Þjóðviljinn - 14.05.1983, Side 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 14.-15. maí 1983
um helgina
Litli leikklúbburinn á ísafirði sýnir um þcssar mundir Fjölskylduna
eftir Claes Andersson í þýðingu Heimis Pálssonar. Er leikritið 39.
verkefni klúbbsins.
Þjóðleikhúsið
29. maí
Gallerí Langbrók
myndlist
Gallerí Langbrók
Jóhanna Póröardóttir sýnir 15 lágmynd-
ir. Jóhanna nam heima og erlendis.
Þetta er hennar fyrsta einkasýning. Opið
14-18. Sýningin stendur til 22. maí.
Listasafn íslands
Ljósmyndir til sýnis eftir Bandaríkja-
manninn David Finn, sem hann hefur
tekið af höggmyndum. Þá er um leið
höggmyndasýning með verkum eftir
Einar Jónsson, Ásmund Sveinsson og
Sigurjón Ólafsson.
Þjóðminjasafnið
Sýning á málverkum úr eigu safnsins.
Sjá nánar annars staðar á síðunni.
Listmunahúsið
Alfreð Flóki sýnir 40 teikningar. Unnar
með tússi, svartkrít og rauökrít. Opið um
helgina frá 14-18.
Norræna húsið
Nú stendur yfir sýning á verkúm sænska
myndlistarmannsins Svens Hage-
manns. 20 olíumálverk og 14 teikningar
til sýnis. Opið 14-19, til 15. maí.
Skruggubúð
Þorsteinn Hannesson sýnir málverk og
vatnslitamyndir. Opið um helgina frá 15-
21. Sýningunni lýkur 15. maí.
Barnaskólinn Stokkseyri
I dag opna þeir Elfar Þórðarson og Vignir
- Jónsson sýningu. Um er að ræða tvær
einkasýningar og eina samsýningu.
Sýningin verður opin alla daga kl. 14-22
og lýkur sunnudaginn 29. mai.
Myndlistarskólinn á Akureyri
Sýning á verkum nemenda opnar í dag,
14. mai, að Glerárgötu 34. Verk eftir
nemendur úr öllum deildum skólans.
Sýningin er aðeins opin nú um helgina
frá kl. 14-22, báða dagana.
Gallerí Lækjartorg
Gunnar Dúi sýnir málverk. Opið frá kl.
14-18 14-23. maí, nema fimmtudaga
og sunnudaga kl. 14-22. Gunnar hefur
haldið 6 sýningar á (slandi og nokkrar
erlendis. A sýningunni eru aðeins ný
olíumálverk.
Kjarvalsstaðir
Páll Reynisson sýnir Ijósmyndir, Guð-
mundur K. Ásbjörnsson sýnir málverk
og vatnslitamyndirog Sveinn Björnsson
sýnir málverk. Sýningar eru opnar til 23.
maí.
ýmislegt
MÍR-salurinn
Kvikmyndasýning verður í MÍR-salnum,
Lindargötu 48 á morgun, sunnudaginn
15. mai. Sýnd verðurkvikmyndin „Þegar
haustar" undir stjórn Edmonds Keosa-
jans. Sýningin hefst kl. 16 og er að-
gangur ókeypis.
Fuglaskoðunarferð
Utivist gengst fyrir fuglaskoðunarferð á
morgun, 15. mai. Haldið verður í Krisu-
víkurbjarg. Árni Waag er leiðangurs-
stjóri. Gott er að hafa með sér sjónauka
og smávegis nesti. Hlý skólaföt eru aö
sjálfsögðu nauðsynleg. Lagt af stað frá
bensínsölu Umferðarmiðstöðvar kl.
13.00.
Hreinsun i Breiðholti
I dag gengst Framfarafélag Breiðholts III
fyrir hinum árlega hreinsunardegi í
hverfinu. Ruslapokar verða afhentir við
Menningarmiðstöðina Gerðuberg, Hóla-
brekkuskóla og Fellahelli frá kl. 10 um
morguninn.
leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Hiö nýja leikrit Þórunnar Sigurðardóttur,
Guðrún, veröur sýnt á sunnudagskvöld
og er þegar uppselt,- l kvöld verður
Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson
sýndur og fer sýningum nú óðum að
fækka. Vegna mikillar aðsóknar verður
enn ein aukasýning á Hassinu hennar
mömmu í Austurbæjarbíói í kvöld.
Brúðubíllinn
Á mánudag fer hann af staö og er þetta
sjöunda sumarið sem hann ekur um göt-
ur og torg borgarinnar. Ekiö er á milli
gæsluvallanna en hver sýning tekur um
hálfa klukkustund.
Óperan
Síðasta sýning á Míkadó er í kvöld,
laugardaginn 14. maí. Garðar Cortes
hefur nú aftur tekið við stjórn hljóm-
sveitarinnar, en Jón Stefánsson stjórn-
aöi henni um tima. Vonandi verður eng-
inn svikinn af aö sjá óperuna í kvöld, en
það eru allra síðustu forvöð.
Þjóðleikhúsið
Miðasala á uppákomu hins heimsfræga
Victors Borge hefst í dag, laugardaginn
14. maí, en sýning hans verður í
Þjóðleikhúsinu sunnudagskvöldið 29.
maí. Vissara er að tryggja sér miöa
timanlega þvi hann mun líklega aðeins
skemmta þetta eina kvöld að þessu
sínni. Lína langsokkur veröur sýnd í
kvöld og gilda þá miðar sem dagsettir
voru á sýningu 7. maí, en hún féll niður.
5. sýningin á Cavalleria Rusticana og
Fröken Júlíu verður á morgun, 15. maí.
Grasmaðkureríkvöld 14. maíogSúkk-
ulaði handa Silju á þriðjudag.
Litli Leikklúbburinn
Litli Leikklúbburinn á ísafirði sýnir um
þessr mundir vorstykki sitt, Fjölskyldan,
eftir Claes Anderson í þýðingu Heimis
Pálssonar.
tónlist
Gamla bíó
Samkór Trésmiðafélags Reykjavikur
heldur tónleika í Gamla bíói í dag kl. 16.
Á efnisskránni eru lög af ýmsu tagi. Kór-
inn hefur nýlega sent frá sér tíu laga
hljómplötu en þar eru flutt íslensk al-
þýðulög.
Borg í Grímsnesi
Hljómsveitin Kaktus heldur dansleik að
Borg i Grímsnesi í kvöld, laugardaginn
14. maí. Hljómsveitin var endurvakin nú
með hækkandi sól og er markmið hljóm-
sveitarinnar að halda uppi stanslausu
stuði á sveitaböllum i sumar!
Þjóðleikhúskjallarinn
Vísnakvöld verður nk. mánudag og mun
sænska vísnasöngkonan Thérése Juel
m.a. koma þar fram. Hún er þekkt í sínu
heimalandi en lítið hérlendis. Hún mun
halda tónleika víðar um land næstu
daga.
Yfir stendur í vesturforsal
Kjarvalsstaða ljósmyndasýning
Páls Reynissonar. Á sýningunni
eru bæði litljósmyndir, svarthvítar
myndir og graf ískar Iitmyndir.
Páll Reynisson lærði Ijósmyndun
í Gautaborg og vinnur nú hjá
sjónvarpinu. (Ijósm. eik)
Thérése Juel, sænska vísnasöng-
konan sem dvelst hér á landi um
þessar mundir.
Vísnavinir athugið
Vísnakvöld
á mánudag
Sænska vísnasöngkonan Thér-
ése Juel er nú í heimsókn á ís-
landi í boði Vísnavina. Hún er vel
þekkt í heimalandi sínu, en lítið
hér á landi. Mun hún halda kon-
serta og koma fram á vísna-
kvöldum.
Mánudaginn 16. maí verður
Vísnakvöld í Þjóðleikhúskjallar-
anum og mun Thérése koma þar
fram. Ráðgert er að halda kons-
ert með henni á Akranesi þriðju-
daginn 17. maí en fimmtudaginn
19. maí halda Vísnavinir stór-
konsert á Borginni þar sem Vísna-
vinir bjóða upp á það besta,
sem til er hér á landi varðandi
þessa tónlistarstefnu. Koma þar
fjölmargir listamenn fram og
verður Thérése Juel meðal
þeirra. Síðasti konsert Thérése
verður í Norræna Húsinu þriðju-
daginn 24. maí.
Myndlistarskólinn
á Akureyri
Nemenda-
sýning
Laugardaginn 14. maíkl. 14.00
verður opnuð sýning á verkum
nemenda Myndlistaskólans á
Akureyri í salarkynnum skólans
að Glerárgötu 34, þriðju og
fjórðu hæð. Á sýningunni verða
verk nemenda úr öllum deildum
skólans. Þetta er stærsta og viða-
mesta sýning skólans til þessa og
verða sýnd nokkur hundruð verk
nemenda skólans sem eru á aldr-
inum fjögurra til sjötíu og níu
ára.
Sýningin verður opin kl. 14.00
- 22.00 báða dagana. Skólastjóri
er Helgi Vilberg.
Victor
Borge í
heimsókn
Danski háðfuglinn Victor Borge
ætlar að skemmta landanum 29.
maí n.k. í Þjóðleikhúsinu!
Eins og fram hefur komið í
fréttum kemur Victor Borge
hingað til lands von bráðar og
skemmtir landanum 29. maí í
Þjóðleikhúsinu.
Hann er fæddur í Kaupmanna-
höfn fyrir 74 árum og byrjaði að
læra á píanó aðeins 3ja ára gam-
all. Átta ára kom hann fyrst fram
sem einleikari og var hylltur sem
snillingur. Síðan tók húmorinn
öll völd og þótt hann sé viður-
kenndur sem afar fær píanóleikari
er hann líklega þekktastur fyrir
að leika fremur á alls oddi en á
píanóið.
Miðasala á tónleika Borges
hefst í dag, laugardag kl. 13.15.
Jóhanna
sýnir
Sýningar á
Stokkseyri
Laugardaginn 14. maí opna
þeir Elfar Þórðarson og Vignir
Jónsson sýningu í Barnaskólan-
um Stokkseyri. Hér er um að
ræða tvær einkasýningar og eina
samsýningu.
Elfar verður í suðurálmu og
sýnir þar olíu-, vatnslita- og acril-
myndir sem eru flestar frá Stokks-
eyri, Eyrarbakka og næsta ná-
grenni. Þetta er 8. einkasýning Elf-
ars en að auki hefur hann tekið
þátt í mörgum samsýningum.
Vignir verður í norðurálmu og
sýnir þar hnýtingaverk sem eru
með nokkuð öðru sniði en fólk á
að venjast. Þetta er önnur einka-
sýning Vignis og hefur hann einn-
ig tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum.
Á göngum sýna þeir saman
myndverk unnin með biandaðri
tækni. Á samsýningunni bregða
þeir félagar út af þeim stíl sem
þeir hafa oftast unnið í og sleppa
að nokkru leyti fram af sér beisl-
inu.
Elfar Þórðarson og Vignir Jónsson
við nokkur verka sinna. Myndin er
tekin í Stokkseyrarfjöru.
Þess má einnig geta að sýning-
arskráin verður dúkrista, þrykkt
með gamalli taurullu. Verður
hvert eintak áritað og tölusett.
Sýningin verður opin alla daga kl.
14-22 og lýkur sunnudaginn 29.
maí.
Lokapróf
Úlla Carolusson, sænsk stúlka
sem búið hefur hér á landi frá
1980 mun halda lokaprófstón-
leika sína í dag laugardag að
Kjarvalsstöðum og hefjast þeír
kl. 20.30. Hún lýkur píanónámi
sínu við skólann með þessum tón-
leikum, en fyrstu skref sín á tón-
listarbrautinni steig hún í heima-
bæ sínum í Svíþjóð Uddevalla.
Við Tönskóla Sigursveins hefur
kennari hennar verið Brynja
Guttormsdóttir.
Úlla mun flytja verk eftir
Bach, Chopin, Schubert og
Rautavaara. Aðgangur að þess-
um tónleikum er öllum ókeypis.
Þessir tónleikar eru síðustu
tónleikar Tónskóla Sigursveins á
Úlla Carolusson.
þessu starfsári. Skólanum verður
slitið í sal Hagaskóla næstkom-
andi þriðjudag.
/ dag kl. 10
Hreinsun í
Breiðholti
Jóhanna Þórðardóttir sýnir um
þessar mundir 15 verk, allt lág-
myndir, í Gallerí Langbrók.
Efniviðurinn er tré, en að auki er
blý mikið notað auk nokkurra
náttúruefna. Jóhanna hefur gert
verk fyrir Rafmagnsveitur
Reykjavíkur, sem sett verður
upp í sumar og verður það 2.6
rnetrar á hæð. Sýningu Jóhönnu í
Gallerí Langbrók lýkur 22. maí
ogeropið virka daga kl. 12- 18 en
Jóhanna Þórðardóttir við verk sín
í Gallerí Langbrók. Ljósm. Atli.
14 - 18 um helgar. Aðgangur er
ókeypis.
í dag, 14. maí gengst Fram-
farafélag Breiðholts III fýrir hinum
árlega hreinsunardegi í hverfinu,'
en það spannar Fell, Hóla og
Berg.
Allir íbúar hverfisins eru hvatt-
ir til að taka til hendinni í þessari
vorhreingerning, því mikið af alls
kyns rusli er nú komið í ljós eftir
veturinn.
Undanfarin ár hefur þessi ár-
lega vorhreingerning tekist mjög
vel.
Krakkarnir voru duglegir við að
snyrta hverfið sitt í Breiðholtinu í
fyrra og verða það örugglega líka
núna.
íbúum hverfisins verða athent-
ir ruslapokar í Menningar-
miðstöðinni við Gerðuberg, Hóla-
brekkuskóla og Fellahelíi frá kl.
10 um morguninn á laugar-
daginn.