Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 23
Helgin 9.-10. október 1982 WÓDVIWINN — StDA 23
Stjörnuliö Juventus í ítölsku knattspyrnunni:
Tímamót á ferli
Boniek og Rossi
Knattspyrnusnillingarnir
tveir líta til komandi
vetrar á ólíkan hátt
Ef Evrópuúrval í knattspyrnu
yrði valið í dag, er ekki ólíklegt
að uppistaðan í því kæmi frá
ítölsku meisturunum Juvéntus.
Sex heimsmeistarar ítala leika
með liðinu, Rossi, Zoff,
Gentile, Scirea, Cabrini og
Tardelli, og í sumar gengu til
liðs við það fyrirliði franska
landsliðsins, Michel Platini og
miðvallarspilarinn marksækni
frá Póllandi, Zbigniew Boniek.
Képpnistímabili^sem nú er ný-
hafið á Ítalíu markar tímamót á
knattspyrnuferli tveggja þessara
leiknranna, Boniek, og Paolo
Rossi, stjörnu heimsmeistara-
keppninnar 1982.
Upphafið var
jólaferðalag
Fyrir Boniek er Ítalía sem nýr
heimur. „Ég verð að viðurkenna
að ég á erfitt með að átta mig á
hvað bíður mín hér“, segir hann.
„Upphafið að þessu var ferðalag
okkar hjónanna hingað fyrir
tveimur árum um jólaleytið. Við
skoðuðum Róm, Feneyjar, Nap-
olí, Flórens, Torínó og að sjálf-
sögðu Vatikanið. Okkur líkaði
mjög vel og upp frá því var ég stað-
ráðinn í að komast í ítölsku knatt-
spyrnuna“, segir Boniek.
Flann heldur áfram: „Heima í
Póllandi fá leikmenn yngri en 28
ára sárasjaldan leyfi til að leika
knattspyrnu annars staðar en þó ég
sé aðeins 26 ára gáfu yíirvöldin mér
sérstaka undanþágu til að fara.
Ég kom hvergi nálægt samninga-
viðræðunum. Pólsk yfirvöld sáu
alfarið um þær. Eftir að allt var um
garð gengið, frétti ég að þau hefðu
boðið spænska liðinu Malaga mig
fyrir 175,000 pund (4,7 miljónir
ísl.kr.) en síðan greiddi Juventus
sjöfalda þá upphæð!
Knattspyrna aðalatriðið
Þið megið ekki halda að ég hafi
farið til Juventus eingungis pening-
anna vegna. Aðalatriðið fyrir mig
er að leika knattspyrnu í háum
gæðaflokki í einu fremsta knatt-
spyrnulandi heims.
Ég held að mér eigi eftir að
ganga vel hjá Juventus. Þetta er
stórkostlegt félag, með frábæra
leikmenn innan sinna vébanda,
sem setur stefnuna á sigur í öllum
mótum," segir Boniek hinn
rauðhærði.
Óréttlæti
Það fer öllu minna fyrir Paolo
Rossi, hinurn 25 ára gamla marka-
skorara. Hann viðurkennir fúslega
að frapnmistaða hans í
heimsmeistarakeppninni hafi verið
betri en hann þorði að láta sig
dreyma um, enda hafi hann
reiknað með að lenda í erfiðleikum
gegn þeim bestu í heiminum,
nýkominn úr tveggja ára keppnis-
banni.
„Ég tel að mörkin mín á Spáni
hafi sannað hvílíkt óréttlæti það
var að banna mér að leika knatt-
spyrnu í tvö ár“, segir Rossi.
„En ég get einungis þakkað ár-
angur minn einum manni,
landsliðsþjálfaranum Enzo Bear-
zot. Hann hafði trú á mér allan
tímann þrátt fyrir mikla utanað-
komandi gagnrýni.
Erfitt í vetur
í vetur fæ ég miklu erfiðara verk-
efni að glíma viö hér heirna á Ítalíu.
BYRJENDANAMSKEIÐ
í MARXISMANUM
Öllum opið. — Sex fundir: 1. Hagfræðin. 2. Borgaralegir
stjórnarhættir. 3. Síðkapítalisminn/heimsvaldastefnan. 4.
markmið sósíalistá. 5. Saga baráttunnar. 6. Ástandið á ís-
landi.
Nánari upplýsingar veittar í síma 17513 kl. 17-19 nk. mánu-
dag.
Fyrsti fundur veröur kl. 20:30 sama dag, 11. október , í
salnum að Laugavegi 53 a, R.
FYLKINGIN
Kópavogsbúar
hesthús
Tómstundaráö og hestamannafélagiö Gust-
ur vilja hér meö gefa ungum Kópavogsbúum
allt aö 18 ára kost á aö hafa hest á fóörum í
sameignarhesthúsi þessara aðila. Umsókn-
arfrestur er til 18. október n.k. og skal um-
sóknum skilað á félagsmálastofnunina,
Digranesvegi 12, en þar eru jafnframt veittar
nánari upplýsingar í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Þetta verður fyrsta keppnis-
tímabilið mitt í þrjú ár og ég verð
að sanna að ég geti skorað mark
urn hverja helgi, ekki aðeins í ör-
fáum leikjum.
Sem betur fer lítur út fyrir að
Juventus leiki sóknarknattspyrnu í
vetur, því við höfum frábæra
miðvallarspilara eins og Platini og
Boniek og leikmenn eins og þeir
lyfta hvaða liði sem er upp um
gæðaflokk.
Sér eftir Brady
Ég sé samt eftir því að frinn
Liam Brady skyldi vera látinn fara
til Sampdoria. Hann er einstakur
leikmaður og góður félagi.
Miðað við liðsskipan eigum við
alla möguleika á að vera á toppn-
Paolo Rossi og Zbigniew Boniek hafa sannarlega ástæðu til að brosa breitt,
á pappírunum er lið þeirra, Juventus, sennilega sterkasta félagslið í Evr-
ópu um þessar mundir.
um í ítölsku 1. deildinni í vetur. Þar
að auki verðum við að stefna að því
að konrast á tindinn í Evrópu með
góðum árangri í Evrópukeppni
meistaraliða.
Liðsheildin skiptir
öllu máli
Ég reikna með að andstæðingar
okkar verði hræddari við okkur nú
en nokkru sinni fyrr. Aðdáendur
okkar korna til með að búast við
stórsigri í hverjum leik og þetta set-
ur á okkur aukið álag um að leika
snilldarknattspyrnu íhverjum leik.
Þeir munu t.ala um Rossi, Boniek
eða Platini sem einstaklinga og það
er afar hættulegt. Það eru margar
stjörnur í Juventus-liðinu en knatt-
spyrnan er nú éinu sinni leikur liðs-
heildar". segir Paolo Rossi og vill
halda sig við jörðina á hverju sem
gengur.
Og þeir í Juventus hafa svo sann-
arlega mátt standa með báða fætur
á móður jörð að undanförnu því,
þegar þetta er skrifað, er þrernur
umferðum lokið í ítölsku 1. deild-
inni og Juventus hefur aðeins
hlotið tvö stig, unnið einn leik og
tapað tveinrur.
-VSiþýtt og endursagt)'
STOR
GLÆSI-
LEG
DAIHATSU
Dreginn
út
regin
des.
25,000,-kr voruuttekt i
Getraunaseðlarnir birtast i laugardagsblöðunum
□□□□□□
Dregin
út
3. febrúar
1983
Dregin út 4. nóvember 1982