Þjóðviljinn - 04.12.1982, Blaðsíða 9
Helgin 4. - 5. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 9
Jólastyttur með
kertalýsingu
Frábært hátíðaskraut
npöfDDnflniKH’
^ Hverfisgötu 34 - Reykjavík
Sími 14484 - 13150
Linda Hreiðarsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir, helmingur Grýlanna í
hlutverki helmings Gæranna.
A
Félagsmáiastofnun Kópavogs
Fóstrur
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir-
taldar stööur:
1. Fóstru áskóladagheimiliö (fulltstarf). Upp-
lýsingar gefur forstóöumaöur í síma 41750.
2. Staöa fóstru við leikskólann Kópahvol
(50% starf). Upplýsingargefurforstöðumað-
ur í síma 40120.
3. Staöa fóstru á dagheimilið Kópastein
(50% starf). Upplýsingargefurforstööumaö-
ur í síma 41565.
Stuðmenn
og
Grýlurnar
með allt
á hreinu
Eftir helgina kemur á markaðinn
hljómplatan: „Með allt á hreinu“,
sem inniheldur lög úr samnefndri
kvikmynd, sem frumsýnd verður í
Háskólabíói þann 18. desember
n.k. Flytjendur tónlistar eru hljóm-
sveitirnar: Stuðmenn og Grýlurn-
ar, (sem reyndar ganga undir nafn-
inu Gærur í kvikmyndinni) ásamt
nokkrum aðstoðarmönnum.
Á hljómplötunni er aö finna flest
þau lög sem hljómsveitirnar léku á
feröum sínum um landið síðastliðið
sumar við miklar vinsældir, svo
sem: íslenskir karlmenn, Maó
Gling, Vil viljum franskar, Úti í
Eyjum, Ekkert mál, Reykingar og
fleiri lög. Útgefandi er Bjarmaland
s.f. en Steinar hf. annast dreifingu.
f tilefni af útgáfu hljómplötunn-
ar og frumsýningu kvikmyndarinn-
ar munu Stuðmenn koma nokkrum
isinnum fram milli jóla og nýárs, en
það mun verða auglýst síðar.
Bjarmaland sf. er framleiðandi
kvikmyndarinnar „Með allt á
hreinu" en leikstjórn annaðist Ág-
úst Guðmundsson.
Myndin verður sýnd með Dolby-
Stereo hljóði.
Moskva vill
semja um
Afganistan
Sovétríkin eru rciðubúin að leita
pólitískrar lausnar á Afghanistan-
málinu er feli í sér að þau dragi til
baka 100 þúsund manna herlið sitt í
landinu segir Georgij Arbatov,
helsi sérfræðingur Sovétmanna um
Bandaríkin í viðtali við vikuritið
Time.
Arbatov, sem er yfirmaður rann-
sóknarstofnunar um Bandaríkin og
Kanada í Moskvu, segir að Júrí
Andropov sé reiðubúinn að eiga
fund með Ronald Reagan. Hann
gagnrýnir einnig þá ákvörðun Re-
agans að koma upp nýjum MX-
eldflaugum í Wyoming og segir það
brot á SALT I og SALT II samn-
ingunum. í samningum þessum
stendur m.a. að „báðir aðilar
skuldbindi sig til þess að hefja ekki
byggingu nýrra fastra skotpalla
fyrir langdræg flugskeyti."
Fulltrúar Norrænu félaganna sjö á vinabæjamóti í Kópavogi.
Norræna félagið í
Kópavogi 20 ára
Norræna félagið í Kópavogi var
stofnað 5. desember 1962 og er því
20 ára um þessar mundir.
í tilefni afmælisins efnir félagið
til hátíðafundar í Kópavogskirkju
sunnudaginn 5. des. kl. 17.00
Formaður félagsins flytur ávarp
og heiðrar gamlan félaga Axel
Jónsson fyrrum alþingismann.
Listamennirnir Sigfús Halldórsson
tónskáld, Friðbjörn G. Jónsson og
Snæbjörg Snæbjarnardóttir söngv-
arar skemmta með tónlist og
song.
Allir Kópavogsbúar eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Kópavogsdeild Norræna félags-
ins er næst fjölmennasta deildin á
landinu og hefur starfað með
nokkrum blóma. Einkum hefur
vinabæjarsamstarfið markað spor í
sögu félagsins. Þar hefur félagið
notið drjúgs stuðnings og ágætrar
samvinnu bæjarstjórnar. Vina-
bæjakeðjan nær frá Grænlandi
til Finnlands og eru 8 bæir í henni.
Vélhjól kraft-
meiri en lög
gera ráð fyrir
Á forcldraráðsfundi í Austur-
bæjarskólanum í Reykjavík s.l.
fimmtudag var rætt um umferð í
skólahverfinu, einkum vélhjóla-
akstur 14 og 15 ára unglinga. Kom
fram sú skoðun að vélhjólin væru
fremur notuð sem leiktæki en sam-
göngutæki, að auðvelt væri að aka
þeim hraðar en 50 km á klukku-
stund og að þau væru stærri og
kröftugri en lög gera ráð fyrir.
Ályktun Foreldraráðs foreldra-
félags Austurbæjarskólans í til-
efni fyrrgreinds fundar er svo-
hljóðandi: Foreldraráð lýsir áhyggj-
um sínum vegna þeirra tíðu og al-
varlegu vélhjólaslysa sem orðið
hafa að undanförnu. Foreldraráð
skorar á dómsmálaráðuneytið að
setja nú þegar strangari reglur er
taki mið af því að takmarka aðgang
og notkun unglinga á vélhjólum.
Janframt skorar foreldrafélagið á
foreldrafélög annarra skóla að taka
þetta mál til umfjöllunar.
- v.
TVEIR FRABÆRIR
THOMPSON
Thompson hreinsilögurinn
leysir auöveldlega
upp gamalt bón og
önnur óhreinindi.
SOFIX bónið
gefur varanlegan
gljáa, gerir gamla
dúkinn sem nýjan —
nýjadúkinnennbetri.