Þjóðviljinn - 06.08.1983, Side 22

Þjóðviljinn - 06.08.1983, Side 22
22 SÍÐA. — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7- ágúst 1983 um helgina Á Kjarvalsstöðum Nú á mánudagskvöldiö klukk- an 20.30 mun hin rómaða Strengjasveit Tónlistarskólans í Reyk javík halda tónleika á K jar- valsstööum. Stjórnandinn er Mark Reedman og er sveitin ásamt honum senn á förum til Aberdeen í Skotlandi þar sem henni hefur verið boðið að taka þátt í alþjóðlegri tónlistarhátíð ungmenna. Menntamálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og ýntis fyrir- tæki og einstaklingar haf;i stutt sveitina til fararinnar og flytur hún þeim öllurn þakkir. A tönleikunum á Kjarvalsstöð- um á mánudagskvöldiö verða leikin verk eftir Púrcell, Bach, Grieg, 1 lindemith og Respighi og verða þær Auöur FFafsteinsdóttir fiðluleikari og Svava Bernharðs- dóttir lágfiðluleikari einleikarar. I’essir tónleikar Strengja- sveitarinnar verða þeir síðustu sem hún heldur í núverandi mynd því meirihluti meðlima er á för- um til náms í útlöndum næsta haust. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn. Hallsteinn Sigurðsson Sýnir á Kjarvalsstöðum Á morgun opnar Hallsteinn Sigurðsson sýningu að Kjarvals- stöðum á skúlptúrum og eru verkin átta að tölu, unnin í járn og ál. Hallsteinn nam viö Myndlista- og handíðaskólann 1963-'66 og í London frá 196-'72. Hann hefur haldið einkasýningar hér á landi 1971. '72, '75. '80, '81 og '83 og að auki tekiö þátt í fjölda samsýn- inga bæði heiina og erlendis. tíijómsveit frá Bandaríkjun um Sumarhátíð stendur nú fyrir dyrum hjá þroskaheftum og vel- unnurum þeirra og verður hún að þessu sinni haldin veitingahúsinu Broadway í Reykjavík, miðviku- daginn 10. ágúst. Þar verður margt til gamans gert og m.a. koma fram gestir frá Bandaríkj- ununi, kórinn The River City Good Time Band. Kór þennan mynda 12 söngv- arar c'g hljóðfæraleikarar frá borginni Sacramento í Kalíforníu og var hann stofnaður árið 1976. Hópur þessi er sérstæður að því leyti. að félagarnir eru allir þroskaheftir. Hjónin Jan Carole Brewer komu honum á laggirnar upphaflega sem lið í prógrammi Sacramentoborgar fyrir þroska- hefta. Þau hjón eru bæði tónlist- armenn og sérkennarar og mikið áhugafólk um lið tónlistar í al- mennri menntun. The River City Good Time Band hafa komið fram víða í Bandaríkjunum bæði á hljóm- leikum og í útvarpi og sjónvarpi og hvarvetna hlotið lof mikið fyrir frammistöðuna. Þau munu koma fram aðeins í þetta eina skipti hér á landi, en þau eru á heimleið úr hljómleikaferð um Norðurlöndin. Þau eru lifandi dænti um það hversu langt er hægt að ná í endurhæfingu þrosk- aheftra og hvernig hjálpa má þessum einstaklingum til að öðl- ast meiri lífsfyllingu. Á sumarhátíðinni mun hljómsveitin/kórinn vera með skemmtiþætti ásamt því að leika fyrir dansi undir. lokin. Þá koma fram fjölmargir innlendir skemmtikraftar og áreiðanlega verður mikið fjör. Listmunahúsið: Nína Gauta- dóttir sýnir leðurverk í dag, laugardag, klukkan 14.00 opnar sýning í Listmuna- húsinu við Lækjargötu, á verkum Nínu Gautadóttur og eru þau unnin í leður á striga. Nína Gautadóttir nam í París árin 1971-1976 en þá lauk hún burtfararprófi í málaralist og næstu árin stundaði hún fram- haldsnám í höggmyndalist og list- vefnaði. Nína hefur tekið þátt í fjölda samsýninga en aðeins einu sinni áður sýnt hér á landi: það var árið 1980 og voru á þeirri sýningu ein- göngu veflistarverk. Síðustu tvö árin hefur hún búið í Níger og þar hefur hún unnið þau verk sem verða til sýnis í List- munahúsinu. Sýningin er sölusýning og verður opin virka daga frá kl. 10.00 - 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00 - 18.00. Á mánudögum er lokað. Sýning- unni lýkur 21. ágúst. - gat í Skálholti Á öðrum surnartónleikum í Skálholti, sem verða laugardaginn 6. ágúst og sunnudaginn 7. ágúst kl. 15.00 síðdegis, verða fluttar þrjár sónötur fyrir barokkfiðlu og Þessi geitungadrottning fannst í Reykjavík 1978, hins vegar er lítil von fyrir skordýraskoðunarmenn að tinna geitunga núna í þessum kuidum. Skoðunarferð NVSV ídag Skordýr skoðuð Náttúruverndarfélag Suðvest- urlands efnir á morgun til sinnar fimmtu skoðunarferðar um Reykjavík og nágrenni. Ferðin hefst klukkan 13.30 við Norræna húsið, þaðan verður farið í Náttúrufræðistofnun Ls- lands og þar skoðuð smásýning á skordýrum sent sett hefur verið upp í tilefni ferðarinnar. Að því búnu verður haldið út í náttúruna þarsem Erling Ólafsson dýrafræð- •ingur sýnirþátttakendumýmis skordýr; farið verður í Öskjuhlíð og hugað að gildrum og svipast um eftir smádýrunt, og ef veður leyfir verður hugsánlega farið í Heiðmörk.Áhugasamir skordýra- rýnendur skyldu hafa með sér dósir og flísatengur. Fargjald verður 150 krónur og frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. - gat myndlist Þann 4. ágúst var opnuð í sýn- ingarsal Bókhlöðunnar á Akra- nesi sýningsem menntamálaráðu- neytið og Menningarstofnun Bandaríkjanna á íslandi standa sameiginlega að. Þetta er sýning á framlagi ís- lendinga á Scandinavia Today sýninguna sem haldin var á sínunt tíma í Bandaríkjunum. Sýningin verður opin í tvær vikur á meðan bókhlaðan sjálf er opia Nýverið opnaði grænlenska listakonan Kistat Lund sýningu á myndum sínum í anddyri Nor- ræna hússins. Kistat Lund hefur bæði haldið einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum í heimalandi sínu og víðar. Hún sækir viðfangsefni sín til grænlenskrar náttúru og þjóð- sagna. í tengslum við sýninguna verða grænlenskar bækur af ýmsu tagi til sýnis á bókasafni Norræna hússins. Sýningin er opin á venju- legum opnunartímum hússins. - gat tónlist í dag. laugardag, klukkan 17.00 sfendur Islandsdeild „Ung Nordisk Musik“ samtakanna fyrir tónleikum í Norræna hús- inu. Árleg tónlistarhátíð samtak- anna verður haldin í Osló í lok ágúst og nú er tækifærið að kynn- ast framlagi íslands á þá hátíð. Að sögn aðstandenda tón- leikanna verða þrjú verk valin til flutnings í Osló.Þeir sögðu einn- ig að mikið væri um að vera hjá ungum tónskáldum nú um mund- ir og ný kynslóð tónskálda væri að koma fram á sjónarsviðið. Ekki töldu þeir að ein stefna væri öðrum fremur ríkjandi; nútíma- tónlist væri afar ólík innbyrðis og erfitt að fella hana undir einn hatt. Á tónleikunum í Norræna hús- inu í dag verða frumflutt verk eftir Kjartan Ólafsson, sem semur við kafla úr Píslarsögu Jóns Magnússonar; Hauk Tóm- asson, sem semur kvartett fyrir píanó, selló, fiðlu og klarinett; Mist Þorkelsdóttur sem kallar verk sit Nótflót og Atla Ingólfs- son sem nefnir sitt verk Nót. Að auki verða flutt verk eftir Hilmar Þórðarson, Guðna Ágústsson, Lárus H. Grímsson. - gat Hanne Juul vísnasöngkona heldur tónleika á mánudagskvöld í Norræna húsinu klukkan 20.30. Hún syngur norrænar vísur og leikur undir á gítar. Hún starfar nú í Svíþjóð en hefur ferðast unt öll Norðurlönd og haldið tón- leika. Hanne bjó á íslandi í 9 ár og átti m.a. hlut að stofnun „Vísnavina" en nú er hins vegar nokkuð um liðið síðan hún söng hér síðast. Miðarnir á tónleikana eru seld- ir í bókasafni Norræna hússins í dag og á morgún og ennfremur við innganginn. - gat ýmislegt Árbæjarsafn verður opið laugardag og sunnudag frá klukk- an 13.30- 18.00. Klukkan 16.00 á sunnudag mun Kolbeinn Bjarna- son flautuleikari spila fyrir gesti. Kaffiveitingar verða báða dag- ana í Eimreiðarskemntu. Aðgangseyrir er 40 kr. fyrir full- orðna og 20 kr. fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára. Laugardag og sunnudag: Sumar- tónleikar sembal eftir J.S. Bach. Mun það Flytjendur eru Michael Shelton, fátítt hérlendis að heyra þessi verk fiðluleikari, og Helga Ingólfsdótt- flutt í upprunalegri mynd. jr, semballeikari.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.