Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 11
Helgin 8.-9. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Doktor í
einokunar-
versluninni
Gísli Gunnarsson sagnfræð-
ingurvarði 17.septembers.l.
doktorsritgerð við Háskólann í
Lundi í Svíþjóð og nefnist hún
Einokunarverslun og efna-
hagsleg stöðnun. Rannsókn á
utanríkisverslun íslands 1602-
1787. Ritgerðin er komin út í
bókarformi á ensku (Monopoly
Trade and Economic Stagnati-
on).
j Dr. Gísli Gunnarsson leggur í
ritgerð sinni sérstaka áherslu á að
kanna samspil einokunarverslun-
arinnar og úreltra íslenskra samfé-
lagshátta á umræddu tímabili en
rannsókn á þeim skipar stórt rúm í
verkinu. Utanríkisverslun hafi ver-
ið mikilvægur þáttur í íslensku
samfélagi á 18. öld miðað við hugs-
anlegar „þjóðartekjur". Hann
kemst að þeirri niðurstöðu að ein-
okunarverslunin hafi hindrað
veigamiklar breytingar á íslenskri
samfélagsgerð, þar á meðal fram-
farir í atvinnumálum, einkum fisk-
veiðum. Aðeins með auknu versl-
unarfrelsi hafi efnahagslegar fram-
farir verið mögulegar á íslandi.
Gísli hefur jafnframt gert ítar-
lega könnun á bókhaldi einokun-
arkaupmanna, einkum á tímabi-
linu 1743-1787, og birtir í ritgerð
sinni yfirlit um gróða eða tap versl-
unarinnar fyrir hvert ár. Verslunin
skilaði flest árin hagnaði, en inn á
milli komu tímabil umtalsverðs
tapreksturs. Hann kemst að þeirri
niðurstöðu að tveir þættir hafi
einkum ákveðið hag verslunarinn-
ar: Viðskiptakjör kaupmanna er-
lendis (en verðlag á íslandi var fast-
ákveðið og óháð erlendum verð-
lagssveiflum) og samsetning og
magn íslensks útflutnings, sem
breyttist kaupmönnum í óhag þeg-
ar harðindi voru í landinu. Stafaði
það m.a. af því að helsta hagnaðar-
von kaupmanna fólst í fiskútflutn-
ingi en hins vegar töpuðu þeir að
jafnaði á ullarútflutningi.
Dr. Gísli Gunnarsson gerir einn-
ig í bók sinni rannsókn á viðskipta-
tengslum einokunarkaupmannanna
í Evrópu og kemst m.a. að þeirri
Gísli Gunnarsson: nýbakaður
doktor frá Lundi. Ljósm.: eik.
niðurstöðu að Hamborgarar hafi
haldið áfram þeirri hefð, sem hófst
á 16. öld, að ráða mestu um sölu
íslensku skreiðarinnar nær allt ein-
okunartímabilið, þótt einokunin
hafi upphaflega verið sett þeim til
höfuðs. Raunar virðist Kaup-
mannahöfn oft hafa verið illa í
stakk búin að annast íslandsversl-
unina, sem þó var mikilvægasti
þátturinn í verslun kaupmanna
borgarinnar við fjarlæg lönd fram
yfir 1730. Sést þetta m.a. á athug-
unum hans á skipakosti
Kaupmannahafnar og Islands-
verslunarinnar.
Dr. Gísli Gunnarsson er fæddur í
Reykjavík 1938, sonur hjónanna
Gunnars Jóhannessonar og Mál-
fríðar Gísladóttur. Hann lauk prófi
frá Edinborgarháskóla 1961 og
stundaði framhaldsskólakennslu í
Reykjavík til 1972. Síðan hefur
hann stundað framhaldsnám, há-
skólakennslu og rannsóknarstörf
og hafa komið út eftir hann í fræði-
grein hans, hagsögu, ýmis rit og
greinar auk doktorsritgerðar.
Hann er kvæntur Sigríði Sigur-
björnsdóttur og eiga þau þrjár dæt-
ur. Doktorsritgerðin er til sölu í
takmörkuðu upplagi í Bóksölu stú-
denta og afgreiðslu Sögufélagsiris.
- GFr.
Kalmar
eldh úsinnrétting
hefur ibað sem barf
Sú mikla fjölbreytni sem er að finna í útliti og skápagerðum gerir okkur kleift að
laga innréttingar að hvaða rými sem er.
Við ráðleggjum, mælum og teiknum yður að kostnaðarlausu.
Sá sem eignast Kalmar-innréttingu, eignast vandaða vöru á vægu verði.
Jogginggallar 495 kr
Nærföt 49 kr.
Vattblússur 590 kr.
Kakibuxur 399 kr.
Gallabuxur 399 kr.
Vinnuskyrtur 199 kr
Barnaúlpur 100 kr.
Háskólabolir 249 kr.
I LEIFTURSÓKNARSALNUM, SKÚLAGÖTU 26
ATH:
Mikið úrval af fatnaði á
Aðeins 100 kr.
VINNUFATABUÐIN