Þjóðviljinn - 14.05.1983, Síða 17
Helgin 14.-15. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Minning
Jóna Þórdís
Guðmundsdóttir
Fœdd 9.5. 1897 — Dáin 28. 4. 1983
Ég er stödd á leiksýningu í Iðnó
með vinkonu minni, henni Dísu
ömmu. Við skemmtum okkur kon-
unglega, hlæjum dátt og lítum hvor
á aðra í myrkum salnum, svona
eins og til að athuga hvort við
verðum ekki báðar fyrir sömu á-
hrifurn af leiknunt. Ég smitast af
áhuga og innlifun ömrnu eins og
jafnan þegar ég fer með henni í
leikhús eða bíó. í hléinu höfum við
margt að spjalla Varðandi gang
leiksýningarinnar og leik einstakra
leikenda meðan við skoðum fólkið
og fáurn okkur hressingu. Amma
er svo örlát, hún segir mér að fá
mér það sem mig langar í af sælgæti
og gosi. Hún er uppábúin í kjól,
saumuðum af henni sjálfri, og éger
einnig í fötum sem hún hefur sniðið
og saumað eftir að hafa skoðað
eins flík með mér inni í Karnabæ.
Ég er byrjuð að mála mig, en
amma notar hvorki púður né vara-
lit, aðeins vellyktandi. En hún er
falleg og ég er stolt yfir að vera í för
með henni, nýt kvöldsins eins og
svo rnargra annarra fyrr og síðar.
Ég er unglingsstelpa og Dísa amma
hátt á sjötugsaldri - en ntér finnst
eins og við séum jafnöldrur þegar
við stöndum þarna í hléinu, pískr-
andi og flissandi.
Einhverju öðru sinni kem ég í
heimsókn til ömmu í þvottahúsið
heima, þar sem hún er önnum kaf-
in. Það er þvottadagur og hún þvær
fyrir mömmu föt af allri fjölskyld-
unni. Hún hefur skrýðst
gúmmístígvélum, slopp og slæðu,
sem bundin er fram á ennið. Ég
veit að mér er velkomið að vera hjá
henni og hjálpa til eftir því sem ég
get. Ég er á barnaskólaaldri og
finnst ég aum í samanburði við öm-
mu, sem kann til verka og hefur
krafta í kögglum. Hún hífir bleytis-
þvott úr stórum trébala á priki yfir í
þvottapottinn og mislitan þvott úr
öðrum bala yfir í hálfsjálfvirku vé-
lina. Samkvæmt venju gefur hún
sér tíma til að spjalla við mig og
glettnin skín úr góðlegu andliti
hennar. Svo förum við inn til
mömmu í kaffi. Amma sest á koll
og margkrossleggur fæturna, dýfir
mola í svart kaffið og sýgur- hún er
hin mesta kaffikerling. Ég hermi
eftir henni og þykir kaffi gott. Við
sitjum þarna góða stund, allar í
besta skapi - þvottadagur er góður
dagur.
Margar mínar fyrstu bernsku-
minningar eru um Dísu ömrnu.
Sérstaklega vel man ég röddina
hennar þýðu, þegar hún sat hjá mér
á kvöldin og sagði sögur, söng
vögguljóð og fór með þulur. Það
var gott að sofna útfrá því að hlusta
á hana, sem ekkert var að flýta sér,
alltaf hafði tíma og virtist kunna
ógrynnin öll af vísum og öðru sem
gaman var að. Á morgnana þegar
amrna kom heint til okkar, þá daga
sem hún var ekki að vinna úti í bæ,
hafði hún oft meðferðis brúnan
bréfpoka fullan af vínberjum,
kaffibrauð, liti, blöð eða bækur.
Eitthvað sem gladdi okkur. Væri
ég veik eða einhver okkar systr-
anna, settist amrna á rúmstokkinn
með prjónana sína og rabbaði um
heima og geima eða spilaði á spil.
Hún hafði sjálf mjög gaman af að
spila svo það var skemmtilegt að
fara í Svarta Pétur, Ólsen Ölsen
eða Lönguvitleysu við hana.
Dísa amma var ntinn fyrsti kenn-
ari. I-fún kenndi mér snemma að
lesa og námið var leikur undir
hennar handleiðslu því hún var svo
þolinmóð og nærfærin. Á svip-
uðunt tíma kenndi hún mér að
prjóna. Ég var hinn mesti klaufi við
þá iðju en amma hvatti mig óspart.
þar til ég var búin að konta saman
smábút, rauðurn að lit, sem hún
lagaöi til og geröi að dúkkupaka
sem ég var þó nokkuö hreykin af.
Svona var amrna, hún hvatti ntig
jafnan - hlúði aö hverri tilraun sern
ég eöa systur mínar gerðum til ýnt-
issa verka. Mig skorti sjaldan
sjálfstraust í návist hennar. Gott
var líka að leita til hennar í nauðum
sínum. Hún mátti alltaf vera að því
að hugga, hlusta og stappa í mig
stálinu. Ég veit að hún var ekki blíð
á manninn við þann eða þá sem
hvesstu sig við dótturdætur
hennar.
Dísa amma var fædd á Brekku í
Dýrafirði, dóttir Jónínu Jónsdóttur
og Guðmundar Kristjáns Jens-
sonar. Þau langamnta og langafi
voru bændur og eignuðust samtals
10 börn. Antma vandist því að öll-
um líkindum snemrna vinnu og
skólaganga hennar hefur tæplega
verið lögn. Hún var samt vel læs og
skrifandi og auk þess sjálfmenntuð
í ýmsum greinunt eins og t.d.
saumaskap. Amrna ólst upp í
Dýrafirði, en fór unt tvítugt til
Reykjavíkur og hóf störf þar sem
vinnukona. Lengst vann hún hjá
Jóhannesi Jóhannessyni bæjarfóg-
eta. Svo kynntist amrna Þórði Erl-
endssyni heitnum, móðurafa mín-
um. Þau giftust þó ekki.
Antma var einstæð móðir og það
hefur varla verið auðvelt um 1930,
en amma var mikil kona, mikil
manneskja. Hún var lítt efnum bú-
in, innibúandi á heimili annarra
alla sína tíð en hún átti samt mikla
ríkidóma.
Dísa antma var frekar lágvaxin,
sterklega byggð með hátt enni, og
góðlátleg oft glettnisleg blá augu,
mikilfenglegt nef, sem kallað var
Brekkunef. Hún var orðin gráhærð
þegar ég man fyrst eftir henni,
hafði fallegt silfurgrátt hár, frekar
stuttklippt, greitt aftur, svolítið
liðað. Andlitið var svipfallegt og
rúnum rist. Hendur öntmu báru
merki um mikla vinnu. Hún var
forkur til allrar vinnu og hlífði sér
aldrei. Henni varð sjaldan eða
aldrei misdægurt. Framkoma
ömmu var blátt áfrant og laus við
tilgerð. Hún var afar trygg vinutn
sínunt og hjálpsöm.
Dísa amrna fékk ekki að njóta
elliáranna sent skyldi. Hún varð
fyrir hörntulegu slysi 1969 og náði
aldrei fullri heilsu að nýju. Hún
dvaldi á heimili mömmu og pabba í
mörg ár á eftir og hélt áfram að
veita af sér, eftir því sem hún gat og
fékk fyrsta langömmubarnið henn-
ar, Snædís Erla, að njóta ástúðar
og unthyggju hennar. Síðustu sjö
árin sent Dísa amma lifði bjó hún á
hjúkrunarheintili fyrir aldraða í
Hátúni. Ég veit að þar var lilúð að
henni af mikilli nærgætni.
Dísa amma varð 85 ára gömul.
Hún var lögð til hinstu hvíidar á 86.
afmælisdaginn sinn, þann 9. maí
s.l..
Dísa amma er horfin héðan -
hún skilur eftir sig skarð, seni ekki
verðurfyllt. En ntinningin unt hana
lifir. Á ícvöldin raula ég fyrir dótt-
urdótturson hennar vísurnar, sem
hún svæfði mig með forðum.
Megi hún amma okkar nú sofa
rótt.
Disa.
A
UTBOÐ
Tilboö óskast í eftirtalda verkþætti í íþrótta-
hús viö Skálaheiði í Kópavogi.
Útboð I. Tréverk, þ.e. huröir, innréttingar á
klæöningu á veggi.
Útboð II. Málun.
Útboösgögn eru afhent á tæknideild Kópa-
vogs, Fannborg 2, gegn 500 kr. skilatrygg-
ingu frá og meö 17. maí n.k. Tilboöum skal
skila á sama stað fyrir kl. 11 þriðjudaginn 24.
maí n.k. og verða þau opnuö að viöstöddum
bjóöendum.
Bæjarverkfræðingur
;;;
|r Tilsölu
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem verða til sýnis í porti
Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar að Skúlatúni 1, mánu-
daginn 16. og þriðjudaginn 17. þ.m.,
1. MAZDA Pallbíll
2. SIMCA 1100 sendibíll
3. SIMCA 1100 pallbfll
4. SIMCA 1100 pallbíll
5. VW 1200 fólksbíll
6. VW 1200 fólksbíll
7. VW 1200 fólksbíll
8. M.A.N. 15-216 vörubifreið
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
1976
1979
1979
1977
1975
1976
árg. 1976
með HIAB krana árg. 1972
Jafnframt verða þar seldar gegn staðgreiðslu notaðar
garðsláttuvélar.
Tilboö í bifreiðarnar verða opnuð á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, þriðjudaginn 17. maí kl. 15.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Kostaboð á kafbátaslóðir
Tilboðsverð á Stokkhólmsferðum
Stokkhólmur er heimsborg. Það fer ekki á
milli mála. Stokkhólmur hefur svo margt að
bjóða þeim sem heimsækja hana, aö
borginni er oft á tiðum líkt við stóru
heimsborgirnar í Asiu og Ameríku! Leikhús,
ópera, bátsferðir, veitingahús, næturklúbb-
ar, jazzklúbbar, söfn, sýningar, matstaðir og
kynnisferðir gera Stokkhólmsdvölina
ó.gleymanlega. Stokkhólmsbúar eru alúð-
legt fólk þegar þú kynnist þeim, og
gististaðirnir og hótelin eru við allra hæfi.
Eitt af því þægilegasta við Stokkhólm er
sérstök ferðamannahandbók, sem er
full af upplýsingum og leiðbeiningum
fyrir feröafólk. I bókinni eru einnig sérstök
afsláttarkort, sem annað hvort veita þér
ókeypis aðgang að söfnum, skemmti-
stöðum og sýningum - eða umtalsverðan
afslátt á veitingastöðum, bátsferðum og
skemmtiferðum. Þessi bók er til sölu hjá
Upplýsingaþjónustu Stokkhólmsborgar,
sem jafnframt veitir ferðamönnum allar
nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð.
Stokkhólmur er lykillinn að skemmtilegu
sumarleyfi i Svíþjóð og jafnvel í Finnlandi.
rrm
FLUGLEIDIR
Gott tólk hjá traustu télagi
S
5T0KKI1.
Fluglelðlr bjóða nú sérstaka „sumarleyf-
ispakka" til Sviþjóðar, sem varla er
hægt að.kalla annað en kjarapakka. f
boðlnu felst flug tll og frá Stokkhólml og
bílaleigubíll í 3 vlkur frá aðelns 11.875.00
krónum. Tll viðbótar geta Flugleiðlr selt
þér elntak af „Nordisk Hotel Pass'' sem
gildir sem sérstakt grelðslukort fyrlr
glstingu.