Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 30
30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983
Grafarvogshneykslið í nýjum búningi borgarstjóra:
„Birgðasöfnun lóða!”
er ástæðan fyrir fjárhagsvandanum
„Það er rétt að greiðslustaða borgarinnar hefur valdið
áhyggjum en hún er erfið um þessar mundir vegna þess sem
mætti kalla birgðasöfnun Ióða“, sagði Davíð Oddsson borg-
arstjóri í fyrrakvöld þegar 300 miljóna fjárvöntun Reykja-
víkurborgar var til umræðu á fundi borgarstjórnar. „Þegar
þessar birgðir „realiserast“ í peningum sléttast þessi halli út
og það verður væntanlega á fyrstu mánuðum næsta árs“,
sagði borgarstjóri.
Opinn fundur
Alþýðubandalagsins
á Húsavík
Lýðræðið
og lífskjörin
Alþýðubandalagið efnir til opins
og almenns fundar á Húsavík sunn-
udaginn 9. október kl. 3 á Hótel
Húsavík. Fundarefni er lýðræðið,
llfskjörin og baráttan gegn ríkis-
stjórninni.
Frummælendur á fundinum eru
alþingismennirnir Helgi Seljan,
Steingrímur Sigfússon og Ólafur'
Ragnar Grímsson stjórnmálafræð-
ingur.
Að loknum framsögum gefst
fundarmönnum færi á að taka til
máls og leggja fram fyrirspurnir til
Steingríms, Helga og Ólafs Ragn-
ars.
Á borgarstjórnarfundinum var
upplýst að yfirdráttur á hlaupa-
! reikningi nr. 56 í Landsbankanum
I gæti orðið allt að 250 miljónir
j króna um áramótin. Tekið hefur
verið 84 miljón króna erlent vöru-
kaupalán auk 30 miljóna króna í
öðrum skammtímalánum. Rekstr-
argjöld borgarinnar munu fara 3-
4% fram úr áætlun sem jafngildir
um 60 miljónum króna en fram-
kvæmdafé stenst nokkurn veginn
áætlun vegna niðurskurðar. Fjár-
hagsstaða borgarinnar er því
jafnvel enn verri en dregið var upp
í Þjóðviljanum nú í vikunni.
Borgarstjóri sagði þó að vandinn
væri ekki svo alvarlegur sem virtist.
„Ástæðan er birgðasöfnun lóða,“
sagði hann. „Öll stjórn borgarinn-
ar er í góðu lagi. Fjárhagsstaða
hennar er góð og betri en annarra
sveitarfélaga. Hér er bersýnilega
um skammtímavandamál að ræða
sem eðlilegt er að viðskiptabanki
borgarinnar mæti og viðræður hafa
staðið um það.“
Sigurjón Pétursson benti á að
óskynsamleg birgðasöfnun, hvort
heldur væri í lóðum eða öðru,
mætti ekki reikna að fullu upp til
fjár.“ Ef þær 155 miljónir sem van-
greidd gatnagerðargjöld nema, eru
dregnar frá þessum tölum,“ sagði
Sigurjón, „stendur eftir fjárhags-
vandi sem nemur tveimur þriðju
hlutum af öllu framkvæmdafé
borgarinnar á þessu ári. Þetta eru
alvarlegar tölur ef réttar eru.“
12% af tekjum
Sigurjón Pétursson benti einnig
á að yfirdráttur á hlaupareikningi
hefði 1. október s.l. numið 12% af
tekjuáætlun borgarinnar, en til
samanburðar nam hann 8.8% 1.
ágúst árið 1978, 5.7% árið 1979 og
1.5% árið 1980. „Við tókum við
mjög erfiðri fjárhagsstöðu árið
1978“, sagði Sigurjón „og það tók
okkur fram til ársins 1980 að greiða
úr henni. Þessar upplýsingar eru
síðan þá, en ég hef gert ráðstafanir
til að fá þessa töflu framlengda til
áranna, 1981,1982 og 1983 þannig
að betri samanburður fáist.“
Kristján Benediktsson sagðist
vona að Landsbankinn hlypi undir
bagga með borginni, enda væri
svigrúm til niðurskurðar ekkert og
frekari lántökur hæpnar. „Ég neita
því þó ekki að það kemur mér
undarlega fyrir sjónir ef Lands-
bankinn treystir sér til að taka á sig
þessar byrðar nú“, sagði hann.
„Fyrir 2 árum vorum við sem þá
stjórnuðum borginni kallaðir yfir í
Landsbankann. Þá stefndi yfir-
drátturinn í 27 eða 28 miljónir.
Viðtökurnar voru ekki blíðar því
okkur var tilkynnt að Landsbank-
inn hefði ekki efni á að fjármagna
Reykjavíkurborg með þessum
hætti. Þeir gátu þó andað léttar því
um áramótin var skuldin komin
niður í 16 miljónir. Það kann að
vera að sú breyting hafi nú orðið
hjá Landsbankanum að hann
treýsti sér til að bjarga Reykjavík-
urborg um 300 miljónir nú um ára-
rnótin." _ÁI
Kennarar styöja
Áslaugu:
Áskoranir
streyma
til ráðherra
Kennarar I fjölmörgum
grunnskólum borgarinnar
tóku í gær undir áskoranir á
menntamálaráðhcrra um að
skipa Ásiaugu Brynjólfsdóttur
nú þegar í embætti fræðslu-
stjóra í Reykjavík. Voru
haldnir fundir í mörgum
skólum í gær og bárust Þjóð-
viljanum fregnir um áskoran-
ir frá kennarafélögum Brciða-
gerðisskóla, Olduselsskóla,
Breiðholtsskóla, Hlíðaskóla,
Árbæjarskóla, Fossvogsskóla,
Laugarnesskóla, Skóla ísaks
Jónssonar, Laugalækjar-
skóla, Seljaskóla og síðast en
ekki síst Álftamýrarskóla og
Hólabrekkuskóla. - ÁI
Opinn fundur
Alþýðubandalagsins
á Akureyri
Lýðræðið
og Iífskjörin
Alþýðubandalagið efnir til opins
og almenns fundar á Akureyri
sunnudaginn 9. októbern.k. Fund-
urinn verður haldinn á Hótel KEA
og hefst kl. 20.30 á sunnudags-
kvöldið kemur. Fundarefnið er
lýðræðið, lífskjörin og baráttan
gegn ríkisstjórninni.
Frummælendur á fundinum eru
Steingrímur Sigfússon alþingis-
maður og Ólafur Ragnar Grímsson
stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri er Sigríður Stefáns-
dóttir.
Að loknum framsögum gefst
fundarmönnum færi á að taka til
máls og léggja fram fyrirspurnir til
Steingríms og Ólafs Ragnars.
Hver hefur gerst sekur um vanrœkslu?
iGrjót úr glerhúsi
| segir Þorbjörn Broddason
! „Ef einhver hefur gerst sekur um'vanrækslu í starfi þá er það
i Ragnar Júlíusson, skólastjórinn hefur keyrt áfram og auglýst
j kennslu 5 ára barna í Álftamýrarskóla án þess að hafa til þess
i heimild frá sínum eigin ráðherra, nema þá í tveggja manna tali.“
Þetta sagði Þorbjörn Brodda-
son, fulltrúi í fræðsluráði í gær en
árásir skólastjórans á borgar-
stjórnarfundi s.l. fimmtudag á
Áslaugu Brynjólfsdótturfræðslu-
stjóra, hafa vakið mikla athygli.
„Ragnar er væntanlega búinn að
reka á eftir þessu í ráðuneytinu,“
sagði Þorbjörn, „og mér er kunn-
ugt um að það hefur Áslaug
margoft gert. Henni hefur hins
vegar ekki tekist að fá svar og það
er fráleitt að nota vettvang eins
og borgarstjórnarfund til að saka
hana um vanrækslu í starfi vegna
þessa máls.“
Það var Gerður Steinþórsdótt-
ir, sem spurði á borgarstjórnar-
fundinum hvort leyfið fyrir 5 ára
deildinni væri komið. Brást
Ragnar hart við gagnrýni hennar
á slælegan undirbúning og fljót-
færni varðandi deildina og réðst
að fræðslustjóra, sem auðvitað
var ekki á fundinum. Veifaði
hann máli sínu til stuðnings
tveimur bréfum frá fræðslustjóra
til menntamálaráðuneytisins,
öðru varðandi flutning á deild
fyrir blinda, hina um stofnun 5
ára deildarinnar. Fyrra bréfinu
lýkur á orðunum: „Óskað er
staðfestingar ráðuneytisins", en í
hinu er samþykkt meirihluta
fræðsluráðs rakin en í henni
segir: „Óskað er heimildar ráðu-
neytisins til þessarar tilraunar."
Þótti Ragnari sem hér væri mikill
eðlismunur á og greinilegt að
fræðslustjóri vildi framgang
síðari málsins sem minnstan.
Borgarfulltrúar minnihlutans,
Adda Bára Sigfúsdóttir, Gerður
Steinþórsdóttir, Guðrún Ágústs-
dóttir og Guðrún Jónsdóttir,
brugðu við hart og skoruðu á
forseta borgarstjórnar, borgar-
stjóra eða þá borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins „sem ein-
hverja sómatilfinningu hafa“ að
biðja afsökunar á þessum um-
mælum. Enginn hreyfði þó legg
né lið í þeim herbúðum og sagði
Markús Örn Antonsson og hann
sæi ekki betur en í bréfunum væri
kannski komin skýring á þeim
drætti sem orðið hefði á staðfest-
ingu 5 ára deildarinnar. Það væri
ekki undarlegt að ráðuneytis-
menn túlkuðu bréf fræðslustjóra
sem svo að hún væri andvíg
deildinni eða vildi að minnsta
kosti ekki taka afstöðu í málinu!
-ÁI
kassettur
Gœði og verð
sem koma á óvart!
Sjúkraliðaskóli
íslands
Umsóknareyðublöð um skólavist í janúar
1984 liggja frammi á skrifstofu skólans að
Suðurlandsbraut 6, 4. hæð frá kl. 10-12 til
loka umsóknarfrests 25. nóvember nk.
Skólastjóri.
Stjórn Eftirlaunasjóðs
Sláturfélags Suðurlands
hefur ákveðiö að verða við tilmælum stjórnvalda um,
að lífeyrissjóðir heimili lántakendum að fresta hluta af
árgreiðslum verðtryggðra lána frá sjóðunum.
Eftirlaunasjóður S.S. mun heimila þeim lántakendum,
sem um það sækja og uppfylla sett skilyrði, að fresta
allt að 25% af heildarárgreiðslu, sem í gjalddaga fellur
1. nóvember n.k. Lánstíminn lengist þá sem nemur
einu tímabili, og sá hluti, sem frestað er, greiðist í lok
þess tímabils.
Umsóknarfrestur um ofangreinda frestun er til 25.
október 1983. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
sjóðsins.
Eftirlaunasjóður
Sláturfélags Suðurlands
Frakkastíg 1, Reykjavík.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Elís Bjarnasonar
Kristrún Guðnadóttir
Ólína Elísdóttir Guðmundur Elis Magnússon
Elisabet Birna Elísdóttir Jóhann Sigurðsson
Svanur Elísson Anna Margrét Jóhannsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Jóhönnu Bjarnadóttur
frá Ásgarði.
Salbjörg Magnúsdóttir Ethelen Magnússon
Jóhanna K. Magnúsdóttir Ingvar Hallgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.