Þjóðviljinn - 09.07.1983, Page 25
Helgin 9-10. júlí 1983t>JÓÐVILJINN - SÍÐÁ 25
Börn í Sovétríkjunum er á dagskrá kl. 18.40 á sunnudaginn, en þetta er fínnskur myndaflokkur. Þýðandi
er Trausti Júlíusson, en þulir þær Kristín Marhta Hákonardóttir og Sigríður Ragna Sigurðardóttir.
útvarp
laugardaqur
Tónleikar. Þulur velur og kyrrnir.7.25
Leikfimi Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð - Mál-
fríður Jóhannsdóttir talar.
8.20 Morguntónleikar
9.25 Ferðagaman Þáttur Rafns Jóns-
sonar um vélsleðaferðir.
10.25 Óskalög sjúklinga. Lóa Guðjóns-
dóttir kynnir.
11.20 Sumarsnældan. Helgarþáttur fyrir
krakka. Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
13.40 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar.
14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um málefni
líðandi stundar í umsjá Ragnheiðar
Davíðsdóttur og Tryggva Jakobssonar.
15.00 Um nónbil í garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvarsson
(Þátturinn endurtekinn kl. 01.10).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Staldrað við á Laugarbakka
Umsjón: Jónas Jónsson (RÚVÁK).
17.15 Síðdegistónleikar I. Frá tónleikum
Kammermúsikklúbbsins í Neskirkju
13. febr. sl. Philips Jenkins, Guðný
Guðmundsdóttir og Nina G. Flyer leika
Tríó nr. 21 fyrir pianó, fiðlu og selló eftir
Joseph Hayden. II. Frá tónleikum
Kammersveitar Reykjavíkur í Menn-
ingarmiðstöðinni i Breiðholti 10. apríl
sl. Nónett i F-dúr op. 31 eftir Louis
Spohr. Flytjendur: Rut Ingólfsdóttir,
Sesselja Halldórsdóttir, Inga Rós Ingólfs-
dóttir, Richard Korn, Bernard Wilkinsson,
Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson,
Joseph Ognibene og Hafsteinn Guðm-
undsson.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Allt er ömurlegt i útvarpinu"
Umsjón: Loftur Bylgjan Jónsson.
19.50 Tónleikar
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni
Jónsson
20.30 Sumarvaka a. „Sagan af Bilz og
afrekum hans“ Ingibjörg Ingadóttir les
siðari hluta þýðingar sinnar á þjóðsögu
frá Bretagne.
b. Undarleg er íslensk þjóð Bragi
Sigurjónsson spjallar um kveðskaparlist.
c. Rauður minn Ingólfur Þorsteinsson
les fyrri hluta frásögu sinnar.
21.30 A sveitalfnunni Þáttur Hildu Torla-
dóttur, Laugum í Reykjadal (RÚVAK).
22.35 „Sögur frá Skaftáreldi" eftir Jón
Trausta Helgi Þorláksson fyrrv. skóla-
stjóri les (16).
23.00 Danslög
24.00 Kópareykjaspjall Jónas Árnason
við hljóðnemann um miðnættið.
00.30 Næturtónleikar Fréttir. 01.00 Veður-
fregnir
01.10 Listapopp Endurtekinn þáttur Gunn-
ars Salvarssonar.
02.00 Dagskrárlok.
15.00 fslandsmeistaramótið í sundi Bein
útsending frá Laugardalslaug.
17.00 IþróttirUmsjónarmaðurBjarni Felix-
son.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 í blíðu og stríðu (It Takes Two) 2.
þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokk-
ur. Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.00 Prúðuleikararnir og puðið á bak við
þá Bresk mynd um Prúðuleikarana, þætti
þeirra og fólkið sem að þeim vinnur.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.55 Hörkutól (Bite the bullet) Bandarisk-
ur vestri frá 1975. Leikstjóri Richard
Brooks. Aðalhlutverk: Gene Hackman,
Candice Bergen og James Coburn. Árið
1908 safnast mislitur hópur saman í
Denver í Coloradoriki til að taka þátt í
1100 kílómetra kappreið og vinna til
60.000 króna sigurlauna. Keppnin reynist
hörð og tvísýn og margir heltast úr
lestinni áður en að endasprettinum
kemur. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
00.00 Dagskrárlok
sunnudagur
8.00 Morgunandakt. Séra Sigmar Torfason
prófastur á Skeggjastöðum flytur ritningar-
orð og bæn.
8.35. Létt morgunlög.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónlelkar. a. Sinfónia nr. 1 i Es-
dúr op. 18 eftir Johann Christian Bach.
Kammersveitin í Stuttgart leikur; Karl Munc-
hinger stj. b. „Heyr mína bæn“, „Veni Dom-
ine“ og „Ave Maria", þrjár mótettur eftir Fel-
ix Mendeisohn. Felicity Palmer og John
Elwes syngja með Heinrich Scútzkómum,
Gillian Weir leikur á orgel; Roger Norrington
■ -> stj. c. Píanókonsert nr. 1 i fis-moll op. 72 eftir
Cari Reinecke. Michael Ponti og Útvarps-
hljómsveitin í Luxemborg leika; Pierre Cao
sti.
10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks Páls Jóns-
sonar.
11.00 Messa í Mosfellskirkju (Hljóðr. 3.
þ.m.). Prestur: Séra Birgir Ásgeirsson. Org-
anleikari: Smári Ólafsson. Hádegistón-
leikar.
13.30 Sporbrautin. Umsjónamrenn: Ólafur H.
Torfason og örn Ingi (RÚVAK).
15.15 Söngvaseiður. Þættir um íslenska
sönglagahöfunda. Tíundi þáttur: Markús
Kristjánsson. Umsjón: Ásgeir Sigurgests-
son, Hallgrimur Magnússon og Trausti
Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
Helm á leið. Margrét Sæmundsdóttir spjall-
ar við vegfarendur.
16.25 Pólitisk morð stjórnvalda. Hljóðrifun
frá fundi Islandsdeildar Amnesty Intematio-
nal, sem haldinn var á Kjarvalsstöðum 18.
maí s.l.
17.10 Siðdegistónleikar. a. Fiðlukonsert nr.
1 i g-moll op. 26 eftir Max Bruch. Anne-
Sophie Mutter og Fílharmóníusveitin i Berlín
leika; Herbert von Karajan stj. b. „Stúlkan
frá Aries", hljómsveitarsvíta eftir Georges
Bizet. Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur;
Neville Marriner stj.
18.00 Það var og... Ut um hvippinn og hvapp-
inn með Þráni Bertelssyni.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Samtal á sunnudegi. Umsjón: Áslaug
Ragnars.
19.50 „Farveglr", Ijóð eftir Stefán Hörð
Grímsson. Eriingur Gislason les.
20.00 Útvarp unga fólkslns. Umsjón: Eðvarð
Ingólfsson og Guðrún Birgisdóttir.
21.00 Eitt og annað um Ijóðið. Þáttur i umsjá
Þórdísar Mósesdóttur og Símonar Jóns Jó-
hannssonar.
21.40 Merkar hljóðrltanir. Pólski sembalsnill-
ingurinn Wanda Landowska leikur prelúdíur
og fúgur úr „Das Wohltemperierte Klavier"
eftir Johann Sebastian Bach.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Sögður frá Skaftáreldi“ eftir Jón
Trausta. Helgi Þoriáksson fyrrv. skólastjóri
les (17).
23.00 Djsss:Blús-3.þáttur-JónMúliÁma-
son.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
sunnudagur
18.00 Sunnudagshugvekja Séra Sigurður
Arngrímsson flytur.
18.10 Magga i Heiðarbæ 2. Gæðingurinn
Breskur myndaflokkur i sjö þáttum um
samskipti manna og dýra á bóndabæ á
Dartmoorheiði á styrjaldarárunum. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir. Þulur Sigríður
Eyþórsdóttir.
18.40 Börn i Sovétríkjunum 1. Skóladag-
ur Finnskur myndaflokkur í þremur
þáttum. Þýðandi Trausti Júlíusson. Þulir:
Kristin Martha Hákonardóttir og Sigríður
Ragna Sigurðardóttir. (Nordvision -
finnska sjónvarpið)
19.25 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Með allt á hornum sér Bresk nátt-
úrulífsmýnd um hornsíli og lifnaðarhætti
þeirra. Þýðandi og þulur Óskar Ingimars-
son.
21.20 Blómaskeið Jean Brodie Annar
þáttur. Skoskur myndaflokkur i sjö þátt-
um gerður eftir samnefndri sögu Muriel
Spark. I fyrsta þætti sagði frá því að Jean
Brodie réðst kennari við kvennaskóla i
Edinborg árið 1930. Hún vinnur strax
hylli ungra námsmeyja sinna enda er hún
fæddur kennari og nýtur þess aö miðla
nemendumsinumafsjóði reynslu sinnar
mánudagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. SéraTómas
Guðmundsson í Hveragerði flytur (a.v.d.v.)
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Lelkfiml. Jónína Benediktsdóttir.
8.00 Fréttir. Dagskrá 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Ragnar Ingi Aðalsteinsson
talar. Tónleikar.
8.30 Ungir pennar. Stjómandi: Sigurður
Helgason.
8.40 Tónbillð.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Stroku-
drengurlnn" eftir Astrid Undgren Þýð-
andi: Jónína Steinþórsdóttir. Gréta Ólafs-
dóttir les (21).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál. Umsjónarmaður:
Óttar Geirsson.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.30 Lystauki. Þáttur um lifið og tilveruna I
umsjá Hermanns Arasonar (RUVAK).
13.30 Kvlkmyndatónlist.
14.00 „Refurinn I hænsnakofanum" eftlr
Ephraim Klshon í þýðingu Ingibjargar
Bergþórsdóttur. Róbert Amfinnsson les
(11);
14.30 fslensk tónllst. „Hreinn: Súm Gallery
'74“, tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson.
Sinfóniuhljómsveit Islands leikur; Paul Zuk-
ofsky stj.
14.45 Popphólflð - Jón Axel Ólafsson.
15.20 Andartak. Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
16.20 Síðdegistónleikar. Nicolai Ghiaurov
syngur aríur úr frönskum óperum með kór
og Sinfóniuhljómsveit Lundúna; Edward
Downes stj. / Fíladelfiuhljómsveitin leikur
„Þríhymda hattinn", balletttónlist eftir Manu-
el de Falla; Riccardo Muti stj.
17.05 „Samland í Berlln“ smásaga eftir
Gunnar Hoydal Böðvar Guðmundsson les
þýðingu sína.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Ámi Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Andrés Krist-
jánsson fyrrv. ritstjóri talar.
20.00 Lög unga fólkslns. Þórður Magnússon
kynnir.
20.40 Úr Ferðabók Sveins Pálssonar. Sjötti
þáttur Tómasar Eínarssonar. Lesarar með
umsjónarmanni: Snorri Jónsson og Valtýr
Óskarsson.
21.10 Gftarlnn á rómantíska tfmabilinu. V.
þáttur Simonar H. Ivarssonar um gítartón-
list. _
21.40 Útvarpssagan:„Aðtjaldabaki“heim-
ildaskáldsaga eftir Grétu Sigfúsdóttur.
Kristin Bjarnadóttir les (2).
22.35 Simatími. Hlustendur hafa orðið. Sím-
svarí: Stefán Jón Hafstein.
23.15 Serenaða I G-dúr K. 525 eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Kammersveitin í
Stuttgart leikur; Kari Múnchinger stj.
23.30 Ljóð frá 1937 - '42 eftlr Jón úr Vör
Siðari lestur höfundar.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
og þekkingar. Skoöanir hennar falla þó
ekki öllum jafnvel i geð. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.10 Duke Ellington - á mína vfsu
Dan-Jakob Petersen og fleiri sænskir
listamenn flytja trúarlega tónlist eftir Duke
Ellington.
22.45 Dagskrárlok.
mánudagur
19.45 Fréttaágrlp á táknmáll
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Tommi og Jenni
20.45 Iþróttlr Umsjónarmaður Bjami Fel-
ixson.
21.15 Börn sfns tfma (Lovers of Their time)
Bresk sjónvarpsmynd. Leikstjóri Robert
Knights. Aðalhlutverk: Edward Petherbri-
dge og Cheryl Prime. Óvæntir endurfundir
vekja minningar um gamalt ástarævintýri.
Hann var kvæntur og hún bjó hjá móður
sinni en á endanum finna elskendumir sér
óvenjulegt afdrep.Þýðandi Ragna Ragnars.
22.10 Pinoche^ögrað Bresk fréttamynd um
verkföllín f Chile, mótmælaaðgerðir verka-
manna og stúdenta undanfarið gegn stjóm
Pinochets forseta og sögulegan aödrag-
anda þeirra.
22.40 Dagskrártok.
Guðinn sem
haltrar
Colin Norman: The God that Limps.
Science and Technology in the
Eighties. W.W. Norton&Comp.,New
York - London 1982.
Hefaistos var smiður guðanna á
Ólympstindi. Þegar hann fæddist
leist Heru ekkert á og kastaði hon-
.um burt, hann lenti á Lemnos og
bæklaðist. Seifur gerði það sama
síðar og hann var illa séður af
goðunum, afskræmislegur og haltr-
andi, en hann var goð smíða og elds
og kunni allt til járngerðar, var
tæknikrati guðanna. Nauðsynlegt
fyrirbrigði, sem átti helst ekki að
láta sjá sig. Og til að gera afkára-
skapinn sem átakanlegastan, var
þetta fyrirbrigði gift Afrodíte, feg-
urðar og ástargyðjunni, sem kokk-
álaði hann heldur en ekki, sem von
var.
Þessi guð minnir á Völund í nor-
rænni goðafræði. Þessi guð og
starfsemi hans voru undirstöðu-
þættir samfélags guðanna og
mannanna, það verður ekki komist
hj á tækni, en það hefur alltaf átt sér
stað viss tvískinnungur varðandi þá
sem inna af höndum lykilhlutverk
til þess að samfélagið geti starfað
hnökralaust efnalega. Þrælar og
tæknikratar voru taldir talandi
vinnudýr af Aristóteles og meðan
menn mótuðust af hugmyndum
sem voru fjarri nýtni og tæknihug-
myndum síðustu 200 ára, þá réð
' aristókratískari viðmiðun um til-
gang og eðli manna og samfélags
þeirra.
Iðnbyltingin gjörbreytti mati og
hugsunarhætti, í stað landaurabú-
skapar kom peningakerfi og aukin
peningahyggja.
A síðustu áratugum hefur orðið
gerbylting í tæknivæðingu um mik-
inn hluta heimsins, arftakar þræl-
anna, tæknikratar og vinnutæknar
(vinnudýr fortíðarinnar) eru nú
Imetnir á annn hátt en fyrrum og
þeir sem mesta hagsmuni hafa af
tækniframförum í framleiðslu og
nýtingu auðlindanna eiga nána
samleið með vinnutæknum nútím-
ans. Stefnan er: meiri framleiðsla,
aukin atvinna og bætt kjör, sem
hefur nálgast framkvæmd í þró-
uðum iðnríkjum nú á dögum, en
ástandið í þriðja heiminum svo-
kölluðum er síst betra heldur en
fyrir iðnbyltinguna.
Norman fjallar um ástandið í
heiminum síðasta áratuginn, þátt
vísinda og tækni í hagkerfi
heimsins, sem hefur tekið geysi-
miklum breytingum. Þar kemur til
örtölvubyltingin og sjáanlegar af-
leiðingar hennar. Höfundurinn tel-
ur að með notkun „róbóta" í verk-
smiðjum muni verða hægt að
fækka starfsliði gífurlega, einkum á
þetta við hin grófari störf, undir-
stöðuiðnaður mun einkum
breytast í þessa veru, „róbótar"
hafa þegar tekið við störfum í bíla-
iðjuverum í Japan og fleiri iðn-
greinum. Hugkvæmni og nýtni
Japana er viðbrugðið, enda hafa
þeir aðlagað skólakerfi sitt að þörf-
um atvinnulífsins. Að því leyti er
japanskt skólakerfi það fullkomn-
asta í heimi. Nemendum er inn-
prentað að höfuð-andstæðingurinn
sé sessunauturinn í hverjum bekk,
hann verði að sigra hann í sam-
keppninni. Með þessu móti nær
einbeiting nemendanna hámarki
og námsárangur eftir því, kerfið
framleiðir hina fullkomnustu
starfskrafta til mikils gagns fyrir
þjóðarbúið og framleiðni og hag-
vöxt.
Norman telur að framleiðslu-
aukningin um og eftir miðja þessa
öld hafi fyrst og fremst komið til
vegna ódýrrar orku, ásamt stór-
auknum framförum í tækninýjung-
um. Verðhækkun orkunnar dró úr
hagvextinum en svarið við krepp-
unni var aukin tæknivæðing, minni
vinnutilkostnaður, sem vóg upp
orkuhækkunina. Þessi hópur varð
áberandi í Japan og er þegar tekinn
að verða áberandi f þróuðum I
iðnríkjum. Afleiðingar þessa er'
atvinnuleysi, sem hefur farið vax-
andi síðustu árin og á eftir að
aukast eftir því sem tæknivæðingin
eykst. Norman ræðir nokkuð þá
úrkosti sem fyrir hendi eru til þess i
að minnka atvinnuleysi, en þótt
þeim yrði beitt lítur ekki út fyrir
annað en stóriðjufyrirtæki framtíð-
arinnar verði rekin með mannafla
sem svarar til 10% af því starfsliði
sem nú vinnur við slík fyrirtæki.
Höfundurinn ræðir aðgerðir al-
þjóðastofnana til þess að auka
framleiðslu í þriðja heiminum, sem
strandar á því, að víðast hvar þar er
megnið af íbúunum bændur, smá-
bændur sem rétt skrimta og búa á
jörðum sem eru skmáskikar. Þegar
tæknivæðing hefst við slíkar að-
stæður, þarf stór landsvæði, til þess
að tæknivæðingin nýtist og það
verður til þess að nauðsynlegt
verður að rýma þeim burt, sem
rækta smáskikana, svo að land fáist,
fyrir stórvirk landbúnaðartæki.
Smábændurnir leita þá til borg-
anna og mynda þar stétt allsleys-
ingja, framleiðslumagnið eykst
sáralítið og ástandið verður verra
en áður var.
Norman ræðir nokkuð tilraunir
sem nú fara fram í líffræði og sem
miða að því að breyta erfðavísum
jurta og dýra með magnaukningu
viðkomandi tegunda fyrir augum.
Hann telur að í þessum tilraunum
sé sú hætta fólgin að illgjörlegt getii
orðið að ráða við þá lifandi nýgerv-
inga sem komið yrði upp og einnig
að mútasjónir gætu átt sér stað sem
menn réðu ekki við.
Norman ver töluverðu rúmi til
þess að ræða tæknirannsóknir og
tækniþróun. Gífurlegu fjármagni
er varið til rannsóknarstarfs og til
„þess að fullkomna tæki og búnað,
mikill hluti þessara rannsókna ein-
skorðast við kjarnorku og
kjarnorkuvopna-rannsóknir og
meiri og meiri fullkomnun þeirra
vopna, sömuleiðis efnavopna og
hefðbundinna vopna. Talið er að
meira en helmingur vísindamanna í
heiminum vinni við eða séu ná-
tengdir vopnaframleiðslu í ein-
hverri mynd. Höfundurinn ræðir
einnig um áhrif fjölþjóðahringa og
vitnar í því sambandi í rit Ronalds.
Muller: „Revitalizing America“,
sem kom út hjá Simon and Schust-
er í New York 1980, en hann segir
að „hin miklu áhrif fjölþjóðahringa
meðal þróunarþjóða fari nú rýrn-
andi vegna bætts fjárhags og
aukinna valda ríkisstjórnanna og
„hygginda í samskiptum við þá“.
I bókarlok vonast höfundurinn til
þess að gjörlegt verði að sneiða hjá
verstu ágöllum örtölvubyltingar-
innar, fyrst og fremst með auknu
lýðræði innan hvers samfélags og
samvinnu á alþjóðavettvangi. Þótt
svo yrði myndi kerfi aukins hag-
vaxtar og framleiðni haldast og sú
meðvitund sem mótast af því með-
al vinnu- og neysludýra framtíðar-
innar „sem á vel tyrfðum bundin
bás/baula eftir töðumeis“.
BYGGINGARHAPPDRÆTTI
VINNINGAR:
1. PASTELMYND cflir J. GIFSMYND cfur
BjOrgvm Heraidston kr. 9.000 Hallsinn Sigurftcion. _ J OOO
2. OLlUMYNDcflir 6. LÁGMYNDcfnr
Brynhildi GisUdóllur — 10.000 Hclga GUUson. — 1.000
I. OLlUMYNDcfnr 7. GRAFlKMYNDcfur
Einar HAkonarson.... — 20 000 Ingunni Eydal. — 2.000
^4. BASTELMYND eftir < GRAFlKMYND cfiir
Érlu Aactsdónur. — 10.000 Ingunm Eydal.VN — 9jo
SEUASÓKNAR
9. AKRÝLMYND cflir
Rui R. Sigurjónsdóuur .... — IJ.OOO
10 PASTELM YND cfiir
Stcingrim Siguröason. — 10.000
11. Þrjir GARFlKMYNDIR eflir
Vaigeröi Bcrgidódur. — 1.000
12. MYNDVERK cfiir
örn Þomcinsson........... — 10.000
11. FARMIDt fynr tvo Ul Kaup-
mannahafnar og lil baka . — 40.000
<■■HBhr.Ng.9M
Drctið vcrðar 30. jial 1M3
MljU^.i IUcm 7ICII.
Verfl: Kr. 100,—
sjónvarp
laugardaqur