Þjóðviljinn - 03.08.1983, Page 20

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Page 20
OWDVIUINN Miðvikudagur 3. ágúst 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Ný fjarskiptastöð á Vellinum Enn flæktari í Natónetið Ný fjarskiptastöð í eigu Nató var tekin í notkun sl. fimmtudag á Keflavíkurflugvelli. Þessi stöð hef- ur verið áratug í byggingu og leysir af hólmi bráðabirgðastöð frá 1966. Með fjarskiptastöðinni kemst her- liðið á Keflavíkurflugvelli í beint og milliliðalaust gervihnattarsam- band við ámóta stöðvar í Nató- Hluti nýju fjarskiptastöðvarinnar. Enn einn eldflaugasegullinn? Mynd Jg, löndum og verður herstöðin því enn mikilvægari liður í herkerfi Nató og Bandaríkjanna en áður. Fjarskiptastöðin nýja mun vera ein fullkomnasta stöð af þessu sauðahúsi nú á tímum. Hún kost- aði 10 miljón dollara og var byggð af íslenskum aðalverktökum, helsta skattgreiðanda á íslandi. Slíkar og þvílíkar stöðvar á að setja upp í öllum Natólöndum, og geta generálar og stjórnmálamenn nú ræðst við á augabragði um gervi- hnött með aðstoð þessara tölvu- væddu stöðva. Að sögn yfirmanna hersins á Keflavíkurvelli á blaða- mannafundi við opnun stöðvarinn- ar gefst nú meiri tími til að taka ákvarðanir en áður var. Ljóst er að hin nýja fjarskipta- stöð flækir íslendinga enn frekar í hernaðarnet Bandaríkjanna og Nató og má telja víst að þessar framkvæmdir og aðrar fyrirhugað- ar á Vellinum verði ræddar í friðargöngu herstöðvaandstæðinga á laugardaginn kemur. Skráning í símum 17966 og 29212. jg/m Friðarganga ’83 Kvennaframboðið Hvetur konur til þátt- töku Kvennaframboðið í Reykjavík hefur sent frá sér ávarp þar sem konur um allt land eru hvattar til að leggja friðarbaráttunni lið með því að taka þátt í friðargöng- unni 6. ágúst nk. og sýna þar með í verki að þær taki afstöðu með lífsstefnu gegn helstefnu, með friði gegn vígbúnaði og hernaðar- brölti. í ávarpiu segir m.a. að nötur- legt sé til þess að vita að um leið og miljónir manna um allan heim krefjist friðar og afvopnunar, stígi íslenska ríkisstjórnin skref í átt til aukins vígbúnaðar með byggingu nýrrar flugstöðvar, flota- og birgðastöð í Helguvík og hugmyndum um nýjar ratsjár- stöðvar. Nauðsynlegt sé að friðarsinnar þjappi sér saman og taki undir kröfuna um kjarnorkuvopnalus Norðurlönd, gegn vígbúnaði í eigin landi gegn því að ísland verði ein allsherjar atómstöð, gegn hernaðarbandalögum, gegn ferðum kjarnorkuknúinna kaf- báta umhverfis landið og gegn því að kjarnorkuúrgangi sé varpað í hafið sunnan íslands. Ávarpið verður birt í heild í Þjóðviljanum síðar. EÞ 6. ágúst minnst um allan heim Látið skrá ykkur í síma 17966 eða 29212 „Það hafa margir skráð sig í gönguna í dag, sagði Pétur Art- úrsson á skrifstofu Samtaka her- stöðvaandstæðinga, í samtali við blaðið í gær. „Merki Friðargöng- unnar eru til sölu á skrifstofunni, að Frakkastíg 14. Fólk ætti að bera þau á sér fram að göngu til að vekja athygli á henni. Bolirnir seljast líka mjög vel. Það eru lang- erma bolir með friðarmerkjum á, þeir eru líka til söiu hjá okkur. Merkin verða innifalin í rútugj- aldinu ásamt súpu og brauði sem framreidd verða í Kúagerði. Ég vil eindregið hvetja fólk að skrá sig sem fyrst og fá sér merki hérna á skrifstofunni, sagði Pétur. Verið er að safna undirskrift- um meðal ýmissa starfsstétta. Þar sem hvatt er til þátttöku í göng- unni, Hafþór Guðjónsson, kenn- ari sem sá um að safna undir- skriftum meðal framhaldsskóla- kennara sagði að mjög vel hefði gengið hjá sér og sömu sögu væri að segja hjá öðrum. Áhugi fólks fyrir göngunni virðist mjög al- mennur. Eins og flestir vita eru aðgerðir í undirbúningi víða um heim í kringum 6. ágúst. EÞ Augu fólks loks að opnast sagði Starri í Garði. „Mér líst vel á að ganga eigi fri Keflavík“ sagði Starri í Garði, Mývatnssveit þegar Þjóðviljinr hafði samband við hann í gær „Ég held að nú séu augu fólkí loks að opnast fyrir því að það ei ekki spurning um austur og vest- ur heldur er um líf og dauða af tefla þegar kjarnorkuvæðingin ei orðin eins mikil og raunin er.“ - Ætlarðu að koma í gönguna? - Því miður er þetta versti tím- inn hjá okkur bændum. Við get- um ekki hlaupið frá í þrjá daga þegar heyskapur stendur sem hæst en ég hefði svo sannarlega viljað vera með og vona að fjöl- menni verði. Það hefur komið ti) tals að rúta fari héðan og suður og taki fólk víðar af Norðurlandi. Það verður gaman að sjá hvort fólkið sem segist vera friðarsinn- ar slæst í hópinn með okkur og kemur út á götuna. Það er nefni- lega ekki nóg að vera með yfirlýs- ingar um friðarvilja. Við verðum að einbeita okkur að því að hreinsa til hjá okkur og losna við Atómstöðina á Keflavíkurflug- velli. Jakobína Sigurðardóttir, skáldkona, eiginkona Starra, sendi sínar bestu kveðjur til vænt- anlegs göngufólks og sagðist vona að hægt væri að ná til sem flestra því mikið væri í húfi. EÞ Frá Eiðsvelli til Þrándheims: Friðarganga norskra kvenna Um helgina lauk mikilli friðargöngu norskra kvenna sem staðið hefur í þrjár vikur. Hún hófst frá hinu forna þingsetri Norðmanna, Eiðsvelli, og lauk henni í Þrandheimi. Þátttaka var mjög mikil, þúsundir manna gengu, þrátt fyrir mikla hita í landinu að undanförnu. Friðargangan fór fram undir vígorðum gegn hervæðingu, fyrir stöðvun vígbúnaðarkapphlaups og í nafni annarra þeirra mála sem efst hafa verið á baugi hjá friðarhreyfingum að undan- förnu. Nánar verður sagt frá göng- unni hér í blaðinu síðar. r Oskar Garibaldason 75 ára Óskar Garibaldason á Siglufirði varð 75 ára í fyrradag. Óskar þekkja allir sem fylgst hafa með málefnum íslenskrar verkalýðshreyfingar og hreyfingar sósíalista. Á þeim vettvangi hefur hann skilað stærra dagsverki en flestir. Hann var um langt skeið for- maður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði og gegndi auk þess ýms- um trúnaðarstöðuni fyrir verka- lýðshreyfinguna. Þjóðviljinn óskar honum heilla á þessum merku tímamótum, með þökk fyrir langa samfylgd og von um að löng samleið sé eftir enn. Lóðardeilan við Sogaveg________________ T ekin f y rir í ágúst segir Vilhjálmur Vil- hjálmsson formaður skipulagsnefndar „Það er rétt að á aðalskipulagi frá 1962 er þetta grænt svæði en hins vegar komu fram tillögur í kringum 1970-71 að setja niður byggingar þarna“, sagði Vil- hjálmur Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur- borgar er hann var spurður að því hvort umdeilt svæði neðan Sogavegar væri ekki skipulagt sem útivistarsvæði, en núna hefur verslunin Burstafell sótt um bygg- ingarleyfi á þessum stað. „Það sem hefur gerst í þessu máli“, sagði Vilhjálmur, „er að Kristinn Breiðfjörð eigandi Burstafells sendi borgarráði bréf þar sem hann fór fram á að fá að reisa verslunarhúsnæði á um- ræddri lóð. Borgarráð sendi síð- an þetta bréf til umsagnar skipul- agsnefndar og kynnti málið á fundi foreldrafélagsins við Breiðagerðisskóla. Þessi mála- leitan hefur fengið misjafnar undirtektir íbúa, sumir eru mjög á móti því að versluni fái lóð á þessum stað en aðrir hafa hafið undirskriftarsöfnun til að hvetja borgarráð til að úthluta Bursta- felli lóðinni. Hvað okkar afstöðu varðar, þá hefur ekki verið fjall- að formíega um umsókn Kristins í skipulagsnefnd og hún verður ekki tekin fyrir fyrr en í lok ágúst. Við munum að sjálfsögðu athuga alla þætti málsins og sendum borgarráði umsögn okkar um málið en ég vil undirstrika að skipulagsnefnd úthlutar ekki lóðum. Það er verk borgarráðs og það er undir því komið hvort far- ið er eftir ummsögn okkar í skip- ulagsnefndinni,“ sagði Vilhjálm- ur að lokum. -áþj-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.