Þjóðviljinn - 03.08.1983, Síða 9

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Síða 9
Miðvikudagur 3. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Atvinnuhorfur á Skaga: i ' ; 1 y-Pf 1 h < T* '■ í-i mgm I ; Einn fjögurra togara á Akranesi hefur verið í viðgerð frá júníbyrjun og hefur það ekki bætt atvinnuástand á Skaga. Fiskvinnsla hefur þó ekki stöðvast, -húsin fengið fisk hvert hjá öðru ogfrá Reykjavík. „Það hefur dugað, rétt dugað“ sagði Óskar Þórðarson starfsmaður hjá frystihúsi Þórðar Oskarsson lar hf. en það fyrirtæki á umræddan togara ásamt Haferninum hf. o.fl. Engum hefur verið sagt upp hjá frystihúsinu en hinsvegar ekki verið ráðið í stað starfsmanna í fríum. Viðgerð á togaranum Óskari Magnússyni er nú að Ijúka og heldur hann væntanlega til veiða í vikunni. Myndina tók eng. Stefnir í vandræði Komið hefur í Ijós að atvinnuleysi hefur aukist all- verulega hér á Akranesi í sumar ogernú skráð atvinn- ulaust milli50-60 manns og hluti afþví eru sjómenn. Á sama tíma liggja hér margir bátar bundnir við bryggju og eru ekki gerðir út. Því villfundur í Verkalýðsfélagi Akraness haldinn 21.7.1983 skora á atvinnumálanefnd bœjarins og atvinnurekendur á Akranesi að vinna að þvíað lagt verði kapp á það að láta atvinnutœki bœjarbúa ganga, svo þœr launaskerðingar sem bráðabirgðalög ríkis- stjórnarinnar hafa lagt á launafólk komi ekki til við- bótar auknu atvinnuleysi og almennum vandrœðum sem virðiststefna í hér í bœ effram heldursem horfir með atvinnuástandið. í lok júlí voru 63 á atvinnuleysis- skrá á Akranesi. 24 konur, 39 karl- ar, þaraf 26 sjómenn. Þetta er ekki nýlunda á staðnum, um síðustu áramót fór að bera á auknu atvinn- uleysi og í ár hafa milli 50 og 70 manns verið án vinnu. Eftir nokk- urn blómatíma hefur færst deyfð yfir atvinnulífið á Skaga. „Menn eru uggandi um framtíðina“ sagði einn viðmælenda blaðsins um horf- urnar. Einsog sjá má hér á síðunni hef- ur verkalýðsfélagið látið til sín taka í málinu, og sl. fimmtudag ákvað atvinnumálanefnd bæjarstjórnar- innar að kalla saman fund for- stöðumanna fyrirtækja og verka- lýðsfélagsins. Dauft „Þetta er ekki slæmt í fiskvinnsl- unni“ sagði Guðmundur M. Jóns- son hjá verkalýðsfélaginu, verra hjá sjómönnum, verkafólki og iðnaðarmönnum. Það er stutt í al- mennt atvinnuleysi hjá iðnaðar- mönnum. Togarinn sem hefur ver- ið bilaður á sinn þátt í þessu, en mín skoðun er sú að þetta ástand endurspegli fyrst og fremst afkom- una í sjávarútveginum, það er að dragast saman útgerð, enda engin vitglóra að gera út skip í þessari stöðu. Þegar útgerðin klikkar fer þetta svona, - verkefnaskortur á öllum sviðum og erfitt um vinnu.“ „Það er dauft ástand“ sagði Gísli Sigurðsson verkstjóri í Trésmiðj- unni Akri. Þar vinna 40-50 manns, og er nú þegar verið að segja nokkrum upp. „Það gætu orðið fleiri uppsagnir síðar, en maður má aldrei missa vonina. Við erum núna að smíða vinnuskúra sem fara að Blöndu, en eftir það er ekkert sjáanlegt. Fólk byggir minna, það er hrætt við að fjárfesta, sumir hafa nú þegar tekið meiri lán en þeir ráða við. Það er almennt peninga- leysi hjá almenningi.“ Gísli sagði horfur einnig slæmar hjá öðrum iðnaðarmönnum á Skaga en trés- miðum. „Þetta hefur verið deyfð- artími síðan um áramótin." Porgeir Jósepsson framkvæmda- stjóri Þorgeirs & Ellerts (dráttar- braut og vélsmiðja) var öllu hress- ari: „Ef staðið verður við ríkis- stjórnarloforð eru næg verkefni í 2-3 ár. Það hlýtur að verða, það er sjaldgæft að ekki sé staðið við lo- forð þó að skipti um stjórn." Fyrir- tækið hefur þegar lokið einu af fjórum raðsmíðuðum skipum sem því var heimilað að hleypa af stokkunum, og selt það til Breiðdalsvíkur. Annað er í smíðum. „Rekstur á þessu sem raunverulegum iðnaði byggir á ný- smíðum. Viðgerðirnar eru auðvit- að alltaf í gangi en þær verða helst á vissum tímabilum þegar ekki fisk- ast.“ Hjá Þorgeiri og Ellert vinna um 150 manns. Engar framkvæmd- ir hjá bœnum „Atvinnumálanefndin hefur á- kveðið að reyna að kalla saman fund með mönnum frá verkalýðs- félaginu og atvinnurekendum, hann gæti orðið í næstu viku,“ sagði Jóhann Ársœlsson formaður nefndarinnar. Jóhann er alþýðu- bandalagsmaður og í minnihluta í bæjarstjórn. Meirihlutann skipa sjáífstæðis- og alþýðuflokksmenn. „Það eru ýmsar ástæður að baki dráttur eftir töluverða spennu undanfarin ár, spennu sem meðal annars orsakaðist af járnblendi- verksmiðjunni og Borgarfjarðar- búnni. Það hafa verið hér miklar oyggingarframkvæmdir, en nú er varla neitt í gangi. Bærinn hefur skorið niður hjá sér, það eru engar ráðstöfunartekjur, verið að borga niður skuldir og öllum fram- kvæmdum frestað jafnvel venju- legri holræsa- og gatnavinnu. Ég er ekki viss um að þetta sé skyn- samleg stefna." Jóhann sagði að það þyrfti að endurskoða allt kerf- ið til að finna leiðir. Til dæmis ynnu margir langan vinnudag í bónus hjá frystihúsunum, lengri en þeir vildu, og það þyrfti að kanna hvort atvinnulausir gætu komist þar inn. Uggandi um fram- tíðina „Já, ég er nú ekki viss um að þessi skráning sé alveg rétt, menn efast á vissan hátt um að þessar tölur séu marktækar" sagði Hörður Pálsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks um atvinnuleysisskrána. „Hitt er annað mál að menn eru uggandi um framtíðina. Það eru engar byggingar í gangi og eins víst að byggingarmenn verði atvinnu- lausir hér með haustinu. Að vísu er verið að fara af stað með 10 íbúðir fyrir aldraða, sem gætu bætt ást- andið eitthvað." Hörður sagði eng- ar ráðstafanir uppi í bæjarstjórn um að grípa inní. „Svo lengi sem ég hef verið viðloðandi bæjarstjórn- ina hefur hún ekki þurft að hafa afskipti af atvinnumálunum, nema einu sinni. Það hafa engar tillögur komið fram um að grípa inní. Enda er ástandið slæmt hjá bænum. Við erum núna að endurskoða fjár- hagsáætlun og dæmið er ansi skakkt. Bankarnir eru allir harðlokaðir og ekki í mörg húsa- skjól að venda eftir peningum." Um mögulegan stuðning frá opin- berum aðilum sagði Hörður að engin beiðni hefði borist frá at- vinnufyrirtækjum um slíka aðstoð. „Það er svona viss hætta á ferðum“ sagði bæjarfulltrúinn,“ og það verður að styrkja atvinnuvegina. Það er til dæmis áhugi á því hér að skipið sem verið er að smíða hjá Þorgeir og Ellert haldist í bænum og menn eru að vinna að því.“ Jón Sveinsson, framsóknar- rnaður í bæjarstjórn sagði að málin hefðu verið rædd í bæjarráði á fimmtudag. Menn eru áhyggjufull- ir. Fyrirtækin berðust í bökkum miðað við ástandið áður og at- vinnuleysið væri orðið alvarlegt. „Þetta er auðvitað hluti af al- mennum efnahagsvanda á landinu, en það verður líka að hafa í huga að fólki hefur fjölgað mikið undanfar- ið hér og segir til sín þegar aftur kemst á jafnvægi eftir framkvæmd- ir einsog á Grundartanga. Bæjarfé- lagið á sjálft í miklum vanda, og það hefur verið lokað fyrir allar framkvæmdir á þess vegum í sum- ar.“ Jón sagði einsog aðrir viðmæ- lendur blaðsins að verðbólgan færi mjög illa með sveitarfélögin, „en við sem höfum verið í minnihluta höfum bent á að það hafi skort á aðhaldssemina hér áður, menn spenntu bogann of hátt. Nú fer allt fé í að borga lánin. Það þarf að skera upp herör, og við höfum lagt til að menn setjist niður og skoði rekstrar- og útgjaldsliði í heild til að geta byggt á einhverju. En meirihlutinn gerir ekki neitt og lætur reka á reiðanum.“ -m Frá Akraneshöfn &4i ^rgatv^ Brottfarar- tími frá Reykjavík °g nágrenni í Friðar- göngu ’83 Leið 1. Vesturbær: Mýrarhúsaskóli Seltjarnarnesi kl. 7.00. Sundlaug Vesturbæjar kl. 7.05. Landakotstún v/Túngötu kl. 7.10. Vonarstræti/Tjarnargata kl. 7.20. Félagsstofnun stúdenta kl. 7.25. Umferöarmiöstöö - BSl kl. 7.30. Leið 2. Miðbær/Skerjafjörður Verslun viö Einarsnes I Skerjafiröi kl. 7.00. Hjónagaröar v/Suðurgötu kl. 7.05. Fríkirkjuvegur 11 kl. 7.10. Regnboginn v/Hverfisgötu kl. 7.15. Skátaheimilið v/Snorrabraut kl. 7.20. Umferðarmiðstöð - BSl kl. 7.30. Leið 3. Bústaðir - Háaleiti: Biðskýli v/Bústaöaveg kl. 7.00. Grímsbær v/Bústaðaveg kl. 7.05. Verslanamiðstööin Austurveri kl. 7.10. Miðbær við Háaleitisbraut kl. 7.15. Kennaraháskólinn kl. 7.20. Hlíðaskóli við Hamrahlíð kl. 7.25. Umferðarmiðstöð - BSl kl. 7.30. Leið 4. Kleppsholt - Vogar: Hátún 12 kl. 7.00. Sundlaugarnar Laugardal kl. 7.05. Sunnutorg v/Langholtsveg (biðskýli) kl 7.10. KRON mótum Langholtsvegar og Skeið- arvogs kl. 7.15. Verslanamiðstöðin Glæsibæ kl. 7.20. Umferðarmiðstöð - BSl kl. 7.30. Leið 5. Árbær - Bakkar: Rofabær/Grundarás kl. 7.00. Ársel - Félagsmiðstöð kl. 7.05. Rofabær/Höföabakki kl. 7.10. Póstútibúiö Arnarbakka kl. 7.15. Umfe.ðarmiðstöð - BSl Leið 6. Fell - Sel: Menningarmiðstöð Gerðubergi kl. 7.00. Fellaskóli kl. 7.05. Verslunin Kjöt og fiskur Seljabraut kl. 7.10 Seljaskóli Kleifarseli 28 kl. 7.15. Umferöarmiðstöð - BSÍ kl. 7.30. Leið 7. Kópavogur - Hafnarfjörður: Bensinstöð Essó við Engihjalla kl. 7.00. Verslun KRON Álfhólsvegi 32 kl. 7.05. Verslunarmiðstöð Hamraborg kl. 7.10. Biðskýlið Borgarhólsbraut/Kópavogs- braut kl. 7.20. Bensínstöð Skeljungs Kópavogshálsi kl 7.25. Amarnessvegamót kl. 7.30. Biöskýlið Garðabæ kl. 7.35. Matvörumarkaður K.H. Miðvangi kl. 7.45. Bæjarútgerðarplanið Hafnarfirði kl. 7.50. (þróttahúsið Strandgötu kl. 7.55. Biðskýlið Hvaleyrarholti kl. 8.00. Leið 8. Mosfellssveit: Reykjalundur kl. 7.00. Verslunin Kjörval kl. 7.10. Lágafell kl. 7.15. Umferðarmiðstöð - BSÍ kl. 7.30. Leið 9. Selfoss: Ferð verður frá Kirkjuvegi 7 á Selfossi kl 7.00 og fylgir sú rúta göngunni og skilar Sunnlendingum heim.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.