Þjóðviljinn - 03.08.1983, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Qupperneq 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. ágúst 1983 Þrátt fyrir söfnun „Nýrra sjónarmiða”! _ ISAL tapaði 406 milljónum Orkukaupin tæp 8% af útgjöldum „Bati sá sem markaðssérfræð- ingar hafa þráfaldlega spáð, kom ekki fram“ segir í nýútkominni árs- skýrslu ÍSAL. „Árið 1982 var hið versta í sögu áiiðnaðarins.“ í skýrslunni sem lögð var fyrir aðalf- und félagsins í fyrradag kemur fram að bókfært tap í fyrra var 406 og hálf milljón. Álverið nýtti 88% af afkastagetu ' sinni árið 1982 og framleiddi 77.400 tonn af fljótandi áli, þar af seldust 74.900 tonn. Um 57% af útskipaðri framleiðslu var flutt til Efnahagsbandalagslanda, 32% til EFTA-landa, 11% annað. Starfs- menn ÍSAL voru um síðustu ára- mót 658. Laun og launatengd gjöld nema 13,1% af heildarútgjöldum fyrirtækisins árið 1982. Orkukaup félagsins nema 7,96% af heildarút- gjöldum þess. Samkvæmt ársskýrslunni er tap ÍSAL í fyrra 406.582.418 kr. Stjórnendur félagsins hefðu hins- vegar auðveldlega getað komið tapinu niðrí 406.577.408,18 kr., ef þeir hefðu sótt þær 5009,82 kr. sem samtökin Ný sjónarmið söfnuðu handa félaginu í vor. Vonandi dregur þetta rausnarlega framlag úr hallanum í næstu ársskýrslu. - m ‘ÁTAK sjóðurinn tveggja ára — 280 hafa fengið lán Tvö ár eru liðin frá því að ÁTAKS-hugsjónin varð að veru- leika, með samstarfi við Útvegs- banka íslands. Átak er ekki formlegt félag með séstökum félagslögum né heldur fyrirtæki heldur félagskapur til hjálpar þeim fjölmörgu einstak- lingum, sem á sérstakri aðstoð þurfa að halda vegna sjúkdóma eða annarra erfiðleika og hafa horfið frá eðlilegu lífi um lengri eða skemmri tíma. Og oft veitist þessu fólki erfitt .aðsnúa við m.a. vegna fjárhagsörðugleika. Megin tilgangur Átaks er: Að lána fé til einstaklinga, sem alkóhólismi og sjúkdómar hafa leikið illa, í því skyni að hjálpa þeim til sjálfsbjargar á ný. Að veita námslán þeim, er stunda nám og huga að störfum við áfengisvandamálið. Að veita lánafyrirgreiðslu í því skyni að fjölga atvinnutækifærum fyrir alkóhólista og aðra sjúklinga. Frá því að Átak hóf starfsemi sína, hafa innistæður í Átaks-deild bankans þrefaldast og þannig hald- ið vel í við verðbólguna. Innláns- reikningar viðskiptavina Átaks- deildarinnar þ.e.s. verðtryggðir sparireikningar, sparisjóðsbækur og ávísanareikningar, eru nú 320. Utlán í þessum lánaflokki hafa ver- ið nokkuð hærri en nemur inni- stæðum. Samtals hafa 280 einstak- lingar fengið lánafyrirgreiðslu á vegum Átaks. I stjórn Átaks eru nú: Ólafur Friðfinnsson, form., Guðmundur J. Guðmundson Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Edwald Bern- dsen. Þorsteinn Guðlaugsson, He- lena Albertsdóttir og Grétar Berg- mann. - mhg Þjóðdansafélag Egilsstaða Þjóðdansafélag Egilsstaða lagði land undir fót um síðustu mánaða- mót og sótti heim Eistlendinga. Alls sýndi félagið átta sinnum í ferðinni sem stóð frá 28. júní til 13. júlí og tókst afbragðsvel. Þjóðdansafélag Egilsstaða er hið eina sinnar tegundar utan Reykja- víkur, stofnað 1975. Félagið hefur áður sótt mót í Noregi, 1977 og í Búlgaríu 78. Þar hittu þau dansara frá Tallin í Eistlandi og 1980 kom sá flokkur til íslands og sýndi m.a. á Egilstöðum. í ferðina nú fór tuttugu manna hópur frá Egilsstöðum, 16 dansar- ar auk harmonikkuleikara frá Borgarfirði eystra, Helga Eyjólfs- sonar. Flogið var til Moskvu og sýnd ein sýning þar, síðan var hald- ið til Eistlands og sýnt í Ost-Narva sem er 12 km. frá finnska flóa, í kolanámubænum Kotla-Járve og að lokum þrjár sýningar í Tallin. Áður en heim var haldið var farið til Leningrad og dvalið í fjóra daga í Kaupmannahöfn. Formaður Þjóðdansafélags Egilsstaða er Þrá- inn Skarphéðinsson. EÞ Blikkiðjan Asgarðí 7, Garðabæ onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 leikhus > kvikmyndahús SÍMI: 2 21 40 Starfsbræöur Spennandi og óvenjuleg leynilög- reglumynd. Benson (Ryan O'Neal) og Kerwin (John Hurt) erfalin rann- sókn morðs á ungum manni, sem hafði verið hommi. Þeim er skipað að búa saman, og eiga að láta sem ástarsamband sé á milli þeirra. Leikstjóri Jamea Burrows. Aðalhlutverk: Ryan O'Neil, John Hurt, Kenneth Mc Milland. Sýnd kl. 7, 9 og 11 Allra siðasti sýningardagur Bönnuð innan 14 ára. SIMI: 1 15 44 Karate- meistarinn Islenskur texti. Æsispennandi ný karate-mynd með meistaranum James Ryan (sá er lék í myndinni „Að duga eða drepast"), en hann hefur unnið til fjölda verðlauna á Karatemótum víða um heim. Spenna frá upphafi til enda. Hér eru ekki neinir viðvan- ingar á ferð, allt atvinnumenn og verðlaunahafar í aðalhlutverkun- um svo sem: James Ryan, Stan Smlth, Norman Robson ásamt Anneline Kreil og fl. Sýnd kl. 7 og 9 Hryllingsóperan Þessi ódrepandi „Rocky Horror" mynd, sem ennþá er sýnd fyrir fullu húsi á miðnætursýningum víða um heim. Sýnd kl. 11. Útlaginn Sýnd í nokkra daga kl. 5. íslenskt tal - Enskir textar. tÓNABÍÓ SIMI: 3 11 82 Rocky III „Besta „Rocky" myndin af þeim öllum." , B.D. Gannet Newspaper. „Hröð og hrikaleg skemmtun." B.K. Toronto-Sun. „Stallone varpar Rocky III í flokk þeirra bestu." US Magazine „Stórkostleg mynd." E.P. Boston Herald Amer- Forsíðufrétt vikuritsins Time hyllir: „Rocky III" sigurvegari og ennþá heimsmeistari." Titillag Rocky III „Eye of the Tiger" var tilnefnt til Óskars- verðlauna í ár. Leikstjóri: Silvester Stal- lone. Aðalhlutverk: Sylvester Stal- lone, Talia Shire, Burt Yo- ung, Mr. T. Sýnd kl. 5 og 9.10. Tekin upp í Dóiby Stereo. Sýnd í 4ra rása Starescope Stereo. Rocky II Endursýnd kl. 7. SIMI: 1 89 36 Salur A Frumsýnir Hanky Panky Bráðskemmtileg og spennandi ný bandarísk gamanmynd i litum með hinum óborganlega Gene Wilder í aðalhlutverki. Leikstjóri: Sidney Poiter Aðalhlutverk: Gene Wilder, Gilda Radner, Richard Widmar. Islenskur texti. Sýnd kl. 2.50, 5, 7.10, 9.10 oq 11.15. Salur B Tootsie Bráðskemmtileg ný amerísk úr- valsgamanmynd í litum. Leikstjóri: Sidney Pollack. Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Jessica Lange, Bill Murray. Sýnd kl. 7.05 og 9.05. Leikfangið (The Toy) Afarskemmtileg ný bandarísk gamanmynd með tveimur fremstu grínleikurum Bandaríkjanna, þeim Richard Pryor og Jackie Gleason I aðalhlutverkum. Mynd sem kemur öllum í gott skap. Leikstjóri: Ric- hard Donner. fslenskur texti. ■Sýndkl. 3, 5, og 11.15. Slmi11384 Engill hefndarinnar Ótrúlega spennandi og mjög við- burðarík, ný, bandarísk kvikmynd í litum,- Ráðist er á unga stúlku - hefnd hennar verður miskunnar- laus. Aðalhlutverk: Zoe Tamerlis, Steve Singer ísl. texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 9 og 11. LAUGARÁÍ BHBT a VKSuQbQ JHÆJKnliS Dauðadalurinn Ný mjög spennandi bandarísk mynd, sem segirfrá ferðalagi ungs fólks og drengs um gamalt gull- námusvæði, Gerast þar margir undarlegir hlutir og spennan eykst fram á siðustu augnablik myndar- innar. Framleiðandi Elliot Kastner fyrir Universal. Aðalhlutverk: Paul le Mat (America Graffiti), Cathrine Hicks og Peter Billingsley. Sýnd kl: 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. = Viðvörun Q19 OOO Flóttin frá Alcatraz Hörkuspennandi og fræg litmynd sem byggð er á sönnum atburðum með Clint Eastwood, Patrick McGoohan. Framleiðandi og leikstjóri Donald Stiegel. Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Loftsteinninn Spennandi bandarísk Panavision litmynd. Risaloftsteinn ógnar jarð- lífi, hvað er til ráða? Aðalhlutverk: Sean Connery - Natalie Wood - Karl Malden - Henry Fonda. Endursýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05 Maöur til taks Bráðfjörug og skemmtileg ensk gamanmynd, eins og þær gerast bestar, með Richard O Sullivan - Paula Wilcox o.fl. Endursýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10 Blóðskömm Geysispennandi litmynd enda gerð af snillingnum Ciaude Cha- brols Aðalhlutverk: Donald Suther- land, Stephane Audra, David Hemmings. Endursýnd kl. 9.10 og 11.10. Sæúlfurinn Afar spennandi og viðburðarík lit- mynd, byggð á samnefndri sjóara- sögu eftír Jack London með Chuck Connors - Barbara Rack Islenskur texti - Bönnuð innan 14 ára. Endurýnd kl. 3.15,5.15,7.15,9.15 og 11.15. Reykjavíkurblús blandað efni tengt Reykjavík í leik- stjórn Péturs Einarssonar. fimmtudag 4.ágúst kl. 20.30 föstudag 5. ágúst kl. 20.30 laugardag 6. ágúst kl. 20.30 Síðustu sýningar. Elskendurnir í Metró I leikstjórn Andrésar Sigun/ins- sonar. Frumsýning sunnudag 14.ágúst kl. 20.30. Félagsstofnun Stúdenta v/ Hringbraut sími 19455 Veitingasala. Sími 78900 Salur 1 Utangarös- drengir (The Outsiders) Heimsfræg og splunkuný stór- mynd gerð af kappanum Francis Ford Coppola. Hann vildi gera mynd um ungdóniinn og líkir The Outsiders við hina margverð- launuðu fyrri mynd sína The God- father sem einnig fjallar um fjöl- skyldu. The Outsiders saga S.E. Hinton kom mér fyrir sjónir á réttu augnabliki segir Coppola. Aðalhlutverk: C.Thomas Howell, Matt Dillon, Ralph Macchino, Patrick Swayze. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 14 ára. Hækkað verð. Myndin er tekin upp i Dolby sterio og sýnd í 4 rása Starscope sterio. Salur 2 CUNAofWf Ný og jafnframt mjög spennandi mynd um skólalífið í fjölbrautar- skólanum Abraham Lincoln. Við erum framtíðin og ekkert getur stöðvað okkur segja forsprakkar klíkunnar þar. Hvað á til bragðs að taka eða er þetta sem koma skal? ' Aðalhlutverk: Perry King, Merrie Lynn Ross, Roddy McDowall. Leikstjóri: Mark Lester. Sýnd kl. 5 - 7 - 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Salur 3 Merry Christmas Mr. Lawrence Heimsfraeg og jafnframt splunkur.ý stórmynd sem ger- ist í fangabúðum Japana í síð- ari heimsstyrjöld. Myndin er gerð eftir sögu Laurens Post, The seed and Sower og leikstýrð af Nagisa Oshima en það tók hann fimm ár að full- gera þessa mynd. Aðalhlv: David Bowie, Tom Conti, Ryuichi Sakamoto, Jack Thompson. Sýnd kl. 5, 9 og 11.15. Salur 4 Svartskeggur Sýndkl. 5' ' Maðurinn með barnsandlitið Hörkuspennandi vestri með hinum vinsælu Trinitybræðrum. Aðal- hlutv. Terence Hill og Bud Spencer. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Salur 5 Atlantic City Frábær úrvalsmynd, útnefnd til 5 Óskara 1982. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leikstjóri: Lou- is Malle. Sýnd kl. 9.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.