Þjóðviljinn - 13.11.1982, Síða 9
Helgin 13.-14. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Happdrætti Þjóðviljans 1982:__
Glæsilegir vinningar
í boði
Happdrætti Þjóðviljans er nú að
fara af stað og eru glæsilegir vinn-
ingar í boði. Miðar hafa verið send-
ir til áskrifenda og er fólk hvatt til
að bregðast skjótt við og gera upp
sem allra fyrst til umboðsmanna á
Grettisgötu 3 (einnig er hægt að
gera upp í afgreiðslu Þjóðviljans á
Síðumúla 6). Það er Jóna Sigur-
jónsdóttir sem annast happdrættið
að þessu sinni, og við tókum hana
tali.
Djassvakning iðin
við kolann:
- Hvað er í vinning, Jóna?
- Stærsti vinningurinn er Daihatsu
Charade bíll sem kostar 128 þús-
und.
Þau mistök urðu hins vegar
með næststærsta vinninginn að
vegna mistaka var hann ekki prent-
aður á happdrættismiðana, og bið
ég þess vegna fólk að taka vel eftir
nú. Næststærsti vinningurinn eru
húsgögn eftir eigin vali frá TM fyrir
25 þúsund krónur. Þriðji stærsti
vinningurinn eru svo Nordmende
hljómflutningstæki fyrir 19.170
krónurfrá Radíóbúðinni. Vinning-
ar 4-7 eru ferðir að eigin vali fyrir
15 þúsund krónur hver. Tvær eru á
vegum Samvinnuferða-Landsýnar,
en tvær á vegum Urvals.
- Og hvað kostar svo miðinn og
hvenær er dregið?
- Miðinn kostar 75 krónur og
dregið verður 1. desember n.k.
Vonandi verður hægt að birta vinn-
inga fljótlega eftir það.
- Er þetta happdrætti mikilvægt
fyrir Þjóðviljann?
- Það er eitt af undirstöðunum
fyrir útgáfu blaðsins svo að hægt sé
að halda henni áfram frá ári til árs.
Þjóðviljinn stendur nú á tíma-
mótum vegna þess að Blaðaprent,
þar sem blaðið hefur verið sett og
prentað undanfarin ár, hefur liðast
í sundur og hefur það óhjákvæmi-
lega í för með sér verulegan kostn-
aðarauka við útgáfu blaðsins, og
því er átaks þörf. - GFr.
Jóna Sigurjónsdóttir: Átaks er þörf.
Djasstríóið „Air” í
íslensku óperunni
Áhugafólk um djasstónlist til-
kynnir komu bandarísku djass-
hljómsveitarinnar AIR til landsins,
en hún mun halda tónleika á
þriðjudag 16. nóvember n.k. í ís-
Ienska óperuhúsinu (Gamla bíói)
kl. 9. Koma AIR til landsins telst til
stærri viðburða í tónlistarlífinu hér
á landi, því að hljómsveitin er ein af
bestu djasssveitum vorra daga og
nægir að nefna þessu til stuðhings,
að AIR átti hljómplötu ársins 1980 í
Downbeat að mati gagnrýnenda.
AIR skipa þeir Henry Thread-
gill, sem leikur á allar tegundir sax-
ófóna, flautna og hjólkoppafón
(þ.e. ásláttarveggur er saman-
stendur af hjólkoppum og cymböl-
um); Fred Hopkins leikur á bassa
og Steve McCall á trommur. Upp-
haf hljómsveitarinnar má rekja allt
aftur til 1971 þegar þremenning-
arnir komu saman í Chicago til að
flytja ragtime tónlist Scott Joplins,
en sú tónlist hefur lengi verið á dag-
skrá þeirra.
Vendipunktur fyrir hljóm-
sveitina var þegar þeir fluttu til
New York 1975 og byrjuðu að
koma fram reglulega og hljóðrita
hljómplötur. Síðan þá hefur AIR
hlotið margvíslegar viðurkenning-
ar og er óhætt að segja að af frjáls-
jazz hljómsveitum (að Art En-
semble of Chicago undanskildri)
nýtur AIR hvað mestra'vinsælda
og virðingar gagnrýnenda. Hljóm-
plötur þeirra félaga teljast til sí-
gildra verka, t.d. Air Lore platan
þar sem þeir leika nær eingöngu
verk eftir Scott Joplin og Jelly Roll
Morton í eigin útsetningu.
Þeir Threadgill, Hopkins og
McCall teljast til bestu spilara á sín
hljóðfæri og telst rytma dúettinn
Hopkins-McCall einn sá besti og
hafa þeir leikið inn á plötur með
m.a. David Murray og Arthur
Blythe. Threadgill hefur leikið
m.a. með Leo Smith,- Roscoe Mitc-
hell, Anthony Braxton og Muhal
Richard Abrams og sem sérlegur
gestur nýbylgju funkaranna Mater-
ial, Defunkt og James Chance. Fél-
agarnir í AIR eru allir stofnendur
og virkir félagar í AACM (Associ-
I ation for the Advancement of Cre-
ative Musicians) sem stofnað var
1965 í Chicago.
Fullyrða má að AIR er ein
fremsta djasshljómsveit vorra
daga. Hljómsveit sem aldrei fer
troðnar slóðir í tónlistarsköpun
eðaútse tningum. Forsala á þenn-
tn tónlistarviðburð stendur nú yfir
í Fálkanum, Laugavegi 24, og
Gramminu, Hverfisgötu 50, og er
miðaverð 150 kr.
Kanaríeyjafarþegar okkar þurfa
ekki að hafa áhyggjur af
þungum töskum, úttroðnum af
regnkápum, kuldaúlpum og
öðrum hlífðarfatnaði,
því við fljúgum beint í
sólina á Kanarí.
Það er allt klárt á Kanarí.
Það er búið að snurfusa her-
bergin, bóna dansgólfin, pússa
glösin og semja við
veðurguðina.
íslendingarnir á Kanarí hafa
látið mjög vel af gististöðunum
okkar og í ár höfum við enn
bætt við 3 glæsilegum stöðum.
íbúar Kanaríeyja kunna að taka
á móti gestum og vita hvað
þarf til þess að gera vetrarfríið
að samfelldri sumarhátíð:
Endalausar sólarstrendur,
skemmtistaðir, golf- og tennis-
vellir, matstaðir, diskótek,
næturklúbbar, kappaksturs-
braut og síðast en ekki síst,
þægilegt viðmót.
sffiS»
fb4ab-
saft'
Fararstjórarnir okkar á Kanarí-
eyjum, þær Auður og María
þekkja eyjuna eins og lófann
á sér enda hafa þær að baki
margra ára reynslu af störfum
þar niður frá. Svo vita allir
um skrifstofuna okkar á besta
stað á Broncémar.
Brottfarir í vetur verða:
24/11 örfá sæti laus,
15/12 uppselt,
5/1 laus sæti,
26/1 laus sæti,
16/2 uppselt,
9/3 örfá sæti laus,
30/3 Páskaferð.laus sæti
og 20/4 laus sæti.
Allar ferðirnar eru 3ja vikna
langar - á Kanarí.
Verð frá 14.760 krónum.
Sjáumst í sólinni.
Sértilboð fyrir unga og aldna í janúarferðimar!
60 ára og eldri frá 3.000 króna afslátt
í ferðimar 5. og 26. janúar og
börn á aldrinum 2-6 ára fá 12.000 króna
afslátt í sömu ferðir.
URVAL ÚTSÝM Samvinnuferðir-Landsýn FLUGLEIDIR
sólina á Kanarí