Þjóðviljinn - 09.07.1983, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9-10. júlí 1983
„Helst vildi ég fá hingað digra og káta kerlingu."
í þeim tveim fyrri hlutum, sem
birst hafa af spjalli okkar
Hallsteins Sveinssonar,
snikkarafrá Kolstöðum í
Miðdölum, ítilefni
áttræðisafmælis hans, var
brugðið upp myndum úr
veraldarvafstrinu. Við lokum
svo albúminu með
myndbrotum frá heimsókn í
Borgarnes.
Maður
má ekkert
Það var blýgrámi í lofti og milt
veður, en vætulaust þegar við Jó-
hann sonur minn komum í hlað
Dvalarheimilis aldraðra í Borg-
arnesi.
- Þið eruð bara komnir, - sagði
Afmælis-
spjall við
Hallstein
Sveinsson
Þriðji
og síðasti
hluti
Hallsteinn og reis upp við dogg,
þegar við gægðumst inn í herbergið
og sviptum hann hádegislúrnum.
Hallsteinn teygði sig í pípuna og
stundi:
- Æjá, það er svosem Iítið púður
í því, að verða gamall, en maður
verður víst að sætta sig við þennan
fjanda! og tyllið ykkur á beddann.
- Er þetta tveggjamanna her-
bergi?
- Jahá. Frá því, að ég kom hing-
að 1971, hef ég deilt þessu verelsi
með þrem körlum. Tveir þeirra
hvíla nú í gröf sinni, en sá þriðji er
svo fótfúinn, að hann flutti sig á
neðri hæðina og nú er ég bara einn.
Annars vildi ég helst fá hingað
digra og káta kerlingu, þeir eru svo
leiðinlegir þessir karlaskrattar. En
það þykir. víst ekki tilhlýðilegt,
maður má ekkert. Ekki einu sinni-
hafa hjá sér rassmikla kerlingu!
Trúi á sólina
- Hvað segirðu um trúna?
- Trúna! Biblíustagl hef ég ekki
stundað, en maður var auðvitað
alinn upp í guðsótta og góðum
siðum og trúði þá öllu. Einhvern-
veginn held ég að allir menn séu
trúaðír, þó svo að þeir harðneiti
því. Ég hef nú reynt að kasta þessu
frá mér, en þá myndast eitthvert
tómarúm og ég trúi á sólina, það er
abstrakt að trúa á hana. Án sólar-
innar væri að sjálfsögðu ekkert líf,
en magnið er það abstrakta, þessi
kraftur, sprengigosin og svo
beisluðu mennirnir þennan kraft,
til þess að framleiða stríðstól, í því
augnamiði að útfjanda lífinu á
jörðinni. Svona eru nú andstæð-
urnar í veröldinni. En Þorkell máni
var vitur maður og siðaður. Hann
lét bera sig út í sólargeislann þegar
dauðastundin nálgaðist. Svoleiðis
brambolt verður nú ekki viðhaft
þegar ég hrekk uppaf, enda viðbú-
ið að það hellirigni!
Kirkjan er alltof íhaldssöm og
heldur hlífiskildi yfir svindlurun-
um. En þessar svokölluðu frelsuðu
manneskjur gera bara illt. Ég jag-
aðist oft við þetta hyski þegar ég
bjó á Upplandi. Biblíustaglið í því
verkaði á mig einsog ryðgað hnífs-
blað í alvíddinni og svo vafrar það
bara í illgresi mannlífsins og styður
íhaldið!
Sósíaiisminn
og samhjáipin
- Voruð þið pólitísk á Kol-
stöðum?
- Jahá. Við fylgdum Bjarna frá
Vogi, sem var átrúnaðargoð Dala-
manna. í kosningavafstrinu kom
hann alltaf heim karlgreyið.
i