Þjóðviljinn - 06.08.1983, Síða 3
Hclgin 6.-7. ágúst 198? tJfÖÖVÍLjíNN - SÖE)Á' 3
Eyjaskinna
Fyrir skömmu kom út 2. rit af
Eyjaskinnu, riti Sögufélags Vest-
mannaeyja. Ritið er 150 lesmáls-
síður og prýtt fjölda mynda. I rit-
nefnd eru Haraldur Guðnason,
Ingólfur Guðjónsson, Ágúst Karls-
son og Hermann Einarsson.
í Eyjaskinnu er eftirfarandi efni:
Grein er eftir Helga S. Sceving
komin út
(1914-1934) um fiskveiðar í Vest-
mannaeyjum fyrir og eftir síðustu
aldamót. Einnig er grein eftir Sig-
fús M. Johnsen um hákarlaveiðar í
Vestmannaeyjum fyrrum.
Hlöðver Johnsen skrifar grein-
ina: Til hárkarlaveiða frá Vest-
mannaeyjum með Binna í Gröf
sem skipstjóra á m.b. Má VE 275.
Sigmundur Andrésson skrifar um
sögu brauðgerðar í Vestmanna-
eyjum. ÞáerEyjaannáll 1917-1920
eftir Aka Heinz Haraldsson og
Landakirkja og vísitasían 1. júlí
1749 eftir Þorstein Víglundsson.
Ennfremur eru í ritinu eftirfar-
andi: Úr sögu Vestmannaeyja-
hafnar í máli og myndum, Skrá yfir
myndir og málverk Byggðasafns
Vestmannaeyja og viðtal Árna
Árnasonar við Jón í Brautarholti
tekið 1953.
Ritið fæst hjá Sögufélagi Vest-
mannaeyja, Bókabúð Vestmanna-
eyja, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og Sögufélaginu í
Reykjavík.
-GFr
Arangur bílbelta-
notkunar í Bretlandi
Bretar lögleiddu notkun bílbelta
í framsætum hinn 31. jan. sl., að
viðlögðum fjársektum, ef útaf er
brugðið. Hver hefur árangurinn
orðið?
Fulltrúi RoSPA (The Royal Soc-
iety for the Prevention of Acci-
dents) í Birmingham sagði í viðtali
við fulltrúa Umferðarráðs, að nið-
urstöður athugana á bílbeltanotk-
un og umferðarslysum á Bretlands-
eyjum bentu til um 95% notkunar
belta meðal ökumanna og farþega
þeirra í framsæti. Mánuðina febrú-
ar, mars og apríl í ár urðu um 25%
færri dauðaslys og alvarleg slys í
umferðinni þar, en sömu mánuði í
fyrra, þrátt fyrir að umferð hafi
aukist um 12% milli ára. Líklegt er
taiið að bílbeltin hafi bjargað um
1000 mannslífum þessa þrjá mán-
uði, sem lögin voru í gildi.
Lögleiðing bílbeltanotkunar á
Bretlandseyjum og sektarviðurlög
við brotum á lögunum hefur leitt til
þess að meiðsli í umferðinni þar
eru nú færri en þau hafa verið
undanfarinn áratug, þrátt fyrir að
umferðin hafi stóraukist á sama
tíma. Og nú eru Bretar með það í
undirbúningi að lögleiða einnig
notkun bílbelta í aftursætum.
Notkun bílbelta reyndist mjög
almenn a.m.k. utanbæjar, nú um
verslunarmannahelgina. Væri ekki
rétt að láta hana einnig ná til ann-
arra daga ársins? Slysin tilkynna
ekki komu sína fyrirfram. -mhg
Stúdentar úr
bréfaskóla?
Nýlega var haldinn ársfundur
Bréfaskólans. Eigendur hans eru:
Samband ísl. samvinnufélaga, sem
á 30 %, Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu, Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja, Farmanna-
og fiskimannasamband Islands,
Kvenfélagasamband Islands og
Stéttarsamband bænda, sem eiga
10% hvert.
Á síðasta ári innrituðust nokkru
færri nemendur en undanfarin ár
eða 754. Námsgreinar eru 40 og 25
kennarar annast yfirferð verkefna.
Skólinn hefur á boðstólum
námsefni til sjálfsnáms í tungumál-
um. Er meginhluti þess frá
franska fyrirtækinu Ássimil.
Unnið hefur verið að ýmsum
samstarfsverkefnum á vegum
skólans og annarra aðila. Þar á
meðal er unnið að undirbúningi
þess, í samráði við menntamála-
ráðuneytið, að hafist geti kennsla
til stúdentsprófs, í bréfaformi. Þá
hefur og verið unnið að undirbún-
ingi bréfakennslu fyrir kennara
heyrnleysingja og bréfanámi fyrir
starfandi bókaverði. Skólastjóri
er Birna Bjarnadóttir. Aðsetur og
afgreiðsla skólans er að Lindargötu
9A, sími 91-2 63 44. - mhg.
Sænsk-íslensk
samvinna
Með sérstökum samningum við Anebyhús, sem er einn stærsti
framleiðandi einingahúsa á Norðurlöndum, getur Eignamarkaður-
inn boðið fjórar tegundir húsa á sérstöku kynningarverði.
Húsin sem hér um ræðir eru öll einlyft og eru afhent til upp-
setningar miðað við múrsteinshlaðna útveggi, með steinflísum á
þaki, þreföldu gleri í gluggum og öðru þvi efni sem gerir húsið til
búið til innréttingar.
Anebyhús hafa gert samkomulag við
lánastofnun um sérstakt safnlán í því
skyni að auðvelda fólki fjármögnun til
A B
Söfnun í
12mánuði 240 - 400 -
Lán 360 - 600 -
Samtals 600 - 1.000 -
Scldcign 1.500 -
Húsnædis-
m.stj.lán* 389 - 389 -
Ráðstöfunar-
fé 2.489 - 1.389 -
•Miöaö er viö 4ra manna fjölskyldu.
húsakaupanna.
Við pöntun á Anebyhúsi er stofnaður
velturejkningur sem lagt er inn á i
ákveðinn tíma — annað hvort ákveðin
upphæð reglulega, eða ef til vill, misháar
upphæðir. Að sparnaðartíma loknum á
kaupandinn rétt á láni sem er 50% hærra
en innistæðan. Lánið greiðist síðan á jafn-
löngum tíma og söfnun hefur staðið.
Á töflunni hér að neðan eru tvö dæmi
sem sýna þetta nánar. í dæmi A er gert
ráð fyrir að viðkomandi eigi fasteign og
jafnframt að hann geti búið i henni fram
til þess tíma er hann flytur. Dæmi B gerir
aftur á móti ráð fyrir að viðkomandi sé að
kaupa sér fasteign í fyrsta sinn.
í samvinnu við JL byggingarvörur, Kalmar innréttingar og
Gunnar Ásgeirsson getum við boðið kaupendum Anebyhúsa mjög
hagstætt verð og greiðslukjör á byggingarvörum, innréttingum og
tækjum sem þessir aðilar hafa á boðstólum.
Verðið á húsunum er fast í sænskum krónum næstu 10 mánuði
og er ekki vísitölubundið. Verð þau
sem eru uppgefin hér að neðan; reiknuð
á gengi frá 27/5, stóðu nær óbreytt í lok
júlí. Þau miðast við hús tilbúin til af-
greiðslu í Reykjavík og eru aðflutnings-
gjöld, frakt og söluskattur innifalin.
EOK 99 m2
EOK 123 -
EOK 132 -
EOK 138 -
BÍLSKÚR 32-
855.800 kr.
1.061.300 -
1.230.850 -
1.247.700 -
‘219.150 -
y4NEBXHUS
Söluumboö Eignamarkaðurinn
Hafnarstræti 20, 101 REYKJAVÍK
Pósthólf 56
Simi 91-26933
ISTINSSON - MEGAS - ÍKARUS
EF ÞÚ ATT AÐEINS
EFNIA EINNIPIDTU...
þó vekjum við othygli o „The Boys From ChicQgo”
PLATA SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAMHJÁ SER FARA!