Þjóðviljinn - 03.08.1983, Side 13

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Side 13
Miðvikudagur 3. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Leiðsögu- bók um Lundúnir Eg hcf verið að safna saman í þessa bók í 28 ár segir Jónas Krist- jánsson ritstjóri DV um leiðsögu- bók um London sem hann hefur tekið saman fyrir Fjölvaútgáfuna. Jónas skrifar textann en kona hans, Kristín Halldórsdóttir, hefur tekið litmyndir margar í bókina, sem er í vasabroti, 96 síður og kost- ar 371 krónu. Þar eru allskonar upplýsingar um hótel, matsölu- staði, bamagæslu, búðaferðir, þjórfé og fleira sem ferðamenn varðar. Þau hjón söfnuðu á þann veg í bókina að þau hafa prófað alla staði á sjálfum sér og létu ekki upp að þau væru að semja leiðsögu- kver. Jónas hefur áður samið bók um Kaupmannahöfn með svipuðu sniði og hefur í smíðum bók um Amsterdam. Má vera að þarnæst komi bók um New York. Bókaút- gáfan Fjölvi er líka að velta því fyrir sér hvort hún efnir til Lundúna- ferðar með ritstjóranum í haust. Bókin heitir Heimsborgin London. Nýtt timarit Sérrit um rafeindaiðnað Nýtt tímarit, Kafeindin, sem er sérfræðitímarit um rafeindaiðnað er komið út. Er það fyrsta tímarit sinnar tcgundar á íslensku og er því ætlað að vera til upplýsingar, fróð- leiks og skemmtunar. Helstu áherslur verða lagðar á hljóm- tækni, útvarpstækni og tölvutækni og verða í ritinu hagnýtar upplýs- ingar um tölvunotkun, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, svo og ís- lenskan rafeindaiðnað. Fyrsta tölublað eru 40 síður og inniheldur ma. greinar um: digital plötuspilara eftir Bjarna Ágústs- son tæknifræðing, hlustunarher- bergið og staðsetningu hátalara eftir Ólaf Á. Guðmundsson og grein um ritvinnslu með tölvum eftir Pál Theódórsson eðlis- fræðing. Einnig er í blaðinu skýr- ingar á línuritum fyrir hljómtæki, fjallað um VHS, Beta og V 2000 myndsegulbandstæki og birtur er úrdráttur úr sögu Bang og Olufsen raftækja. Þá er þar að finna myndir af gömlum viðtækjum svo og hljómplötugagnrýni, jafnt um sí- gilda tónlist sem poppmúsík. Blaðið fæst í lausasölu og áskrift og verður dreift um allt land. Út- gefandi er útgáfufélagið Rafeind hf. og ritstjóri er Steinþór Oddsson. -áþj Gjaldmiðilsþjónusta Kaupþings hf. Ráðgjöf á sviði erlendra viðskipta Kaupþing hf. hefur nú hafið þjónustu sem hefur ekki verið fyrir hendi hér á landi, en það er gjald- miðilsþjónusta, ráðgjöf á sviði er- lendra viðskipta. Jafnframt hefur Kaupþing hf. hafið útgáfu vikurits um erlend viðskipti og cfnahagsmál sem hefur hlotið nafnið Vísbend- ing. Markmiðið er að gera fyrir- tækjum kleift að minnka áhættu í erlendum viðskiptum og auka arð- semi. Á undanförnum árum hefur það færst mjög í vöxt að ýmis atvinnu- starfsemi á íslandi njóti erlendra lána til fjárfestingar og reksturs. Hin erlendu lán hafa orðið mörg- um fyrirtækjum þung í skauti og stafar það af hluta af óhagstæðri gengisþróun þeirra gjaldmiðia sem lánin voru upphaflega miðuð við. Nú færist það hins vegar í vöxt að í samningi um erlend lán sé svigrúm til breytinga á meðan á lánstíman- um stendur t.d. hvað varðar gjald- miðla sem lánið er skráð í og lengd vaxtatímabils. Til þess að fyrirtæki geti hagað erlendum lánsvið- skiptum sínum á hagstæðan hátt, er nauðsynlegt að stjórnendur fyrir- tækjanna hafi greiðan aðgang að upplýsingum um gengisþróun og vaxtakjör og aðgang að spám um hvernig þessi mál muni þróast yfir næsta lánstímabil. Þessar og fleiri upplýsingar verður hægt að fá hjá gjaldmiðilsþjónustu Kaupþings hf. Eins og að framan greinir hefur Kaupþing hf. jafnframt hafið út- gáfu vikurits um erlend viðskipti og efnahagsmál. I ritinu verða birtar nýjustu upplýsingar og spár um gengi, verðbólgu og fleiri mikil- vægar hagstærðir á íslandi og í helstu viðskiptalöndum ásamt greinum og öðrum fróðleik. Þegar hafa komið út tvö tölublöð af Vís- bendingu og meðal efnis eru grein- ar um gengi dollarans, sterlings- pundsins og fleiri gjaldmiðla, grein um verðbólguna á íslandi, stefn- una í gengismálum og spá urn vísi- tölu framfærslu, byggingar og láns- kjara fram til ársloka. Ritið verður einungis selt í áskrift. Fyrir hönd Kaupþings hf. mun Sigurður B. Stefánsson, hagfræð- ingur annast gjaldfniðilsráðgjöf og útgáfu vikuritsins. Sigurður hefur starfað sem hagfræðingur hjá Þjóð- hagsstofnun undanfarin ár og einn- ig kennt stærðfræði, tölfræði og tölvunotkun við viðskiptadeild Há- skóla íslands. Sigurður hefur lokið doktorsprófi í hagfræði en er auk þess verkfræðingur og hefur lokið prófi í stjórnunarfræði. Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur, ritstjóri Vísbendingar, vikurits um gjaldmiðilsviðskipti og Baldur Guðlaugsson stjórnarformaður Kaupþings hf. Mynd: Atli Sigurður Guðbrandsson sextugur Sextugsafmæli á í dag, ungling- urinn Sigurður Guðbrandsson í Borgarnesi. Sigurður hefur um langan aldur verið einn ötulasti talsmaður Al- þýðubandalagsins á Vesturlandi og í Borgarnesi, þar sem hann hefur starfað á vettvangi samvinnuhreyf- ingar, verkalýðsfélags og að sveitarstjórnarmálum. Hann hefur auk þess verið „guðfaðir" fjöl- margra gæfuspora í starfi Alþýðu- bandalagsins á Vesturlandi. Og ekki má gleyma því, að Sigurður hefur nú um sinn verið um- boðsmaður Þjóðviljans í Borg- arnesi. Sigurður er sérstaklega skemmtilegur á að hlýða og segir vel og lipurlega frá. Þess vegna sleppum við afmælisgreinum, en birtum á næstunni viðtal við Sigurð um það sem á daga hans hefur drifið. Við undirritaðir nutum þeirrar ánægju um þessa verslunarmanna- helgi að vera á ferð með Sigurði, og var hún ógleymanleg, líkt og allar ferðir sem hann á hlut í. Hafðu kæra þökk fyrir, Siggi. Fyrir hönd sósíalista á Vestur- landi eru honum færðar þakkir fyrir allt sem hann hefur verið hreyfingunni, og verður án vafa um áratugi enn. Þjóðviljinn þakkar sínum góða umboðsmanni og vel- unnara um langan aldur kærlega fyrir samstarfið. Magnús H. Gíslason Engilbert Guðmundsson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.