Þjóðviljinn - 14.05.1983, Side 5
Helgin 14.-15. maí 1983 WÓÐVILJINN - SÍÐA 5
205 daga verkfall
hjá Caterpillar
Nýlokið er mjög löngu og sögulegu
verkfalli í Bandaríkjunum. Verka-
menn hjá stærsta þungavinnuvéla-
fyrirtæki heims, Caterpillar, áttu í
205 daga verkfalli. Því lauk með
samningi sem túlkaður er á þann
veg, að hvorugur hafi unnið,
verkamenn eða fyrirtækið.
Ástæða verkfallsins var sú, að
Caterpillar, sem í fyrra tapaði 180
miljónum dollara, vildi mæta erfið-
leikum sínum með því að lækka
kaupið og afnema verðlagsbóta-
kerfi það sem samið hafði verið um
við verkamenn. Niðurstaðan er svo
sú, að verkamenn sættu sig við að
hverfa frá öHum kauphækkunar-
kröfum og sætta sig við skerðingar
á orlofsgreiðslum. Fyrirtækið féllst
hinsvegar á að áfram séu í gildi
ákvæði um launahækkanir í sam-
ræmi við framfærslukostnað og séu
þær reiknaðar út ársfjórðungslega.
Verkfallið hefur hinsvegar sundr-
að verkamönnum. Margir þeirra
voru orðnir mjög illa staddir fjár-
hagslega eftir svo langt verkfall
„menn voru farnir að missa hús sín,
Vinna hefst að nýju hjá Caterpillar.
bíla, heilsu og konur“ segir einn felldur. Sá þriðjungur verkamanna
þeirra. Því samþykktu þeir nýjan sem taldi samkomulagið ósigur tel-
samning,endaþóttsamninganefnd ur að forysta félagsins hafi brugð-
þeirra mælti með því að hann yrði ist.
Trésmiðakórinn heldur tónleika
í dag, laugardag, kl. 16 heldur
Samkór Trésmiðafélags Reykja-
víkur tónleika í Gamla Bíói. Stjórn-
andi er Guðjón Böðvar Jónsson.
Á söngskránni eru lög eftir ís-
lensk tónskáld (Jón Laxdal, Sig-
valda Kaldalóns, Árna Thor-
steinsson ofl.), íslensk, frönsk,
sænsk og japönsk þjóðlög, keðju-
söngvar, franskir, latneskir þýskir
og franskir.
Kórinn hefur nýlega gefið út
hljómplötu með tíu íslenskum al-
þýðulögum. í fyrra fór hann til
Finnlands og söng á norrænu
alþýðutónlistarmóti í Pori.
Ég þakka öllum, venslamönnum og vanda-
lausum, einstaklingum, félögum, sambönd-
um og stofnunum, er sýndu mér vináttu á 90
ára afmæli mínu 25. apríl næst liöinn, meö
heimsóknum, heillaóskum, blómum og öör-
um gjöfum. Alúðar þakkir.
GUÐGEIR JÓNSSON, bókbindari.
lækkar
möturieytískostiiaöiim!
réttír án Ivrirhafnar
GOÐI býður 8 vikna matseðil án endurtekninga!
Nú geta vinnuveitendur og matarfélög um allt land boðið
GOÐA-rétti í mötuneyti sínu og sparað þannig vinnukraft
og taeki í eldhúsi sem þarf aðeins að vera örfáir fermetrar
að stærð. Maturinn kemur hraðfrystur á staðinn og eftir
upphitun í blástursofni er rjúkandi GOÐA-rétturinn
tilbúinn á borðið ásamt grænmeti, hrísgrjónum, baunum,
spaghetti eða öðru því sem við á hverju sinni.
Allt sem til þarf er frystigeymsla, blástursofn og GOÐA-
réttirnir sem tryggja nýjan matseðil dag hvem í 8 vikur
samfleytt
GOÐA-mötuneytið er ekki aðeins ódýrara í rekstri en
venja er til, - það býður að auki vandaðan mat og töluvert
ódýrari en þar sem matreiðsla fer fram á hefðbundinn hátt.
Gerum gott mötuneyti
betra med_
Hafið samband við sölumann ■ i
i síma 86366 m m
ógleymanlegur glaesileiki
líðandi stundar ogliðinna tfma
Við fljúgum til Grikklands alla þriðjudaga
og bjóðum eins, 2ja eða 3ja viknaferðir á einkar
hagstæðu verði. Dvalist er á hinni góðkunnu
Vouliagmeni-strönd, örskammtfrá höfuðborginni Aþenu,
sem eins og Grikkland allt býður gestum sínum jafnt að njóta
lystisemda líðandi stundar sem ógleymanlegs glæsileika
fornrar menningar og liðinna tíma. Við minnum á fyrsta
flokks aðbúnað í loftkældum White House íbúðunum
og hinar stórskemmtilegu skoðunarferðir til
Aþenu, Argolis, Delfi, Attiku-skagans og víðar.
Aukadvöi í Amsterdam
Og hvers vegna ekki að bæta (,
aukadvöl í Amsterdam aftan
við Grikklandsheimsóknina?
Hótelkostnaðínn má greiða
{ íslenskum peningum fyrír
brottför og enginn
fkigfarskostnaður bastisk við.
Ódýrari getur Amsterdam ferðin
aldrei orðið!
Pantið
tímanlega
Samrimu/erðk-Landsýn
AUSTURSTRfETl 12 - SÍMAft ZTOT7 * 28899