Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 20

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983 mhg ræöir við Þórarin Ásmundsson, bónda á Vífilsstöðum í Hróarstungu um búskap, sveitarstjórnarmál, landspólitík o.J7. Ekki þykir mér ótrúlegt að Þórarinnminná Vífilsstöðum í Hróarstungu teljiöruggtaðég séannað hvort steindauður eða óráðsíumaður hinn mesti. Fyrri ályktunin væri röng en sú síðari sjálfsagt ekki fjarri lagi. Ailt hefur sínar ástæður. Og ástæðan fyrir því að mér f innst beinlínis eðlilegt að Þórarinn hugsi á þessa leið er sú, að í sumar-eða var það kannski í vor- kom ég sem snöggvast við á Víf ilsstöðum og falaðist eftir blaðasamtali við Þórarin. En sá hluti heimsbyggðarinnar, sem les Þjóðviljann, hefur ekki séð það viðtal enn, hvað þá aðrir. Svo það er ekki nema von að Þórarinn sé farinn að hugsa mér það óþvegið. Já, það skeði nefnilega þegar ég var að flækjast austur á Héraði þrjá eða fjóra daga í sumar (eða vor), að þeim Vigfúsi Eiríkssyni og Magnúsi Magnússyni í Egilsstað- akauptúni kom saman um að nú skyldu þeir fara með mig út í Hró- arstungu. Kannski var megintil- gangurinn sá að sýna mér sveitina þar sem Vigfús bjó sjálfur lengi og svo hún Anna móðursystir mín á Kirkjubæ og séra Sigurjón maður hennar. Og ekki var nú lakara að hitta í leiðinni eitthvað af góðu fólki, sem auðvitáð er á hverjum bæ þarna í Hróarstungunni, eins og raunar gengur og gerist til sveita. Vigfús réði ferðinni og hann áleit „Greindarvísitalan Þórarinn á Vífilsstöðum og kona hans, Bjarney G. Jónsdóttir. - Mynd: mm. að við hefðum allir gott af því að tala við Þórarin Ásmundsson, bónda á Vífilsstöðum. Fæddur sama áriö og Halldór E. Og allt í einu erum við komnii heim á hlað á Vífilsstöðum. Fyrir dyrum úti stendur Þórarinn bóndi. vörpulegur maður með ljóst skegg, fjörfiskur í augum. - Komið þið í bæinn upp á kaffi og kleinur, segir hann. Og eftir að hafa hvolft í mig úi þremur kaffibollum og hesthúsað kleinur í samræmi við það fer ég að falast eftir viðtali við húsbóndann. - Og andskota kornið, segii hann, - það er ekkert að frétta núna héðan úr Hróarstungunni. - Ertu Tungumaður að ætt og uppruna? - Já, ég verð víst að teljast það. Ég fluttist hingað með foreldrum mínum, Ásmundi Þórarinssyni og Solveigu Sveinsdóttúr 1923 og komum við frá Kleppjárnsstöðum hérísveit. Þarbjuggu þaufrá 1910- 1923 og þar fæddist ég 7. janúai 1915, sama árið og Halldór E., en það hefur víst bara hann einn al þessum árgangi orðið fjármálaráð- herra. Og það er víst nóg. Ég var svo hér hjá foreldrum mínum þar til ég tók við búinu. - Hvernig jörð eru Vífilsstaðir? - Þetta er sæmileg jörð og allstór og það er enginn vandi að búa hérna ef hægt er að búa á annað borð. Vífilsstaðir voru í öndverðu með stærri jörðum í Hróarstungu. En þegar skipt var út úr jörðinni hjáleigunum Heykollsstöðum og Dagverðargerði og síðar Vífilsnesi þá þrengdi auðvitað að heimajörð- inni. Töluvert af landinu ererfitt til ræktunar svo sem flóarnir á er svo há” heiðinni, sem eru flatir og vot- lendir. Niðri við Fljótið er 200 hesta engjaland, Vífilsstaðanes, þurrt að mestu þegar fljótið heldur sér í skefjum en fer undir vatn.í flóðum og er talið liggja of lágt til þess að hægt sé að rækta það. Hlýtt til Vestfiröinga - Árið 1940 fékk ég svo konuna og þá magnaðist ég-um allan helm- ing. Hún heitir Bjarney Jónsdóttir og er úr fjærsta fjórðungnum, af Vestfjörðum. Hún kom hingað upphaflega sem kaupakona og það var góð kaupakona. Síðan hefur mér alltaf verið hlýtt til Vestfirðinga og nú erum við búin að vera gift í 42 ár. - Og hafið eignast börn og buru? - Jú, við höfum tvöfaldað okkur, eigum fjóra stráka. - Ogerueinhverjirþeirraviðbú- skapinn? - Einn þeirra er bóndi, já, Ás- mundur, býr hér á næsta bæ, Þórarinn og félagi Vigfús. Það fór vel á með þeim bæði í póiitíkinni og Heykollsstöðum, en allir eru þeir fræðslunefndinni. Mynd: mm. búsettir hér eystra. Tveir þeirra eru hérna á Fellabæ, þorpinu vestan Lagarfljótsbrúarinnar, Jón verk* stjóri og Eyþór bifreiðastjóri og svo Veigur rafvirki í Egilsstaða- kauptúni, vinnur hjá Rarik. - Veigur, það er sjaldgæft nafn og ég hef raunar aldrei heyrt það fyrr sem mannsnafn. - Já, ég verð líklega að sækja um einkaleyfi á því, ég er hræddur um að farið sé að stela því frá mér. Sonabörnin eru orðin 12 og ætti það að vera nokkur trygging fyrir því að þessi ágæti ættleggur deyi ekki út, fái fólk að lifa hér á jörð- inni á annað borð. En þó að þetta sé á margan hátt góð jörð og við höfum komist þokkalega af þá hef ég aldrei verið neinn stórbóndi og nú er ég að mestu hættur þessu hokri. Með ráöskonu og öllu tilheyrandi Við víkjum talinu að félags- og framfaramálum í sveitinni og þar sem ég hef nokkuð ákveðinn grun um að Þórarinn sé mikill félags- hyggjumaður þá spyr ég um af- skipti hans af þeim. Þórarinn gerir ekki mikið úr því og ég finn að honum þykir flest orðaverðara en eigin störf. - Jú, ég lenti í hreppsnefndinni um tíma og svo var ég nokkuð lengi í skólanefnd með honum Fúsa, (Vigfús Eiríksson, fararstjóri í þessari Hróarstunguför). Sam- vinna okkar var mjög góð og við brösuðum ýmislegt saman í skóla- málunum. Það var hér náttúrlega lengst af farkennsla, eins og gekk og gerðist í sveitum. En svo fór jörðin Stóribakki í eyði 1958 og Landnámið keypti jörðina. Þá datt okkur í hug að taka íbúðarhúsnæð- ið þar á leigu til kennslunnar. Þarna varð heimavist, einskonar skólaheimili með ráðskonu og öllu tilheyrandi. Kennslutíminn lengd- ist þó ekki því krökkunum var skipt og var hvor hópur í skólanum á- kveðinn tíma en heima á milli. Ég tel að þetta hafi gefist vel og að við félagi Vigfús þurfum síst að sjá eftir því að hafa beitt okkur fyrir þessari breytingu. Alltaf horft til sólaruppkomunnar - „Félagi Vigfús", segirðu, og þá finnst mér nú einhvernveginn að við séum farnir að nálgast hin pólit- ísku landamæri. Hefurðu haft mikil afskipti af pólitík, Þórarinn? - Ekki get ég nú kannski sagt það og fer þó eftir því hvað við er átt. En ég varð snemma pólitískur og hef alltaf horft í austur, í átt til sól- aruppkomunnar. Ef menn verða einu sinni róttækir, og hugur fylgir máli, þá verða menn það ætíð upp frá því. En við, þessir róttæklingar hér, höfðum nú líka ágæta kyndara þar sem voru þeir Siggi í Heiðar- seli, - þú hefur nú spjallað við hann, - og Eiríkur Stefánsson. Þeir drógu ekki af sér við að blása í glæðurnar. Hróarstungan var líka kölluð „rauða sveitin'1 og var besta sveitin hér austanlands. Eiðaþing- háin kom næst. Við berum auðvit- að ábyrgð á byltingunni í Rússlandi og öllu því, sem síðan hefur gerst í Sovétríkjunum. Mikil ósköp. Og ég hef aldrei verið óánægður með að vera kallaður kommúnisti, síður en svo. - Það hefur nú stundum veriðtal- að um „svarta sauði" og hefur nú ekki beinlínis þótt virðingarheiti en voru ekki rauðir sauðir í ennþá minni metum hér um slóðir? - Ja, það bar nú undra lítið á því að horn væri haft í síðu okkar fyrir pólitískar skoðanir. Auðvitað var talið nauðsynlegt að líta svona eftir okkur. En við vorum hreint ekki óvinsælir, þessir félagar, held ég, taldir frekar meinlausir öðrum en þá sjálfum okkur. - Hver er skýring þín á því hvað sósíalisminn á miklu fylgi að fagna á Austurlandi?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.