Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 9
tp; Y*dni)Eo A' - «? rúgbft V’WlCJ/VCH/i'í - * iW? 8 Helgin 8.-9.’október 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 I l Fegurð, kraftur og hraði hestsins hafa alla tíð heillað Ragnar Sextugur „jöklari” í Lækjargötu er í fullu samræmi við næmleika hugans. Peir sem hafa séð hina ágætu grein Gísla Sigurðssonar í lesbók Morgunblaðsins frá 10. september síðastliðnum verður eflaust star- sýnt ásíðastastórvirki Ragnars sem er hin 6 metra háa mynd hans af Bárði Snæfellsáss sem hann hefur seitt út úr jöklinum eftir 1000 ára veru þar. Dæmigerð hugljómun hjá honum. Þarna stendur tröllið Bárður traustum fóturn í Stapa, alveg eins og Ragnar stendur traustum fótum fremstur núlifandi íslenskra mynd- höggvara, lærifaðir margra þeirra og vinur sem aldrei segir misjafnt orð um þá sem ekki hafa hlotið náðargáfuna. Rammíslenskur listamaður sem á rætur sínar djúpt í hrauni og mosa Snæfellsness, uppalinn með jökulinn að baki, sjávarhamra og brim framundan. Þarna dvaldi hann á sextugsafmæli sínu með öðrum „Jöklurum" og vann stórvirki. Myndir Ragnars bera þess glöggt vitni að hann hefur ekki látið glepjast af innfluttum „ismurn" en hefur skapað sér sinn eigin sterka stíl sem ég vildi kalla á íslensku ýkjustíl. Fólkið og dýrin til sjávar og sveita hafa orðið yrkis- efni hans. Ekki veit ég hvort dálæti Ragn- ars á hestinum er frá þeirri tíð er þeir „tvímenntu" á merinni, hann og graðfolinn á förnum vegi, báðir 10 vetra gamlir, en víst er að fegurð kraftur og hraði hestsins hafa alla tíð heillað hann. Manneskjan Ragnar Kjartans- son er ekki síður áhugaverður en verk hans. Það er sama hvort hann situr með rissblokkina, vatnslita- pensilinn eða gítarinn, syngjandi, allt gerir hann með hlýju og inni- leik náttúrubarnsins. Sýning Ragn- ars í Listmunahúsinu er listvið- burður. Það er enginn svikinn sem gengur tröppurnar í Lækjargötu 2 og litast þar um. Arni Jónsson. Maður með stóran haus, stóran búk, hendur og fætur í samræmi og umfram allt stóra sál. Hvað er maðurinn að gera í Lækjargötu? Hann er að sýna list sína í „galleríi" sem fáir vita að er til. í litlu húsi Ragnar. Ljósm.: gel. sem hvorki er norrænt eða nefnt eftir meistara Kjarval. Þetta hús stendur á mesta umferðarhorni borgarinnar. Ef við leitum vel, finnum við litlar dyr syðst á þessu húsi og þar inn af stiga upp á loft. Þarna uppi leynist ljómandi falleg- ur sýningarsalur og þarna hefur Ragnar Kjartansson myndhöggv- ari sett upp einkasýningu. Einkasýningu myndhöggvara sem er gífurlegt átak. Ekki ætla ég mér þá dul að skrifa um einstaka verk Ragnars, enda verða sjálfsagt til þess sérfræðingar. Þarna heldur Ragnar mikla afmælisveislu í leir og býður alla velkomna, ef ég þekki hann rétt. Ég kalla hann stundum leirskáld en þegar Ragnar fer að yrkja í þetta efni sem hefur fylgt manninum alla tíð til gagns og gleði, þá er það enginn leirburður. Næmleiki þessara stóru handa Vió minnum á vetrar- skoóunina I Í)SKODA 3.0 t verð m/ssk. kr. 1.086 £Z$cl> G&emee' 4.0 t kr. 1.447 4 cyl. 3.0 t kr. 1.086 6cyl. 3.5 t kr. 1.266 CHRYSLER 8cyl. 4.0 t kr. 1.447 Markús Úlfsson, móttökustjóri þjónustu- deitdar, tekur við bókunum og veitir allar frekari upplýsingar um vetrarskoðunina. Meö fullkomnum rafeindamæfitækjum sem tengd eru við vélina og rafkerfi hennar má mæla öll gangstig af mikilli nákvæmni. Auk þess sem „Vetrarskoðunin" ætti að fyrirbyggja alls kyns hugsanleg óþægindi sem óneitanlega fylgja vetrarakstri, er ástæða til að vekja athygli bifreiða- eigenda á þeim bensínsparnáði sem rétt stillt vél hefur í för með sér. Vanstillt vél getur hæglega kostað eigandann þúsundir króna í óþarfan bensínkostnað á tiltölulega skömmum tíma. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 Einar Erlingur Fjórða alþjóðasambandið 45 ára ÍSLENSKA ÓPERAN Askriftarkort Fylkingin efnir til almenns fundar í dag laugardaginn 8. október kl. 15:00 á Hótel Borg í tilefni af 45 ára afmæli Fjóröa alþjóða- sambandsins. Fagnaöur um kvöldið. Takmarkað upplag miða. Sósíalistar! Mætið og kynnið ykkur stefnu og baráttu eina alþjóðasambands byltingarsinnaðra marxista í 45 ár. Sala áskriftarkorta er hafin á eftirtaldar sýningar: La Traviata eftir Verdi Rakarinn í Sevilla eftir Rossini Nóaflóðið eftir Britten Styrktarfélagar hafa forkaupsrétt til þriðjudagsins 11. október. Miðasala opin daglega frá kl. 15-19. Almenn sala áskriftarkorta hefst miðvikudaginn 12. október. Fundarstjóri: Pétur Tyrfingsson. Ræður og stutt ávörp flytja Einar Ólafsson Erlingur Hansson Kormákur Högnason Már Guðmundsson Svava Guðmundsdóttir Pétur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.