Þjóðviljinn - 09.07.1983, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 09.07.1983, Blaðsíða 28
MQÐVIUINN Helgin 9-10. júlí 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til töstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaöamenn og aðra startsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu biaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Hluti hópsins framan við Héraðsskólann. Ljósm. Leifur. Allir hressir og kátir Alþýðubandalagsmenn í sumarfríi heimsóttir að Laugarvatni Nú á sunnudag lýkur vikudvöl 80 manna hóps á vegum Alþýðu- bandalagsins á Laugarvatni. Þjóðviljamenn bar þar að í gær, föstudag, í heldur leiðinlegu veðri, en ekki bar á öðru en að menn væru hressir og kátir, enda fjörug kvöld- vaka framundan með heimaunnu efni og þaráeftir dansibali þarsem helstu mússíkantar hópsins skyldu sýna listir sínar á tvær harmóník- ur, píanó og saxófón. Hljómsveitar- æfíngar stóðu yfir. „Þetta er annað sumarið sem þetta er gert“, sagði Baldur Ósk- arsson“, í fyrra voru tveir hópar, og þetta þótti takast einkar vel þá, enda er fullskipað í alla þrjá hóp- ana í sumar. Næsti hópur kemur 18. júlí ogþriðji í vikunni þaráeftir. Þessi sumardvöl er þáttur í viðleitni til að hleypa meira lífi í flokksstarf- ið, sem einkennist auðvitað mest af einstökum fundum sem hinir allra áhugasömustu mæta einir á. Hér kemur hinsvegar öll fjölskyldan í sumarfrí á notalegan stað og menn hittast og kynnast persónulega. Svo er hér ýmislegt fræðsluefni á boðstólum og skemmtun, bæði frá hópunum sjálfum og annarskonar; hér var Svavar Gestsson til dæmis eitt kvöldið og átti hinar ágætustu samræður við félagana um ástand- ið í pólitíkinni. Við höfum verið mjög alþjóðleg, og hlustað á erindi um Kína og Tansaníu, en einnig kynnt okkur sögu staðarins og sveitarinnar með aðstoð heima- manna, Birkis Þorkelssonar kenn- ara og bónda og Haralds Matthías- sonar doktors. Við fórum líka í ferðalg um ná- grennið með Arnóri Karlssyni, bónda og fræðimanni á Arnarholti heimsóttum Skálholt, Tungnaár- réttir, Haukadal, Gullfoss og fleira. Hluti hópsins fór í reiðtúr í tvo tíma, en alla daga dunda menn við sitt, fara í gufubað og sund, ganga um, leika við börnin. Það gerir þessa dvöl sérstaklega ánægjulega hvað Héraðsskólinn er notalegur staður, við höfum hann alveg útaf fyrir okkur. Allur viðurgerningur er ákaflega góður, Rúnar Jökull bryti og hans fólk ber fram kræsingar á hverjum degi. En hér hafa líka allir verið staðráðnir í að láta sér líða vel og kynnast hver öðrum.“ -m Börn og fullorðnir hlýða á norska tóna úr nikku Sigurbjörns Einarssonar. Ekki vantaði kjölfestuna í hóp sumargesta að Laugarvatni: Gunnhildur Daníelsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Ingunn Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Bjarnason. Þegar ekki viðrar til útiveru leggja börnin undir sig leiksal i kjallaranum. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81333 81348 81663 Ekkert dægurþras „Okkur líður prýðilega hér, þetta er ágæt afslöppun“, sagði Guðlaugur Ketilsson kennari á Akranesi þegar Þjóðviljamenn spurðu hann almæltra tíðinda í setustofu Héraðsskólans. „Veðrið hefði reyndar mátt vera betra“ - og Guðlaugur rýndi í súldina utanvið gluggann, - „en við fengum mjög góðan dag í gær (fímmtudag), og hann var nýttur til hins ítrasta.“ Guðlaugur sagði að þarna væri fólk á öllum aldri, frá eins árs til áttræðs, og úr ýmsum áttum. „Þetta er mjög breiður hópur sem hér blandar geði, og maður kynnist mörgu ágætu fólki, ungu og gömlu. Menn skemmta sér saman og ræðast við. Pólitíkina ber auðvitað á góma, Svavar kom hér til dæmis í gær, og það hafa verið haldin erindi um ýmis fróðleg efni. En við látum dægurmálaþrasið eiga sig, enda er samveran og kynningin það mikil- vægasta", sagði Guðlaugur að lok- um og sagði Þjóðviljamönnum síð- an til vegar að gufubaðinu niðurvið vatnið. _m Guðlaugur Ketilsson og Ingibjörg Rafnsdóttir. Katla í fangi föður síns, Birkir lengst til hægri. Vísitala framfærslukostnaðar reiknuð út ' / aukalega að kröfu ASI 14% hækkun á 1 mánuði Framfærslukostnaður hækkaði um 14% amk í síðasta mánuði sam- kvæmt aukalegum útreikningi á vísitölu framfærslukostnaðar sem gerður var að beiðni Alþýðusam- bands íslands. Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitöluna miðað við verðlag um mánaðamót júní/júlí og reyndist hún vera 340 stig miðað við grunntöluna 100 í janúarbyrjun 1981. Maívísitala var 298 stig og er hækkunin til mánaðamóta júní/júlí 14.1%. Vegna sumarfría á Verðlags- stofnun var ekki hægt að verða við þeirri ósk ASÍ að verðupptaka til útreiknings vísitölu ætti sér stað í júlíbyrjun, og hófst hún þess í stað í vikunni frá 20. júní. Var hér um að ræða upptöku verðs á flestum matvörum öðrum en helstu búvör- um, á vefnaðarvöru, skófatnaði og ýmsu öðru. Verðupplýsingum sem Hagstofan aflar var hinsvegar safn- að miðað við júlíbyrjun. Vísitalan er engu að síður kennd við júlí 1983, segir í frétt frá Hagstofunni, og er hækkun hennar frá maí til júlí vafalaust eitthvað minni af þessum sökum en orðið hefði, ef öll verðupptakan hefði miðast við júlí- byrjun, en þó varla svo verulegu munaði. -ekh Gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur Hækkar um 42% Á fundi stjórnar veitustofnana í gærmorgun var samþykkt crindi frá hitaveitustjóra um 42% meðal- hækkun gjaldskrár Hitaveitu Reykjavíkur frá og með 1. ágúst n.k. Fulltrúi Alþýðubandalagsins í stjórn veitustofnana, Sigurður Tómasson greiddi atkvæði gegn þessari gífurlega hækkun og lét bóka mótmæli á fundinum. Talið er fullvíst að ráðherra staðfesti þessa 42% meðalhækkun. Sigurður G. Tómasson fulltrúi Alþýðubandalagsins í stjórn veitustofnana vísar til fyrri bók- unar í stjórninni er síðasta hækkun gjaldskrár hitaveitunnar var á- kveðin. Segir hann að með tilliti til skertrar vísitölu á laun sé með öllu útilokað að standa að umræddri 42% hækkun. Síðan segir: „Við völdum í landinu hefur tekið ríkisstjórn sem afnumið hef- ur með lögum samningsrétt al- þýðusamtakanna og bannað vísi- tölubætur á laun. Launafólk hefur því enga möguleika til þess að mæta hækkunum á vöru og þjón- ustu. Það er auk þess siðlaust að opinber fyrirtæki, þar sem annar ríkisstjórnarflokkanna ber stjórnarábyrgð, skuli ganga á undan og hækka þjónustu sína um tífalda þá prósentutölu sem launa- fólk á að fá í sinn hlut löngu síðar. Fulltrúi Alþýðubandalagsins greiðir því atkvæði gegn þessari hækkunartillögu“. Þess skal getið að í bréfi hita- veitustjóra, Jóhannesar Zoéga þar sem farið er fram á þessa 42% hækkun er einnig gert ráð fyrir nokkurri hækkun umfram verðlagshækkanir 1. nóvember í haust. Hækkun Hitaveitu Reykja- víkur kemur fyrir borgarráð á þriðjudag. -v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.