Þjóðviljinn - 09.10.1982, Side 27
um helgina
The Platters í Reykjavík
The Platters eru staddir hér á landi uin þessar inundir og halda
tónleika nú um helgina. Á laugardagskvöldið verða tónleikar í Broad
way og um nóttinaeru miðnæturtónleikaríHáskólabíói. Lokatónleik-
ar Platters verða svo í Háskólabíói sunnudagskvöld kl 21.
The Platters er geysivinsæl rjfja upp gamlan kinningsskap
hljómsveit og hefur haldið vin-
sældum sínum í yfir 25 ár. Hver
man ekki eftir þeim í „Rock Aro-
und The Clock?" Þeir sem vilja
við rokklögin frá sjötta og sjö-
unda áratugnum ættu að bregða
sér á tónleikana um helgina.
LR um helgina:
Jói, Hassið og Skilnaður
Jói verður sýndur í Iðnó á laugardagskvöld, en Hassið hennar mömmu
er sýnt á miðnætursýningu sarna kvöld
„ÍJassið" var flutt um síðustu helgi inn í Austurbæjarbíó og var
troðfullt þar á fyrstu sýningunni.
Nýjasta leikrit Kjartans Ragnarssonar. Skilnaður, er svnt á sunnu-
dagskvöldið, en uppselt hefur verið á allar sýningarnar til þessa.
Leiklestur í „Kjallaranum
Leiklestur er listlórm sem lítið hefur farið fyrir hér á landi, en n.k.
mánudagskvöld veður leiklestur á nýju leikriti eftir finnsk-sænska
rithöfundinn Bengt Ahlfors. Bengt hefur unnið að þessu verki hér á
landi, en kona hans, Kitva Siikala er að setja upp hjá Nemenda-
leikhúsinu.
Bengt Ahlfors er ntjög þekktur
á Norðurlöndum hann samdi
m.a. leikgerðina á rómaðri sýn-
ingu Lilla Teatern „Umhverfis
jörðina á 80 dögum" sem sýnt var
hér fyrir nokkrum árum. Þá
samdi hann handrit af sjónvarps-
myndaflokknum „Babels hús"
sem nýlokið er að sýna hér í sjón-
varpinu. Hann var leikhússtjóri í
Helsingfors og hefur leikstýrt
mörgum sýningunt. Lesturinn
verður í Þjóðleikhúskjallaranum
og hefst kl. 20.30, en flytjendur
eru nokkrir íslenskir leikhús-
rnenn auk Ritvu Siikala. Lesið er
á sænsku. Verkið heitir „En teat-
erkontedi" (Gamanleikur í
leikhúsinu.)
Annika
Hoydal
í Norræna
húsinu
Annika Hoydal og Lars Trier
halda tónleika í Norræna húsinu
á sunnudagskvöld. Flytja þau
tónlist eftir Anniku, Birte Zand-
er og Lars Trier. Annika er góð-
kunn hér á landi. en hún söng
með því fræga Harkaliði frá Fær-
eyjum. Hún er annars leikkona
og hefur einnig haldið söng-
skemmtanir víða. Lars Trier
undirleikari hennar, er mjög
þekktur gítarleikari. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 20.30.
íslenska óperan:
„Litli
sótarinn”
í dag og
á morgun
Litli sótarinn verður í íslensku
óperunni á laugardag og sunnu-
dag kl. 5. báða dagana. Aðgöng-
umiðasala hefst kl. 3. Verkið er
senr kunnugt er eftir B. Britten
en leikstjóri er Þórhildur Þorl-
eifsdóttir. Barnaóperan hefur
fengið ágæta dóma og er börnum
jafnt sem fullorðnum ráðlagt aó
bregða undir sig betri fætinum og
sjá Litla sótarann.
Þjóðleikhúsiö:
Gosi,
Garöveisla
Amadeus
og
Tvíleikur
Þjóðleikhúsið sýnir nú um
hclgina fjögur verk. Þau eru Ant-
adeus á laugardagskvöld, en
leikritið er tekið upp frá fyrra ári,
Garðveisla Guðmundar Steins-
sonar, sem rnjög hefur verið í
fréttum er sýnt á sunnudags-
kvöld. Gosi er kl. 14.00 á sunnu-
dag og um kvöldið er TvíIeikurT
kjallaranum. Tvíleikur hefur
hlotið góöa gagnrýni, en leikrit-
ið. sem er eftir Tom Kempinski.
hlaut verölaun sem besta leikritið
í Bretlandi.
Um næstu helgi verður
sú breyting á þessum helg-
ardálki, að með föstudags-
blaðinu verðu sérstakur
blaðauki, þar sem fjallað
er um viðburði helgarinnar
á sviði, lista, félagslífs,
fundarhalda og ferðalaga.
Þess vegna er nauðsynlegt
að það efni sein á að fara í
helgarkálfinn hafí borist
okkur á blaðinu ekki
seinna en á hádegi á fímm-
tudag.
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 27
Gítartónlist á Austfjörðu
Gítarleikararnir Símon ívarsson og Siegfried Kobilza frá Austurríki
eru nú á tónleikaferðalagi um landið. Hafa þeir þegar haldið þrenna
tónleika og hefur þeim verið mjög vel tekið.
Þeir munu halda tónleika víða
á Austfjörðum nú um helgina:
Laugardaginn 9. okt. leika þeir í
sal frystihússins á Breiðadalsvík
kl. 16.00. Sunnudaginn 10. okt.
leika þeir í Egilsstaðakirkju kl. 17
og í Seyðisfjarðarkirkju mánu-
daginn 11. okt. kl. 20.30.
A efnisskránni er tónlist sem
ætti að höfða til margra hlust-
enda, þ.e. „flameneo" ogspönsk,
klassísk tónlist.
Sýning Kolbrúnar Kjarval
Leirmunasýning Kolbrúnar Kjarval, sem nú stendur yfir i Listmuna-
liúsinu við Lækjargötu, er opin um helgina frá 14-22.'
Ný lífsgildi-aukin lífsorka
Laugardaginn 9. október (í dag) verður fjölþætt kynning á ýmsu því
sem lýtur að breyttum lífsháttum og andlegu viðhorfi til tilverunnar í
Aðalstræti 16. Dagskráin byrjar kl 10. að morgni og endar kl. 7 að
kvöldi og verða veitingar á staðnum.
Boðið er upp á umfjöllun um
heilsufræði, kennslu í iljanuddi,
japönsku nuddi, og listræn tján-
ing og tónlist fá einnig sinn sess.
Þá veröa einnig umræður. Að
þessu stendur fólk sem hefur
mikla reynslu og þekkingu, hver
á sínu sviði, en öllum er heimill
aðgangur.
Leshringur í andlegum
vísindum Martinusar
í Ingólfsstræti la verður framvegis á laugardögum fjallað um andleg
vísindi, svo sem kosmíska byggingu alheimsins, þróun, tíma og rúm,
eilífð, karma, endurholgun o.fl. Leshringurinn hefst kl. 4. eh.