Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 6
i 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4. - 5. desember 1982 DIOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljaps. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. ’Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Blaðamenn:,Álfheiöur Ingadóttir,, Helgi Ólafsson, LúövikGeirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Siguröardóttir, Valþór Hlöðversson. l'þróttafréttaritari: Víöir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri Thorsson. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumula 6 Reykjavík, simi 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. r i*st jórnargrei n úr almanakfnu Prófkjöra- slagsmál • Viðbrögð þeirra sem áttu aðild að prófkjörinu hjá Sjálf- stæðisflokknum á Norðurlandi vestra eru nokkuð fróðleg eins og sjá má í viðtalasyrpu um það mál í Morgunblaðinu í gær. Eyjólfur Konráð Jónsson, sem fékk mjög laka útkomu í annað sæti listans, segir að prófkjörið hafi ekki „allsstaðar“ farið heiðarlega fram og að besti maðurinn hafi lent í neðsta sætinu - á hann þar við Jón Ásbergsson. Sá hinn sami Jón Ásbergsson heldur því svo blákalt fram, að á fjórða hundrað stuðningsmenn Framsóknarflokksins og Alþýðubandalags- ins hafi tryggt Pálma Jónssyni landbúnaðarráðherra glæsi- lega útkomu í þessari orustu. Leiðarahöfundur blaðsins tel- ur líklegt að það séu maðkar í mysunni. Og formaður próf- kjörsnefndar Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, séra Gunn- ar Gíslason, segir blátt áfram, að pófkjör séu til að skemmta skrattanum. • Petta kemur næst á eftir því, að leiðarahöfundar Morgun- blaðsins höfðu lýst miklum efasemdum um „þessa aðferð til að raða á framboðslista“ og var þá átt við prófkjörið í Reykjavík. Þeirri umfjöllun fylgdu að vísu ekki ásakanir um að annarra flokka stuðningmenn hafi ráðið þar úrslitum, enda prófkjörið nokkuð lokað - en þeim mun sárar var það harmað að í kosningum sé „enginn annars bróðir í leik.“ • Sú prófkjörsvíma sem rann á allmarga fyrir nokkru virðist vera farin að renna af mönnum. Alþýðuflokkurinn hefur enga ástæðu til að fagna sínu prófkjöri í Reykjavík. Þar tóku um fjórðungi færri kjósendur þátt en í heldur aumlegu próf- kjöri fyrir borgarstjórnarkosningar. Var þó miklu meira í húfi nú - meðal annars staða þess manns sem einna líklegast- ur er til foringja í flokknum, Jóns Baldvins Hannibalssonar. • Alþýðubandalagið hefur síst allra flokka verið hrifið af prófkjörafyrirkomulaginu, sem hefur verið boðað sem ein- hver allsherjarlausn á valddreifingarmálum, sem opin leið til aukinna áhrifa almennings á stjórnmál og þar fram eftir götum. Flestir ókostir prófkjöranna hafa staðfestst mjög rækilega og nú síðast í liðinni viku. Þau skilja eftir sig svöðusár og rjúkandi rústir innan flokks sem lendir illa í þeim: orkan fer í að auglýsa upp einstaklinga en rakka aðra niður og lítil orka verður aflögu í stefnumótun og glímu við andstæðinga. Sá möguleiki er líka alltaf fyrir hendi, að and- stæðingar grípi með skipulögðum hætti inn í prófkjör til að, velja sér andstæðinga sem þeim eru af einhverjum ástæðum hentugir. í þriðja lagi er það ljóst af auglýsingastarfsemi þingmannsefna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að próf- kjörsslagurinn verður í reynd ekki möguleiki á að dreifa valdi, heldur bindur hann möguleika á árangri við þá sem hafa mikið fé á bak við sig, við þá sem geta keypt sér miklar auglýsingar, eða þá haldið stórar fjölskylduhátíðir eða látið heil íþróttafélög aka á kjörstað eins og kvað hafa gerst í öðrum flokkum. Þá kemur það líka í ljós, sem bent var á í leiðara Morgunblaðsins á dögunum, að prófkjör hafa ekki reynst sérlega góð tæki til endurnýjunar - til dæmis eru þau bersýnilega ekki leið til að fjölga þingkonum Sjálfstæðis- manna, eins þótt þátttakendur í prófkjörinu muni að helm- ingi eða þar um bil hafa verið konur. • Alþýðubandalagið hefur smíðað sér nokkuð þungar reglur um forval, sem andstæðingar hafa gert lítið úr og haft hátt um að allt væri það upp á einræðishneigðir og innilokunarár- áttur. Forvalsreglurnar eru satt best að segja ekki fullmótað- ar og þörf er að endurskoða þær og laga að aðstæðum á hverjum tíma. En svo mikið er víst, að til þessa að minnsta kosti hafa þær ekki „skemmt skrattanum“ í þeim mæli sem marglofuð opin prófkjör hafa gert hér og þar um hinar pólitísku sveitir landsins. áb Þakkir eftir dúk og disk Pað var ekki vonum fyrr að okk- ar ástsæli söngvari, Stefán íslandi, var valinn meðlimur „Akademí- unnar“ eða heitir hann það ekki heiðurslaunaflokkurinn? Það mun vera Alþingi, sem ákveður það, hverjir skuii eignast þarna þegn- rétt. Fyrir hefur komið að þeirri ágætu samkomu hafi þótt mislagð- ar hendur um þá ákvörðun. Ég held, að ef þjóðin hefði fengið þarna ráðið, þá hefði hún fyrr kjör- ið Stefán íslandi til þessa þings. Stefán íslandi átti 75 ára afmæli nú í haust. Um það var furðu hljótt í blöðum. Ég held, að eitt blað aðeins hafi minnst þess og þá með þeim hætti, að birta kafla úr bók- inni: „Áfram veginn“. Pað er í sjálfu sér ekki ætlun mín að bæta úr þessu nú eftir dúk og •disk, enda á þetta ekki að vera af- mælisgrein. Áðeins verða, í litlum mæli þó, rifjaðar upp fyrstu minn- ingar mínar um mann, sem með söng sínum hefur veitt mér margar og ógleymanlegar ánægjustundir. Þegar ég var að alast upp norður í Eyhildarholti í Hegranesi starfaði þar í sveitinni öflugt ungmennafé- lag. Stefán, sem þá var heimilis- fastur í Hegranesinu, mun hafa verið í ungmennafélaginu. EitL sinn fann ungmennafélagið upp á því að efna til dansleiks í Eyhilaar- holti og skyldi álfadans m.a vera þar til skemmtunar. Þetta var auðvitað að vetrarlagi. Sunnan við 'bæinn í Eyhildarholti er allstór Stefán Islandi. Er ég rek sjálfum mér gamlar minningar, verður mér ósjaldan hugsað til hans Stebba, sem þá var ekki orðin stórsöngvarinn Stefán .. íslandi, en söng þó undurfagurri og silfurtærri röddu. Hann var snemma fenginn til að syngja á samkomum í sveitinni. Éin slík skemmtisamkoma er mér minnis- stæð öðrum fremur. Hún var hald- in í kofaræksni hjá Læk í Viðvíkur- sveit, og átti kofinn víst að heita funda- og samkomuhús. Stebbi hafði verið beðinn að syngja og ég að leika undir. Þetta var í skamm- deginu. Við áttum yfir Eylendið að sækja. Hlákumyrkur var á, vatns- elgur mikill á Éylendinu og flug- hálka, en við höfðum postulahest- ana eina að fararskjótum. Einhvernveginn komumst við þó yfir að Lækjarhúsi um það leyti, sem „ballið" var að byrj a - og held- ur illa til reika. Vorum við þegar drifnir upp á loft og inn í „veitinga- salinn" sem þar var - og naumast manngengur undir mæni hvað þá undir súð. Þar uppi, innan um blessaðar blómarósir, er sáu um kaffiveitingar, vorum við látnir fara úr einhverju að neðanverðu, ég man nú ekki hve miklu, en renn- andi vorum við upp í mitti. Þarna húktum við svo um stund eins og Söngurinn í Norðurstofunni tjörn, sem að sjálfsögðu var ísilögð á þessum árstíma. Gat var höggvið gegnum ísinn og í því komið fyrir heljar miklum rekaviðarstaur. Á topp hans var fest olíufat, troðfullt af hrísi og öðru eldsneyti. Þótti mér þetta mikið mannvirki. Kvöldið eftir að þessi undirbún- ingur fór fram hófst svo ballið og álfadansinn. Veðrið var hið ákjós- anlegasta, logn heiðskírt og nokk- urt frost. Álfarnir komu hoppandi í fylkingu sunnan úr klöppunum. Állir voru þeir með margvíslega málaðar grímur fyrir andlitinu og báru hina skrautlegustu búninga. Fyrir liðinu fór fánaberi. Síðan hófst söngur og dans kringum brennuna: „Máninn hátt á himni skín“, „Nú er glatt í hverjum hól“ og einhverjir fleiri álfasöngvar. Þarna var töluvert af góðu söng- fólki en þó bar rödd merkisberans (forsöngvarans), langt af. Það fór ekki einu sinni fram hjá mér, 5 ára patta. Há og tindrandi björt sveif hún upp í heiðríkjuna. Hún hlaut að hrífa hvert einasta eyra og í hlustum mínum hefur hún jafnan hljómað síðan. Þetta var Stefán fs- landi. En ég átti oftar eftir að heyra Stefán syngja þann tíma, sem hann dvaldi í Hegranesinu. Pabbi átti orgel og lék á það löngum stundum þegar tóm gafst til. Um helgar kom Stefán iðulega fram í Eyhildarholt til þess að taka lagið, en pabbi spil- aði undir. Sjálfur sat ég á gólfinu úti í horni, Iét ekkert á mér kræla en hlýddi hugfanginn á þessa töfr- atóna. Þá varð Norðurstofan að mikilli sönghöll. Líklega hefur pabbi leikið undir fyrir Stefán þegar hann söng í fyrsta sinn opinberlega. Það var á kvenfélagsballi úti á Læk í Viðvík- ursveit, í funda- og samkomuhúsi, sem var ekki stærra en svo, að það minnti mig alltaf á 50 punda syk- urkassa, sem alþekktir voru í mínu ungdæmi. Um það segir pabbi svo í Glóðafeyki, félagsblaði Kaupfé- lags Skagfirðinga, fyrir nokkrum árum: Magnús H. Gíslason skrifar „Þegar Jón Þorsteinsson tók lagið í hlaðvarpanum í Stóru-Gröf á blækyrrum vormorgni fyrir um það bil 90 árum, heyrðist ómurinn af söng hans í 5 hreppa, að því er Magnús prófessor Jónsson hermir einhversstaðar. Við erum söng- glaðir menn - Skagfirðingar. Sem betur fer - því að hljómlist og söng- líf er einn fegurstur þáttur og mik- ilsverðastur allrs menningarlífs. Hér hafa vaxið úr grasi óvenju margir og góðir söngvarar og sumir, sem ávallt munu verða tald- ir í allra fremstu röð íslenskra söng- manna fyrr og síðar - jafnvel þótt víðar sé til jafnað. illa gerðir hlutir. En brátt tók þá Eyjólfur að hressast, eins og þar stendur. Við drukkum kaffi, ef til vill með einhverri brennivínslögg út í - ég man það nú ekki svo gerla, en finnst núna að það hljóti að hafa verið eða hefði a.m.k. átt svo að vera - og skelltum okkur svo niður í danssalinn. Nú kom þar, að Stefán skyldi syngja. Úti í horni stóð orgelskrifli og eitthvað af nótnadrasli á. Ég settist við garganið, opnaði nótna- bókina og hóf umsvifalaust að leika lagið við Friðarins guð... - en gætti þess ekki, að blaðið var rifið og vantaði góðan spotta aftan af laginu. Utsetning lagsins var að vísu einföld en ég kunni hana þó ekki utan að - og eitthvað mun undirleikurinn hafa verið smá- skrýtinn er á leið, og næsta frum- legur. En þetta kom eigi að sök. Stefán söng eins og engill, ekki síð- ur en Jón helgi forðum. Og auðvit- að varð Stebbi að endurtaka lagið. En ekki er ég viss um að undir- leikurinn hafi verið að öllu eins þá og í hið fyrra sinnið“. Þannig gekk það nú til í Lækjar- húsinu í gamla daga. Nokkru seinna hvarf Stefán til Reykjavíkur, hóf þar söngnám og svo síðar á Ítalíu. Þarf ekki að rekja þá sögu. En freistandi væri að minnast á söngskemmtun hans í Varmahlíð, sumarið 1937 - muni ég rétt, - en þá sá Páll ísólfsson um undirleikinn. En til þess er ekki rúm hér nú. Því verður við það að sitja, að þakka bara fyrir sönginn í Norðurstofunni. , - mhg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.