Þjóðviljinn - 09.07.1983, Page 8

Þjóðviljinn - 09.07.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9-10. júlí 198J Martin Berkofsky, píanóleikari s , Jslendingar eru ótrúlega tónelskir” „Þaö er eiginlega kraftaverk aö ég skuli vera farinn að spila aftur. Ég brotnaði á einum átta stöðum á hægri handlegg í umferðarslysi í fyrra og lá á sjúkrahúsi í 4 mánuði. Ég get fyrst og fremst þakkað það frábærri endurhæfingu og góðum læknum hér að ég er farinn að kenna og spila aftur á tónleikum" sagði píanóleikarinn Martin Berkofsky, sem hefur nú verið búsettur hér á íslandi í eitt ár. Berkofsky er nýkominn norðan frá Akureyri, þarsem hann hélt píanónámskeið í fimmta sinn, og voru þátttakendurfrá öllu landinu. „Þessi námskeið eru mjög þýðingarmikil. Þetta er í fyrsta sinn sem við höldum slíkt námskeið að sumarlagi og getum fengið fólk víð- ar að en frá Akureyri og nágrenni. Við höfum unnið mjög einbeitt bæði í hóptímum og einkatímum og enduðum síðan á tónleikum,“ sagði Berkofsky. Við spurðum hann um uppruna hans. Hann kvaðst vera fæddur í Washington og vera af rússneskum ættum.Hannlauk námi við tónlista- háskólann í Baltimore og fór síð- an í framhaldsnám til Vínar. Hann hefur hlotið fjöldamörg alþjóðleg verðlaun í píanóleik og haldið tón- leika um allan heim. Ifyrra settist hann að á íslandi eins og fyrr segir: „Ég kynntist konunni minni, Önnu Málfríði Sigurðardóttur á Akureyri og ákvað að setjast hér að. Mér hefur alltaf þótt sérlega gaman að vera hér. ísland er miðsvæðis alheimslega séð- héðan get ég flogið bæði austur og vestur í tónleikaferðir. í vetur hef ég kennt við Tónlistaskólann í Garðabæ og ég kann mjög vel við mig hér. Eftir slysið var óvíst hvort ég gæti leikið framar, en eftir að búið var að setja járnfleyg í handlegginn á mér gat ég farið að æfa mig á ný. Ég var svo feginn að sleppa lifandi úr slysinu að ég hugsaði aldrei um hvort ég yrði að hætta að spila. Ég hélt svo fyrstu opinberu tónleikana eftir slysið í Þjóðleikhúsinu í vor og þeir tókust mjög vel. Ég verð að vísu að beita handleggnum öðru vísi en áður, en það kemur ekki að sök.“ „Hvernig er að kenna íslending- um tónlist?" „Það er mjög skemmtilegt. ís- lendingar eru ótrúlega tónelskir og hafa mikla hæfileika. Áhuginn er líka á heimsmælikvarða, - hvar í veröldinni heldurðu að maður finni annan eins fjölda af tónlistar- skólum - miðað við fólksfjölda? ís- lendingar slá öll met. Einmitt þess vegna finnst mér ástæðulaust fyrir þá að sækja allt til útlanda, lista- „Kraftaverk að ég skuli vera farinn að spiia á tónleikum eflir að hafa margbrotnað á hægri hendi“ segir Berkofsky. Við hlið hans situr Soffía Guðmundsdóttir, tónlistarkennari á Akureyri. - Ljósm.: - eik - menn sem annað. Þeir eiga að vera stoltir af sínu eigin fólki og hafa sannarlega ástæðu til þess. „Velj- um íslenskt" ætti að vera mottóið í listinni eins og iðnaðinum. íslend- ,ingar hafa mikið að gefa öðrum þjóðum á listasviðinu og ættu að fara miklu meira utan að kynna list sína,“ sagði Martin Berkofsky. Þess má geta að margir aðilar studdu námskeiðið á Akureyri og sagði Soffía Guðmundsdóttir, sem hefur haft með höndum skipulagn- ingu á þessum námskeiðum, að Flugleiðir hefðu veitt mjög góðan afslátt fyrir þátttakendur. Berkof- sky heftir sto&iað styrktarsjóð nem- enda við Tónlistaskólann á Akur- eyri og hefur hann ásamt Önnu Málfríði haldið tónleika á Akur- eyri til ágóða fyrir sjóðinn. Berkofsky sagðist vonast til að geta haldið áfram að kenna íslend- ingum á píanó, en jafnframt mun hann halda fjölda tónleika víða um heim á næstunni, m.a. í Sýr- landi, Kaíró og Túnis, svo eitthvað sé nefnt. þs ritstjórnargrem Hefðbundnarblekkingar Það er þegar orðin söguleg staðreynd að Bandaríkjastjórn var þegar f miðri heimsstyrjöld- inni staðráðin í því að koma sér upp varanlegum herstöðvum á ís- landi. Þetta var staðfest í endan- legri áætlun bandaríska herfor- ingjaráðsins 1946, þar sem lögð voru drög að herstöðvaneti Bandaríkjanna um allan heim. Þar voru 30 staðir taldir upp sem nauðsynlegir hlekkir í keðjunni. Af þessum 30 stöðum voru 6 tald- ir ómissandi, og af þessum sex voru þrír taldir „yfirmáta mikil- vægir“, það er að segja Græn- land, ísland og Asóreyjarnar. ís- lendingar höfnuðu beiðni Banda- ríkjastjórnar um herstöðvar á ís- landi til 99 ára 1946, en her- stöðvasinnar völdu þess í stað að tryggja markmiðið með því að standa í stöðugum blekkingarleik við þjóðina í þágu bandarískra hernaðarhagsmuna. Kóreustyrj- öldin varð kærkomið yfirvarp til endurkomu hersins, og síðan hef- ur hver blekkingin rekið aðra til þess að viðhalda hersetunni. Blekkingarleikur enn Og enn er haldið áfram í sama dúr. Framsóknarmenn í valda- stólum eru notaðir til þess að halda því að þjóðinni að ný olíu- birgðastöð og olíuhöfn fyrir her- inn sé aðeins vegna mengunar- varna, en svo kemur upp úr dúrn- um að bæta á úr skorti á birgða- rými og „miða stærð geymanna við þær kröfur sem eru gerðar nú á tímum“, svo vitnað sé í Morg- unblaðið. Fjórföldun birgðarým- is til þess að svara auknum hern- aðarumsvifum verður orðin að veruleika innan fárra ára. Það er ömurlegt hlutverk sem forystu- menn Framsóknarflokksins hafa tekið að sér í Helgurvíkurmálinu, og fá engar þakkir fyrir nema aðhlátur Bandaríkjamanna og Sjálfstæðismanna, sem alltaf hafa ætlað sér að koma upp þjónustu- miðstöð fyrir aukin umsvif flota og flughers í Helguvík. Kallað á viðbrögð í síðustu viku birti Þjóðviljinn grein eftir mann í opinberri þjón- ustu sem stöðu sinnar vegna vildi ekki láta nafns síns getið. Leiddi hann þar rök að því að ætlunin væri að koma upp hér „al- heimsratsjá" á vegum Bandaríkj- ahers. í bréfi sem fylgdi kvaðst umræddur maður allsekki viss í sinni sök. Hinsvegar gæti full- yrðing af þessu tagi kallað fram viðbrögð hjá Morgunblaðinu sem gæfu vísbendingar um hvað fælist í óskum Bandaríkjastjórn- ar, sem utanríkisráðherra hefur upplýst að orðið verði við, um nýjar ratsjárstöðvar á ísiandi. Og það stóð ekki á viöbrögðum Morgunblaðsins: „Athyglin beinist að fullkomnum ratsjám með hæfni til venjulegs eftirlits í lofti og á yfirborði sjávar, sem þjóna aðeins vörnum Islands og öryggi þjóðarinnar“, segir blaðið í forystugrein daginn eftir að Þjóðviljinn birti greinina. Norðurljósin sem enn blika óbeisluð yfir norðurhveli bjarga okkur víst frá OTH-ratsjá. Fimm spurningar Af orðum Morgunblaðsins að dæma virðist vera um að ræða ratsjár er tengjast flugvélaum- ferð, en ekki kafbátaþjónustu eða gerfihnattasambandi. Meiri upplýsingar er ekki að fá úr þeirri áttinni í bili þó látið sé í það skína að á ritstjórn Morgunblaðsins viti menn allt um málið. Þar sem utanríkisráðuneytið eða forsætis- ráðherra hafa ekki séð ástæðu til þess að upplýsa málið fyrir al- þjóð, þó að það sé komið á „rek- spöl í viðræðum íslenskra og bandarískra stjórnvalda“, er rétt að beina eftirtöldum spurningum til ritstjóra blaðsins: 1. Hvenær komu fram óskir frá Bandaríkjastjórn um nýjar rat- sjárstöðvar á íslandi? 2. Hvers eðlis eru þessar ratsjár- stöðvar, og hvernig tengjast þær öðrum viðvörunarkerfum banda- ríska hersins á Islandi? Hvert er hlutverk þeirra og hvert skila þær upplýsingum er þær safna? 3. Hefur Bandaríkjastjórn lagt fram óskir um staðsetningu þess- arra stöðva á tilteknum stöðum á íslandi? 4. Geta hinar nýju ratsjárstöðvar nýst jafnvel til árásarferða frá ís- landi sem til varnar- og viðvör- unar? 5. Hefur untanríkismálanefnd Alþingis verið gerð grein fyrir óskum Bandaríkjastjórnar um nýjar ratsjárstöðvar og hefur hún fengið aðgang að þeim skjölum sem farið hafa á milli íslensku og bandarísku stjórnarinnar í þessu máli? Þjóðviljinn telur réttast að snúa sér beint til Morgunblaðsins með þessar spurningar, því það virðist eiga innangengt í banda- ríska sendiráðinu og utanríkis- ráðuneytinu. Þar sem almenning- ur á ekki greiðan aðgang að upp- lýsingum. Fjölgun herstöðva Það virðist vaka fyrir banda- ríska hernum og Geir Hallgríms- syni að fjölga herstöðvum á ís- landi. Samkvæmt niðurstöðum utanríkismálaráðstefnu Sjálf- stæðisflokksins fyrir ári og sicrif- um Morgunblaðsins gæti verið um að ræða herstöðvar, mann- Einar Karl Haraldsson skrifar aðar eða ómannaðar, við Aðalvík og á Langanesi, og herflugvöll með loftvarnariiði á Sauðár- króki. Aðmírállinn á Keflavíkur- flugvelli segir að þetta með rat- sjárstöðvarnar sé spurningin um að „sjá“ nógu langt inn á óvina- svæðið, og er sjónsvið hans þó ærið fyrir með DEW-línunni, Green Pine og AWACS. Og sá sem sér óvini koma langt að hann hefur einnig ratljós til þess að sækja langt fram. Og það er ein- mitt í því ljósi sem verður að líta á óskirnar um ratsjárstöðvar. Al- veg eins og Helguvíkuráformin eru liður í því að undirbúa aukin flotaumsvif á Norður-Atlantshafi í samræmi við áætlanir Reagan- stjórnarinnar, þá eru ratsjármál- in tengd áformum um stórfellda stýriflaugaframleiðslu sem notast á í skipum og sprengjuflugvélum á Norður-Atlantshafinu. Engin ástæða er til þess að draga fjöður yfir „vaxandi hernaðarumsvif So- vétmanna í lofti, ofansjávar og neðansjávar í nágrenni íslands" en það er hrein blekking að geta þess ekki um leið að þau eru andsvar við markvissri uppbygg- ingu gagnkafbátahernaðar Bandaríkjamanna á þessum slóðum áratugum saman og si- vaxandi sóknargetu bandaríska flughersins. Norður-Atlantshafið er bandarískt haf í hernaðarlegu tilliti og varnargetan þar er ekki dregin í efa. Hinsvegar er það stöðugt verkefni að auka sókn- argetuna á norðurslóðum. Rat- sjárkerfin gegna þar miklu hlut- verki ekki síður í sókninni heldur en vörninni. -ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.