Þjóðviljinn - 14.05.1983, Síða 28
MÖÐM/im
Helgin 14.-15. maí 1983
Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl 9 - 12 er hægtaö ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
13 kr. í strætó!
30% hækkun í stað 20%
Hækkunin
umfram
heimild
Á fundi borgarráðs í gær sám-
þykktu fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins að hækka fargjöld SVR um
30% fyrir fullorðna og um 20%
fyrir börn. Jafnframt var ákveðið
að hefja á ný sölu afsláttarfarmiða,
en þeir voru teknir úr umferð í jan-
úar sl. þegar lögbann var sett við
50% hækkun sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hafði þá ákveðið einhliða.
Almennt fargjald fullorðinna
hækkar úr 10 krónum í 13 krónur
og barnafargjaldið úr 2,50 í 3 krón-
ur. Stórt farmiðaspjald með 18
miðum kostar 200 krónur og lítið
spjald með 8 miðum 100 krónur.
Barnaspjöldin með 20 miðum
kosta 50 krónur, 18 miðar fyrir
aldraða og öryrkja kosta 100
krónur.
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
ráði sátu hjá við þessa afgreiðslu.
-ÁI
Ég fagna því að afsláttarfargjöld
eru nú til sölu á ný, en get hins
vegar ekki fallist á, þegar hcimiluð
er 20% hækkun á fargjöldum, þá
I hækki almenn fargjöld úr 10 krón-
um í 13 eða um 30%, segir í bókun
Sigurjóns Péturssonar borgarráðs-
manns Alþýðubandalagsins frá í
gær.
Þar sem mótatkvæði nú myndi
tefja framkvæmd málsins, þannig
að hætta er á að þessi hækkun yrði
ekki reiknuð inn í hækkun kaup-
gjaldsvísitölu 1. júní sl. mun ég
sitja hjá við afgreiðsluna, segir
ennfremur í bókuninni. Guðrún
Jónsdóttir fulltrúi Kvennafram-
boðs bókaði einnig sína afstöðu á
svipuðum nótum.
I bókun Davíðs Oddssonar segir
hins vegar að ákvörðun borgarráðs
sé aðeins um 20% í heild þar sem
sala afsláttarfarmiða er tekin upp
að nýju. Jafnaðargjald sé hið sama
og í Kópavogi og hækkunin sú
sama og verðlagsráð hafi óum-
beðið heimilað borginni.
Til almannaheflla
i fjorutiu ar
Á 40 ára afmælinu sendum við öllum viðskiptavinum okkar árnaðaróskir. Jafnframt leyfum við
okkurað vona að félagið hafi náð því markmiði sínu að auka ön/ggi þeirra, og milda þau áföll sem
sumir hafa orðið fyrir. Við vitum að vöxtur og viðgangur tryggingafélags er m.a. háður
góðri afspurn - viðhorfum og umsögnum þeirra sem hafa oröið fyrir tjóni
og sækja síðan bætur í hendur tryggingarélags síns.
Starfsemiokkarhefuraukistjafntog þéttáundanförnum40árum. Núerustarfsmenninrnir55
og sjálfstæðar skrifstofurá Akureyri, Akranesi, Selfóssi og í Hafnafirði.
Aðalskrifstofan er í hinum nýju og rúmgóðu húsakynnum í Síðumúla 39.
Umboðsmenn eru um allt land.
Starfsemi okkar spannar öll svið trygginga - smá og stór.
Á seinni árum höfum við annast stærri verkefni en nokkru sinni fyrr - tryggingar fyrir íslenska
verktaka í orku- og stóriðjuframkvæmdum.
Um leið og við þökkum viðskiptin á liðnum árum viljum við nota tækifærið til að minna enn á
nauðsyn fyrirhyggju ...
... þaö tryggir enginn eftír á.