Þjóðviljinn - 03.08.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Blaðsíða 5
Miðvik'udagut- 3. ágúst '1983 ÞJÓÐVÍlÍiNN SÍÐA'5 ,,Ætli hann dugi ekki vel í næstu mótmælaaðgerðum", sagði Runólfur Agústsson sem fékk fánann sinn aftur úr vörslu lögreglunnar fyrir helgi. (Ljósm - eik). „Óvirðing” við Bandaríkjafána Fánanum skilað Málið fellt niður - Ég fékk fánann minn til baka, sagði Runólfur Ágústsson sem lék „manninn með ljáinn" í mótmæla- aðgerðunum gegn utanríkisstefnu Bandaríkjanna 6. júlí, þegar Bush varaforseti kom hingað í heimsókn. Lögreglan tók af Rúnólfi banda- rískan fána afþví aðþeir töldu að þjóðfána þessum hefði verið sýnd óvirðing. Runólfi var-gert að mæta á lögreglustöðina sl. föstudag. Peg- ar þangað kom var honum umyrða- laust afhentur fáninn sem er í per- sónulegri eigu hans. - Ég bað um afrit af lögreglu- skýrslu, en ég fékk það ekki. En mér sýnist málið vera niður fallið. Ar í Bandaríkjunum - Jú ég hef búið í Bandaríkjun- um. Ég var þar sem skiptinemi í eitt ár í útborg Chicago. Mér leið alveg ágætlega þar. Þar er yndislegt fólk þarna eins og annars staðar í Bandaríkjunum. Og það er alveg eins og við hérna að því leyti að mjög margir eru gagnrýnir á kerfið og utanríkisstefnu Bandaríkjanna. - Nei, ég er ekkert hræddur um að missa vegabréfið vegna þessa máls. Ég trúi ekki öðru en það frjálslyndi sem einkennir almenn- ing í Bandaríkjunum hafi haft þau áhrif á skrifstofuveldið að pólitísk viðhorf manna skerði ferðafrelsi þeirra. Amk. þegar um svona mál er að ræða. -óg Verslunarmenn á Suðurnesjum: Segja upp samningum Á almennum fundi hjá V.S. þann 25. júlí 1983, var cinróma sam- þykkt að segja upp núgildandi samningi við vinnuveitendur. Einnig var samþykkt á fundinum ályktun, þar sem bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar frá 27. maí s.l. er harðlega mótmælt og þeirri kjaraskerðingu, sem í þeim felst. Þá beinir fundurinn einnig þeim tilmælum til utanríkisráðherra að hann hlutist til um það að erlendir þegnar í þjónustustörfum hjá Varnarliðinu og fyrirtækjum á þess vegum, verði að hafa atvinnuleyfi samkvæmt íslenskum lögum um atvinnuréttindi útlendinga hér á landi. Fundurinn mótmælti afnámi frjáls samningsréttar verkalýðs- hreyfingarinnar og skorar á stjórn- völd að nema bráðabirgðalögin úr gildi. Þá var og samþykkt að beina því til utanríkisráðherra að taka til endurskoðunar ráðningarmál hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og færa þau í hendur íslenskra aðila eins og varnarsamningurinn kveður á um. Islendingar sigursælir á Norrænu kvikmyndahátíðinni Norðurlandameistarar í unglingaflokki Fimmtudaginn 28. júlí lauk nor- rænu kvikmyndahátíðinni sem staðið hefur yfir síðan 22. júlí. Þar voru sýndar 38 myndir frá öllum Norðurlöndum. í unglingaflokki 17-24 ára, hlaut íslenska myndin „Áfallið" gullverðlaun og um leið titilinn „Norðurlandameistari í unglingaflokki." Höfundar mynd- arinnar eru Sveinn Andri Sveins- son, Gunnar Sigurðsson, Smári Ríkharðsson, Guðmar Þorleifsson og Pálmi Sigurhjartarsson. Allir eru þeir undir tvítugu. í sama aldursflokki fékk önnur íslensk mynd bronsverðlaun en það var „Morgundagurinrt4- eftir Svavar Þorsteinsson og Hjört Sverrisson. í flokki 16 ára Qg yngri hlaut ís- lensk myndin „Divina Tragedia" annað sæti og bronsverðlaun (í þeim flokki voru ekki veitt gull- verðlaun). Sú mynd er eftir Jóhann Ásmundsson og Snorra Gunn- arsson. í elsta flokknum, 25 ára og eldri, vann finnska myndin „Komprom- issi“ og Finnland vann einnig stiga- keppni milli landanna. - gat TVÆR MEÐ ÖLLU EINNAR VIKU FERÐ BROTTFÖR 17. ÁGÚST DONINGTON PARK Laugardag 20.ágúst • WHITESNAKE • MEAT LOAF • ZZ TOP • DIAMOND HEAD O.FL. TJALDFERÐ TJALDAÐ TIL TVEGGJA NÁTTA Kr. 5.040 Farir þú sem dekkfarþegi með skipinu. Verð, sé búið í klefa í skipinu: kr. 8.800.- Annar valkostur: Hótelgisting í 2 nætur: Dekkfarþegar: kr. 6.900.- Klefafarþegar: kr.10.760.- Fararstjórar: Pétur Kristjánsson Sigurður Sverrisson EINNAR VIKU FERÐ BROTTFÖR 24. ÁGÚST THE READING FESTIVAL 26.- 28.ágúst • BLACK SABBATH • SUZI QUATRO • STEVE HARLEY • THIN LIZZIE O.FL. TJALDEERÐ TJALDAÐ TIL TVEGGJA NÁTTA Kr. 5.040 Farir þú sem dekkfarþegi með skipinu. Verð, sé búið í klefa í skipinu: kr. 8.800.- Þátttakendur geta dvalið á tjaldstæðum ytra milli hátíðanna og sótt þær báðar. Verð fyrir dekkfarþega kr. 6.900.- Verð fyrir klefafarþega kr.10.760.- VERÐIN GILDA FYRIR ALLT, NEMA MAT OG DRYKK, þ.e.: Allar ferðir, fararstjórn, tjaldstæðagjöld og aðgangseyri að hátíðunum. Áfbragðsgóð greiðslukjör FARSKIP Gengi 26.7’83 AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.