Þjóðviljinn - 09.07.1983, Page 11
helgin 9-10. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
- Hvaða stefnu fylgdu þið eftir
að gamla flokkakerfið lognaðist
útaf?
- Samvinnumenn, alltaf sam-
vinnumenn. En ég er svo undrandi
á þeim manneskjum, sem eru að
skamma mig fyrir það, að vera
samvinnumaður og vilja samhjálp
mannfólksins á móti herdraslinu.
Allt þetta íhaldspakk vill herinn og
stóriðju.
- Hvað gerði þig að sósíalista?
- Sko! Þegar ég las greinar eftir
Torfa í Ólafsdal, um pöntunarfé-
lögin í gamla Andvara, þá varð ég
sósíalisti og hef aldrei hvikað frá
þeirri stefnu. Samvinnustefnan er
sósíalísk, en hinsvegar er það eitt af
þessu vonda abstrakti í tilverunni,
að Framsóknaríhaldið skuli vera
áhrifamest.
- Þú talar um íhald og Fram-
sóknaríhald. Hver er munurinn?
- Enginn! Það er sami helvítis
íhaldsrassinn undir þessu öllu
saman, það er bara nafnið, sem
skilur að. T.a.m. er það sama um:
herdraslið, stóriðju, lækkun
kaupsins og afnám hins frjálsa
samningsréttar og svo hækkar allt í
verði, sem fólk þarf tii þess að geta
skrimt. Ég hef aldrei haft áhuga á
peningum, en þeir eru þó nauðsyn-
legir og hvað hefur þú nú í kaup
kallurinn?
- Mánaðarlaunin fyrir dagvinn-
una eru 13.500,- kr.
- t>að er nú nóg fyrir þig! - sagði
Hallsteinn með stríðnissvip.
Fegurdin og
hetjuskapurinn
- Þú segist vera mest fyrir ab-
straktlist. Ertu þá alveg mótfallinn
t.d. natúralisma?
-Ne...i, svo slæmt er það nú
ekki og vitaskuld er til vont ab-
strakt, alltof mikið af bölvuðu
rusli. En mér þykja þau forljót
þessi smeðjulegu landslagsmál-
verk. Ég kalla þau náttúrulaus og
er sammmála Kjarval þegar hann
sagði: að það væri merkilegt hvað
margir af þessum mönnum væru
heppnir með veður! Það er engin
fegurð til, nema í ástoghetjuskap.
Verk, sem ekki eru gerð af áhuga
og baráttu og sýna hetjuskap, eru
náttúrulaus og ljósmyndararnir
eiga að taka sólarmyndir.
Ég hef verið að segja við strák-
inn hérna, hann Pál Guðmunds-
son, sem er vinur minn, að hann
eigi að mála götulífið og fólkið við
vinnu sína. Stritandi mannfólk, en
ekki þessar náttúrulausu sólar- og
hríslumyndir.
- En hefur þú ekki fengist við
listsköpun?
- Nei, andskotinn! Ég var að
leika mér í gamla daga og fiktaði þá
dálítið við höggmyndir, en mölvaði
þær jafnóðum. En við Ágúst Pet-
ersen fórum í nokkrar reisur hérna
fyrrmeir og þá stalst ég stundum í
vatnslitina hjá honum og setti eina í
rarama, svona af bríaríi. Ég gerði
hana hérna hjá Brennistöðum og
kalla Rof. En við skulum litast um
hérna innanhúss og síðan getum
við athugað hvort hann Bjarni
Bachmann er ekki úti á safni. Þið
verðið endilega að sjá safnið, það
eru bara svo fáar myndir, sem
hanga uppi, það gerir plássleysið.
En það verður gott pláss í nýja
safnhúsinu.
Fólkið er alltaf
að detta
Við gengum með Hallsteini um
heimilið og í setustofum sátu menn
að spilum, aðrir röbbuðu um lífið
og tilveruna.
- Þetta er bara höll, — sagði Hall-
steinn, - alltof fínt fyrir okkur þessi
gömlu hró. En fólkinu líður hér
prýðilega, enda er allt gert fyrir
mann og svo eru þeir alltaf að
stækka, þá geta fleiri gamlingjar
komist inn.
Við' skulum heilsa uppá Ingi-
björgu systur mína og manninn
hennar, Jóhannes Jónsson. Hún er
nú handleggsbrotin auminginn.
Það er alltaf að detta fólkið og
mölva sig, en sumt hefur nú prik,
að styðja sig við. Ég hef ekki mölv-
að mig ennþá, en gæti sem best sagt
einsog ágætur karl, sem bjó í Döl-
unum, Olafur gamli Þorsteinsson.
Texti: Hjalti
Jóhannsson.
Myndir: Jóhann
Hjaltason.
„Svona krafsar maður í þetta.
„Ef ég dett, þá er jörðin ekki langt
undan!
Á kommóðu inni hjá þeim hjón-
um, er lítil gifsstytta eftir Ásmund,
Smalastúlkan. Ingibjörg tjáði mér,
að Ásmundur hefði gert hana áður
en hann fór utan til náms. Við
mættum einni starfsstúlkunni á
ganginum og Hallsteinn pantaði
kaffi fyrir okkur á eftir, sem var
sjálfsagt. Svo röltum við útá safn,
en þar var enginn og kvað Hall-
steinn það heyra til undantekn-
inga. Þegar við komum til baka,
staðnæmdust við hjá skúlptúr, Fót-
um forsetans eftir bróðurson Hall-
steins og nafna, Hallstein Sigurðs-
son, sem staðsett er fyrir framan
Dvalarheimilið. Annað verk eftir
hann, Hyrningar er handan göt-
unnar og stendur á hæð á svonefn-
du Gíslatúni. - Annars er þetta allt
orðið nafnlaust, - sagði Hallsteinn.
Það kom semsé í ljós, að Hall-
steinn er enn að gefa. Þessi verk
bróðursonar síns keypti hann og
greiddi einnig að stærstum hluta
vinnu við gerð myndar Ásmundar
bróður síns, Sonatorrek, sem
steypt var í epoxyefni og sett upp á
Borg 1980. Hallsteinn lætur lítið
yfir þessu, en sagði mér að Mjólk-
ursamlagið hefði keypt verk Ás-
mundar, Hcybandið og yrði steypt í
brons í Englandi. - En við skulum
fá okkur kaffisopa.
Krókurinn
og keldan
í einni setustofunni beið okkar
kaffi og hrokaðir diskar af bakkelsi
og Hallsteinn kveikti sér í pípu og
sagði:
- Ég hef alltaf valið auðveldustu
leiðina út úr lífinu. Þegar ég þurfti
að taka stóra ákvörðun og kom að
keldunni, þá gafst ég upp og sneri
við. Ég hef aldrei fest ráð mitt,
gafst alltaf upp. Sumir krækja fyrir
kelduna, en þeir sem hafa magnið
og kraftinn, sigrast á henni.
Asklokið
Að veitingum loknum, var farið
niður í kjallara, þar sem Hallsteinn
hefur rúmgóða vinnustofu. En
fyrst litum við inn í önnur vinnu-
herbergi, sem þar eru og fengist er
við ýmiss konar föndur, bókband
ofl. Einn vistmaðurinn, Jóhannes
G. Jóhannesson, landsþekktur
harmóníkuleikari, fæst við
hljóðfæraviðgerðir.
Þetta er fín vinnustofa, - mælti
Hallsteinn, - miklu betri heldur en
ég hafði fyrir sunnan. En ég er orð-
inn linur til vinnu, er svona fjóra
tíma á dag og dunda mest við aska-
smíðar. Þetta fer bara allt jafn-
óðum. - Hallsteinn tók asklok,
sem hann var nýbyrjaður að vinna
við og hélt áfram. - Skurðlistin er
auðvitað jafngömul þjóðinni og
landnámsmennirnir hafa flutt með
sér útskorna muni. Maður getur
sagt svona í gamni, að asklokið sé
eiginlega höttur menningarinnar! -
Hallsteinn skellihló og settist á stól
við hefilbekkinn og tók sér
skurðarjárn í hönd. - Svona krafs-
ar maður í þetta. Annars þyrfti ég
að verða mér úti um lurka frá Hall-
ormsstað. Ég fékk nokkra búta
uppá Húsafelli, en þeir eru svo
andskoti gráir og fúnir, það er svo
ljóst og fallegt birkið á Hallorms-
stað.
Frammi á kjallaraganginum
hanga myndir úr safni Hallsteins,
sem hann gaf, þá er hann fluttist í
Borgarnes. Myndirnar eru raunar
á flestum veggjum ganganna og
setustofum, en Hallsteinn kvað
eiga að safna þeim saman og setja
upp sýningu í kringum afmælið.
Eftir viðstöðu okkar í vinnuher-
bergi hans, rákum við augun í stóra
kistu hjá stigauppganginum og
Hallsteinn tók svo til orða. - Jahá.
Ég smíðaði þesa kistu fyrir all-
löngu fyrir mann, en hann virðist
ekki ætla að sækja gripinn. Það er
svosem ágætt að láta grafa sig í
henni þessari - og Hallsteinn kímdi
við. - En það var smellið hjá séra
Matthíasi, þegar hann orti:
„Bráðum kveð ég fólk og frón
og fer í mína kislu -
rétt að segja sama flón
sem ég var í fyrstu. “
JL-HÚSIÐ, RAFDEILD,
AUGLÝSIR
V
Eigum gott úrval af lampasnúrum, marga
liti, einnig kapla og ídráttarvír frá 0,75q til
16q.
Eigum ýmiss konar efni til raflagna,
innfellt og utanáliggjandi, jardbundid og
ójardbundið, svo sem klaer, hulsur, fatn-
ingar, fjöliengi, tengla og rofa, öryggi,
dimmera, tengidósir, bjöllur, spenna,
einnig veggdósir, loftdósir, lekaliða og
margt fleira, m.a. klukkustýrða tengla með
rofa.
12, 24 og 32
volta perur.
EIGUM 100
MÖGULEIKA
í PERUM
Venjulegar perur, kertaperur, kúluperur,
ópalperur, Ýmsar gerðir af spegilperum,
línestraperur, flúrperur, m.a. gróðurperur.
Jli I
Jón Loftsson hf.
iBMwiriiiisaaiiawii'i
Verslunarstjóri -
Byggingavörur
Verslunarstjóri óskast aö Byggingavöru-
verslun Sambandsins að Suðurlandsbraut
32.
Við leitum að dugmiklum og áræðnum manni
með góða starfsreynslu. Hann þarf að hafa
þekkingu á byggingarvörum og
handverkfærum svo og reynslu í stjórnunar-
störfum.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra, er veitir nán-
ari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. þ.m. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
IStarfsmaöur - náms-
___flokkar
Staða starfsmanns á Fræðsluskrifstofu
Hafnarfjarðar, er jafnframt annist forstöðu
Námsflokka Hafnarfjarðar er laus til umsókn-
ar. Umsóknarfrestur er til 29. júlí n.k.
Starfstími hefst 1. sept. n.k. Laun skv. kjar-
amningi við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknir er tilgreini m.a. aldur umsækj-
anda, menntun og fyrri störf sendist
Fræðsluskrifstofunni. Kennaramenntun er
æskileg. Nánari upplýsingar eru gefnar á
bæjarskrifstofunni í síma 53444.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar.