, en þorpið var
Leiklistarskóli
Sigrúnar
Björnsdóttur
tekur til starfa mánudaginn 18. okt.
Innritun daglega í síma 31357.
Ekki eru ýkja mörg ár síðan þeir sem höfðu trú á
visku Maós formanns í Kína lýstu með fögrum orðum
þeim jöfnuði, þeirri ósérplægni og þeirri áður bundnu
orku sem kommúnurnar kínversku hefðu leyst úr
læðingi hjá alþýðunni. En nú um nokkurra mánaða
skeið hefur það verið réttur og opinber sannleiki í Kína
að besta leiðin til að létta kjör kínverskra bænda sé
einmitt að leggja kommúnur Maós niður.
Kommúnurnar voru skipulagðar
upp úr 1958, og ætlaðust Maó Tse-
dong til þess að þær skiluðu skjót-
lega blómlegum árangri í jafnrétti
og aukinni framleiðslu bæði á mat-
vælum og svo iðnaðarvölum fyrir
sveitirnar. En í fyrrasumar gerði
miðstjórn Kommúnistaflokks Kína
samþykkt, þar sem kommúnurnar
voru lýstar ein af „yfirsjónum" Ma-
ós formanns. Eftir þá yfirlýsingu
var unnt að afhjúpa ýmsan ljótan
sannleika um kommúnurnar. Með-
al annars var frá því sagt, að sú
nýskipan að smala nokkur hundruð
um miljóna bænda í Kína í 54 þús-
und kommúnur hefði leitt til þess,
að kornuppskeran stórminnkaði,
en dauðsföllum fjölgaði um helm-
ing á árunum 1958-1961. Hungur
var útbreitt, og miljónir komust á
vonarvöl.
miklu meira svigrúm. Til dæmis er
því beitt við útboð á meiriháttar
framkvæmdum eins og áveitufram-
kvæmdum eða stórgreftri, sem
stjórnað verður af sérhæfðum sam-
vinnufélögum, sem rnunu kaupa
vinnuafl fátækari bænda.
Árangur rceður
Sú hugmyndafræði sem iiggur að
Deng Xiaoping: fef þetta tekst köllum við það sósíalisma....
’Efnaðri bændur munu verða sér úti
um meira af áburði og vélum og
gerast enn ríkari. Líklegt er, að í
staðinn verði aðrir fátækari og
verði þeir í reynd landbúnaðar-
verkamenn hjá þeim sem betur
gengur. Með því að í Kína eiga ein-
staklingar ekki land, og stjórnin
ætlar að tryggja aðgang að landi
þeim sem geta fengið mestan af-
rakstur af því, kemst Kína hjá
óþægilegum spurningum um aftur-
hvarf til tíma leiguliða. En það er
lítið eftir af ónotuðu landi, fólks-
fjölgun heldur áfram, einkum í
sveitum, og þeir sem snauðastir eru
munu í vaxandi mæli hrekjast til
borganna í gæfuleit. En í borgun-
um er atvinnuleysið nú þegar um
10%.
Við þessar aðstæður er hægt að
sjá fyrir mjög mikið þéttbýli í sveit-
um Kína, þar sem tiltölulega vel
stæður minnihluti notar vinnuafl
meirihlutans í viðleitni til að auka
matvælaframleiðsluna. Svipað hef-|
ur áður verið uppi í kínverskri sögu
- en munurinn er sá, að fyrr á dög-
um var fólkið miklu færra. í fortíð-
inni gerðist það líka alltaf öðru
hverju, að hinn soltni meirihluti
reis upp, því að sala á „umfram-
birgðum" til að gera suma menn
ríka var þessu fólki svívirða sem
réttlætti uppreisn.
áb byggði á New Statesman.