Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA'- ÞJÓEmiiJINf^ tíéigín 'á:. —9/'*íkíf6ber'l(983's'-,'< DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastióri: Guörún Guömundsdóttir- Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ölafssen Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Sigríöur H Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaöamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gislason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson. íþróttafrettaritari: Viöir Sigurösson. Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.'' Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. 1 Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar Auglýsingar: Ásláug Jóhannésdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bilstjóri: Ólöf Siguröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdottir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavik, simi 81333. Umbrot og setning: Prent Prentun: Blaöaprent h.f. p itst Jor nargrci n u Birgðasöfnun lóða í „Nígeríu Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur búið sér til sitt skreiðarvandamál og sína Nígeríu. Á borgar- stjórnarfundi í fyrradg viðurkenndi Davíð Oddsson borgarstjóri að fréttir Pjóðviljans um hrikalega fjár- hagsstöðu borgarinnar væru réttar. Hann kvað rétt að greiðslustaða borgarinnar væri erfið, en hér væri um skammtímavandamál „vegna birgðasöfnunar lóða“ að' ræða. „Birgðasöfnun lóða“ þýðir á mannamáli að borg- arsjóður þarf að bera kostnað af undirbúningi lóða í Grafarvogi sem ekki hafa gengið út og reynast óseljan- leg vara í bráð. Grafarvogurinn verður „Nígería“ vegna þess að hann var frá upphafi óheppilegur til lóðasölu, skipulag ekki miðað við þarfir væntanlegra íbúa, og svo kauprán í landi til þess að bæta gráu ofan á svart. Og eins og landsstjórnin nú stendur í samningum við Seðla- bankann í Nígeríu leitar Sjálfstæðisflokkurinn ásjár Seðlabanka íslands til þess að bjarga greiðsluvand- ræðum vegna „birgðasöfnunar lóða“. Útávið lætur borgarstjórinn í Reykjavík mannalega. Samt stefnir í það að fjárvöntun borgarinnar nemi meira en öllu framkvæmdafé borgarinnar á þessu ári sem er 340 milljónir króna. Hlaupareikningur númer 56 í Landsbankanum er þegar orðinn aðalviðskipta- banka borgarinnar mikill höfuðverkur. Yfirdráttur borgarinnar á númer 56 er um þessar mundir 12% af tekjum borgarsjóðs. „Birgðasöfnun lóða“ svarar ekki til nema 155 milljóna af þeirri skuld sem borgin stefnir í um áramótin og þá má ætla að eftir standi 200 milljónir króna, sem fallið hafa til af öðrum ástæðum. Kristján Benediktsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins benti á það í borgarstjórn að fyrir 2 árum hefði Lands- bankinn ekki treyst sér til þess að fleyta áfram 28 milljónum króna fyrir borgina, og það væri sannarlega breyting til batnaðar ef hann gæti bjargað Reykjavíkur- borg um 300 milljónir við næstu áramót. „Nígería“ Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er á hans eigin ábyrgð. Hann var varaður við en lét ekki segjast. „Birgðasöfnun lóða“ getur reynst borgarbúum dýr, því að eins og Sigurjón Pétursson sagði í borgarstjórn þá er það þekkt að ef birgðasöfnun er utan skynsamlegra marka þá er hæpið að reikna hana upp að fullu. Reikn- ingnum fyrir kostnað vegna „birgðahalds á lóðum“ verður framvísað til borgarbúa í einhverri mynd, þegar bankakerfið getur ekki lengur haldið Sjálfstæðis- flokknum í Reykjavík á floti í skuldasúpu sinni. iVi /í* - ekh. Gœðammin Jóhann J.E. Kúld, sem um árabil hefur ritað um fiskimál í Pjóðviljann hefur birt rökstudda gagnrýni á fræðslukvikmynd sjávarútvegsráðuneytisins, sem sýnd var í sjónvarpinu fyrir viku. í ljós kemur að „sérfræð- inga“ greinir á um aðgerðir við blóðgun og slægingu fiskjar um borð í skipunum. Það er úr vöndu að ráða fyrir sjómenn, þegar þeir sem kenna eiga vinnubrögð er stuðlað gætu að betra hráefni, greinir á um leiðir. Ekki verður annað séð en að sú aðferð sem kennd var í kvikmyndinni sé óhæf við aðstæður um borð í skipum þó að hún kunni að ganga upp á rannsóknarstofum með sérhönnuðum búnaði. Annars er það skoðun margra að ekki sé við sjómenn og fiskverkunarfólk fyrst og fremst að sakast þegar rætt er um hráefnisgæði. Það eru ráðamenn í fyrirtækjum, stofnunum og landsstjórn sem ráða úthaldstíma skipa, útbúnaði, verðlagningu og stjórnun, Umræðan um gæðamálin leiðir í ljós að það er fyrst og fremst í á- kvörðunum um þessa þætti sem finna má ástæður til þess að hráefni verður lélegt. En ekki bætir úr skák þegar menn eru ósammála um bestu vinnubrögð við veiðar og vinnslu. - ekh. Morgunþátturinn „A virkum degi’ Það mun hafa komið í ljós í hlustendakönnun Hljóðvarpsins, að morgunþáttur Stefáns Jóns Hafstein í vetur er leið, var í hópi þeirra þátta sem hvað mesta hlustun hafði. Nú er Stefán farinn utan til náms en morgunþáttur- inn heldur áfram með nýjum stjórnendum. Þau heita Stefán Jökulsson, sem er ábyrgðarmað- ur þáttarins, Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Ólafur Þórðarson, sem sér um tónlistarhlið þáttarins. Okkur lék forvitni á að hitta hina nýju morg- unþátta-stjórnendur og heyra í þeim hljóðið eftir fyrstu vikuna. Þegar okkur bar að garði voru þau Stefán og Kristín að ljúka símaviðtalstíma, þar sem hlust- endum gafst kostur á að bera fram spurningar sem síðan verð- ur leitað svara við. Vinnuaðstaða þeirra í þessum símaviðtalstíma var í fundarher- bergi útvarpsráðs og kom það okkur nokkuð spánskt fyrir sjón- ir. Sjáðu til, útvarpshúsið er fyrir löngu orðið of lítið, raunar kol- sprungið og sú vinnuaðstaða sem við höfum hér er lítil skonsa sem er þarna framá gangi, en við verðum að deila henni með Páli Heiðari og Páli Magnússyni, sem sjá um síðdegisþátt. Nú eru þeir að undirbúa sinn þátt og þá verð- um við að fara hingað inn, um Þrír af fjórum umsjónarmanna morgunþáttarins „Á virkum degi“ vinstri Kolbrún, Stefán og Kristín. - (Ljósm.: —eik—). frá Vonum að fiðringurinn fari aldrei aðra aðstöðu er ekki að ræða. Við ættum eiginlega að skýra þáttinn eftir vinnuaðstöðunni og kalla hann „Á hrakhólum", sagði Stefán Jökulsson. Stefán sagði að hann væri ekki alls óvanur útvarpinu, hann hefði verið með þátt í fyrra, en aftur á móti eru þær Kristín og Kolbrún nýliðar. Kristín sagði að sér þætti þetta allt saman mjög spennandi og skemmtilegt og margt hefði komið sér á óvart í byrjun, en mest á óvart kom mér þó hversu tæknimöguleikarnir eru miklir, ég átti ekki von á því að þeir væru eins miklir og raun ber vitni, sagði Kristín. Hún sagðist auðvit- að eiga margt ólært, sem útvarps- maður, enda ekki nema vika liðin síðan hún kom fyrst fram í út- varpinu. Merkilega róleg - Hvernig leið þér sl. mánu- dagsmorgun, þegar þú komst fyrst fram í útvarpinu? Ég var alveg merkilega róleg, það var vissulega fiðringur í manni og er enn, en ég hélt að ég yrði taugaóstyrkari. Það bjargaði miklu að við höfðum eina „gener- alprufu" eins og það heitir á leikhúsmáli, tókum það uppá segulband og hlustuðum síðan á. Þar komu ýmsir hnökrar í ljós sem okkur hefur vonandi tekist að lagfæra, sagði Kristín. - Er þá allur taugatitringur búinn? Stefán sagði svo ekki vera, það væri alltaf fiðringur og að von- andi yrði hann alltaf, því annars væri hætta á að menn slökuðu á. Ætli við getum ekki orðað það svo að við svitnum minna í lófun- um núna en í byrjun, sagði hann. - Vinnutími ykkar, er hann langur? Hann getur verið það, sagði Stefán. Við mætum hér kl. 6 á morgnana og förum þá yfir hand- ritin, en ég tel vel unnin handrit lykilatriði þess að þátturinn takist vel. Nú, síðan byrjar þátturinn kl. 7.15 og við erum að til kl. 9 en inní þetta kemur leikfimi og frétt- ir. Þegar útsendingu er lokið komum við saman og spjöllum um þáttinn og leggjum drög aö næsta þætti. Við höfum svo tíma frá kl. 9.30 til 12.00 til upptöku í stúdíói, en það er alltaf eitthvað af efninum sem er tekið upp fyrir- fram, en annars reynum við að hafa sem mest af svokölluðu lif- andi efni í þættinum. Annars þori ég að fullyrða að gerð svona þátt- ar er mun meiri vinna en flestir halda, sagði Stefán. Þau Stefán og Kristín voru þessu næst spurð að því hvernig farið væri að því að láta efnið passa uppá sekúndu, til að mynda þegar fréttir hefjast kl. 8. Þau sögðu að það væri í raun mjög auðvelt, aðeins smá „trix“ eins og þau komust að orði. Þetta er gert þannig að við eigum alltaf segul- bandsstubb uppá nákvæmlega 5 mínútur, með tónlist eða öðru efni og hann er settur af stað þeg- ar klukkuna vantar 5 mínútur í 8 og þá smellur allt saman. Hins- vegar benti Stefán á, að ef frétta- tíminn verður lengri en 5 mínút- ur, sem vel getur komið til ef eitthvað merkilegt er í fréttum, þá verða þau að umreikna allt uppá nýtt ásamt tæknimönnum, þannig að efnið passaði þegar þættinum lýkur kl. 9. Óttast ekki hugmyndaþurrð - Er ekki hætta á því þegar fólk er með nærri 2ja tíma daglegan þátt í útvarpi að upp komi hug- myndaþurrð varðandi efni þátt- arins? Ég óttast það ekki sagði Stef- án. Þar kemur margt til. Við telj- um okkur ágætlega hugmynda- rík, síðan mun RÚVAK koma inní þáttinn, þá erum við með menn úti á landi, sem senda okk- ur efni í þáttinn, raunar líka fólk erlendis og síðast en ekki síst er alltaf gaukað manni hugmyndum frá hlustendum. Og það er ein- mitt það sem við viljum. Við vilj- um vera í sem nánustu sambandi við hlustendur. Ég vil líka taka það fram, að við erum ekki fréttastofa númer tvö, heldur erum við að reyna að gera þátt, þar sem lögð er áhersla á hinar mannlegu hliðar tilverunnar og mannleg hugðarefni, sagði Stef- án. Að lokum voru þau spurð að því hvort það væri ekki nokkuð erfitt og bindandi að þurfa að vakna kl. 5 á hverjum virkum degi og vera komin til vinnu kl. 6? Þau voru sammála um að svo væri að vissu marki. Kvöldráp og útstáelsi kemur ekki til greina hjá þeim sem vakna þurfa kl. 5 og eiga svo að vera upplagðir og vel undirbúnir fyrir beina útvarps- sendingu kl. 7.15, en þau sögðust hafa ánægju af starfinu og það væri mikíu meira virði en eitthvert kvöldráp. - S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.