Þjóðviljinn - 06.08.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Helgin 6.-7. ágúst 1983
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Augiýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúövik Geirsson, Magnús H. Gislason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson.
íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson
Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guöión Sveinbiörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Símavarsla: Sigríöur Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Siguröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdottir
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síöumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent
Prentun: Blaöaprent h.f.
r itst jór nargr ci n
úr aimanakínu
Friðarvilji.
• í dag er gengið frá Keflavík til höfuðstaðarins í nafni
friðar. Eins og oft áður þegar gengið hefur verið til að
andmæla herstöðvum, stríðsrekstri eða vígbúnaðar-
kapphlaupi hefur stærsta blað landsins, Morgunblaðið,
sett upp hundshaus. Og í gær sá blaðið þann kost vænst-
an að prenta upp leiðara úr dótturblaði sínu á Akur-
eyri: þar var allt á sínum gamla stað - hvatamenn
friðargöngu eru þar „nytsamir sakleysingjar“ sem í
barnaskap sínum hjálpa Rússum og kunna ekki fótum
sínum forráð. Eða þá menn sem hafa fengiö í sinn hlut
„of stóran skammt af þjóðarstolti“ eins og það er svo
smekklega orðaö.
• Það er verðugt andsvar viö slíkum glósum, að mikill
fjöldi kennara og fóstra, verklýðsfrömuða og rithöf-
unda hefur, eins og sjá hefur mátt af tiikynningum og
auglýsingum, hvatt til stuðnings við Friöargöngu og
Veðráttan liefur löngum verið
vinsælt umræðuefni manna á
meðal hérlendis. Á árum áöur
meðan aðdrættir til sjávar og
sveita voru háðir mildi veðurguö-
anna var það sannkallað þjóðar-
sport að spá í veðrið. og í þá tíð
var engin sveit með sveitum
nema þar fyndust nokkrir
veðurglöggir spekingar. Á okkar
dögum er afkoma þjóðarinnar
ekki beinlínis háð veðri og vind-
um en engu að síður ber þetta
vinsæla umræðuefni iöulega á
góma þar sem tveir eða fleiri hitt-
ast á förnum vegi.
Mjög hefur reynt á langlund-
argeð manna á suð-vesturhorni
landsins í veðramálum í sumar og
gengu „bændur og búalið" svo
langt að efna til mótmælaaðgerða
fyrir framan Veðurstofuna á dög-
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Pjóöviljans.
Framkvæmdastióri: Guörún Guömundsdóttir.
| Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólalsson.
þátttöku í henni.
• Þegar fyrst var farið í Kellavíkurgöngu fyrir tuttugu
og þrem árum komst Magnús Kjartansson svo að orði á
útifundi að göngu lokinni: „Svo lengi geta menn búið
við óþrif að þeir verði samdauna þeim og hætti að veita
þeim athygli. Ef menn ganga lengi undir fargi verður
byrðin hluti af þeim, þeir kreppast og bogna og finnst
það eðiilegt og óhjákvæmilegt að geta ekki gengið upp-
réttir. Einmitt þannig er nú verið að reyna að leika
okkur Islendinga. Það er verið að gera okkur samdauna
hernáminu, venja okkur svo við farg erlendrar hersetu
að við göngum ekki l'ramar upprétt í landj okkar... Við
verðum aö þoka vananum og afskiptaleysinu til hliðar
og hefja sókn fyrir því að íslenska þjóðin búi ein og
frjáls í landi sínu, fyrir hlutleysi, vopnleysi og friöhelgi
íslands".
• Orð Magnúsar og annarra manna ágætra frá þeim
tíma um sjálfskaparvíti sinnuleysis og afskiptaleysis að
þvf er varðar stöðu íslendinga í vígbúnum heimi og
friðarmál yfir höfuð hafa því miður reynst alltof sönn.
Sú tregða öll helur reynst málstað íslenskra friðarsinna
- sem hafa vitaskuld mismunandi skoðanir á ýmsum
málum - háskalegri en málflutningur þeirra sem taka
hiklaust afstöðu með herstöðvum hérlendis og vilja auk
þess margir hverjir auka umsvif á þeim plássum og taka
fé fyrir. En það er líka gott til þess að vita, að mjög
verulegur hluti þjóðarinnar hefur verið virkur í and-
stöðu sinni við þá stefnu sem nær sínum rökrétta enda-
punkti í aronskunni svonefndu. Þeir menn hafa hvað
eftir annað skipulagt krafta sína og „gengið aftur“ eins
og andstæðingar þeirra hafa stundum verið að glósa
um.
• í friðarbaráttu þeirri sem fram fer víða um lönd eru
menn að sjálfsögðu fyrst spurðir að því hvert sé framlag
þeirra til mála í eigin landi. En friðargangan núna teng-
ist með óvenju sterkum hætti alþjóðlegri hreyfingu
gegn kjarnorkuvopnum sem brýnir raust sína frammi
fyrir herstjórum ríkjablakkanna, sem beita öllum áróð-
ursvélum til að freista manna til að játast undir nauðhy-
ggju vígbúnaðarins. í von um jákvæða samsvörun hins
þjóðlega og hins alþjóðlega þáttar þessarar baráttu
hvetur Þjóðviljinn lesendur sína til að leggja Friðarg-
öngu 1983 allt það lið sem þeir geta nú á dapurlegum
afmælisdegi sprengjunnar í Hirosjíma.
-ÁB.
Karnival
unum. Var það skammgóður
vermir en nú hefur allt færst í
fyrra horf; kultla, gráma og rign-
ingu. Margir lifðú lengi í þeirri
von að frídagur verslunarmanna
bæri með sér sumarið á blikandi
vængjum, en verslunarmanna-
helgin kont og verslunarmanna-
helgin fór, ogekki kom sumarið.
Þykir víst mörgum vera fokið í
flest skjól hvað sumarið varðar
og.hafa gripið til þeirra ráða að
næla sér í sumarauka í útlöndum,
alla vegana er upppantaö í sólar-
landaferðir út mánuðinn. Veður-
ástandið virðist einnig vera farið
að valda örvingíun meðal veður-
fræðinga og lætur einn lands-
kunnur maður hafa það eftir sér
í blaði í vikunni, að líklegast séu
mannafórnir eina leiðin til að
niilda óblíða veðurguöi, en tölvu-
spádóma þar á bæ ber alla að
sama brunni livað varðar veður-
útlitið á næstunni. Það verður
rigning og meiri rigning.
Ekki eru allir sem hafa ráð á
þvf að bregða sér út fyrir land-
steinana, þó illa viðri; til þess hef-
ur sitjandi ríkisstjórn séð með
kjaraskerðingum sínum og at-
lögu að samningarétti launafólks
í landinu. Þversögn þar á bæ er
svoniðurfelling 10% álagningará
ferðamannagjaldeyri. fjöður í
hatt fjármálaráðherra, en kemur
einungis þeim að notum sem
efnaðri eru og ráð hafa á að ferð-
ast. Ætli þeir kaupi ekki líka
frysta ávexti sykraða?
Þeir sem heima sitja verða að
reyna að skapa sinn sumarauka
sjálfir og brugðið hefur fyrir já-
kvæðum hlutum í þá áttina á höf-
uðborgarsvæðinu í sumar. Þar
skal fyrst nefna leikhópinn Svart
og sykurlaust sem létti brúnina á
mörgum borgarbúanum 17. júní
með hressilegri uppákomu sinni.
og skrautlegum karnivalbúning-
um. Þá má ekki gleyma Stúdent-
aleikhúsinu. sem hefur sýnt fyrir
troðfullu húsi í allt sumar, og gert
mörgum rigningarsumarið miklu
Árni Þórðurif
Jónsson m -Wf
----------—-----*' &
skrifar Jf
bærilegra en ella hefði orðiö. Þar
með er allt upp talið. Bíóhúsin
hafa haldið uppteknum hætti,
þetta sumarið sem það síðasta, og
verið sjálfum sér til skammar
með því að sýna fimmta flokks
myndir og þar fyrir neðan. Ekki
er kyn þó vídeópúkinn fitni á
bitanum. Önnur félagsleg sam-
neysla hefur verið í lágmarki og
lítið eða ekkert borið á tilraunum
í þá áttina að koma á laggirnar
einhverju því sem veitt gæti sköp-
unargleðinni útrás, og allur al-
menningur gæti verið með í, án
teljandi tilkostnaðar.
Eg ætla að leyfa mér að koma á
framfæri hugmynd að frekari
sumarauka, að vísu er hún ekki
ekki ný af nálinni, frændur vorir
og vinir á Norðurlöndum. Danir
og Norðmenn, hafa gert hana að
veruleika með mjög góðum ár-
angri - sumarkarnival! Danir
hafa mesta reynslu í þessháttar
hátfðahaldi, hafa haldið hvíta-
sunnukarnival sl. tvö ár og í vor
hleyptu norskir slíkri hátíð af
stokkunum með góðum árangri,
þó í grenjandi rigningu væru.
Auðvitað getur svona samkoma
engu breytt héðan í frá á þessu
sumri, enda það svo að segja fyrir
bí, en hægt væri að hefjast handa í
skammdeginu í haust við að
undirbúa og skipuleggja hátíð
fyrir næsta sumar. Það er ekki ráð
nema í tíma sé tekið og ef mark er
takandi á orðum veðurfróðra
manna heldur áfram að kólna hér
á norðurhveli jarðar á næstu ára-
tugum. Heppilegasti tími fyrir
sumarkarnival gæti verið í kring-
um Jónsmessuna, þá ætti snjóa
að hafa leyst, og ef vikið er á ný
að fórnatali veðurfræðingsins, þá
virðist reynsla Dana og Norð-
manna af þessum sambaskröllum
vera góð, alla vegana hefur verið
einmuna veðurblíða í þessum
löndum undanfarin tvö sumur.
Er því vart frekari hvatningar
þörf!
Karnivalið á rætur sínar að
rekja til tímabila í mannkynssög-
unni sem einkennast af kreppu og
valdaröskun. Það var uppreisn
alþýðunnar gegn trúaroki kirkj-
unnar á miðöldum. Karnivalið
var sá neisti sem tendraði upp-
reisnarbálið - leiddi til byltingar
á öllum hefðbundnum valdahlut-
föllum og afmáði stéttaskiptingu.
Karnivalið var sigurhátíð bylting-
arinnar - jafnframt því að vera
hámessa óþvingaðrar lífsgleði og
útrásar. Á karnivali voru engin
skil á milli þátttakenda og áhorf-
enda - þá breyttust götur og torg í
eitt stórt leiksvið iðandi af lífi.
Og karnival í Reykjavík gæti,
ef vilji er fyrir hendi, gefið spegil-
mynd af ástandi þjóðmála á ís-
landi. Og í öðrum löndum.
Af vopnavitfirringarkapphlaupi
stórveldanna. Af kúgun minni-
hlutahópa og alvarlegu ástandi í
atvinnu- og húsnæðismálum. Það
er spurning um vilja þátttakenda.
Karnivalið á að vera uppreisn
gegn rótgrónum hefðunt í þjóðfé-
laginu. Látum fjötra hins daglega
lífs lönd og leið og „lifum frjálst
vort hugar þor", því dæmi frá
Danmörku sýna að það er hægt
að nota karnival í pólitískri bar-
áttu; sumir mótmæltu heimsvald-
astefnu, en aðrir börðust gegn
gróðahyggju, sem tröllríður hin-
um vestræna heimi í dag.
Ég ætla að enda þennan pistil
nreð því að vitna í norska rithöf-
undinn Kjartan Flögstad. sem
hlotið hefur bókntenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, en hann svar-
aði, þegar hann var spurður hvort
það þjónaði einhverjum tilgangi
að innleiða karnival á Norður-
löndum: „Já. Á Norðurlöndum
höfum við meira þjóðfélagslegt
frelsi en hæfileikar okkar geta
nýtt. Við höfurn þörf fyrir „karni-
valshyggjuna" til að upplifa frels-
ishugntyndir okkar."