Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983
lÍm
Háskólamenntaðir
- ríkisstarfsmenn
Nú er lokaátakið í undirskriftasöfnuninni.
Skilið útfylltum listum á skrifstofu BHM Lág-
múla 7 nú um helgina. Skrifstofan verður
opin kl. 10-18 á laugardag og frá kl. 10 á
sunnudag.
Fjölmennum á Austurvöll á mánudag kl.
15.00 þegar listarnir verða afhentir.
Launamálaráð ríkisstarfsmanna
innan BBM.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
óskar að ráða HJÚKRUNARDEILDAR-
STJÓRA að Svæfingardeild. Umsóknar-
frestur er til 15. nóvember. Umsóknum sé
skilað til hjúkrunarforstjóra, sem veitir upp-
lýsingar í síma 96-2210.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Minning
Árnmar Andrésson
Reyðarfirði
Fœddur 27.7. 1914
Dáinn 1.10. 1983
Það húmar að og haustar í huga
mínum. Góður félagi og tryggur í
tímans rás hefur kvatt okkur hinstu
kveðj.u. Síst óraði mig fyrir því, að
síðustu samfundir yrðu á hátíðis-
degi verkalýðsins s.l. vor, þar sem
Árnmar var sem jafnan áður hinn
ótrauði talsmaður stefnu og hreyf-
ingar, hertur í eldi kreppuáranna,
reynslunni ríkari af óvæginni lífs-
baráttu lengst af, en fyrst og síðast
hugsjónamaður, sem ungur hafði
kynnst kenningum sósíalismans og
fylgdi þeim af rökhyggju og ríkri
trúmennsku alla tíð.
Sannarlega hefðu samfundir við
hann átt að vera tíðari og í söknuði
daganna nú er hugsað til þeirra
góðu stunda, er ég hef átt á heimili
■ ■■■■■
Sparisjóðurinn í Keflavík
Suðurgötu 6, sími 2800
Sparisjóðurinn Njarðvík
Hólagötu 15, sími 3800
Sparisjóðurinn Garði
Sunnubraul, sími 7100
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur reynt og mun í
framtíðinni leggja áherslu á að vera trúr þeim meg-
insjónarmiðum allra sparisjóða að varðveita og
ávaxta sparifé heimamanna og ráðstafa fjármagninu
til einstaklinga og atvinnulífsins á starfssvæðinu, að
vera brjóstvörn fólksins, svo það fái sjálft notið þess
fjár sem það aflar, og að vera virkur þáttur í baráttu
gegn þeirri miðstýringu valds og fjármagns sem
varpar um of skugga á efnahagslíf þjóðarinnar.
SPARISJÓÐURINN
- Öflug stofnun á athafnasvæði. -
- Stofnun allra Suðurnesjamanna. -
Söluíbúöir
fyrir aldraöa
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund
að Hótel Sögu, Súlnasal, laugardaginn 8. október n.k. kl. 14.00.
Fundarefni: 1. Tekin ákvörðun um byggingu söluíbúða fyrir eldri félagsmenn
VR.
2. Kynntur samningur milli VR og Reykjavíkurborgar um byggingu
og rekstur íbúða fyrir aldraða ásamt samkomulagi um rekstur og
þjónustu fyrir aldraða félagsmenn VR.
3. Kynntar niðurstöður könnunar um hagi aldraðra félagsmanna
VR.
Félagsmenn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka
þátt í ákvarðanatöku um þetta þýðingarmikla mál.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR.
þeirra ágætu hjóna, en alltof sjald-
an nú hin síðustu ár. Ég stend í
ógoldinni þakkarskuld fyrir ár-
veknina og áhugann eldlega alla tíð
í ötulli baráttu fyrir sameiginlegan
málstað.
Það haustar því að í huga mér við
fráfall góðs vinar.
Með Árnmari er genginn einn af
þessum traustu alþýðumönnum,
sem skynjuðu og skildu sinn vitjun-
artíma, áttu bjargfasta sannfær-
ingu, sem ekkert fékk bifað.
Umhugsunarlaust var sú
sannfæring ekki fengin, næm og
góð eðlisgrein sá til þess, hann var
ævinlega la varðbergi og aðvar-
andi, ef honum þótti brugðið af
réttri leið og gagnrýndi ótæpilega
en af sanngirni, ef aðgerðir og at-
hafnir hreyfingarinnar beindust af
braut.
En fyrstur var hann jafnan til
liðs, ef á þurfti að halda, hvort sem
var á félagsvettvangi flokksins, en
fáir sóttu fundi betur en hann, eða
vegna framboðs til sveitarstjórnar,
þar sem hann var með frá upphafi,
vökull og einarður liðsmaður.
Ég kynntist honum fyrst að
marki í verkalýðshreyfingunni, í
félaginu heima, þar sem ég hafði
verið valinn til forystu og þurfti
sannarlega að reiða mig á þá, sem
eldri og reyndari voru.
Árnmar hafði mótast af and-
rúmslofti mikilla sviptinga á sviði
stjórnmála og verkalýðsbaráttu á
Eskifirði, þar sem faðir hans stóð
löngum í fylkingarbrjósti með
þeirri einörðu sveit sósíalista, sem
settu mark sitt á Eskifjörð umfram
aðra staði.
Það var því gott að leita til hans,
enda var hann lengi í trúnaðarráði
félagsins og ævinlega hvetjandi til
sóknar fram á við. Árnmar var
glöggur maður og fróður um margt,
glettinn og spaugsamur og hafði
jafnan svör á hraðbergi í umræðum
um hin margvíslegustu málefni.
Hann var mikill verkmaður og góð-
ur, meðan honum entist heilsa,
einkum voru rómuð handtök hans,
snör og örugg við fiskverkun, þar
sem flýtir og verklagni fóru saman.
Allt fram til síðustu ára átti hann
kindur og búskapur var snar þáttur
í lífsbjörg þeirra hjóna lengi.
Ærnar hans báru vitni fjármála-
mannsins varðandi alla umhirðu og
afurðir voru eftir því. Síst skyldi þó
þætti Sigríðar konu hans, þeirrar
atorkukonu gleymt í því sambandi.
Samhent og ötul unnu þau að því
sem öðru.
Fáein brot úr æviferli Árnmars
skulu rakin hér.
Hann var fæddur 27. júlí 1914 á
Norðfirði. Foreldrar hans voru
hjónin Guðlaug Guðnadóttir frá
Vöðlum og Andrés Eyjólfsson
verkamaður úr Sandvík.
Árnmar átti 3 alsystkini, Eyjólf
búsettan í Hafnarfirði og tvíburas-
ystkinin Jóhann og Sigurborgu sem
bæði eru látin. 3 börn þeirra hjóna
dóu ung.
Andrés faðir hans kvæntist aftur
Guðnýju Stefándóttur og áttu þau
3 börn, Guðrúnu á Sauðárkróki og
Jón og Elís búsetta á Eskifirði.
Foreldrar Árnmars fluttu til
Vaðlavíkur þegar hann var um 3ja
ára, en til Eskifjarðar fluttu þau,
þegar hann var um 10 ár aldur og
þar var síðan æskuheimili hans.
Hann fór ungur að vinna, 15 ára
fór hann á vertíð og var á vetrar-
vertíð á Hornafirði, í Sandgerði og
Keflavík s.s. þá var títt um unga
menn, en síldveiðin var svo stund-
uð á sumrum.
Hugur Árnmars stóð mjög til
smíðanáms, en þröngur efnahagur
og kröpp kjör leyfðu ekki slíkan
munað.
Vorið 1944 flyst hann til
Reyðarfjarðar og hefur búskap í
Bakkagerði og þar stóð heimili
hans til æviloka.
Heitkona hans þá var Sigríður
Gunnarsdóttir, en þau gengu í
hjónaband 27. júlí 1946.
Sigríður er af þeirri alkunnu Bó-
asarætt, dóttirhjónanna Margrétar
Friðriksdóttur og Gunnars Bóas-
sonar útvegsbónda. Sigríður ber
bestu einkenni ættar sinnar, ljóm-
andi eðlisgreind og fágætan dugn-
að. Börn þeirra hjóna eru Andrés
Friðrik á Reyðarfirði, kona hans er
Ósk Svavarsdóttir og eiga þau 3
börn: Gunnar búsettur á Tálkna-
firði, kona hans er Guðbjörg Frið-
riksdóttir og eiga þáu 3 börn; Mar-
grét Björg búsett í Reykjavík,
eiginmaður hennar er Benedikt
Stefánsson og eiga þau einn son;
Guðlaug Sigurbjörg, búsett í
Reykjavík, eiginmaður hennar er
Gylfi Óskarsson og eiga þau tvö
börn; Pétur, búsettur í Vestmana-
eyjum, kona hans er Anna Úrban
og eiga þau tvö börn; Anna Jóna,
búsett á Reyðarfirði, eiginmaður
hennar er Guðmundur Pétursson
og eiga þau tvö börn og yngst er
Guðný Fjóla, við nám í Reykjavík,
en unnusti hennar er Unnar Eiríks-
son.
Gunnar og Guðlaug áttu bæði
eitt barn áður en þau gengu í
hjónaband og Andrés á einn stjúp-
son.
Öll eru þau systkini mesta
manndómsfólk og vel látin í hví-
vetna.
Og nu er Árnmar horfinn af sviði
og hinsta kveðjan komin. Trúr og
sannur félagi, þar sem aldrei bar
fölskva á. Drjúgt starf er að baki,
þegar dagleið þrýtur.
Fyrir samfylgdina og fágætan
stuðning alla tíð eru færðar hug-
heilar þakkir. Fátt er dýrmætara á
lífsleiðinni en slík fylgd. En dýr-
mætust er minning þeirra, sem nú
syrgja eiginmann, föður, tengda-
föður og afa, sem gaf þeim öllum
svo mikið af auði hjarta síns. Ein-
lægar samúðarkveðjur eru sendar
þeim öllum.
Það er hlýtt og bjart um minn-
ingu Ámmars Andréssonar.
Blessuð sé hans minning.
Helgi Seljan
MI.VMNL UISJOiMJK ISLENZKUAH AI.IAIM
SIGFUS SIGURHJÁRTARSON
Minningarkortin eru tilsölu á
eftirlöldurn stöðum:
Bókabúð Máls og menningar
Skrifstofu Alþýðubandulagsins
Skrifstofu Pjóðviljans
Munið söfnunarátak í
Sigfúsarsjóð vegna
flokksmidstöðvar
Alþýðubandalagsins
r.-rr-'ffj
, »fií*t*Í*&