Þjóðviljinn - 04.12.1982, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 04.12.1982, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 4. - 5. desember 1982 Verðlaun: 5000 króna vöruúttekt unclirritaftur/iift ósksi efliraíV gcrsi.st sískrifandi l>ióðivili- * | nns: Naln Heimili..................... IVjslmínier Pá er þuð fjórði og síðasti hlutinn í áskrifendagetraun II og komið ad því.að áskrifendur sendi svör við getrauninni. Fyrri hluturnir birtust í Sunndags- blaðinu 13.-14. nóv., 20.-21. nóv. og 27.-28. nóv. Hœgterað fáþau blöð íafgreiðslu Þjóðvdj- ans ef einhver er búinn að týna. Dregið verður úr réttum lausn- um 15. des. n.k. og eru verð- launin 5000 króna vöruúttekt í heimabyggð þess er þau hlýtur. Allirsem eru áskrifendur, þegur dregið verður, geta tekið þátt í getrauninni. Jafnan er spurt úr fréttum Þjóðviljans. a. I Bláfjöllum. b. í Tindfjöllum. c. Á Vaðlaheiði. Ungur piltur gróf sig í fönn uppi á fjöllum. Hvar? a. Norðurlandamótið í handknatfleik kvenna. b. Norræna lyftinga- mótið. c. Norræn trimmkeppni fyrir fatiaða. Hvaða mót var það? íslendingar unnu á norrænu íþróttamóti. Hvaöa mót var þaö? a. Briet Héðinsdóttir. b. Guðmundur Steínsson. c. Sveinn Einarsson. Briet Guðmundur Svelnn Leikhúsmaöur mótmælti leikdómi í PjóÖvilj- anum. Hver var þaö? Hjördís St 66. b. Hólmadrangur St 70. c. Steingrímur St 100. Hvað heitir nýl togarinn frá Hólmavffc? Hýjum togara var gefiö nafn í vikunni. Hvaö heitir hann? |Q l|c f*T§ Pk -25 JpL Kftti £ j I i L a. Albert Guömunds- son. b. Gelr Hallgrímsson. c. Friðrik Sóphusson. Albert Gelr Friðrik Óvænt úrslit uröu í prófkjöri Sjálfstæöis- flokksins í Reykjavík. Hver varö efstur? Hver verður lygalaupur mánaðarins? Og þá kemur fyrst lygasagan í desembermánuði og er hún frá Guom. Sá sem á bestu söguna í mánuðinum verður út- nefndur lygalaupur mánaðarins. Vinsamlegast setjist niður og hripið eina góða og sendið Þjóðviljanum, Síðumúla 6, c/o Guð- jón Friðriksson, trúnaðarmál. Æskileg lengd er 1-2 blaðsíður. Nálin sem saumaði sjálf Atburðurinn sem ég ætla að segja frá, átti sér stað fyrir um það bil 30 árum, en svei mér þá, þegar ég nú rifja hann upp, finnst mér að þetta hefði eins vel getað gerst í gær, mesta lagi í fyrradag. Eg stundaði saumaskap á þeim tíma og verð að segja, að í því starfi komu vinnuhrotur fyrir hverja stórhátíð og fermingar, sem ekki gáfu neitt eftir stór- aflahrotum sjávarútvegsins, vinnu- lega séð, en afraksturinn til muna minni. Það var í sjálfu sér mitt lán, hve margir áttu oft lítið og stundum ekkert til þess að fara í, enda varð raunin sú að ég freistaðist til að leggja nótt við dag og þegar hér er komið sögu, þá hafði ég bara sofið eina klukkustundásólarhring í margar vikur. Jólin voru að koma, það var Þorláksmessukvöld - eða réttara sagt, vel liðið á aðfaranótt aðfangadags og ég var að setja kragann á síðasta kjólinn sem ég þurfti að skila fyrir jól. Ég var ákveðin í að ljúka við flíkina og sofa svo út í fyrramálið, alla vega til hádegis. Mér líkaði ekki hvernig krag- inn fór. Líklega væri best að taka hann alveg af og pinna svo niður með títuprjónum, þá kæmi hann réttur. Ég stakk nálinni, sem var með löngum spotta, milli tann- anna og losáði kragann. Þetta gekk ekki nógu vel og áður en ég vissi af, var ég farin að velta nál- inni milli tannanna og eftir tung- unni, tyggja spottann og vefja honum saman. Síðast var hann orðinn að dágóðri kúlu, sem ég tuggði eins og tyggigúmí. Nú fyrst skildi ég fullkomlega naglasúpu- söguna þegar ég smjattaði á járn- bragðinu af nálinni. Þetta var öndvegis nál, mér var gefin hún þegar ég varh'til. Ef ég rnan rétt, þá var þetta fyrsta nálin sem ég eignaðist. Hana hafði ég geymt, árum saman, undir koddanum mínum, vendilega stungna í þar til hafðan lepp. Þá var líka sagt að margt sem ég saumaði væri svo vel gert, að ekki léki nokkur vafi á, að nálin saumaði fyrir mig. Nóg um það, fjári hafði kraginn verið snúinn, en nú sat hann líka loksins eins og til var ætlast - og þá renndi ég nálinni niður ásamt spottakúlunni. Það væri ekki satt, ef ég viður- kenndi ekki að mér snarbrá. Nei, það er nær að segja, að ég varð felmtri slegin og þó ég ætti ein- hversstaðar aðra nál, þá fékk ég mig ekki til að Ijúka verkinu, heldur lagði mig útaf eins og ég stóð og steinsofnaði. Morguninn eftir rak ég augun í ókláraðan kjólinn og mundi þá allt. Það greip mig hálfgerður ónoti rétt sem snöggvast, svo gerði ég mér ljóst að ég var ekk- ert öruvísi en vanalega, kannske dálítið hressari eftir góðan svefn, ef nokkuð var. Adam var samt ekki lengi í Paradís og vel- líðan mtn átti svo sannarlega eftir að breytast. Næstu daga fór ég að finna fyrir sérkennilegum inn- vortis herpingi. Fyrst datt mér í hug að ég hefði einfaldlega borðað yfir mig af jólamatnum, en svo lánsöm var ég ekki. Þetta ágerðist ört og áður en ég vissi af, gat ég ekki staðið upprétt. Það fannst mér skuggalegt og ég kornung enn. Ég lét samt bíða að leita læknis, þetta gæti batnað bráðum og hvaða læknir myndi trúa, þó ég segðist ekki geta rétt úr mér. Nú, svo fannst mér það yrði heldur óskemmtilegt að ganga gegnum bæinn í keng, því þannig var ég orðin. Eins lengi og kostur var, þráaðist ég við, en þegar ég varð að líta á ská upp á venjulega borðbrún, þá var mér allri lokið og ég dreif mig til dokt- orsins. Hann sá samstundis, að það var eitthvað bogið við það, hvað ég var bogin á ákvað að skera mig upp á stundinni. Ég hef aldrei orðið eins fegin. Þegar ég fór svo að átta mig eftir aðgerðina, sagði læknirinn mér að hann hefði fundið nálina og að sig hefði ekki aldeilis und- rað á hlutunum, því hún hefði bókstaflega verið búin að rimpa allt saman innan í mér. Um leið og hann skákaði nálarskömminni að mér, með smáspotta á, sagði hann rétt sí svona: Notarðu alltaf letikonuþráð? Svona spurningu var ég síst viðbúin og því lítið um svör, en hann hélt áfram og sagðist hafa notað drjúgan hluta af þræðinum til að sauma saman skurðinn. Mestan partinn hefði orðið að klippa niður, því óger- legt hefði reynst að rekja nokkuð UPP- . . . Þetta lá mér nú í léttu rumi. Blessaður doktorinn var í óðaönn að tína saman dótið sitt og brátt gæti ég gleymt þessu öllu. Ég horfði á hann raða hlutunum vandlega saman og skyndilega varð mér Ijóst að hann var að leita að einhverju.Ég fann ónotalegan innvortiskulda fara um mig og marg spurði sjálfa mig, hvað það væri sem hann vantaði. Svarið kom von bráðar þegar ég heyrði hann tauta í hálfum hljóðum: Hvar ía.... geta skærin verið? Nú tók ég á öllu mínu sálarþreki og spurði, svona eins og mig skipti það engu, hvernig þau væru. Það stóð ekki á svarinu: Stutt snubb- ótt fyrir endann. Þau fundust aldrei. Ég ákvað að þegja, það var enginn kominn til að segja, að þau ynnu líka sjálfstætt. Gutom

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.