Þjóðviljinn - 09.07.1983, Síða 3
* ‘Helgin 9-ÍÖ. júíí WSajÞJÓÖVtájINÍ^-'SÍÐA 3
Nýr bíll frá DAIHATSU - Nýr bíll frá DAIHATSU
Daihatsu 850
háþekjusendibíll
Nýr og frábær valkostur fyrir þá sem þurfa lítinn, sparneytinn
en rúmgóðan sendibíl vegna eigin atvinnureksturs eða ann-
arra nota.
Þetta er DAIHATSU 850
3 hleðsludyr
3 strokka 850cc 41 hö din vél
(hin frábæra DAIHATSU CHARADE vél
í nýrri útfærslu)
Eigin þyngd 740 kg
Burðarþol 680 kg
12” hjólbarðar
Snúningsradíus 4,0 m
Lengd 3,20 m
Breidd 1,40 m
Hæð 1,90 m
Hæð undir lægsta þunkt 17,5 cm
Sýningarbíll á staðnum.
Til afgreiðslu strax.
Viðurkennd gæði,
viðurkennd þjónusta.
DAIH ATSU-umboðið,
Ármúla 23, 85870 - 81733.
Tengsl fjölskyldu
og skóla
Ný
nefnd
skipuö
Menntamálaráðherra hefur
skipað nýja nefnd, vinnuhóp
sem á að athuga „tengsl fjöl-
skyldu og skóla“ og gera til-
lögur um úrbætur.
f frétt frá menntamálaráðherra í
gær segir m.a.:
„Hópurinn athugi sérstaklega
eftirfarandi:
1. Hvernig má samræma betur
vinnutíma foreldra og skólabarna?
2. Hvað er unnt að gera í skóla-
starfi til að styrkja samband barna
og foreldra og þar með stuðla að
samheldni fjölskyldna?
a) Hvaða ráðstafanir í ofan-
greindu skyni væri hægt að gera án
tilkostnaðar?
b) Með litlum tilkostnaði?
c) Aðrar ráðstafanir?
d) Inn í hvaða námsgreinar er eðli-
legast að flétta efni, sem tengist
verkefninu?"
Þá segir einnig að sérstaka
áherslu þurfi að leggja á athugun á
samfelldum skóladegi, skynsam-
legu fyrirkomulagi nestimála og fl.
Formaður vinnuhópsins verður
Salome Þorkelsdóttir alþingismað-
ur.
-óg
Norrænu hótelsamtökin:_
Orelt lög hefta
framþróunina
- Áfengisneysla á veitingastöðum
er undir opinberu eftirliti og
veitingar í höndum reynds starfs-
fólks, sem kann vel til verka. Þar er
umhverfi, sem laðar til mannlegra
samskipta og viðkynningar. Það er
því allra hagur að sem mestur hluti
áfengisnotkunar fari fram innan
veggja veitingahúsa. Gegn þeirri
þróun beinast hinsvcgar núgildandi
lög og rcglugerðir einkum í Noregi,
Svíþjóð og á íslandi.
Þannig líta Norrænu hótelsam-
tökin á, en ársfundur þeirra var ný-
lega haídinn í Stokkhólmi. Var þar
fjallað um rekstursskilyrði
veitinga- og gistihúsa á Norður-
löndum, rædd ferðamál, bókunar-
kerfi, tölvuvæðing, samstarf við
yfirvöld og aðrar stofnanir.
Samtökin telja, að þjóðfélags-
legt og fjárhagslegt gildi greinar-
innar fari vaxandi með auknum
ferðalögum og breyttum lífsháttum
almennings. Hinsvegar skorti
skilning á þessu hjá stjórnmála-
mönnum, opinberum stofnunum
og löggjafarvaldinu, sem ekki hafi
„fyllilega gert sér grein fyrir hlut
greinarinnar í verðmætamyndun,
gjaldeyrisöflun og atvinnusköpun
þjóðarbúsins. Kemur þetta fram í
úreltum og tilgangslausum lögum
og reglum, sem hefta framþróun og
möguleika til þess að veita almenn-
ingi þá þjónustu, sem hann þarfn-
ast og krefst“, segja norrænir
hótelmenn.
-mhg
Steinn
Stefánsson
75 ára
Sjötíu og fímm ára er á mánu-
daginn kemur Steinn Stefánsson,
fyrrum skólastjóri á Seyðisfírði.
Steinn var um 45 ára skeið kenn-
tri og skólastjóri á Seyðisfirði.
lann var í tólf ár bæjarfulltrúi sósí-
alista þar. Einnig kom hann mjög
við sögu tónlistarmála í bænum,
stjórnaði kór og var organisti kirkj-
unnar.
Steinn er nú búsettur í Reykja-
vík. Hann hefur fyrr og síðar lagt
þessu blaði lið með ágætum grein-
um og árnar blaðið honum allra
heilla á afmælinu.
Starfsmenn SVR hafa nú komið upp
fimm nýjum strætisvagnaskýlum við
Bústaðaveg sömu gerðar og það sem
staðið hefur við Landspítalann á Miklu-
braut. Þessi nýju skýli eru örlítið breytt,
uppiýst, en ekki upphituð, en upphitun
skýlanna þykir ekki svara kostnaði.
Fyrsta skýlið var reist árið 1981 og er
Birna Björnsdóttir innanhússarkitekt
höfundur skýlanna. Setja á upp fimm
skýli í viðbót, gagnstéttarskýli, smærri í
sniðum og er nú verið að finna þeim
stað. Skýlin eru smíðuð hjá Stáltækni í
Reykjavík. Ljósm. Leifur.
Mesti
kuldi
í fyrrinótt náðist lægsti hiti sem
mælst hefur hérlendis tii þessa eða
- 270,7 gráður á Celcius í Eðlis-
fræðistofu Raunvísindastofnunar
Háskólans. Kaldasti staður lands-
ins á sögulegum tímum hefur ár-
eiðanlega verið innan veggja þess-
arrar stofnunar síðustu viku þar-
sem eðlisfræðingarnir dr. Hans
Kr. Guðmundsson og dr. Þorsteinn
I. Sigfússon hafa unnið að mæl-
ingum á málmsýnum á víðu hitabili
og notað til þess fljótandi Helíum.
Helíum er léttast gastegunda og
sýður við lægst hitastig allra efna
eða við 269 stiga frost. Með He-
líumkælingu má ná hitastigi niður
undir alkul, sem er 273 stiga frost.
Einsog áður sagði náðist svo lægst-
ur hiti sem hér á landi hefur mælst í
fyrrinótt eða 270,7 stiga frost, eða
tveimur og hálfri gráðu frá alkuli.
Við rannsóknirnar hefur verið
notast við afar flókinn kæliútbún-
að. Við rannsóknir þessar eru
málmsýni kæld í Helíumvökva og
eðliseiginleikar þeirra mældir.
Sýnin eru málmblöndur sem til-
heyra efnaflokkum sem hafa rutt
sér til rúms á margvíslegum tækni-
sviðum, svosem í málmiðnaði, raf-
iðnaði og fleiru. -óg
ANGLO-CONTINENTAL EDUCATIONAL GROUP
ENSKUNAM
í ENGLANDI
Vikulega - næst 24. júlí.
Lágmarksdvöl 3 vikur.
20 - 26 - 32 tímar á viku
fyrir fólk á öllum aldri.
Sérherbergi á einka-
heimilum - fæöi innifaliö.
Verð frá 25.000 kr.
Örfá sæti laus.
Bæklingar sendir.
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoöarvogur 44
sími 91-86255