Þjóðviljinn - 09.07.1983, Blaðsíða 19
Helgin 9-10. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
skak
Helgi Ólafsson skrifar
Úrslit Evrópukeppninnar í skák:
Sovétmenn sigruðu
(Nýja stefnan“ hjá sovéskum
skákmönnum sem gengur út á það
að beita óvenjulegum og óreglu-
legum byrjunum. Byrjunin sem
hér verður uppi á teningnum er þó
ekki óvenjulegri en svo að hvítur
teflir drottningarindverska vörn
með skiptuin litum - og einu temp-
ói meira.)
strax. Svartur kemst þá ekki hjá
liðstapi.)
15. ..g6
16. Dh3 h5
17. Hadl
Um síðustu helgi lauk í borginni
Plovid í Búlgaríu úrslitum
Evrópukeppni landsliða í skák.
Eins og kunnugt er þá tóku
íslendingar þátt í undankeppni
þessa móts og komust ótrúlega
nálægt því að hreppa sæti í
úrslitunum. Ótrúlega, ef miðað
er við að keppinautar okkar um
eitt sæti voru tvær af sterkustu
skákþjóðum heims,
Englendingarog Svíar. Það
hefur víst verið rakið áður
hvernig málum lyktaði.
Englendingar með hreina og
klára atvinnumenn mörðu sigur
á harðskeyttri sveit íslands.
Lokatölur urðu 81/2:71/2, en
áður höfðu báðar þjóðir unnið
Svía. Hér heimatöpuðu Svíar
7:9 og á heimavelli töpuðu þeir
6 1/2:9 1/2.
í Plovid mættu 8 þjóðir til leiks.
Sovétmenn stilltu upp geysisterku
liði: Karpov, Polugajevskí, Petro-
sjan, Beljavskí, Pshakis, Tukmak-
ov, Geller, Romanishin, Yusupov
og Vaganian. Kasparov var ekki
með af eðlilegum ástæðum, að nú
fer í hönd einvígi hans við Viktor
Kortsnoj. Þá tefldi Mikhael Tal
ekki í sovésku sveitinni. Um ástæð-
ur veit sá sem þessar línur ritar
ekki, en undanfarið hafa gengið
sögur um lélega heilsu hans. So-
véska sveitin gerði það ekki enda-
sleppt og sigraði örugglega á mót-
inu og var aldrei nein spurning
hvernig færi.
Nokkuð erfiðlega hefur gengið
að afla frétta af mótinu, en þó er
vitað að sovéska sveitin sigraði
mjög örugglega. Staðan fyrir síð-
ustu umferð var þannig að Sovét-
menn voru með 33 1/2 vinning. í 2
sæti voru Júgóslavar með 29 1/2
vinning. Ungverjar voru með 26
1/2 vinning og biðskák í 3. sæti, og í
fjórða sæti komu svo Englendingar
með 25 1/2 vinning. Hollendingar
voru í 5. sæti með 25 vinninga,
Búlgarar í 6. sæti með 20 vinninga,
Danir í 7. sæti með 16 1/2 vinning
og V-Þjóðverjar ráku lestina með
14 1/2 vinning.
í síðustu'umferð urðu úrslit þau
að Sovétmenn sigruðu Ungverja
með 4 1/2 vinning gegn 3 1/2. Úrslit
í öðrum viðureignum eru ekki
kunn nema að takmörkuðu leyti,
en efstu fjórar sveitir urðu sem hér
segir: 1. Sovétríkin 38 vinningar. 2.
Júgóslavar 33 vinningar. 3. Ung-
verjar 31 vinningur. 4. Englending-
ar 30 vinningar.
Sovéska sveitin tapaði tveim
skákum, gerði 32 jafntefli og vann
22 skákir. Sigurinn var aldrei í
hættu, enda tókst aðeins júgóslav-
nesku sveitinni að gera jafntefli við
þá sovésku. Að öðru leyti unnu So-
vétmenn Ungverja og Englendinga
4 1/2:31/2, Búlgara, Hollendinga
og Dani með 6:2 og V-Þjóðverja
7:1. Það vakti nokkra athygli að
jafnvel þó Kasparov tæki sér hvíld
frá keppni voru Ungverjar með
Zoltan Ribli á 2. borði í sinni sveit.
Portisch var að venju á 1. borði, en
hann þarf nú að fara að veita kepp-
inaut sínum meiri eftirtekt en áður.
Anatoly Karpov hafði sig lítið í
frammi í fyrstu 5 umferðum móts-
ins, gerði 4 jafntefli og vann Dan-
ann Erling Mortensen. Rafael
Vaganian var hinsvegar í miklu
stuði og sópaði til sín vinningunum
og sömu sögu má segja um Pshakis
og Beljavskí, jafnvel þó svo Belj-
avski tapaði einni skák fyrir Dan-
anum unga Curt Hansen. Þeir voru
drýgstir í sovéska liðinu á meðan
gömlu jálkarnir Geller og Petro-
sjan sáu um að ekkert alvarlegt færi
úrskeiðis í skákum sínum.
Nokkrar skákir hafa borist höf-
undi þessa pistils og þar af birtist
ein hér. Það er sovéski stórmeistar-
inn Yusupov sem vinnur snaggara-
legan sigur á andstæðingi sínum:
Hvítt: Arthur Yusupov (Sovét-
rfldn)
Svart: Paul Van der Sterren (Hol-
land)
Drottningarpeðsleikur
3. ..c5
4. Bd5 d5
5. b3 Rbd7
6. Bb2 b6
7. 0-0 Bb7
8. Re5 a6
9. Rd2 b5
10. Rxd7! Dxd7
11. dxc5 Bxc5
12. Df3
(Hvítur stendur grár fyrir járnum
og bíður eftir hentugu tækifæri til
að Iáta kné fylgja kviði. Hann þarf
ekki lengi að bíða.)
17. ..Rh7?
(í vondum stöðum er oft stutt í
slæma leiki.)
1. d4 Rf6
2. Rf3 e6
3. e3
(Svartur hefur prýðilega stöðu eftir
12. Bxf6 gxf6 þar sem hvítur hefur
misst sinn hættulegasta sóknar-
mann. Peðaveikleikinn skiptir litlu
máli í slíkri stöðu og g-línan opnast
svörtum í hag.)
12. .. Be7 14. Rf3
13. Dg3 0-0
(Merkileg staða. Eftir aðeins 14
leiki er svartur kominn í mikil
vandræði. Allir léttu menn hvíts að
viðbættri drottningunni stefna á
kóngsstöðuna.)
14. ,.Hac8?
(Afar „eðlilegur" leikur sem sýnir
fyrst og fremst að svartur gerir sér
litla sem enga grein fyrir hættunni
sem að honum steðjar. Hann varð
að reyna 14. - Re8 með hugmynd-
inni 15. - Bf6. Hvítur hefur mikil
sóknarfæri með t.d. 15. Dh3 h6 16.
Re5Dd6 17. Rg4o.s.frv., en svart-
ur ætti að geta haldið eitthvað í
horfinu með 17. - f6.)
15. Rg5!
(Eitraður leikur sem þvingar at-
burðarásina. Ef nú 15. - h6 þá
leikur hvítur ekki 16. Bxf6 Bxf617.
Rh7 vegna 17. - Bxal og svartur
má vel við una, heldur 16. Rh7
mxm i
m ■íai!
i i i mjL
i m m m
b c d e f g h
18. Dxh5!?
(Fórn í anda gömlu meistaranna.
Svartur getur að sjálfsögðu ekki
tekið drottninguna vegna 19. Bxh7
mát! En einfaldara var 18. Rxh7
Kxh7 19. Dxh5+ Kg8 20. Dh8
mát.)
18. ..Bxg5
(Ekki 18. - Rxg5 19. Dh8 mát.)
19. Bxg6! f6
(Eini leikurinn. 19. - fxg6 standaði
á 20. Dxg6+ og hvítur mátar í
næsta leik.)
20. f4 Dg7 23. Bxe4 dxe4
21. fxg5 Rxg5 24. Hf4!
22. Bd3 Re4
— svartur á enga haldgóða vörn
gegn hótuninni 25. Hg4 og gafst því
upp.
18. helgarskákmótið á Reykhólum:
Hart barist um efsta sætiö
18. helgarskákmót tímaritsins
Skákar og Skáksambands íslands
sem haldið var að Reykhólum um
síðustu helgi heppnaðist í alla
staði vel. Keppnin var bæði hörð
og spennandi, þátttakendur með
fleira móti og allar aðstæður með
þeim hætti að til fyrirmyndar
var. Skákfélag Austur-
Barðstrendinga stóð fyrir mótinu
og naut til þess aðstoðar nærliggj-
andi sveitarfélga, fyrirtækja og
Qölmargra einstaklinga. For-
maður skákfélajgs Barðstrend-
inga er Indíana Olafsdóttir, og er
hún eina konan sem er formaður í
skákfélagi hér á landi og þótt víð-
ár væri leitað. Undir hennar
stjórn var unnið mikið og óeigm-
gjarnt starf til að koma þessu
móti af stað og lét árangurinn
ekki á sér standa: 47 skákmenn
hófu keppni. Auk Indiönu unnu
við skipulagningu Hugo Rasmus,
Guðjón B. Gunnarsson og Egill
Grímsson.
Mótið hófst á föstudegi og lauk
seint á sunnudag. Tefldar voru 7
umferðir eftir svissneska kerfinu.
Fyrstu tvær umferðirnar voru
tefldar í miklu snarhasti þar sem
umhugsunartími var aðeins 1/2
klst. á hvorn keppanda. Frá og
með þriðju umferð var umhugs-
unartíminn 11/2 klst. á 30 leiki og
síðan 30 mínútur á hvorn skák-
mann til að ljúka skákinni. Hver
skák gat því staðið mest í 4 klst.
Þrátt fyrir fjarveru nokkurra af
okkar bestu skákmönnum var
mótið vel skipað. Titilhafar voru
tveir. Auk undirritaðs mætti
Friðrik Ólafsson galvaskur til
leiks stútfullur af lagabókstaf síð-
ustu ára, en hann gegnir um þess-
ar mundir stöðu ritstjóra laga-
safns íslands. Þess utan tóku þátt
í mótinu íslandsmeistarinn Hilm-
ar Karlsson, Ásgeir Þ. Árnason,
Sævar Bjarnason og fleiri þekktir
skákmenn. Aldursforseti var
Þráinn Sigurðsson sem var með í
sínu fyrsta helgarmóti. Hann
stendur nú á sjötugu.
Rétt eins og í öðrum helgar-
mótum voru það lokaumferðirn-
ar sem öllu skiptu. Eftir 4 um-
ferðir höfðu 4 skákmenn hlotið
fullt hús vinninga. Það voru auk
undirritaðs Friðrik Ólafsson,
Bjarni Einarsson og Sævar Bjarn-
ason. Frá og með 5. umferð urðu
úrslit á efstu borðum þessi:
5. umferð:
Sævar Bjarnason -
Friðrik Ólafsson 0:1
Bjarni Einarsson -
Helgi Ólafsson 0:1
Guðmundur Halldórsson -
Hilmar Karlsson 1/2:1/2
Róbert Harðarson -
JóhannesG. Jónsson 1:0
6. umferð:
Helgi Ólafsson -
Friðrik Ólafsson 1/2:1/2
Jörundur Þórðarson -
Sævar Bjarnason 1:0
Ásgeir Þ. Árnason -
RóbertHarðarson 1:0
Guðmundur Árnason -
BjarniEinarsson 1:0
7. umferð:
Friðrik Ólafsson -
ÁsgeirÞ. Árnason 1:0
Jörundur Þórðarson -
Helgi Ólafsson 0:1
Guðmundur Halldórsson -
Guðmundur Árnason 1:0
Róbert Harðarson -
Hilmar Karlsson 0:1
10 efstu menn urðu þessir:
1. 2. Helgi Ólafsson og Frið-
rik Ólafsson 6 1/2 v. hvor.
3. - 4. Guðmundur Halldórs-
son og Hilmar Karlsson 5 1/2 v.
hvor.
5. - 10. Ásgeir Þ. Árnason,
Bjarni Einarsson, Sævar Bjarna-
son, Guðmundur Árnason, Jör-
undur Þórðarson og Jóhannes G.
Jónsson.
Öldungaverðlaunin hlaut Þrá-
inn Sigurðsson, en hann átti í þá
Sturlu Pétursson og Óla Valdi-
marsson. Unglingaverðlaunin
komu í hlut ungs og efnilegs skák-
manns, Guðmundar Árnasonar
en kvennaverðlaun hlutu Indíana
Ólafsdóttir, Sólveig Tryggvadótt-
ir, Margrét Ágústsdóttir og Jó-
hanna Guðjónsdóttir.
Samkvæmt venju var gert upp
á milli sæta með stigaútreikningi
og telst undirritaður sigurvegari
mótsis vegna betri stiga. Stigin
eru reiknuð þannig að vinningar
fimm (af sjö) hæstu andstæðing-
anna voru lagðir saman.
Reyndist undirritaður vera með
26 stig, en Friðrik með 24 stig.
Menn gætu freistast til að álykta
að Friðrik hefði teflt við lakari
andstæðinga, en því var alls ekki
til að dreifa. E10 - stigatala ands-
tæðinga hans var áreiðanlega
hærri, en E10- stigin haldast ekki
alltaf í hendur við áætlaðan ár-
angur (sem betur fer) og hinir óþ-
ekktari áttu margir hverjir gott
mót.
A undanförnum helgarmótum
hafa mörg ný andlit sést og látið
verulega að sér kveða. Akurnes-
ingurinn Bjarni Einarson er einn
þeirra en hann náði 5 vinningum í
þessu móti og virðist alltaf bæta
sig. Annar ungur skákmaður sem
vakti athygli mína var Guðmund-
ur Árnason, en hann er 14 ára
gamall og hefur dvalið í Svíþjóð
undanfarin ár og sigrað þar í sín-
um aldursflokki á meistaramóti
Stokkhólms. Þessir tveir Bjarni
og Guðmundur Árnason tefldu
magnaða skák í 6. umferð. Guð-
mundur sýndi mikla útsjónar-
semi í flókinni stöðu og úr varð
merkileg baráttuskák sem hér
fylgir á eftir:
m,
*■ íl m
Wífo WM WM K WW//
wrn Wm wé, J* w§,
a HJy i m&
m m '£sa&
abcdefgh
Þátttaka Friðriks Ólafssonar á
helgarskákmótinu að Reykholti
gaf mótinu aukið gildi. Friðrik
tefldi léttilega og átti ekki í mikl-
um erfiðleikum með að yfirbuga
andstæðinga sína.
Hvítt: Guðmundur Arnason
Svart: Bjarni Einarsson
Nimzoindversk-vörn
1. d4 Rf6 11. 0-0 g5
2. Rf3 e6 12. Bg3 h5
3. c4 Bb4+ 13. h3 De7
4. Rc3 b6 14. Bxe4 Bxe4
5. a3 Bxc3+ 15. Da4 h4
6. bxc3 Re4 16. Bh2 Dg7
7. Dc2 Bb7 17. Rd2 Bd3
8. Bf4d6 18. Helg4
9. e3 Rd7 19. Dc6 Hc8
10. Bd3f5 20. Khl Ke7
(Skákfræðingar myndu varla gefa
keppendum háa einkunn fyrir ná-
kvæmni í byrjunartaflmennsku
enda hefur athugasemdum verið
sleppt við upphaf skákarinnar.
Það sem gefur viðureigninni fyrst
og fremst gildi er hin kynngi-
magnaða barátta sem nú fer í
hönd. Svörtum hefur tekist að ná
betri stöðu út úr byrjuninni, eink-
um vegna linkulegrar tafl-
mennslu hvíts (5. a3,8. Bf4,13 h3
og 14 Bxe4) sem er þó engan veg-
inn úr leik í baráttunni þar sem
svartur hefur hjálpað honum
mikið með sínum síðasta leik, 20.
- Ke7. Það er eins og kóngurinn
hálfpartinn stingi hausnum í gin
ljónsins enda hefst hvítur þegar
handa við sóknaraðgerðir.)
21. e4! Rb8 22‘ Db7 hf8
23. c5! f4?
(Hér verður svörtum illilega á í
messunni. Hann varð að leika 23.
- g3 og má þá vel við una.)
24. Bxf4!
(Auðvitað)
24. ..Ba6 26. Bxf8 Hxf8
25. Bxd6+ Kd7 27. c6+!
(Hinn ungi skákmaður teflir
sóknina af mikilli útsjónarsemi.
Hér rekur hann kónginn fram á
borðið þar 27. - Kd8 strandar á
28. Dxb8+ og 27. - Rxc6 á 28.
Dxa6 o.s.frv.)
27. ..Kd6 30. c4+! Kxd4
28. e5+ Kd5 31. He4+ Kd3
29. Dxa7 Hxf2 32. Hxg4
(Hvítur hefur fundið laglega leið
til þess að tryggja varnir kóngsins
jafnframt því að halda áfram
sóknaraðgerðum. Nú þarf
drottningin aðeins að komast í
spilið og þá er björninn unninn.)
32. ..DxeS
33. Rb3 Bxc4
34. Da4 b5
35. Db4 Rxc6
36. Rc5+ Kc2
8
7
6
5
4
3
2
1
■ *
„ m. m, m
m
ww mm.
wumm ■
mkm>m m
m
Am ip
■v/W/ Wm.
m m ■&
abcdefgh
37. Hxc4+! bxc4
38. Dxc4+
- og svartur lagði niður vopnin
enda stutt í mátið.