Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 16

Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4. - 5. desember 1982 dægurmál (sígiid?) umsjon Sif Jón Viðar Andrea Stjömur ogannað fólk Nú berast þær fréttir að Einar Örn, söngvari Purrks Pillnikks, og Þorvar, söngvari Jónee Jonee, séu búnir að bræða með sér hljómsveit sem hlotið hefur nafn- ið Yisz. Þetta er átta manna hljómsveit með „brassi“ og öllu tilheyrandi. Verður fróðlegt að heyra í þessari hljómsveit, en hún mun koma fram fljótlega. Jæja, snúum okkur þá að jól- aplötuflóðinu. Psycedelic Furs - Forever Now. Þetta er þriðja plata hljómsveitarinnar og mark- ar hún að vissu leyti stór tímamót í ferli hljómsveitarinnar. Fyrir rúmu ári voru tveir af meðlimum hljómsveitarinnar reknir sökum þess að þeir höfðu ekki neinn áhuga á að semja tónlist. Mannafækkunin leiðir til þess að þessi plata er rokkaðri en fyrri plötur hljómsveitarinnar, og til að kóróna snilldina fengu þeir gamla jálkinn Todd Rundgren til að stjórna upptöku. Þetta er besta plata Psychedelic Furs sem út hefur komið og voru hinar þó ekkert slor. Ef ég væri beðinn að nefna tíu bestu hljómplötur árs- ins yrði Forever Now þar á meðal. Þetta er meiriháttar plata. Bruce Springsteen - Nebraska. Það eru ávallt stórtíðindi þegar Bruce Springsteen lætur frá sér heyra. A Nebraska sem er sóló- plata leikur hann á kassagítar og eru kassagítar og munnharpa einu hljóðfærin sem hann notar á plötunni. Óneitanlega eru hér gamlar hugmyndir á ferðinni en það spillir ekkert fyrir, Springsteen gerir þeim mjög góð skil. Flann syngur vel á þessari plötu, en eins og oft áður eru það textarnir sem eru hvað eftirminnilegastir. Smáþreytu er farið að gæta í textasmíð Springsteen og klifar hann mikið á því sama og á fyrri plötum sfnum. Nebraska er góð plata og skemmtilegt að fá plötu af þessu tagi frá jafnmiklum rokkara og Bruce Springsteen. Madness - The Rise and Fall. Madness hefur verið ein vinsæ- lasta hljómsveitin á vesturhveli jarðar hin síðari ár. Vinsældir þeirra hafa verið með ólíkindum og er það fyrst og fremst hin fjör- uga tónlist sem laðar fólk að þeim. A þessari nýju plötu má greina að kímnin og léttleikinn eru að hverfa af hljómsveitinni og það er eins og hún sé að reyna að brjótast undan Madness- stimplinum. Hljómsveitinni tekst það að vissu leyti en ég held að næsta plata skeri úr um hvað verði ofan á hjá Madness. JVS Maraþontón- leikar hefjast í dag! Maraþontónleikar Satt og Tónabæjar, þar sem hugmyndin er að spila samfleytt í 14 sólar- hringa og slá gildandi heimsmet í þessari grein, hefjast með leik Þeysara í Tónabæ kl. 14.00 í dag, laugardag. Eldra heimsmetið í maraþon- spilamennsku tónlistarmanna er samtals 13 sólarhringar og 9 klst. og var sett í V-Þýskalandi. Reiknað er með að nær allar ís- lenskar hljómsveitir taki þátt í tónleikahaldinu og verður hver hljómsveit að spila í minnst 6 klukkustundir í einu. -Ig. Tilraunir ífullum gangi Á þriðja Músiktilraunakvöld- inu varð hljómsveitin Centaur í 1. sæti og Dron (Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis) í 2. sæti, en við skulum líta á annað kvöldið. Annað kvöld Músíktilraúna ’82 var fyrir rúmri viku. Þótt fyrsta kvöldið væri ánægjulegt var þetta annað kvöld margfalt skemmtilegra og betra. Alls komu fram fimm hljómsveitir pg Start var gestur kvöldsins. Ég kom það seint að Start var búin að leika og Te fyrir tvo nýbyrjuð. Te fyrir tvo skipa fjórir ungir Kópavogsbúar, tveir söngvarar, einn trommuleikari og einn bass- aleikari. Þessi uppstilling verður að teljast fátíð og gaman til þess að vita að menn séu reiðubúnir að brjóta upp hiö hefðbundna form. Þeir minntu mig dálítið á Jonee Jonee en það er ekki neitt sem menn þurfa að skammast sín fyrir. Á eftir Tei fyrir tvo kom Stra- dos frá Stykkishólmi. Þetta er fimm manna hljómsveit og var tónlist hennar einföld og skemmtileg. Þau voru með góðar raddir og hefði mátt heyrast meira í söngkonunni. Mér fannst þau skemmtilegasta hljómsveit kvöldsins og var ánægður með að þau skyldu komast áfram. Lótus frá Selfossi lék á eftir Strados og fjölmenntu aðdáend- ur sveitarinnar og létu mikið að sér kveða um kvöldið. Þau tvö frumsömdu lög sem Lótus flutti voru létt poppuð og í dæmig- erðum sveitaballastíl. Það var fyrir misskilning að hljómsveitin flutti aðeins tvö frumsamin lög og er það nokkuð ljóst að hún hefði verið örugg áfram, ef þau hefðu verið fleiri. íslandssjokkið var sú hljóm- sveit sem kom einna mest á óvart. Hljómsveitina skipa fjögur ung- menni, tvær Ieika á kassagítara, einn á kontrabassa og einn á þverflautu, virkilega flinkir hljóðfæraleikarar með mjög að- laðandi tónlist. Það var synd að þau skyldu ekki komast áfram. Meinvillingarnir voru seinasta og sísta atriði kvöldsins. Þau léku hálfgerða bárujárnstónlist með hávaða og látum. Söngkonan er óneitanlega skemmtileg fígúra og ég held að það hafi verið hún sem tryggði hljómsveitinni sæti í lok- akeppninni. Skipulagið á þessum tón- leikum var margfalt betra en á þeim fyrri, búið að komast fyrir alla galla og óreiðu fyrsta kvölds- ins. Aheyrendur voru heldur fjöl- mennari en í fyrsta skiptið og er það vel en ekki var húsfyllir. Fólk ætti að hafa hugfast að ekki kost- ar nema 50 krónur inn. Þetta er alveg hlægilegt verð fyrir jafn skemmtilegar og ánægjulegar kvöldstundir. Því er skorað á alla S.l. fimmtudag voru hljóm- leikar með Egó á Borginni. Þar að auki var ljóðalestur ýmist með eða án trommuundirleiks Magga í Egó, sem sýndi svo ekki verður um villst að hann er einn af okkar bestu trommurum. Ljóð lásu Anton Helgi Jóns- son, Mikki Pollock (bæði eigin og eftir Rimbaud) og svo einn til, sem undirrituð kann ekki að nafngreina. Ekki heyrði hún heldur upplesturinn, en heyrði á gestum að þeim hefði vel líkað. að mæta og taka þátt í þessum frábæru tilraunum. Fjórða tilraunakvöldið verður 9. des. Þá verður gesturinn Tappi tíkarrass, kynnir Ásgeir Tómas- son en til atkvæða spila: E.K. Bjarnason-band, Englabossar, Gift, Hin rósfingraða morgun- gyðja, Mogo homo, Nefrennsli, og Sharem. Sunnudag 19. des. er lokadag- ur Músiktilrauna ’82, en þá um daginn frá 2-6 verða aukatón- leikar vegna mikillar aðsóknar, en kl. 20 þá um kvöldið leika til úrslita þær hljómsveitir sem urðu í 1. og 2. sæti á undangengnum Músiktilraunahljómleikum. JVS Þó hefði mátt skipuleggja dag- skrána betur, og frést hefur að verið var að hringja í skáld seint samdægurs til að fá þau að lesa þarna ljóð sín. Egó fannst mér hressir og standa vel fyrir sínu, annars segja gárungarnir að slíkt megi maður nú orðið í mesta lagi hugsa..., annars sé maður ekki nógu ný- bylgjaður... Egó hjá Steinum og plötur þeirra seljist og allt...fer- lega lásí, en svona er lífið... Á GÆTT Á BOR GINNI Að taka ofan Vonbrigði sendu nýlega frá sér sína fyrstu plötu. Platan hefur að geyma lögin „Sjálfsmorð", „Eitthvað annað“, „Börnin þín“, og „Skítseyði". Ég er mjög hrif- inn af þessari plötu og til að for- vitnast um plötuna og hagi hljóm- sveitarinnar fékk ég þá drengi til skrafs og ráðagerða. Það sem fer hér á eftir er hluti af þessu ágæta spjalli. En vonandi gefst tími fljótlega til að gera hljóm- sveitinni betri sk.il. Við fyrsta hanagal Fyrir þá sem ekki þekkja til er kannski rétt að geta þess, að hljómsveitin er eins árs í þeirri mynd sem hún starfar í dag. Ekki vildu þeir tjá sig mikið um lögin, en sögðu að þau væru aðeins of mikið poppuð og þeir löngu búnir að fá leiða á þeim. Einu lögin með viti væru „Skíts- eyði“ og „Eitthvað annað.“ - Hvenær var þessi plata hljóðrituð og hvaða stúdíó er þetta Hanagal? - Platan var hljóðrituð nú í haust og Hanagal er segulbands- tæki sem Kjartan komst höndum yfir. - Við tókum upp nokkur lög í sumar úti á Álftanesi í æfinga- plássi Þeysaranna en þau voru hálf léleg þannig að það datt ein- hvern veginn uppfyrir. - Er von á nýrri plötu með ykk- ur fljótlega? - Við höfum ekki haft neitt æfingapláss nú í mánuð en fáum eitt núna um miðjan mánuðinn. Þá er ætlunin að fara að semja og æfa upp á kraft og ef eitthvað gott kemur út úr því er aldrei að vita nema það verði hljóðritað og gef- ið út á kassettu. - Það stendur Iíka fyrir dyrum að fara til Englands um páskana og hljóðrita plötu í Crass- stúdíóinu og jafnvel halda nokkra hljómleika í leiðinni. - En eins og endranær eru það peningamálin sem standa okkur mest fyrir þrifum en vonandi komumst við út. - Nýlega kom út í Englandi samansafnsplata, og „Guðfræði“ er þar meðal laga, hvernig stóð á þessu? — Við vissum ekkert fyrr en við sáum plötuna, það var ekkert samband haft við okkur. - Þetta er svo sem allt í lagi, en betra hefði verið ef þeir hefðu haft samband við okkur áður en þeir gáfu plötuna út. Próast í vitlausa átt - Hvernig gengur ykkur að semja lög og texta? - Það er misjafnt, stundum er heilmikið vandamál að semja og stundum kemur þetta undir eins. En meðan við höfum ekki æfing- ahúsnæði getum við ekkert gert. - Við erum hættir að koma fram í bili og ætlum ekkert að spila fyrr en við erum búnir að æfa upp nýtt prógram. - Það er ekkert gaman að leika gamalt og illa æft prógram. - En hvernig er með textana? - Jói sér nú aðallega um þá, einnig hefur Didda samið texta fyrir okkur. - Um hvað snúast textar ykkar? - Þeir snúast um eitt og annað og ekki ástæða til að láta of mikið uppi um það. - Einn gamall hippi réðst á okkur um daginn og skammaði okkur og hélt að við værum að ráðast á hann í laginu „Skít- seyði“. - Þú mátt koma því að að ný- lega birtist viðtal við okkur í skólablaði M.H., þar sem við erum látnir segja ýmislegt sem við könnumst ekkert við. - Svona að lokum, í hvaða átt munuð þið þróast? - í vitlausa átt miðað við alla aðra, við verðum vonandi grófari og kraftmeiri en það er aldrei að vita hvað hefur gerst þegar upp er staðið. JVS

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.