Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 13
Helgin 8.-9. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Fyrsta sýningin í Ljósmyndaskálanum eru aldamótamyndir frá
Reykjavík, flcstar teknar af Magnúsi Ólafssyni.
Nýr sýningarstaður við Óðinstorg:
Ljósmyndaskálinn
Að Týsgötu 8 hefur nú göngu
sína Ljósmyndaskálinn, sölugallerí
með ljósmyndir. Tilgangur með
stofnun og rekstri Ljósmynda-
skálans er að kynna gamlar og nýj-
ar Ijósmyndir, sem hafa listrænt og
menningarlegt gildi.
Viðhorfin gagnvart ljósmynd-
inni hafa breyst mjög hin síðari ár
og gera menn sér þess æ betri grein
að ljósmyndin er orðinn gildur
þáttur í menningu okkar, fyrir-
ferðarmikill í öllu hversdagslífi sem
upplýsinga- og fræðslumiðill, en
jafnframt nýtur Ijósmyndin nú orð-
ið viðurkenningar sem fullburða og
sjálfstæð listgrein. Til vitnis um
þetta er mjög aukið umfang söfn-
unar, skráningar og sýninga á ljós-
myndum.
Ljósmyndaskálinn væntirgóðrar
samvinnu við alla þá aðila sem
hagsmuna eiga að gæta varðandi
ljósmyndir hér á landi, bæði fræði-
menn sem fjalla um hinn sagn-
fræðilega og menningarlega þátt,
en ekki síður ljósmyndarana sjálfa
sem í dagsins önn eru að skapa
sögu með vinnu sinni.
Fyrsta sýning Ljósmyndaskálans
er einmitt til vitnis um það, þar sem
ljósmyndavélin hefur skráð sögu,
þ.e. fæðingu Reykjavíkurhafnar á
árunum upp úr aldamótum. Deigla
þessarar framkvæmdar, sem á
sinnar tíðar mælikvarða var jafn
risavaxin og virkjanaframkvæmdir
okkar tíma, birtist okkur á þessum
ljósmyndum, sem langtum flestar
eru úr safni Magnúsar heitins Ól-
afssonar.
Ljósmyndaskálinn er opinn dag-
lega, milli 2 og 6 virka daga, en
milli 10 og 2 á laugardögum.
Fyrsta bindið i nýju ritsafni komið út:
Islenskir annálar
Anders Hansen skráði
íslenskir annálar heitir ritsafn
sem Bókaklúbbur Arnar og Örlygs
hefur nú hrint úr vör og er fyrsta
bindið komið út. í því er tckið fyrir
tímabilið 1400-1449 en í ritsafninu
verða atburðir íslandssögunnar
raktir lið fyrir lið frá ári til árs.
Ritstjóri þessa safns er Anders
Hansen blaðamaður og sagnfræði-
nemi en Haukur Halidórsson
myndskreytir.
í meginmáli bókarinnar er eink-
um stuðst við forna annála, og er
efni þeirra steypt saman, þannig að
þeir mynda eina heild. Einnig er
leitað fanga í íslensku fornbréfa-
safni, í Árbókum Espólíns, íslensk-
um þjóðsögum og víðar. Við hvert
ár er birt eitt fornbréf, þ.e. bréf
sem skrifað hefur verið við-
komandi ár, og fjalla þau um hin
fjölbreytilegustu efni; jarðakaup,
erfðaskrár, kaupmála og margt
fleira.
Þá eru í bókinni stuttar ritgerðir,
þar sem varpað er ljósi á ýmislegt
það sem annálar segja frá. Meðal
ritgerðanna er t.d. útskýring á
valdsviði hirðstjóra, sagt frá sigl-
ingum milli landa á 15. öld og sagt
frá hvernig umhorfs hefur verið
heima á biskupsstólunum, svo fátt
eitt sé talið.
Á fyrri hluta 15. aldar, sem
fyrsta bindið segir frá, gerðust
merkir atburðir. Par má nefna
Svartadauða, siglingar Englend-
inga til landsins, síðasta sambandið
við Grænland o.fl. Fimmtánda
öldin er öld glæstra höfðingja svo
sem Árna Ólafssonar hirðstjóra og
biskups, Björns Jórsalafara og
Lofts ríka Guttormssonar.
Á annað hundrað mynda eftir
Fiauk Fialldórsson prýða bókina og
fer myndlistarmaðurinn eftir eigin
hugboði um útlit fólks og sviðsetn-
ingu bókarinnar en reynt er að fara
sem næst sanni hvað varðar klæðn-
að, húsakost o.fl. Bókin er 209 bls.
-GFr
VIÐBÓTARLÁIM FRÁ
HÚSNÆÐISSTOFNUN
Reglur um úthlutun viöbótarldna
skv. dkvöróun ríkisstjómarínnar
1.
Umsækjendur, sem fengu eða fá frumlán (1. hluta) til
nýbygginga og lán til kaupa á eldra húsnæði á árunum 1982
og 1983 úr Byggingarsjóði ríkisins, er gefínn kostur á
viðbótarláni allt að 50% af upphaflegu láni þeirra.
2.
Viðbótarlánin koma til greiðslu á árinu 1983 og nema allt að
50% af þeim lánshlutum, sem veittir voru á árunum 1982 og
1983. LánshJutar, sem koma til greiðslu á árinu 1984 verða
með 50% hækkun, skv. ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
3.
Ef framkvæmdaaðili (t.d. byggingarsamvinnufélag) hefur
fengið framkvæmdalán til byggingar íbúða, þá eiga kaupendur
þeirra rétt á viðbótarláni, að því tilskildu að íbúðirnar hafi
verið gerðar fokheldar frá og með 1. október 1981. Ef uppgjör
við framkvæmdaaðila fer fram frá og með 1. janúar 1984
þarf ekki að sækja um viðbótarlán, sbr. 2. tölulið.
4.
Ef um eigendaskipti er að ræða á núverandi eigandi
rétt á viðbótarláni, leggi hann fram þinglýstan kaupsamning
eða veðbókarvottorð.
5.
Viðbótarlán verða afgreidd frá veðdeild Landsbanka íslands
með kjörum, sem giida um nýbyggingarlán (F-lán) og lán
til kaupa á eldra húsnæði (G-Ián). Varðandi veð skal þó
heimilt að taka síðari veðrétti en 1. og 2. veðrétt, að því tilskildu,
að áhvílandi uppfærð lán, að viðbættu viðbótarláni
húsnæðismálastjórnar, nemi ekki hærri fjárhæð en 65% af
brunabótamati íbúðarinnar.
Sækja verður um viðbótarlán á eyðublaði, sem Húsnæðis-
stofnun ríkisins leggur til.
7.
Gmsóknir um viðbótarlán skulu berast Húsnæðisstofnun
ríkisins fyrir 1. desember 1983.
Afgreiðsla lánanna hefst svo fljótt sem unnt er, þótt frestur
til að skila umsóknum standi til 1. desember nk.
c§o Húsnæðisstofnun
ríkisins
Gœði og verö
sem koma á óvart!